Morgunblaðið - 22.05.1991, Page 3
#
• :/ ií -s' ■'JÍÖKÖtJÍíðLftttílá^Öjil^O'P WH-lMtóVÍKtJÖAbtíR 22. MAÍ 1991
^lB -'3
sagði Alfreð Gíslason eftir að hafa misst af Evrópubikar í annað sinn
Morgunbla4i4/Svemr
Alfreð Gíslason átti stórleik og gerði glæsileg mörk, en úrslitin voru ekki í hans höndum.
íþróttin gatt afhroð
- sagði Pólverjinn Bogdan Wenta, samherji Alfreðs hjá Bidasoa
„ÞETTA var hrikalega svekkj-
andi. Manni finnst þetta ekki
vera neitt sport iengur — það
hefði ekki skipt máli þó við
hefðum unnið með tíu marka
mun á heimavelli, þá hefðum
við örugglega tapað með ellefu
hér,“ sagði Alfreð Gíslason við
Morgunblaðið í Augsburg á
mánudaginn, eftir að Evrópu-
bikarinn hafði gengið honum
og félögum hans úr greipum.
Hann vísaði þarna til dómar-
anna, fannst eins og fleirum
frammistaða þeirra slæleg, og
taldi augljóst að þeim hefði
verið mútað.
Alfreð sagði síðustu mínútur
leiksins alveg dæmigerðar fyr-
ir það þegar dómarar ætluðu sér1
að hjálpa öðru liðinu. „Þetta var
jafnt [þ.e. samanlagt í leikjunum
tveimur]. Þeir biðu greinilega eftir
því að fá einhvern smá möguleika
á áð reka út af og gerðu það auðvit-
að, sem var alveg dæmigert fyrir
S-ammistöðu þeirra í leiknum. Þetta
ómaragengi í handboltanum er
alveg ótrúlegt. Ef menn borga ekki,
halda enn að þetta sé eitthvað heið-
arlegt, eru þeir þar með dæmdir til
að tapa. Við erum sannfærðir um
Þjóðveijarnir hafa „keypt“ þessa
dómara." Hann sagðist einmitt hafa
rætt um þetta dómarapar við tvo
af þekktustu handknattleiksmönn-
um Júgóslavíu: „Vujovic [sem leikur
með Barcelona] hélt því fram að
þeir væru nokkuð góðir og réttlátir
en Kalina, sepi er eldri, sagði þvert
á móti að þeir færu bara eftir gjald-
miðlinum! Sem og mér fannst sann-
ast hér.“
Alfreð sagði um leik Bidasoa að
sumir leikmenn liðsins hefðu verið
of hræddir, ekki staðist álagið.
„Breiddin er ekki nógu mikil, við
spilum með sömu menn nánast allan
tímann og svona hefur þetta verið
í vetur. Við höfum til dæmis verið
§órir um stöðurnar þijár fyrir utan,
við útlendingamir tveir og tveir
Spánveijar, og þeir spænsku hafa
verið meiddir til skiptis í vetur. Og
þeir sömu eru allt í hinum stöðun-
um, þannig að það er komin mikil
þreyta í liðið. Annars er árangurinn
í vetur mjög góður — sigur í
spænsku bikarkeppninni og að ná
svona langt í Evrópukeppninni, en
auðvitað er það hrikalega svekkj-
andi að þessu skuli ljúka svona,"
sagði Alfreð og bætti við: „Ég er
harður á því að við erum með betra
lið en Milbertshofen. Þjóðverjarnir
áttu ekki skilið að vinna þessa
keppni.“
Iþróttin galt að mínu mati afhroð
í dag. Þetta var aðeins spurning
hver var tilbúinn til að borga dóm-
urunum. Úrslitin í fyrri leiknum
skiptu í raun engu máli — þegar
svona dómarar eru annars vegar
hefðum við alltaf tapað með einu
marki meira hér,“ sagði Pólveijinn
Bogdan Wenta, félagi Alfreðs í Bid-
asoa, við Morgunblaðið eftir leikinn.
Wenta hélt því fram að lið Bid-
asoa væri betra en lið Milberts-
hofen, en það hefði ekki nægt að
þessu sinni. Það hefði ekki verið
frammistaða leikmanna á vellinum
sem hefði ráðið úrslitum.
Ýmislegt óhreint
ípokahorninu -
„Ég á eftir að horfa á leikinn
aftur á myndbandi og þar til ég hef
gert það get ég ekkert fullyrt, en
ég hef það sterklega á tilfinning-
unni að það sem gerðist hér í dag
hafí lítið með íþróttir að gera. Við
höfum fengið upplýsingar um að
ýmislegt óhreint sé í pokahorninu,"
sagði þjálfari Bidasoa, Villarreal,
við Morgunblaðið eftir leikinn.
Þannig gaf hann í skyn að ekki
væri allt með felldu varðandi dóm-
gæsluna, en vildi ekki taka dýpra
í árinni. „Þetta er slæmur endir á
góðri Evrópukeppni hjá okkur og
IHF [alþjóða handknattleikssam-
bandið] er í slæmum málum gagn-
vart okkur. Til dæmis var ekki varp-
að hlutkesti hvar yrði leikið á undan
í úrslitum, heldur einfaldlega
ákveðið af IHF að seinni leikurinn
yrði hér í Þýskalandi! Og svo haga
dómararnir sér svona — það var
erfitt fyrir okkur að ná bikarnum
þegar við þurftum að eiga í höggi
við bæði þá og andstæðingana,“
sagði VillaiTeal.
Mjög slæmt að
missaAtfreð
- segirVillarreal, þjálfari Bidasoa
að er gífurlega slæmt fyrir
okkur að missa Alfreð. Hann
er mjög mikilvægur fyrir félagið,
bæði sem handknattleiksmaður
og félagi — hann er sterkur per-
sónuleiki. Það er varla hægt að
fá eins góðan mann til að fylla
skarð hans,“ sagði Villarreal,
þjálfari Bidasoa, við Morgunblað-
ið, en Alfreð Gíslason hefur sem
kunnugt er ákveðið að snúa heima>
á leið að loknu þessu keppnistíma-
bili og þjálfa og leika með KA.
Júlíus Jónasson kemur í stað
Alfreðs hjá Bidasoa sem kunnugt
er og hans bíður erfitt hlutverk.
„Hann er góður leikmaður," sagði
þjálfarinn og bætti við að hann
hefði alla burði til að standa sig
vel með liðinu.
„Júlíus á að leika stórt hlutverk
með liðinu og getur gert það. Það
mun mikið mæða á honum, og
það á eftir að koma honum til
góða — líka íslenska landsliðinu,“
sagði Alfreð.