Morgunblaðið - 14.04.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 14.04.1991, Síða 20
 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRIL 1991 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDÁGUR 14.' APRÍL 1991 21 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmjr Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Kúrdar Kúrdum er að blæða út í írak. Það er óhugnanlegt að fylgj- ast með fréttum af því, hvemig þeim hernaðarmætti, sem eftir er í Irak, er beitt gegn þessu fólki. Sam- vizkan nagar íbúa Vesturlanda. Að vísu heyrist ekkert í þeim, sem mest höfðu sig í frammi gegn hern- aðaraðgerðum bandamanna í Persaflóastríðinu. Það heyrðist heldur ekkert í þeim, þegar Irakar hertóku Kúveit. Hvað veldur? Hvers vegna horfum við alltaf upp á þetta tvöfalda siðgæði? Samúðin er einatt afstæð, mannúðin af pólitískum rótum runnin. Það sýnir sig æ oní æ. Kúrdar segjast hafa tekið upp hemað gegn Iraksstjóm vegna áskomnar Bush, Bandaríkjaforseta, til almennings í landinu um að_ rísa upp gegn Saddam Hussein. í því felst, að þeir hafi vænzt stuðnings Bandaríkjamanna. Fyrir 35 árum risu Ungveijar upp gegn komm- únískri kúgunarstjórn. Yfirlýsingar ráðamanna á Vesturlöndum höfðu kveikt hjá þeim vonir um hernaðar- legan stuðning. Hann kom aldrei og uppreisn Ungverja var barin nið- ur í krafti sovézkra skriðdreka. En ákall þeirra til Vesturlanda um hjálp, sem aldrei kom var átakan- legt. Kúrdar hafa ]engi átt í-stríði við yfirvöld í írak. Átökin á milli þeirra og Saddams Husseins nú eru fram- hald af því stríði. Þeir hafa áreiðan- lega gert sér vonir um, að nú yrði þeim hjálpað til þess að hrekja ír- aksforseta frá völdum. En hversu langt geta Vesturlönd gengið í því að blanda sér í grimmdarlegar deil- ur þjóða og þjóðarbrota í þessum heimshluta? Reynslan af því, að vestrænar þjóðir skipti sér af deilum þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs er misjöfn. Margir telja rætur átakanna, sem þar hafa geisað undanfarna áratugi liggja í afskiptum Vesturlandaþjóða af málefnum þessa heimshluta fyrr á öldinni. Það er vafalaust ein af ástæðum þess, að Bandaríkjamenn hafa farið sér hægt þrátt fyrir hina hryllilegu atburði í norðurhéruðum íraks. Með sama hætti og Sameinuðu þjóðirnar urðu samnefnari þeirra aðgerða, _ sem efnt var til vegna hertöku íraka á Kúveit, er af eðli- legum ástæðum spurt, hvort þessi alþjóðasamtök geti ekki látið til sín taka til þess að koma í veg fyrir þjóðarmorðið á Kúrdum. Það er heldur ekki óeðlilegt, þótt spurt sé, hvort nágrannaþjóðir Iraka geti lát- ið, sem þessir atburðir séu ekki að gerast í námunda við þá. Þrátt fyr- ir allt sýnast þessar þjóðir eiga ákaflega erfitt með að takast á við vandamál sín án afskipta annarra. Það þarf einhvers konar lögreglu- vald að vera til, svo að hægt sé að koma í veg fyrir hroðaverk af þessu tagi. Kúrdar eru drepnir með vopn- um, sem Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar og Sovétmenn og fleiri hafa selt Irökum og hagnast á þeirri sölu. Er ekki kominn tími til, að þessar stórþjóðir endurskoði af- stÖðu sína til voþnasölu til þeirra þjóða, sem