Morgunblaðið - 22.05.1991, Blaðsíða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1991
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
1a Steinar Guðgeirsson
■ skorar frá markteig
eftir að hafa skotið í varnar-
mann og fengið boltann aftur.
2„ A Baldur Bjarnason
■ \# skorar eftir sendingu
frá Ríkharði Daðasyni, snýr
boltanum uppí hornið fjær.
2a xfl Grétar Steindórsson
■ I kemst inní sendingu
Jóns Sveinssonar til Birkis og
skorar af stuttu færi.
3b 4| Pétur Ormslev skorar
■ I með þrumuskoti eftir
glæsilega sendingu frá Steinari.
Frábært mark.
3a^þ Steindór Elísson
■ skorar úr vítaspyrnu
eftir að Kristján Jónsson hafði
dottið og boltann með höndina.
3:3
Amar Grétarsson
sendir háan bolta inní
vörnina og Steindór skorar með
viðstöðulausu skoti af stuttu
færi.
Leið ekki vel
í byrjun
- sagði Hörður Hiim-
arsson, þjálfari UBK
Mér leið ekki vel í byrjun þegar
staðan var 2:0 eftir sjö mínút-
ur. Það var skrekkur í liðinu og það
er eðlilegt enda margir að spila í
deildinni í fyrsta sinn. En við sýndum
að það býr mikið í iiðinu og við eigum
eftir að standa okkur vel í sumar,"
sagði Hörður Hilmarsson, þjálfari
UBK. „Við erum með gott lið og ég
væri ekki hér ef ég hefði ekki trú á
því að við ættum eftir að standa okk-
ur í sumar. Við eigum eftir að fara
hærra en okkur var spáð og það er
takmarkið."
„Það er ekki hægt að gefa tvö
mörk og nýta bara tuttugu prósent
af færunum," sagði Ásgeir Elísson,
þjálfari Fram. „Það var ekkert að
gerast hjá þeim og við gáfum þeim
stig. Ég er óánægður með liðið og
það er augljóst að við verðum að
bæta okkur,“ sagði Ásgeir.
Morgunblaðið/KGA
Rúnar Kristinsson skorar annað mark KR. Hlynur Jóhannsson er of seinn.
„Mikilvæg-
ur sigur“
- sagði Guðni Kjartansson þjálfari KR
„Þetta var mikiivægur sigur og
ég er tiitölulega ánægður með
leik okkar, því Víðismenn eru
harðir í horn að taka og ég
held að enginn geti bókað sigur
gegn þeim hér í Garðinum,"
sagði Guðni Kjartansson þjálf-
ari KR eftir að lið hans hafði
sigrað Víði, nýliðana í 1. deild,
4:0 í Garðinum á mánudags-
kvöldið. Leikur liðanna ein-
kenndist af mikilli baráttu á
miðjunni og opin færi voru
sárafá í leiknum.
Víðismenn lögðu alla áherslu á
að veijast en á 19. mínútu
brast vöm þeirra og Gunnar Odds-
son skoraði fyrir KR. Aðeins þrem-
ur mínútum síðar
Bjöm skoraði Rúnar Krist-
Blöndal insson annað mark
tefiZik9 KR-inga og þannig
varstaðaníhá)fleik
Víðismenn léku mun betur í síðari
hálfleik og þá fékk Grétar Einars-
son tvívegis ágæt færi til að rétta
hlut Garðbúa, en heppnin var ekki
með honum að þessu sinni. En
KR-ingar höfðu ekki sagt sitt
síðasta orð og undir lok leiksins
bættu þeir svo við tveim mörkum,
fyrst Sigurður Björgvinsson úr víta-
spyrnu og síðan Rafn Rafnsson á
síðustu mínútu leiksins.
„Ég er ekki frá því að strákarnir
hafi borið' of mikla virðingu fyrir
KR-ingum. Maður er vitaskuld aldr-
ei ánægður með að tapa, en ég er
samt ánægður með margt hjá okk-
ur,“ sagði Óskar Ingimundarsson
þjálfari Víðis. „Við höfðum tæki-
færi á að komast inn í leikinn, en
heppnin var ekki með okkur að
þessu sinni — hún var með KR-ing-
um sem náðu að skora frekar ódýr
mörk. Þrátt fyrir þessa slæmu byrj-
un vil ég vera bjartsýnn við verðum
með sterkara lið í næsta leik og
þá er aldrei að vita hvað við getum
gert,“ sagði Óskar ennfremur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Pétur Ormslev fagnar glæsilegu marki sínu en Eiríkur Þorvarðarson, markvörður Breiðabliks, er ekki jafn kátur.
Gjafmildir Framarar
Á SUMUM heimilum tíðkast að
gefa sumargjafir og Framheim-
iliðið er greinilega eitt af þeim.
íslandsmeistararnir nánast
köstuðu frá sér sigrinum gegn
nýliðunum úr Kópavogi og gáfu
þeim tvö ódýr mörk. Og ekki
nóg með það heldur klúðruðu
Framarar fjölda dauðafæra;
einkum í fyrri hálfleik, og urðu
að sætta sig við jafntefli, 3:3.
Jöfnunamark Breiðabliks kom
að loknum venjulegum leiktíma
og var það verðskuldað eftir
mikla baráttu gestanna í síðari
hálfleik.
Framarar byijuðu af miklum
krafti og eftir rúmar sjö mínút-
ur höfðu þeir gert tvö mörk. Fyrst
Steinar Guðgeirsson, eftir mikinn
barning við mark-
teiginn, og svo Bald-
ur Bjamason með
glæsilegu skoti eftir
laglega sókn. Jón
Erling Ragnarsson komst svo einn
í gegn, nokkrum mínútum síðar,
en Sigurður Víðisson bjargaði á
línu.
