Morgunblaðið - 22.05.1991, Side 1
, ,r. ,> ,>IV>nA,lAU______________ ' Af*
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1991
■ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ
BLAD
FOTBOLTI / ENGLAND
Guðni áfram
hjá Spurs?
Guðni Bergsson lék síðasta leik Tottenham á
keppnistímabilinu í Englandi í fyrrakvöld. Hann
kom inná í miðvarðarstöðuna í byijun seinni hálfleiks
gegn Manchester United í Manehester, en liðin gerðu
1:1 jafntefli. Guðni hefur leikið sem miðvörður með
varaliðinu að undanfömu, en eygir nú betri möguleika
á að tryggja sér sæti í aðalliðinu en áður og hefur
því hug á að vera áfram hjá liðinu.
„Það er allt í óvissu hjá féiaginu og meðan það
ástand ríkir er alt óvíst með framhaldið," sagði Guðni
við Morgunblaðið. „Þó ég hafi ekki verið með í bikarúr-
slitaleiknum var ég í 16 manna hóp og það var viss
lífsreynsla. Því getur vel farið svo að ég verði hér
áfram."
■ Bikarúrslitin / B11
HANDKNATTLEIKUR
Konráð til
Dortmund
KONRÁÐ Olavson, landsliðsmaður KR í handknattleik, gekk frá
tveggja ára samningi við þýska liðið OSG Dortmund um helgina.
KR og þýska félagið komust að samkomulagi og eins var gengið
frá öllu varðandi landsliðið, en eftirá að Ijúka formsatriðum.
Konráð verður laus í þau verkefni með landsliðinu, sem óskað
verður eftir, en hann fer til Þýskalands í byrjun ágúst.
Konráð, sem tekur síðasta stúd-
entsprófið við Fjölbrautaskól-
ann Ármúla í dag, var mjög ánægð-
ur með með samninginn.
„Mér líst mjög vel á þetta og er
spenntur. Mikil uppbygging á sér
stað hjá þessu nýja félagi og það
setur sér það takmark að komast
í 1. deild á þremur árum.“
Tvö félög, OSG Dortmund, sem
Sigurður Sveinsson lék m.a. með,
og Eintracht Dortmund sameinuð-
ust fyrir skömmu í umrætt félag.
Það leikur í 2. deild, sem verður
þrískipt í fyrsta sinn á næsta tíma-
bili, en tímabilinu lýkur í febrúar.
„Það kemur sér vel varðandi B-
keppnina," sagði Konráð, sem æfír
með landsliðinu í sumar. Hann
sagðist hafa hug á að fara í nám
á öðru árinu hjá félaginu, en samn-
ingur varðandi þriðja árið. Þrír
menn frá félaginu komu til landsins
og gengu frá málum varðandi
samninginn.
Evrópu-
keppn-
in / B2-3
Konráð Olavson leikur í Þýskalandi næstu tvö árin.
FRJALSIÞROTTIR
Guðmundur Karlsson
Glæsilegt íslands-
met hjá Guðmundi
í sleggjukasti
Breytti stílnum hjá sérog ætlarað reyna
að gera enn beturá Smáþjóðaleikunum
GUÐMUNDUR Karlsson, FH, setti glæsi-
legt íslandsmet í sleggjukasti á kastmóti
FH um helgina. Hann kastaði 64,42 m,
en eldra metið var 63,60 m.
Kastserían hjá Guðmundi var mjög góð.
Hann átti fímm köst gild á bilinu 61,56 m
til 64,42 m.
Guðmundur sagði að ástæðan fyrir bæting-
unni á svo skömmum tíma, mætti rekja til
þess að hann hefði breytt stílnum. Á vormóti
IR á dögunum kastaði hann með fjórum snún-
ingum, en að þessu sinni notaði hann þijá snún-
inga.
Hann sagði ennfremur að hann vonaðist til
að bæta sig enn frekar með þessari nýju tækni
á Smáþjóðaleikunum í Andorra í kvöld. Það
væri takmark hvers fijálsíþróttamanns að bæta
sig og hann tæki þátt í keppninni í Andorra
með því markmiði.
Eggert Bogason náði besta árangri sínum í
kringlukasti á árinu og bætti sig um tæpa tvo
metra, kastaði lengst 61.64 m.
■ Smáþjóða-
■ leikarnir / B4
FRJALSAR
Grand-Prix mót:
Vésteinn í
þriðja sæti
VÉSTEINN Hafsteinsson varð
í þriðja sæti í kringlukasti á
fyrsta stigamóti Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins, sem fór
fram í Sao Paulo í Brasilíu á
sunnudag. Hann kastaði lengst
60,94 m, en Ungverjinn Attila
Horvath sigraði (67,02 m) og
Bandaríkjamaðurinn Mike
Buncic hafnaði í öðru sæti
(65,60 m).
Vésteinn sagðist ekki hafa náð
að stilla saman tækni og kraft
í keppninni, en var þokkalega án-
ægður, þar sem þetta var fyrsta
mót keppnistímabilsins.
Honum var boðið að taka þátt í
fyrstu fjórum Grand Prix mótunum
og auk þess eru fleiri stórmót á
dagskránni.
FOTBOLTI
Landsliðið:
Andri
ístað
Ragnars
BO Johansson, landsliðs-
þjálfari i knattspyrnu, valdi
FH-inginn Andra Marteins-
son í landsliðshópinn, sem
heldur áleiðis til Albaníu
fyrir hádegi í dag. Andri
kemur í stað Ragnars Mar-
geirssonar, KR, en meiðsli
tóku sig upp hjá honum í
íslandsmótinu ífyrrakvöld.
Andri var meö landsliðinu á
Möltu á dögunum og gerði
. þá gott mark. Bo sagði við
Morgunblaðið að hann væri
fjölhæfur leikmaður, sem gæti'
bæði leikið í fremstu víglínu
sem og á miðjunni. Andri hefur
leikið 3 A-landsleiki.
Bo sagðist vona að fleiri
breytingar yrðu ekki á hópnum.
Hann gerði ráð fyrir Árnóri
Guðjohnsen, en hafði ekki feng-
ið staðfest að hann kænú.
ÍSLAIMDSMÓTIÐ í KNATTSPYRNU / B5, B6, B7, B8, B10