aldrei geta búið í friði hver við aðra? En hvað sem líður stjórnmáladeil- um í þessum heimshluta geta hinar ríku þjóðir Vesturlanda ekki horft fram hjá neyð Kúrdanna. Þá vantar mat, föt og húsaskjól. Við íslend- ingar eigum að leggja eitthvað af mörkum til þess hjálparstarfs. Við eigum ekki að gleyma þeim þótt þeir eigi ekki neina pólitíska sam- viskufulltrúa hér á landi. I 1 Of^ MARGT -1- O • lýðræðis- jafnaðarstefnu er mikil- vægt og til fyrirmyndar og því hef ég aldrei glaðzt yfír erfiðleikum krata. Margir jafnaðarmenn eru frjálshyggjumenn og margir sjálfstæi menn einhverskonar hægrikratar. Jón Bald- vin var svo harður frjálshyggjumaður í AI- þýðublaðsleiðurum á sínum tíma að margir sjálfstæðismenn veifuðu þeim framaní okk- ur ritstjóra Morgunblaðsins og sögðu, Svona á að skrifa leiðara! En eitthvað er Jón far- inn að digna. aftur í trúnni, við erum að- minnstakosti ekki skammaðir lengur með tilvísun í formann Alþýðuflokksins. Framsóknarmenn hafa reynt að vefa stefnu sína inní íslenzkan veruleika en lent í klandri vegna fólksflótta úr sveitum og hagsmunaárekstra við dugmikla millistétt sem hefur meiri áhuga á borgaralegum arfi og einstaklingshyggju en samvinnu- stefnu undir fámennisstjórn. Nú stefnir aft- urámóti í fámenniseign á hlutafjármarkaðn- um og miðunum og það er rangt ef einhver heldur Sjálfstæðisflokkurinn hafl verið stofnaður um slíka einokun. Gömul kjörorð einsog eign handa öllum, en ekki eign handa fáum, eru í fullu gildi. Sumt hefur verið athyglisvert í boðskap framsóknarmanna um félagslegt átak I verzlun og viðskiptum; jafnvel í anda Jóns forseta. En einstaklingurinn hefur aldrei verið sá miðpunktur í framkvæmd þessarar hugsjónar sem fullnægir einstaklingsþörf- um Islendingsins. Því hefur fortíðarhyggja Framsóknar- flokksins átt erfitt uppdráttar í deiglu nýrr- ar heimssýnar; svo mikil breyting sem hef- ur orðið á lífsviðhorfi þjóðarinnar. Þjóðleg íhaldssemi Alþýðubandalagsins er í senn tímaskekkja og heillandi draumór- ar en þó harla ólíkir evrópskum hugsjónum Fjölnismanna á sínum tlma. En það er draugagangurinn í afskekktu húsi Alþýðu- bandalagsins sem margir forðast af eðlileg- um ástæðum. Jafnvel Gorbatsjov reynir að gera upp við gamlar kreddur þótt hann sé flæktur I fortíðina. Hann telur markaðurinn sé ávöxt- ur siðmenníngar og mér er nær að halda Þórbergur hefði talið slíkur kommúnisti ætti við persónuieikatruflun að stríða. Sjálfstæðisflokknum hefur tekizt skap- legast að samræma stefnu sína íslenzkri hugsun og hugmyndum okkar um rúmgott þjóðfélag. Hann er ekki fastur í flókin kerfi og gamlar þjóðfélagskreddur. Þessi fjöl- mennu samtök eiga sér verðugan talsmann I Davíð Oddssyni sem kemur oftarenekki á óvart með óvæntum hugmyndum og um- mælum, tilaðmynda um EB og þjóðarat- kvæðagreiðslu, kvótann og nauðsyn þess „að tryggja virkni lagaákvæðisins um að fiskimiðin umhverfis ísland eru sameign íslensku þjóðarinnar", og kjör launafðlks. Formaður Sjálfstæðisflokksins varpar fram hugmyndum áðuren hann festist í niður- stöður. Það er lofsvert og uppörvandi á þessum fullyrðingasömu en óábyrgu tímum. Þetta hlýtur að vera