Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 8

Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 8
morgunb4AÐ^1PAQBQK-^,MN(4I^^R-í;4.hA^íl 1991 §__________________________________________________ * 1T\ A /^er surmudagur 14. apríl, 2._sd. eftir páska. 104. dagur ársins 1991. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 5.58 ogsíðdegisflóð kl. 18.16. FjarakL 12.08. Sólarupprás í Rvík kl. 6.01 og sólarlag kl. 20.57. Myrkur kl. 21.52. Sóliner í hádegisstaðí Rvík kl. 13.28 ogtunglið í suðri kl. 13.07. (Almanak Háskóla íslands.) Sá sem færir þakkargjörð að fórn, heiðrar mig og þann sem breytir grandvarlega, vil ég láta sjá hjálpræði Guðs. (Sálm. 50, 23.) árKiað heilla apríl, er níræð Kristín Mar- grét Jósefína Björnsson frá Gauksmýri í Línakradal, V-Hún. Hún tekur á móti gestum í dag, sunnudag, í safnaðarheimili Langholts- kirkju kl. 16-18. /~Vára afmæli. Þriðjudag, O vf 16. þ.m., er sextugur Guðmundur Jónsson, Þver- brekku 4, Kópavogi. Hann er Skagfirðingur, frá Ytri- Húsabakka. Lengst af starf- aði hann hjá SVR. í mötu- neytinu, í bækistöð SVR við Borgartún, ætlar hann að taka á móti gestum, kl. 16—19 á afmælisdaginn. Q/Aára afmæli. Í dag, 14. í/U apríl er níræð Ólöf Ketilbjarnardóttir Baldurs- götu 16, Rvík. Eiginmaður hennar var Indriði Halldórs- son múrari. Hann lést á síðasta ári 1990. Hún tekur á móti gestum í Templarahöll- inni við Eiríksgötu eftir kl. 16 í dag, afmælisdaginn. þ.m., er fimmtugur Sigurður Kristjánsson kaupfélags- stjóri á Selfossi. Hann tekur á móti gestum á afmælisdag- inn á Hótel Selfossi þar í bænum kl. 18—22. LÁRÉTT: — 1 hökutopp, 5 bleytan, 8 þung, 9 bjarta, 11 hékk, 14 stórfljót, 15 beinið, 16 fískir, 17 greinir, 19 tungl, 21 trylltan, 22 mannsnafn, 25 beita, 26 eldstæði, 27 gyðja. LÓÐRÉTT: — 2 leiðan sið, 3 mergð, 4 nábúi, 5 skekkjan, 6 þjóta, 7 hagnað, 9 gutla, 10 hyggjan, 12 baðst um, 13 eftirsjáin, 18 örlagagyðja, 20 greinir, 21 kvæði, 23 lést, 24 greinir. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 leysa, 5 auðga, 8 ógeðs, 9 iðjan, 11 fasta, 14 aka, 15 lærir, 16 lerki, 17 sel, 19 öxin, 21 enda, 22 nátengd, 25 dóu, 26 ána, 27 iðn. LÓÐRÉTT: — 2 eið, 3 sóa, 4 Agnars, 5 aðfall, 6 USA, 7 get, 9 illköld, 10 jáminu, 12 særandi, 13 aðilann, 18 Ed- en, 20 ná, 21 eg, 23 tá, 24 Na. Rugluð eða afrugluð , GtAUMD Ég man að einhver sagði: „Denni er hættur í pólitík.“ — Og annar sem sagði: „Verst hvað hann Denni er farinn að drekka mikið.“ En ég er búinn að steingleyma á hvorn staðinn mér var ráðlagt að fara fyrst. FRÉTTIR/MANNAMÓT RÁÐUNEYTISSTJÓRI. í nýju Lögbirtingablaði er sleg- ið upp lausu til umsóknar embætti ráðuneytissljóra fj ár málar áð u ney tisins. Embættið veitir forsetinn og verður það veitt frá 1. júní nk. Umsóknarfrestur um embættið, sem fjármálaráðu- neytið auglýsir, er settur til 29. þ.m. NORÐURBRÚN 1, félags- starf aldraðra. Mánudagur: Böðun kl. 8.30, smíði kl. 9. Kl. 10 lestur framhaldssög- unnar. Kl. 13 bókaútlán, fóta- aðgerðir, leikfimi, leirmuna- gerð, smíði og hannyrðir. Enska kl. 14. Kaffitími kl. 15. Dalbrautarheimilið. Kynning sumarleyfisferða og danssýning. Barnadeild Heilsuverndar- stöðvarinnar við Barónstíg. Næstkomandi þriðjudag er opið hús fyrir foreldra ungra barna, kl. 15—16. Verður þá fjallað um hlutverk feðra. KRISTILEGT félag heil- brigðisstétta. Opinn fundur verður haldinn í Safnaðar- heimili Laugameskirkju mánudagskvöldið kl. 20.30. Séra Jón Bjarman sjúkra- húsprestur flytur erindi um þjáninguna. Eirný Ásgeirs- dóttur kirkjuvörður flytur hugvekju. Systurnar Hildur, Kristín og Rúna syngja þrísöng. Fundurinn er öllum opinn. „STYRKUR“ - samtök krabbameinssjúklinga og að- standenda þeirra hefur opið hús í húsi Krabbameinsfé- lagsins á þriðjudagskvöldið kemur kl. 20.30. Helgi Sig- urðsson krabbameinslækn- ir flytur erindi sem hann nefnir Má koma í veg fyrir krabbamein. Fundurinn er fyrir félagsmenn og gesti þeirra. Kaffiveitingar verða. KVENNADEILD SVFÍ í Rvík beidur afmælisfund sinn nk. fimmtudag 