Morgunblaðið - 22.05.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ JÞROI IIRMIDVIKUDAGUR 22. MAÍ 1991
B 5
~ l__:_
KNATTSPYRNA / SAMSKIPADEILDIN
Morgunblaðið/Einar Falur
Sótt að marki
Atli Helgason, Víkingi, sækir að marki FH og nafni hans Einarsson er við öllu búinn í fyrsta leik íslandsmótsins.
FH-ingurinn Guðmundur Hilmarsson er til varnar.
Byijunin lofar góðu
Fjölmargir áhorfendurfengu að sjá mörk á færibandi
ÍSLANDSMÓTIÐ íknattspyrnu
hófst með miklum látum við
góð veðurskilyrði á annan í
hvftasunnu. 22 leikmenn átta
liða gerðu samtals 24 mörk,
14 leikmenn fengu að líta gula
spjaldið í 1. umferð og á fimmta
þúsund áhorfendur greiddu
aðgangseyri. Fjögur aðkomulið
fóru með sigur af hólmi, en
einum leik lauk með jafntefli.
Mest voru gerð sex mörk í leik,
en minnst þrjú.
700 manns greiddu aðgangseyri
á opnunarleik FH og Víkings
í Kaplakrika. Leikurinn var lengst
af fjörugur, opinn og mikið um
marktækifæri á báða bóga. Sex
mörk litu dagsins ljós, Víkingar
skoruðu fjögur en FH-ingar tvö.
Þrír menn, einn úr FH og tveir
Víkingar, voru bókaðir.
KR vann Víði örugglega 4:0 í
Garðinum að viðstöddum 912
áhorfendum. Einn KR-ingur var
bókaður.
Miklar sviptingar áttu sér stað á
malarvelli KA á Akureyri. Heima-
menn komust í 2:0, en ÍBV sýndi
þekkta seiglu og sáu 646 áhorfend-
ur gestina vinna 3:2. Tveir menn
úr hvoru liði fengu áminningu.
Bikarmeistarar Vals gerðu góða
ferð á malarvöllinn í Garðabæ og
unnu Stjörnuna í fyrsta sinn, 3:0.
Áhorfendur voru um 500, tveir
Valsmenn voru bókaðir og einn
Stjörnumaður.
Óvæntustu úrslitin urðu á Val-
bjarnarvelli, þar sem íslandsmeist-
arar Fram tóku á móti nýliðum
Breiðabliks. Heimamenn virtust
hafa leikinn í höndum sér, en gest,-
irnir voru á öðru máli og jöfnuðu
3:3 á síðustu stundu. 1.477 áhorf-
endur greiddu aðgangseyri, einn
Framari fékk gula spjaldið og þrír
Blikar.
Næst í lok næstu viku
Islenska landsliðið leikur við Al-
baníu í Tirana í riðlakeppni Evrópu-
mótsins á sunnudag, en U-21 lið
þjóðanna mætast daginn áður. Því
verður rúmlega vikuhlé á íslands-
mótinu.
Þráðurinn verður teki.m upp aft-
ur fimmtudaginn 30. maí, en þá
leika Valur og Víkingur að Hlíðar-
enda, Stjarnan og Fram í Garðabæ
o g ÍBV og Víðir í Vestmannaeyjum.
Kvöldið eftir mætast UBK og KA
í Kópavogi og KR og FH á KR-velli.
MARKAREGN
Boltinn byijaði að rúlla fyrir
alvöru um helgina með 1.
umferð 80. íslandsmótsins í
knattspyrnu. Ekki fer á milli
rriála að byijunin lofar góðu og
geta leikmenn almennt borið
höfuðið hátt. Knatt-
spyrnan snýst um
að gera mörk og
markmið allra liða
er að skora fleiri en
mótherjarnir hveiju
sinni. Margt annað
gleður augað og
markalaus leikur
r getur þess vegna
verið mjög vel leik-
inn og spennandi, en áhorfendur
vilja mörk og til þess er leikur-
inn gerður.
í fljótu bragði man ég ekki
eftir að 24 mörk hafi verið gerð
í 1. umferð íslandsmótsins og
að 22 menn skuli skora í fimm
leikjum sýnir mikla breidd.
Knattspyrnufélögin vita sem er
að ekki er hægt að gera sér
vonir um árangur nema með
þrotlausri vinnu samtaka manna
innan sem utan vallar. Félög,
sem slá slöku við í undirbún-
ingnum, eru dæmd til að súpa
af þvi seyðið fyrr en seinna og
er greinilegt að liðin eru þess
meðvitandi.
Leikmenn í 1. deild hafa
gjarnan verið undir miklu álagi
og má gera ráð fyrir að kröfurn-
ar verði meiri, þegar þeir eru
farnir að fá greitt fyrir frammi-
stöðuna í formi styrkja og vegna
vinnutaps eins og nú tíðkast.