mörgum gleðiefni því HELGI spjall ðis- og ht hvaðsem öðru líður, þá hef- ur hálf þjóðin fengið útrás í sjálfstæðisstefnunni fyrir þjóðræknishugmyndir sínar, einstaklingsviðhorf og pólitíska draumsýn. Sjálfstæðisflokkurinn er og hefur verið flokkur allra stétta og á að gæta þess vandlega að glata ekki því mikil- væga hlutverki. Stéttaflokkar eiga enga framtíð fyrir sér. Flokkurinn þarf umfram allt á að halda til forystu fólki úr öllum stéttum; ekki kar- akterlausum samnefnurum eða einsfólki, heldur fólki úr ólíkum jarðvegi; með ólíka menntun, fjölbreytt viðhorf. Svona stór samtök þurfa góða pólitíska loftræstingu. Þau þurfa sterka og litríka forystumenp sem geta verið einskonar farvegur fyrir óánægju og andstöðu; hégómalausa menn og tilfinn- ingaríka einsog Pétur Ottesen á nýsköpun- arárunum þegar nokkur hluti sjálfstæðis- manna þoldi illa samstarf við sósíalista. Pétur sóttist aldrei eftir ráðherradómi en var þó áhrifameiri en flestir ráðherrar og átti óskorað traust og vináttu Ólafs Thors. Aðrir hafa einnig gegnt þessu mikilvæga hlutverki fyrrogsíðar í sögu flokksins og verið einskonar öryggisventlar á örlaga- stundum án þess allt ætlaði um koll að keyra eða flokkurinn rifnaði frá rótum. Átök um málefni eru ávallt mikilvægari en annað í stjórnmálum. Sjálfstæðismenn treysta á örvandi þátt einstaklingsins í þróun og þjóðfélagsmótun, framkvæmdahug hans og útsjónarsemi. Stefna þeirra er holdgerð ! trillukarlinum þegar hann siglir I höfn með fullfermi af fallegum fiski og gargandi máva í kjölfari; frelsi undir guðsbláum himni; skáldleg við- bót við taktbundna hrynjandi hafsins, at- höfn þörf; í senn yndi og áskorun; fegurðin sjálf. Og því sönn samkvæmt nútímavísind- um. 1 Oíí ÞÓTT KVENNALISTINN -I.O\J»hafi leyst pólitískan áhuga konunnar úr læðingi og sumt sé gott um hann og störf hans verður hinu ekki neitað að þröng kvennapólitík er ekki ferskasti þáttur islenzkra.stjórnmála nú um stundir; hætt við tilhneiging til forsjárhyggju verði þessum samtökum fjötur um fót, svo mikla áherzlu sem almenningur — og þá ekkisízt ungt fólk — virðist nú leggja á hraða þróun og breyttar aðstæður sem kalla á endalaust frelsi og engar refjar. Aukin krafa um umhverfisvemd virðist t.ilaðmynda ekki draga úr áhuga á stóriðju, einsog rekstri álvers. Konur hafa ekki allar eina skoðun á neinu máli, ekki frekaren karlar. Og þær eiga oftaren ekki f samkeppni sín á milli. En í jafnréttismálum eru þær í einum og sama báti og því ekki óeðliiegt sumar þeirra telji samstarf á vettvangi Kvennalistans nauð- synlegt meðan konur sitja ekki hvarvetna við sama borð og karlar. Kvennapólitík á íslandi hefur verið ágæt landkynning, en þykir ekki eins sérstæð og áður. Auk þess kallar þátttaka I landsmálapólitík á afstöðu f öllum málum og f þeim efnum á Kvenna- listinn oft um sárt að binda. Ef marka má skoðanakannanir á hann heldur efitt upp- dráttar. Það fer tilaðmynda ekki eftir kyn- ferði hvort menn styðja aðild að EB eða kvótakerfi. En í mannúðarmálum er afstaða kvennalistakvenna oft til fyrirmyndar og nægir að minna á sannfærandi áhuga á fangelsismálum einsog hann birtist f