Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 4
4 B" " M'ÖRG 1' N BLÁÐl MTSVIKUDAÖ DFÍ 22' MÁI í 99 í
SMAÞJOÐALEIKARNIR I ANDORRA
Þórdís Gísladóttir
^a/dorra
■ EINAR Vilhjálmsson óskaði
eftir því að sleppa við að vera fána-
beri íslenska liðsins. Eggert Boga-
son tók við því hlutverki.
■ JOAN An toni Samaranch, for-
seti alþjóðlegu Ólympíunefndarinn-
ar, setti Smáþjóðaleikana í Andorra
í gær^
■ ÞÓRDÍS Gísladóttir varð fyrst
til að vinna gull á Smáþjóðaleikun-
um hér í Andorra. Hún var sigur-
vegari í hástökki kvenna.
■ ÍSLENDINGAR voru sigur-
sælir á fyrsta keppnisdegi. Þórdís
og Sigurður Einarsson unnu gull í
sínum greinum, hástökki kvenna
og spjótkasti. Einar Vilhjálmsson
vann silfur í spjótkasti, Einar Þór
Einarsson, spretthlauparinn efni-
legi úr Ármanni, vann silfur í 100
m hlaupi er hann hljóp á 10,82
sek. sem er hans besti tími og Guð-
rún Arnardóttir úr UBK varð önnur
í 100 m hlaupi kvenna á 12,26 sek.,
sem er einnig hennar besti tími.
Hún meiddist á hné í riðlakeppninni
og haltraði eftir hlaupið. Geirlaug
Geirlaugsdóttir hafnaði í sjötta sæti
á 12,83 sek.
■ GUNNAR Guðmundsson
jtryggði sér rétt til að hlaupa til
úrslita í 400 m hiaupi karla, en
hann náði bestum tíma í riðlakeppn-
inni - 49,49 sek.
| ■Karlalandsliðið í blaki tapaði
I fyrir Liechtenstein í þremur hrinum,
16:14, 15:9 og 15:10. Guðmundur
Pálsson þjáfari sagði að strákamir
hans hefðu hreinlega ekki verið
' vaknaðir, en leikurinn fór fram
snemma morguns. Hafsteinn Ja-
kopsson var bestur í liði Islands.
■Stúlkurnar bættu um betur og
unnu Mónakó í þremur hrinum,
15:9, 15:4 og 15:6.
■íslensku keppendurnir féllu úr
keppni á fyrsta degi í einliðaleik
karla. Ólafur Sveinsson og Einar
Sigurgeirsson töpuðu báðir sínum
leikjum, en Einar vann fyrstu lotuna
gegn manni frá Mónakó, 6:2, en
tapaði síðan 1:6 og 3:6.
■ Anna María Sveinsdóttir skoraði
12 stig gegn Kýpur þegar íslenska
. kvennalandsliðið tapaði 40:47.
Linda Stefánsdóttir skoraði 7 stig,
Hafdís Helgadóttir 6, Hrönn Harð-
ardóttir 6, Björg Hafsteinsdótti 5,
Guðbjörg Norðfjörð 2 og Vigdís
íÞórisdóttir 2.
■ Guðmundur Bragason skoraði
mest karlanna þegar þeir unnu
Kýpur, 22 stig. Guðni Guðnason
gerði 16 stig, Axel Nikulásson 15,
Jón Kr. Gíslason 9, Falur Harðarson
8, Guðjón Skúlason 8, Teitur Örl-
ygsson 6, Sigurður Ingimundarson
4 og Rúnar Árnason 3.
Sigurður vann ein-
vígið við Einar
Alltaf gaman að standa uppi sem sigurvegari, segir Sigurður
„ÞAÐ er alltaf gaman að
standa uppi sem sigurvegari
og ekki skemmir það að Einar
Vilhjálmsson var fyrir aftan
mig,“ sagði Sigurður Einars-
son, spjótkastari, eftir að hann
tryggði sér gullverðlaun á Smá-
þjóðaleikunum í Andorra f gær.
Sigurður kastaði spjótinu 80,30
m, en Einar sem meiddist á hné
í upphitun, kastaði spjótinu
74,16 m og varð í öðru sæti.
„Ég hélt að Einar væri að leika
á mig. Hann sleppti fyrstu
tveimur umferðunum og einnig
næstsíðustu umferðinni, en
síðan náði hann ágætu kasti í
síðustu umferðinnni," sagði
Sigurður.
MT
Eg missteig mig í upphitun,
þannig að það snerist upp á
hnéð,“ sagði Einar, sem var ekki
ánægður. „Þetta eru gömlu meiðsl-
in sem eru að angra
SigmundurÓ. mig.“
Steinarsson Það var ljóst fyrir
skrifar spjótkastskeppnina,
fraAndorra ,, , ...... ,
að það yrði emvigi a
Sigurður Einarsson að ofan hafði betur í keppni við Einar
Vilhjálmsson og vann til gullverðlauna í spjótkasti á Smáþjóðaleik-
unum. Sigurður kastaði spjótinu 80,30 m, en Einar sem meiddist
á hné í upphitun, kastaði 74,16 m og varð í öðru sæti.
Ég er í sjöunda himni
með árangurinn
- sagði Þórdís Gísladóttir, sem vann hástökkskeppnina
„ÞAÐ var leiðinlegt að bæta
ekki Smáþjóðametið, sem ég
setti í Mónakó 1987 er ég stökk
1,86 metra. Þrátt fyrir það er
ég ánægð, þetta var auðveldur
sigur," sagði Þórdís Gísladótt-
ir, sem stökk 1,83 m í Andorra
í gær.
