Morgunblaðið - 14.04.1991, Page 26
26
MORGUKBLAÐH) ATVINfMA/RAÐ/SIVIA 74'. AFRÍL 1'991
ATVINNII
Móttaka gesta
Veitingahúsid á Öskjuhlíð
er hefja mun starfsemi nú í vor, óskar að
ráða starfskraft til að annast móttöku gesta
í veitingasali. Kvöld- og helgarvinna.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu
Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14.
GtiðntTónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARNÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13*22
Sölumenn
Balti hf. leitar nú að hressum, jákvæðum og
áhugasömum sölumönnum sem eru tilbúnir
til þess að takast á við krefjandi sölustarf á
tölvum og tölvubúnaði, Ijósritunarvélum og
ýmsum skrifstofutæknibúnaði.
Hér er um að ræða framtíðarstörf í ört vax-
andi fyrirtæki með jákvæðum starfsanda.
Skriflegum umsóknum með upplýsingum um
aldur og fyrri störf skal skilað á skrifstofu
okkar fyrir 17. apríl nk. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Balti hf., Ármúla 1,
105 Reykjavík, sími (91) 82555.
LANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður
Hjúkrunarfræðingur
Á bæklunarlækningadeild 1, 12-G er laus
staða hjúkrunarfræðings. Deildin er 23 rúma
deild og þar dvelja sjúklingar vegna slysa
og sjúkdóma í stoð- og hreyfikerfi.
Á deildinni er góður starfsandi. Þar er unnið
eftir markmiðum sem miða að því að auka
gæði hjúkrunar. Boðið er upp á góða aðlög-
un. Vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Upplýsingar veita Steinunn Ingvarsdóttir,
deildarstjóri, í síma 601400 og Anna Stefáns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601366 og 601300.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til sumarafleys-
inga á kvenlækningadeild 21-A, gyn og
krabbameinsdeild kvenna 21-A, onc.
Þrískipt vaktavinna. Á þessum deildum er
möguleiki á að ráða sig á sérstakar vaktir.
Upplýsingar gefur María Björnsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í símum 601195 og
601300.
Ljósmæður
Ljósmæður óskast til sumarafleysinga á :
Göngudeild 20-A,dagvinna alla virka daga.
Meðgöngudeild 23-B, vaktavinna, 12 tíma
vaktir um helgar, unnið 3ju hverja helgi.
Sængurkvennadeild 22-A og 22-B, vakta-
vinna, möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma.
Upplýsingar um ofangreind störf gefur María
Björnsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
símum 601195 og 601300.
Ljósmæður óskast einnig til sumarafleys-
inga á Kvennadeild Landspítalans, fæðinga-
gangi.
Upplýsingar gefur yfiljósmóðir, Kristín I.
Tómasdóttir, í síma 601130.
Læknaritari
Læknaritari óskast á röntgendeild Lands-
pítalans. Um fullt starf er að ræða. Stúdents-
próf æskilegt. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma
601084 frá kl. 10.00-12.00 virka daga.
Aðalbókari
Opinber stofnun vill ráða reyndan aðalbók-
ara til starfa. Laun skv. samningum BSRB.
Umsóknir, merktar: „Aðalbókari - 3901“,
sendist á auglýsingadeild Mbl. fyrir þriðju-
dagskvöld.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Fóstra
Við erum með lítið heimili í Vesturbæ og
okkur vantar fóstrur. Aldur barnanna er 1-
3ja ára og er heimilið mjög vel útbúið.
Nánari upplýsingar gefur Arna Heiðmar, for-
stöðumaður, í síma 604364.