mál- efnalegum og velhugsuðum tillöguflutningi á Alþingi, lausum við sýndarmennsku að- skiljanlegra hulduheqa. Hér mætti vel minna á það sem sagt hefur verið sem alvarleg fyndni, Konur sem vilja vera jafningjar karla skortir metnað(I) Ekki er þetta nú alveg útí bláinn þegar við hugsum um mótun og uppeldi æskunnar. En hvílík fásinna er það þá ekki, þegar reynt er að koma í veg fyrir konur fái sömu laun fyrir sömu vinnu og karlar. Eða þá þegar talað er um illa launuð kvennastörf — að það skuli styðjast við blákaldan veru- leika, það er óþolandi. Ekkisízt fyrir karl- menn sem trúa því lýðræði sé réttlátt að þessu leyti einsog náttúran; haginn gerir engan greinarmun á hrút eða hryssu; þar standa þau jafnt að vígi. 1 07 ÞAÐ ER EKKI EINS- A I »dæmi að Þuríður gleymist á bak við Pétur, segir gamall skagfirzkur bóndi í ágætu bréfi til mín nýlega. Samt er konan húsbóndinn i Njálu og hreyfir söguna að sínum vilja. Þannig hafa konur ævinlega haft meiri áhrif hérlendis en ann- ars staðar. Grímur Thomsen hefur ritað mikla grein um yfirburði íslenzkra kvenna í fornum sögum yfir kynsystur þeirra í grískum harmleikjum einsog ég hef áður nefnt. En þrátt fyrir lögvernduð mannrétt- indi er einatt gengið á hlut konunnar og þá í skjóli fordóma sem fjallað er um af heilum sársauka í skáldsögu Wiliu Cathers, 0 Pi- oneers, en þar minnir aðalsöguhetjan, Alex- andra, á ýmsar þær konur sem við þekkjum úr umhverfi okkar. Hvaða kona skyldi tilað- mynda ekki þekkja fordómana í tíunda kapítula annars hluta sögunnar sem lýsir því hvemig karlmennirnir telja sér skylt að lifa fyrir þessa eftirminnilegu konu þarna á sléttunni við Ómaha — og samt ber hún af þeim einsog gull af eiri. Karlmenn voru henni engin sérstök freisting. Þeir voru samverkamenn að safna í komhlöður. Vandi Alexöndru er annað fólk og hefð- bundin afstaða þess, en ekki endilega þjóð- félagslegt ranglæti. Og hann leysist í sög- unni, eða öllu heldur: hún leysir hann sjálf, með sársauka aðvísu. Kvennapólitískur vandi okkar hefur einnig að miklu leyti verið hugarfarið. Hann leysist með hugar- farsbreytingu og hún hefur átt sér stað. Því er afturámóti ekki fyrir að fara í um- hverfi Katrínar í Washington Square eftir Henry James, þarsem faðirinn telur sig eiga að hafa öll ráð dótturinnar í hendi sér. Við þekkjum það einnig í íslendinga sögum eins- ' og lífinu sjálfu. En það eru ár og aldir milli Katrínar og þeirra ungu kvenna sem nú bijótast áfram uppá eigin spýtur og að eigin geðþótta. M. (mcira næsta sunnudag.) ÞAÐ sem AF ER, HEF- ur kosningabaráttan fyrir alþingiskosning- arnar, sem fram fara eftir viku, valdið von- brigðum. Fyrir nokkrum mánuðum var stundum haft á orði, að þetta yrðu einhverjar mikil- vægustu þingkosningar í sögu lýðveldis- ins. Ástæðan var sögð sú, að svo mörg veigamikil málefni biðu úrlausnar á næstu árum, að þessar kosningar mundu marka stefnuna í þjóðmálum fram til aldamóta. Þær ákvarðanir, sem teknar yrðu á grund- velli þessara kosninga, gætu haft áhrif á líf fólksins í landinu langt fram á næstu öld. Því miður stendur kosningabaráttan ekki undir þessum væntingum manna. Búizt hafði verið