Logi
Bergmann
Eiðsson
skrifar
0:1
KR-ingar unnu líorn-
Kristinsson tók, hann sendi bolt-
ann á Gunnar Oddsson sem stóð
fyrir miðju marki og hann renndi
boltanum í markið.
0B Bjarki Pétursson lék
■ áCí upp hægri kantinn
gaf fyrir markið þaðan barst
boltinn út til Rúnars Kristins-
sonar sem skaut viðstöðulaust
og í netinu hafnaði boltinn með
viðkomu í varnarmanni Víðis.
B Dæmd var vítaspyrna
■spj
á Víði eftir að Ólafur
Róbertsson hafði varið skot frá
Heimi Guðjónssyni á marklín-
unni. Sigurður Björgvinsson
skoraði úr vítaspyrnunni, en litlu
munaði að Gísli Heiðarsson
markvörður Víðis næði að veija.
0:4!
átti laglega sendingu
inn í vítateig Víðis þar sem
Rafn Rafnsson kom á fullri ferð
skallaði laglega í markið.
Fæstir áttu von á því að Blikar
svöruðu fyrir sig og það hefði
líklega ekki gerst nema fyrir gest-
risni Framara. Jón Sveinsson sendi
boltann á Birki Kristinsson í mark-
inu en hann náði ekki taki á lionum
og Grétar Steindórsson stakk sér á
milii þeirra og skoraði í autt mark-
ið. Ákaflega klaufalegt.
Þriðja mark Framara var sérlega
glæsilegt. Steinar átti frábæra
sendingu á Pétur, sem komJilaup-
andi í risastóra eyðu í vörn Breiða-
bliks, og skoraði með viðstöðulausu
skoti, 3:1. Á síðustu mínútu fyrri
hálfleiks fengu Blikar svo ódýrustu
vítaspyrnu sem undirritaður hefur
séð. Kristján Jónsson datt á boltann
rétt innan við vítateig og Steindór
Elíson skoraði úr vítaspyrnunni.
Eftir mörkin óx sjálfstraust Blik-
anna og leikur þeirra var mun betri
í síðari hálfleik; mikil barátta og
kraftur. Vörnin þéttist en þó voru
það Framarar sem fengu færin.
Ríkharður Daðason skallaði yfir
eftir sendingu Péturs Ormslevs og
átti svo skot framhjá úr dauðafæri.
ÍÞRÖMR
FOLK
■ POL VERJARNIR tveir sem
æft hafa með Víði hafa ekki fengið
leyfi frá pólska knattspyrnusam-
bandinu til að leika hér á landi og
voru því meðal áhorfenda í leiknum
gegn KR.
■ VILHJALMUR Einarsson
varnarmaðurinn sterki í Víði var í
leikbanni gegn KR en hann verður
væntanlega með í næsta leik.
■ SIGURÐUR Magnússon sem
iék síðast með Víði í 1. deild 1985
hefur tekið fram skóna að nýju og
tók hann stöðu Vilhjálms Einars-
sonar.
■ BJARKI Pétursson og Rafn
Rafnsson léku sinn fyrsta deildar-
leik með KR í Garðinum. Bjarki
lék nokkra leiki með Skagamönn-
um í 1. deild áður en hann gekk í
raðir KR-inga en þetta var fyrsti
leikurinn hjá Rafni í 1. deild.
Steindór var ekki langt frá því
að jafna fimm mínútum fyrir leiks-
lok en Viðar bjargaði á línu. En á
síðustu mínútu leiksins hafði
Steindór betur. Arnar sendi innfyrir
vörnina og Steindór skoraði með
viðstöðulausu skoti af stuttu færi.
Framarar léku mun betur og í
fyrri hálfieik áttu þeir nánast allan
leikinn. Pétur Ormslev og Steinar
áttu frábæran leik og liðið vann vel
saman. í síðari hálfleik var hinsveg-
ar minni kraftur í liðinu og greini-
legt að eitthvað þarf að gera við
vörnina, sem er langt frá því að
vera örugg. Það er engu að síður
ákaflega undarlegt að ekki skuli
vera einn einasti Framari í landslið-
inu.
Breiðablik átti minna í leiknum
en leikmenn bættu það upp með
mikilli baráttu og krafti. I síðari
hálfleik hvarf skrekkurinn og spilið
kom á miðjuna. Liðið á örugglega
eftir að taka mikið af stigum í sum-
ar og það getur varla kallast slæm
byijun að taka stig af Islandsmeist-
urunum á útivelli.
Arnar
Bjarki
■ FJÓRIR leikmenn Breiðabliks
stigu fyrstu skref sín í 1. deild gegn
Fram og tveir þeirra gerðu reyndar
mörk liðsins. Grétar Steindórsson,
Steindór Elísson, Eiríkur Þor-
varðarson og Pavol Kretovic.
Einn Framari lék í fyrsta sinn í
deildinni; Ásgeir Ásgeirsson.
■ FRAMARAR hafa líklega gert
sér vonir um sigur gegn Breiða-
bliki en þeir geta huggað sig við
að þeir voru eina liðið sem ekki
tapaði á heimavelli í fyrstu umferð-
inni.
■ ARI Þórðarson, UBK, féll út
af dómaralista 1. deildar í blaðinu
á laugardag, en Ari er einn af 15
dómurum deildarinnar.