Kvenfataverslun
óskar eftir starfskrafti strax. Vinnutími frá
kl. 13-18, 5 daga vikunnar. Æskilegur aldur
umsækjanda sé 35-55 ár. Góð laun í boði.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 18. apríl merktar:
ST. JÓSEFSSPÍTALI. LANDAKOTI
Áhugavert og
gefandi starf
Hefur þú áhuga á að starfa með börnum og
foreldrum? Við á barnadeild Landakotsspít-
ala þurfum á fleiri hjúkrunarfræðingum að
halda til að vinna með okkur að umönnun
barnanna. Hjúkrunarsvið deildarinnar er
bæði sértækt og fjölbreytilegt. Við bjóðum
upp á 3ja mánaða starfsaðlögun og leggjum
áherslu á símenntun með stöðugri fræðslu-
starfsemi á vegum deildarinnar. í haust verð-
ur námskeið í hjúkrun barna og barnasjúk-
dómum, með áherslu á sérsvið deildarinnar.
Ef þú hefur áhuga þá hafðu samband við
deildarstjóra í síma 604326 eða 622722
(kvöldsími).
íþróttafélagið
>y
Akureyri
Húsnefnd Hamars, félagsheimilis Þórs,
óskar eftir að ráða umsjónarmann. Starfið
felst í daglegum rekstri ásamt öðrum tilfall-
andi verkefnum. Umsjónarmaður þarf að
geta unnið sjálfstætt og haftfrumkvæði. Góð
laun í boði fyrir réttan aðila. í Hamri er íbúð
og er möguleiki að hún fylgi starfinu. Upplýs-
ingar gefur Ragnar Sverrisson, vs. 96-23599,
hs. 96-21366.
Umsóknarfrestur er til 22. apríl 1991. Öllum
umsóknum verður svarað og farið með þær
sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar til:
Hamar,
P.O. Box504,
601 Akureyri.
Byggingafyrirtæki
Rekstrarstjóri
Óskum að ráða rekstrarstjóra til starfa hjá
byggingafyrirtæki í Hafnarfirði. Nauðsynlegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið: Dagleg stjórnun, innlend við-
skiptasambönd, mannaforráð, dagleg áætla-
nagerð, sölustjórnun o.fl.
Við leitum að manni með menntun tengda
byggingariðnaði (húsameistari). Viðkomandi
þarf að hafa frumkvæði, geta starfað sjálf-
stætt og skipulega. Þekking á þörfum bygg-
ingariðnaðarins æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar „Rekstrarstjóri 104“.
Skrifstofustarf
Deildaskipt þjónustufyrirtæki í borginni vill
ráða starfskraft í sérhæft skrifstofustarf.
Lertað er að reglusömum og snyrtilegum
aðila, lipurð í mannlegum samskiptum og
einhver reynsla af skrifstofustörfum nauð-
synleg. í boði er gott framtíðarstarf hjá
traustu fyrirtæki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 18. apríl nk.
Gtiðnt ÍÓNSSON
RÁÐGJQF & RÁÐN l N CARhjÓN Ll 5TA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Kjötafgreiðsla
HAGKAUP vill ráða nú þegar starfsmann til
að hafa umsjón með kjötborði í verslun fyrir-
tækisins í Njarðvík.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
vinnu með kjötvörur. Starfið er heilsdags-
starf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir verslun-
arstjóri í síma 92-13655.
HAGKAUP
Tölvunarfræðingur
Öflugt fjármálafyrirtæki í borginni óskar að
ráða starfsmann til starfa í tölvudeild. Starf-
ið er laust samkvæmt nánara samkomulagi.
Leitað er að tölvunarfræðingi eða einstakl-
ingi með sambærilega menntun. Jafnt koma
til greina aðilar beint úr skóla og/eða með
starfsreynslu. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi frumkvæði, vinni sjálfstætt og sé
lipur í samskiptum viö fólk.
Starfssvið: Vinna við upplýsingakerfi, sem
byggjast á nettengdum einmenningstölvum.
Um er að ræða mjög fjölbreytt verkefni.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 20. aprfl nk.
GtiðntTónsson
RAÐGJQF & RÁÐNINCARÞJÓNLISTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22