við, að fram mundu fara málefnalegar umræður um afstöðu okkar íslendinga til þátttöku í samstarfi Evrópu- ríkja. Þá hafði einnig verið gert ráð fyrir því, að miklar umræður mundu fara fram um fiskveiðistefnuna og einnig um fram- hald þjóðarsáttar og næstu skref í því að viðhalda þeim árangri, sem náðst hefur í. verðbólgubaráttunni. Sumir voru jafnvel svo bjartsýnir að telja, að í kosningabarátt- unni yrði fjallað um það, hvernig stjórn- málaflokkarnir hugsi sér að ná tökum á útþenslu ríkisútgjalda. Ekkert af þessu hefur gerzt. Engar efn- islegar umræður, sem máli skipta, hafa farið fram um þessi veigamiklu málefni. Það er nú þegar ljóst, að stjórnmálaflokk- arnir fá ekki i þessum kosningum umboð til eins eða neins í málefnalegu tilliti frá kjósendum af þeirri einföldu ástæðu, að þeir hafa ekki farið fram á slíkt umboð. Kosningabaráttan hefur að vísu ein- kennzt að verulegu leyti af umræðum um tengsl okkar við Evrópubandalagið. En þar hefur ekki verið um að ræða málefnalegar umræður á vettvangi hinnar upplýstu þjóð- ar um þetta mikiisverða mál, heldur ómerkilegt dægurþras. Það hefur markast af því, að Framsóknarmenn hafa sagt: Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur ætla með Island inn í EB og frambjóðendur þessara tveggja flokka hafa mátt hafa sig alla við að hafna þessum fullyrðingum Framsóknarmanna. Framsóknarmenn hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi áróður væri vænleg- astur til árangurs í kosningabaráttunni og tæpast fer á milli mála, að frambjóðendur Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks a.m.k. á landsbyggðinni telja, að með þessum áróðri hafi Framsóknarmenn náð vissri sóknarstöðu gagnvart þeim, þótt ljóst sé, að hvorugur flokkurinn hefur sagt annað en að þeir vilji ekki útiloka aðild íslands að bandalaginu einhvern tíma í fram- tíðinni. Það er ein af mörgun þverstæðum í íslenzkum stjórnmálaumræðum, að þær skoðanakannanir, sem hingað til hafa far- ið fram um afstöðu fólks til Evrópubanda- lagsins, hafa bent til ótrúlega mikils fylg- is við aðild að bandalaginu, ekki sízt með- al ungs fólks. Ef mark væri takandi á þeim könnunum ættu þær setningar í stefnuskrám Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks, sem Framsóknarmenn hafa hent á lofti, fremur að vera þessúm flokkum til framdráttar en vandræða en svo virðist ekki vera. Annars virðist vera minni munur á málflutningi talsmanna stjórnmálaflokk- anna um þetta mál en gefið hefur verið til kynna í kosningabaráttunni að undan- förnu. Þannig sagði Geir H. Haarde, al- þingismaður, einn af frambjóðendum Sjálf- stæðisflokksins, á fundi nú í vikunni, að Sjálfstæðismenn mundú segja nei, ef spurt væri um afstöðu þeirra til inngöngu í Evrópubandalagið nú. Jóhann Einvarðs- son, alþingismaður Framsóknarflokks og meðframbjóðandi Steingríms Hermanns- sonar í Reykjaneskjördæmi, sagði á fundi BSRB um Evrópubandalagið í fyrrakvöld, að aðild að Evrópubandalaginu kæmi ekki REYKJAVIKURBRÉF Laugardagur 13. apríl til greina, nema með þeim hugsanlega möguleika, sem væri í raun útilokaður, að gerðar yrðu verulegar breytingar á stjórnarskrá