Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 19

Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1991 19 Sundurlaus- ar æfingar Bókmenxitlr Ingi Bogi Bogason Arni Sigurjónsson: Skólaljóð. 1990. Hálfkæringi, kerskni og vissri léttúð andar frá síðum þessarar ósamstæðu ljóðabókar. Svo virðist sem hér sé um að ræða samsafn tækifærisvísna sem eru ólíkar að gerð en eiga þó margar sameigin- legt að vera rímaðar. Bókinni er skipt í nokkra hluta sem allir bera heiti þeirra borga þar sem ljóðin urðu til, s.s. Reykjavík, Stokkhólmi og Lúxembúrg. Sum þeirra fela í sér smellin samanburð heimalands við útlönd, (sjá útlönd farsælda frón, spurt hefég og fúrst- enberg). Önnur ljóð eru varla annað en hljóðfallsæfingar, sbr. efð sem hefst svo: ef að efð efði efast ef að enni enn efði enst ó að æ ævi arði ynni /.../ Sjálfur gerir höfundur hóflega grein fyrir kveðskap sínum á baks- íðu og segir m.a. að „margt af því sem nú ér í felum megi svosem alveg vera það áfram og þurfi ekki endilega að koma úr felum“. Það er freistandi að taka undir þetta að hluta. Stundum gengur Árni fulllangt í að leggja á herðar les- andans einhvers konar prívatbrand- ara, t.a.m. athugasemdir á bls. 20 og sjónarhorn á bls. 36. Heiti ljóðabókarinnar er umhugs- unarvert. Það má skilja tvennum skilningi. Tilgangur höfundar getur verið sá að tefla fram ljóðum sem „skóli“ menn til „ljóða", séu fyrir- myndir að því hvemig yrkja skuli. Hinn skilningurinn, sem ég hallast fremur að, er sá að höfundur hafi hér safnað saman ljóðum úr námi við eigin „ljóðaskóla". Bókin sé því samsafn tilrauna í yrkingum. I lokin skal minnst á þau ljóð sem skilja eftir sætasta keiminn í huga þessa lesara. Um er að ræða geð- þekkar náttúru- og andartaks- stemmningar eins og úti, október og næturljóð. Hið síðastnefnda er svo: svefn lát hvarmana kyssa þinn kalda og slökkvandi fingur skjól þeim sem geta ekki gleymt mér lötum finnst dagamir langir leiðist andvöku martröð i ljóssins ríki er reimt svefn mér ungum þú unnir ylsins af framtíðarvonum í rökkrinu var mér rótt auðævi mannanna aukast örbirgðin vex þó hraðar flý nákalda nótt Leiðrétting í ritdómi mínum í Mbl. 23. jan- úar sl. um Uml II eftir Þorgeir Þorgeirson misritaðist nafn höfund- ar. Er hann hér með beðinn velvirð- ingar á því. — IBB _____________Brids___________________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Breiðfirðinga Staðan eftir 41 umferð (loka- staðan): Sveinn Sigurgeirss. - Hallgr. Hallgnmss. 619 Jón V. Jónmundss. — Aðalbjörn Benediktss.414 Helgi Gunnarss.—Jóhannes Sigmarss. 372 Guðmundur Karlss. — Karl Jóhannss. 339 Þórður Jónsson — Gunnar Karlsson 337 Sveinn Þorvaldss. - Bjami Jónsson 326 Magnús Halldórss. — Magnús Oddss. 324 Elvar Guðmundss. — Marinó Kristinss. 290 Albert Þorsteinss. - Kristófer Magnúss. 249 AnnaÞóra-RagnarHermannsson 244 Hannes Jónsson - Jón Ingi Björnss. 241 Jörundur Þórðarson - Páll Bergss. 236 Næsta keppni og sú síðasta á spilaárinu verður 3ja kvölda Butler. Þú svalar lestrarþörf dagsins _ ásíöum Moggans! alpen kreuzer tjaldvagnar 5 gerðir, 2ja - 8 manna, á frábæru verði. alpen kreuzer umboðið, Skipholti25, 105 Reykjavík. Uppl. ísíma 629990. Námskeið í reiki - heilun Kynningarfundur Á reikinámskeiði er þér hjálpað til að opna fyrir eiginleika, sem við búum öll yfir, þ.e. að geta nýtt þá orku, sem við höfum aðgang að fyrir okkur sjálf og aðra. Reiki hjálpar þér í baráttu þinni við streitu og sjúkdóma. Námskeið verða í Reykjavík helgina 20.-21. apríl. Einnig verður kvöldnámskeið dagana 22.-24. apríl. 2. stig í Reykjavík 14.-16 maí nk. Kynningarfundur verður á Hótel Lind við Rauðarárstíg miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.30. Þar verða kynntir tveir nýir íslenskir reikimeistarar. Upplýsingar f síma 33934 milli kl. 10 og 12 á morgnana. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. ! TAKMARKAÐUR FJÖLDI KEMST AÐ D ( Ó JÓNÍNU & AGÚSTU Skeifan 7, 108 Reykjavík, S. 689868 STIFT FITUBRENNSLU-NAMSKEIÐ . •"!"■■■ '■iW.gL. —- SEM SKILAR HEFST 18. APRÍL • Fitumæling og vigtun. • Matarlistar og ráðgjöf. • Fyrirlestrar um megrun og mataræði. • Þjálfun og hreyfing 5 sinnum í viku. • Viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins með skráðum árangri. Sú sem missir flest kíló fær frítt mánaðarkort hjá Jóninu og Ágústu. Eina varanlega leiðin að lækkaðri líkamsþyngd er aukin hreyfing og rétt mataræði. Við hjálpum þér að brenna fitu og kennum hvernig á að halda henni frá fyrir fullt og allt. Okkar metnaður er þinn árangur. LÁTIÐ SKRÁ YKKUR STRAX SIMI 68 98 68 ' -r- r -' - Jgv GOTT FÓLK/SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.