18. þ.m. í veit- ingahúsinu Básinn, Efsta- Jandi í Ölfusi. Þangað verður farið með rútu, sem leggur af stað frá Búnaðarbankan- um á Hlemmi kl. 18.30. En fundurinn hefst með borð- haldi. Nánari uppl. veita þær Þorgerður, s. 37115, eða Eygió, s. 31241. KVENFÉL. Breiðholts heldur fund þriðjudagskvöldið í Breiðholtskirkju kl. 20.30. Gestur fundarins verður Jón Snædal læknir, sem flytur erindi um heilabilun. Kaffi verður borið fram. KVENFÉL. Kópavogs held- ur vinnufund mánudagskvöld í herbergi félagsins kl. 20. Unnið við ungbarnafatnað fyrir Rauða krossinn. HAFNARFJÖRÐUR. Krabbameinsfél. Hafnar- fjarðar heldur aðalfund þriðjudagskvöldið kemur kl. 20.30 í safnaðarheimili Vfði- staðakirkju. Nanna K. Sig- urðardóttir félagsráðgjafi flytur erindi um félagsleg áhrif sjúkdómsins á nánustu aðstandendur. — Kaffíveit- ingar. GRINDAVÍK. í tilk. í Lög- birtingablaðinu frá bæjar- stjóranum í Grindavík og skipulagsstjóra ríkisins hefur verið lögð fram tillaga að við- auka við aðalskipulag bæjar- ins fyrir árin 1990-2010. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir heilsubaðsvæði vestan fjallsins Þorbjarnar, ennfremur nýju íbúðar- hverfi vestan Víkurbrautar og norðan Vellahverfis. Er lýst eftir athugasemdum og Iiggur tillagan frammi til 3. maí nk. í bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar. KIRKJUSTARF ÁRBÆJARKIRKJA: Öpíð hús fyrir aldraða í safnaðar- heimilinu miðvikudag kl. 13.30. Þjónusta við aldraða samkvæmt venju. Mæður og feður ungra bama í Ártúns- holti og Árbæ. Opið hús í safnaðarheimili Árbæjar- kirkju þriðjudag kl. 10—12. Anna K. Jónsdóttir fjallar um dagvistunarmál. BÚSTAÐAKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í dag, sunnudag, kl. 17. GRENSÁSKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. NESKIRKJA: Æskulýðs- starf unglinga mánudags- kvöld kl. 20. Þriðjudag: Mömmumorgunn. Opið hús fyrir mæður og börn þeirra kl. 10—12. Ragnheiður Ólafs- dóttir'kynnir samtök heima- vinnandi fólks. Æskulýðs- starf 12 ára og yngri kl. 17. FELLA- OG HÓLA- KIRKJA: Fundur í Æsku- lýðsfélaginu mánudagskvöld kl. 20.30. Fyrirbænir í kirkj- unni þriðjudaga kl. 14. SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur KFUK, yngri deild, kl. 17.30, eldri deild kl. 18. Æskulýðsfundur kl. 20. SELTJARNARNES- KIRKJA: Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20.30. Opið hús fyr- ir 10—12 ára mánudag kl. 17. SKIPIIM REYKJAVÍKURHÖFN. í gær var Stakkavík væntan- leg inn til löndunar og Viðey væntanleg úr söluferð. Þá er Laxfoss væntanlegur að utan mánudag, og togarinn Vest- mannaey væntanlegur inn til löndunar. Og nú um helgina kemur Stapafell af strönd- inni. Að utan er leiguskipið Niðarós væntanlegt og rússneskt olíuskip með farm. ORÐABOKIN Oöryggi — öryggis- leysi Svo virðist sem no. óöryggi sé komið allvel á veg með að byggja no. öryggisleysi úr málinu. Vitaskuld verður ekki allt- af að því fundið, þótt menn tali um óöryggi manns eða, að hann sé óöruggur um sín mál. Hins vegar fer oft illa á því að skipta á þessum orðum og svo aftur no. öryggisleysi. Ýmsir hafa líka minnzt á það við mig, að þeim finnist vera mun- ur á notkun þessara orða og þeir geti þess vegna engan veginn fellt sig við no. óöryggi. Árni Böðv- arsson hefur bent á það í bók sinni, Málfar í fjöl- . miðlum, að mjög illa fari á því, að tvö sérhljóð komi hér saman. Eins bætir ekki úr skák, að tvö for- skeyti lenda saman, ó- og ör-. Kemur Áma hér helzt í hug sú samlíking, að menn færu að tala um óandstæðing. Sem betur fer þekkist það orð nú ekki í málinu. Hér em svo fáein dæmi. í DV 8. sept. sl. mátti lesa þetta: „Þetta er auðvitað óskaplegt álag á alla aðila og hræðilegt óöryggi“. Oryggisleysi hefði farið miklu betur á þessum stað. Þá heyrði ég arkitekt eitt sinn kom- ast svo að orði í samtali í RÚV um Kvosina í Reykjavík: „Þá var alltaf þetta óöryggi, hvað yrði um húsin.“ I þessu tilviki hefði no. óvissa að mínum dómi farið bezt. JAJ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.