Evrópubandalagsins. Það er þetta „nema“! Hvað er útilokað í Evrópu um þessar mundir?! Það skyldi þó ekki vera, að munurinn á afstöðu Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks til Evrópubandalagsins sé minni en Steingrímur Hermannsson vill vera láta? Kjarni málsins er auðvitað sá, sem Morgunblaðið hefur margsinnis undirstrik- að og samtök sjávarútvegsins hafa líka lýst, sem sinni afstöðu, að það hlýtur að vera frumforsenda fyrir hvers konar tengslum okkar við Evrópubandalagið að tryggt sé, að engin erlend fiskiskip komist inn í íslenzka fiskveiðilögsögu, hvorki nú né síðar og að útilokað verði, að erlend fyrirtæki geti keypt hlut í íslenzkum sjáv- arútvegsfyrirtækjum. Við höfum barizt hart og lengi fyrir því að tryggja full yfir- ráð okkar yfir fískimiðunum og það kemur ekki til greina að slaka á þeirri afstöðu. Það er líka óhugsandi, að við héldum þann- ig á málum, að sjávarútvegsfyrirtæki í Hull og Grimsby, Bremerhaven og jafnvel á Spáni og í Portúgal, gætu keypt upp Bolungarvík eða Flateyri við Önundar- fjörð, svo að tvö myndarleg sjávarútvegs- pláss séu nefnd af handahófi. Talsmenn allra stjórnmálaflokka í þessari kosninga- baráttu taka undir þessi sjónarmið og það er vel. Það þýðir, að það ríkir sterk sam- staða í öllum flokkum um að veija auðlind- ir okkar og þau fyrirtæki, sem mestu máli skipta í því sambandi. Því hefur verið haldið fram, af sumum háskólamönnum og öðrum áhugamönnum um aðild okkar Islendinga að Evrópu- bandalaginu, en slíkir menn eru vissulega til, eins og greinar, sem birtast hér í blað- inu þessa dagana sýna, að við séum ekki í þeirri hættu, sem haldið er fram í sam- bandi við aðgang erlendra ríkja að auðlind- um okkar. Það er ákaflega erfitt að skilja röksemdir þessara manna fyrir slíkum full- yrðingum. Menn þurfa ekki lengi að kynn- ast sjónarmiðum embættismanna í sjávar- útvegsdeild Evrópubandalagsins til þess að sannfærast um, að slíkur málflutningur hér á ekki við rök að styðjast. Annars var fróðlegt að hlusta á yfirlýs- ingu, sem Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, gaf á fundi með starfs- mönnum í fiskvinnslustöð á Suðurnesjum og sjónvarpað var á Stöð 2 í gærkvöldi, föstudagskvöldi. Forsætisráðherra kvaðst styðja evrópskt efnahagssvæði en ekki aðild að EB. Svo?! Hvernig getur Steingrímur Hermannsson lýst yfir stuðn- ingi við þátttöku íslands í evrópsku efna- hagssvæði, þegar samningum er ekki lok- ið og ekki liggur endanlega fyrir, hvað í slíkri þátttöku felst? Það hafa engar upp- lýsingar verið lagðar fram á opinberum vettvangi , sem gera þjóðinni kleyft að taka afstöðu til þess nú , hvort hún er tilbúin til að fallast á þátttöku íslands í evrópsku efnahagssvæði. Það getur vel verið, að Steingrímur Hermannsson hafi undir höndum slíkar upplýsingar, en hann hefur ekki miðlað þeim til þjóðarinnar og þess vegna vita menn ekkert hvað það er, sem hann er að lýsa stuðningi við. Hins vegar vekur það óneitanlega vonir um jákvæða niðurstöðu þeirra viðræðna fyrir okkur íslendinga, að Mitterrand, Frakklandsforseti, skuli hafa tekið frum- kvæði í málinu í okkar þágu. Þegar Mit- terrand kom