ÆT
Eg fór of nálægt ránni í þriðju
tilraun minni við 1,86 metra,“
sagði Þórdís, sem varð fyrst til að
_______________J_____________
vinna sér inn gullverðlaun á Smá-
þjóðaleikunum í Andorra, þar sem
Islendingar keppa við íþróttamenn
frá Lúxemborg, Liechtenstein, Mar-
okkó, Möltu, Kýpur, San Marino
og Andorra.
Þórdís var eina hástökksstúlkan
sem reyndi við 1,86 m. Hún byijaði
á þvf að stökkva 1,71 m, síðan 1,74
m, þá 1,77 m, 1,80 m og síðast
l, 83 m. Hún reyndi þrisvar við 1,86
m, en felldi í öll skiptin. Þóra Ein-
Axel átli stórieik
ÆT
Íslenska landsliðið í körfuknattleik vann Kýpur-
menn í fyrsta leiknum 91:77 í slökum leik.
„Axel Nikulásson var besti leikmaður íslenska liðs-
ins. Hann var mjög traustur í sókn og vörn.
arsdóttir keppti einnig í hástökki.
Hún gerði tvisvar ógilt þegar hún
reyndi við 1,68 m, en fór yfir hæð-
ina í þriðju tilraun. Þóra reyndi
síðam við 1,71 m, en felldi í öll
skiptin. „Þetta var ekki dagurinn
hennar Þóru. Krafturinn var ekki
nægilegur hjá henni,“ sagði Þórdís
Gísladóttir, sem sagðist ekki vera
komin í nægilega æfingu. „Ég hef
ekki náð mér á skrið síðan á innan-
hússmeistaramótinu í Sevilla.“
millli Einars og Sigurðar, en þeir
félagar hafa ekki keppt á sama
móti síðan á Evrópumeistaramótinu
í Split í Júgóslavíu. íslendingar eiga
nú tvo af bestu spjótkösturum
heims. Sigurður byrjaði á því að
setja nýtt Smáþjóðamet þegar hann
kastaði spjótinu 77,38 m í fyrsta
kasti, en gamla metið var 67,74
m, sem Kýpurbúinn Christakis Tel-
onis átti. Það vakti athygli að Einar
hvíldi í tveimur fyrstu umferðunum
og leit það þannig út að hann væri
með „taugastríð“ á pijónunum.
Hann kastaði spjótinu 59,56 m án
þess að taka atrennu í þriðju um-
ferð, en þá var Sigurður búinn að
kasta 80,30 m í annarri umferð.
„Það er ljóst að ég verð frá keppni
í tvær til fjórar vikur. Ég mun fara
í hnéaðgerð á næstu dögum,“ sagði
Einar, sem keppti í fyrsta skipti
með nýju sænsku spjóti, XL. Hann
kastaði þijú köst; 59,56 m, 66,80
m og 74,16 m. Sigurður kastaði sex
sinnum; 77,38 m, 80,30 m, 75,14
m, 76,32 m, 76,58 m og 74,72 m.
„Ég á enn langt í land að ná
mínum besta árangri. Að sjálfsögðu
stefni ég á íslandsmet,“ sagði Sig-
urður, sem verður áfram hér í And-
orra þegar íslenski hópurinn heldur
heim á sunnudaginn. „Ég er að
fara til Sevilla, þar sem ég tek þátt
í móti 30. maí. Eg fer þangað ásamt
Stefáni Jóhannssyni, þjálfara, Vé-
steini Hafsteinssyni, sem kemur
hingað frá Svíþjóð, og Einari Þór
Einarssyni, spretthlaupara. Stefnan
hjá mér er á heimsmeistaramótið í
Tókýó í ágúst. Ég mun reyna að
hvíla sem best fyrir heimsmeistara-
mótið,“ sagði Sigurður.
Þess má geta að spjótkastarinn
sem hafnaði í þriðja sæti var Telon-
is frá Kýpur, sem kastaði 64,36
m. íslensku spjótkastararnir voru í
sérflokki og það þrátt fyrir að Ein-
ar meiddist í upphitum.
Péturtil
Granada
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
og yngri bróðir hans, Andrés,
keppa í kúluvarpi í dag á Smáþjóða-
leikunum í Andorra. Þeir bræður
halda síðan til Spánar á föstudag-
inn, þar sem þeir keppa á alþjóðlegu
móti í Granada. „Við komum síðan
aftur til móts við íslenska hópinn í
Barcelona á sunnudaginn — þegar
haldið verður heim. Okkur gafst
tilvalið tækifæri til að keppa í
Granada og við slógum til, vildum
nota ferðina hingað til að keppa á
tveimur mótum,“ sagði Pétur.
„Við bræður ætlum okkur fyrsta
og annað sætið hér í Andorra,"
sagði Pétur Guðmundsson sem er
búinn að vera með flensu í viku en
er óðum að ná sér.
Dómaraskandall
Islenska kvennalandsliðið í
körfuknattleik tapaði mjög
óvænt fyrir Kýpur 47:40 í leik þar
sem dómararnir léku aðalhlut-
verkið. Torfi Magnússon hafði á
orði að þetta hefði verið algjör
dómaraskandall. Sem dæmi um
hversu leikurinn var slakur má
nefna að íslensku stúlkurnar voru
20:12 undir í leikhléi. Anna María
Sveinsdóttir var best í íslenska
liðinu og skoraði 12 stig.