Stuðningsaðilar vilja fá eitthvað
fyrir sinn snúð og því eiga félög
og leikmenn á hættu að missa
spón úr aski sínum, ef merkinu
er ekki haldið eins hátt á lofti
og raunhæft er. Því er stuðning-
urinn gagnkvæmur fyrir báða
aðila og á, ef rétt er á spilunum
haldið, að geta leitt til enn meiri
framfara.
Fyrstu leikirnir báru þess
merki að menn hafa lært af
reynslunni og er það vel. Bar-
átta nýliða Eyjamanna í 90
mínútur í hveijum leik í fyrra
skilaði þeim í þriðja sæti og
þeir héldu uppteknum hætti á
Akureyri um helgina, gáfust
ekki upp tveimur mörkum undir
og uppskáru laun erfiðisins.
Nýliðar Breiðabliks báru ekki
virðingu fyrir íslandsmeisturum
Fram, létu engan bilbug á sér
sjá og unnu einnig upp tveggja.
marka mun. Reykjavíkurliðin
þrjú, KR, Valur og Víkingur,
náðu fljótlega undirtökunum í
leikjum sínum, en í stað þess
að sætta sig við fenginn hlut,
bættu þau við mörkum er líða
tók á. v
Mótið er rétt að bytja og með
sama framhaldi er ljóst að bar-
áttan situr í fyrirrúmi fram í
miðjan september. Allar spár um
lokastöðu byggjast á huglægu
mati en ekki hlutlægu og eru
því ekki marktækar enda til
gamans gerðar. Úrslitin ráðast
inni á vellinum og knattspyrnan
er óútreiknanleg. Það verður
ekkert gefið á þessu íslands-
móti, því allt of mikið er í húfi.
Það kostar mikla peninga að
falla i 2. deild og að sama skapi
færir meistaratitill aukið gull í
mund. 10 lið hafa sett sér sama
markmið, en það liggur í hlutar-
ins eðli að aðeins eitt þein-a nær
takmarkinu.
Áhorfendur voru vel með á
nótunum á annan í hvítasunnu
og fjölmenntu á pallana, en fé-
lögin verða að gera sér grein
fyrir að að þeim þarf einnig að
hlúa. Framkvæmdaaðilar geta
þakkað veðurguðunum að vel
tókst til, þegar flautað var til
leiks, en fljótt skipast veður á
lofti. Aðstöðuleysi gerir fólk frá-
hverft og það er afturfór að
bjóða upp á malarleiki. Leikjun-
um hefur ekki fjölgað og verður
vart fjölgað fyrr en yfirbyggðir
vellir verða að veruleika. Því er
ástæðulaust að byija íslands-
mótið fyrr en aðstæður leyfa eða
um mánaðarmótin maí júní og
leika þá þéttar á föstum leikdög-
um yfir sumarmánuðina.
Steinþór
Guðbjartsson
„Það er afturför
að bjóða upp
á malarieiki“
SPURT ER/ Hvaða lið verður íslandsmeistari?
Jón M.
Björgvinss.
Ég tipjia á að KR-ingar
verði Islandsmeistarar.
Þeir hafa sýnt góða leiki í
Reykjavíkurmótnu. Fram
verður í öðru sæti, en
Breiðablik og Víðir koma
ti! með að falla.
Delea
Howser
FH-ingar verða Islands-
meistarar þó þeir séu
tveimur mörkum undir í
hálfleik gegn Víkingum.
KR-ingar verða í 2. sæti.
Það verða líklega Víðir og
KA sem falla í 2. deild.
Þórarinn
Þórarinsson
Ég tel að KR-ingar verði
Islandsmeistarar og Fram-
arar í öðru sæti. Víkingur
verður í §'órða sæti og FH
í sjötta. Ég hef trú á að
Víðismenn og KA-menn
falli niður í 2. deild.
Spurt í leikhléi á leik FH og Víkings
Bergsveinn
Bergsveinss.
Ég held að KR-ingar verði
meistarar og síðan komi
Framarar og Valsemm.
Um fallið er erfitt að spá,
en KA er líklegast og síðan
Breiðablik, Stjarnan eða
Vestmannaeyjar.
Friðbjörn
Oddsson
KR-ingar verða íslands-
meistarar eftir langa bið
og síðan koma Fram og
Valur í öðru og þriðja sæti.
Það kemur líklega í hlut
Víðis og KA að falla í 2.
deild.
Valgerður
Valdimarsd
KR-ingar verða að teljast
líklegastir til að vinna
meistaratitilinn í ár. Valur
og Fram verða sennilega í
öðru ogþriðja sæti. Ég
hugsa að það verði Víðir
og FH sem falla í 2. deild;