hingað til lands og gaf vin- samlegar yfirlýsingar um sérstöðu íslend- inga voru skoðanir skiptar um það, hvort þetta væri kurteisistal eða eitthvað, sem byggjandi væri á. Nú virðist komið í ljós, að forseti Frakklands er maður orða sinna. Fréttir herma, að hann hafi gefið fulltrúum Frakka hjá EB fyrirmæli um að fallast ekki á neina þá samninga, sem taki ekki tilit til sérhagsmuna okkar íslendinga. Þetta eru ánægjuleg og raunar stórpólitisk tíðindi. En hvað sem því líður þurfum við fyrst að sjá, hvað í samningum um evr- Frá ísafirði ópskt efnahagssvæði felst áður en hægt er að taka afstöðu til þeirra. Morgunblaðið/KGA Hvers vegna engar al- vöru um- ræður? HVAÐ VELDUR því, að hér fara ekki fram í kosningabar- áttunni málefna- legar umræður um þau stóru mál, sem taka verður afstöðu til á næstu árum, eins og EB-EFTA, fiskveiðistefnu, fram- hald þjóðarsáttar, niðurskurð ríkisútgjalda o.s.frv.? Að einhveiju leyti er það vegna þess, að sporin hræða. Sjálfstæðismenn eru t.d. gagnrýndir fyrir stefnuleysi í þess- um kosningum. En þegar litið er til baka hafa Sjálfstæðismenn slæma reynslu af því að leggja fyrir kjósendur of nákvæmar tillögur fyrir kosningar um það, hvað þeir hyggjast fyrir eftir kosningar. I kjölfar mikils kosningaósigurs Sjálf- stæðisflokksins í þingkosningunum 1978 fylgdi umtalsverð sjálfsgagnrýni innan flokksins. í þeim umræðum, sem þá fóru fram og m.a. var haldið uppi af mörgum þeirra manna, sem nú eru í forystusveit flokksins, en þá töldust til hinna yngri manna, var sagt, að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að ganga til kosninga með ítarlega stefnuskrá og gera kjósendum grein fyrir því fyrir kosningar, hvað hann ætlaði að gera eftir kosningar. Þessi sjónarmið urðu ofan á í flokknum og þegar kom að kosn- ingum í desember 1979 var þeim fylgt eftir. Þá lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram einhveija ítarlegustu stefnuskrá í efna- hags- og atvinnumálum, sem nokkur stjórnnmálaflokkur hefur lagt fram og nefndist leiftursókn gegn verðbólgu. Þessi stefnuskrá var lögð fram í anda þeirra umræðna, sem fram höfðu farið innan flokksins og áður var vikið að. Haustið 1979 nam fylgi Sjálfstæðis- flokksins í skoðanakönnunum um 50% og sumir töldu jafnvel, að flokkurinn ætti möguleika á að ná meirihluta á Alþingi í kjölfar þeirrar óvinsælu og misheppnuðu vinstri stjórnar, sem setið hafði að völdum frá hausti 1978. Andstæðingum Sjálfstæð- isflokksins tókst hins vegar að snúa leiftur- sókninni gegn flokknum og niðurstaða kosninganna varð sú, að Sjálfstæðisflokk- urinn fékk rúmlega 35% atkvæða. Eftir þá lífsreynslu þarf kannski engum að koma á óvart, þótt bæði Sjálfstæðis- flokkurinn og aðrir flokkar fari sér hægt í að segja kjósendum fyrir kosningar hvað þeir hyggist fyrir eftir kosningar. Raunar er reynsla flestra stjórnmálamanna sú, að bezt sé að segja eitt en gera annað. Núver- andi stjórnarflokkar hafa t.d. framkvæmt einhvetja mestu kjaraskerðingu, sem um getur á síðari tímum á þeim tveimur og hálfa ári, sem þeir hafa setið að völdum. Engum þeirra datt í hug að segja það haustið 1988, þegar stjórnin var mynduð, að þetta vekti fyrir þeim, en eftir að þeir voru komnir í ráðherrastóla unnu þeir markvisst að því að framkvæma þessa kjaraskerðingu. Ef litið er til pólitískra stundarhags- muna, og auðvitað hugsa stjórnmálaflokk- ar í kosningabaráttu ekki lengra en til kjördags, virðist reynslan því benda til þess, að það sé beinlínis óskynsamlegt fyrir stjórnmálamenn að segja of mikið fyrir kosningar. Slík þróun leiðir einungis til þess, að nauðsynlegt verður að leggja öll þverpólitísk ágreiningsmál fyrir þjóð- ina. HVORT SEM mönnum líkar betur eða ver, er veruleik- inn í stjórnmálaum- ræðum okkar sá, að hin málefnalega barátta hefst eftir kosningar en stendur ekki fyrir þær. Það fer t.d. ekkert á milli Baráttan hefst eftir kosningar mála, að innan allra stjórnmálaflokka _er fólk, ungt fólk og eldra, sem telur að ís- land eigi ekki annarra kosta völ en tengj- ast Evrópubandalaginu með aðild. Barátt- an um þetta mál á eftir að verða hörð á næstu árum og sennilega munu fylkingar svo til allra flokka riðlast í þeirri baráttu. Jafnljóst er, að enginn friður verður um ríkjandi fiskveiðistefnu, sem nánast ekkert er rædd í þessari kosningabaráttu en úr- slitaátökin um hana munu standa eftir kosningar, á næstu misserum. Þá verður tekizt á um það, hvort handhöfum kvótans tekzt að ná honum í sínar hendur til fullr- ar eignar, eða hvort þjóðinni auðnast að ná auðlindinni aftur til sín. Fylkingar allra flokka munu einnig riðlast í þeim slag. Stjórnmálaflokkarnir munu lítið sem ekkert gefa upp fyrir kosningar um það, hvernig þeir hugsa sér framhald þjóðar- sáttar. En strax að loknum kosningum má búast við, að línur fari að skýrast í þeim efnum og þá kemur í ljós, hvort von er til að halda þeim árangri, sem náðst hefur í verðbólgubaráttunni. Stjórnmálamennirnir munu lítið sem ekkert gefa upp fyrir kosningar, hvort þeir ætla að ráðast á útgjaldaþenslu ríkis- ins. En strax eftir kosningar kemur í ljós, hvort þeir hafa kjark og þrek til þess að takast á við þetta verkefni. Þetta er öfugsnúin staða. Svona á lýð- ræðið ekki að virka. Það á þvert á móti að vera svo þroskað, að kjósendur geti fyrir kosningar tekið afstöðu til manna og málefna á grundvelli upplýsinga um það hvað flokkarnir hyggjast fyrir. En því miður er veruleikinn annar og kjósendur sjálfir eiga ekki sízt sök á því. Löng reynsla stjórnmálamanna, hefur kennt þeim, að það borgi sig að segja sem minnst fyrir kosningar! Kannski er nauðsynlegt að ala kjósendur upp fyrst áður en meiri kröfur eru gerðar á hendur stjórnmálamönnum. „Kosningabarátt- an hefur að vísu einkennzt að verulegu leyti af umræðum um tengsl okkar við Evrópubandalag- ið. En þar hefur ekki verið um að ræða málefnaleg- ar umræður á vettvangi hinnar upplýstu þjóðar um þetta mikils- verða mál, heldur ómerkilegt dæg- urþras. Það hefur markast af því, að Framsóknarmenn hafa sagt: Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðuflokkur ætla með Island inn í EB og fram- bjóðendur þess- ara tveggja flokka hafa mátt hafa sig alla við að hafna þessum fullyrðingum Framsóknar- manna.“ 4-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.