Morgunblaðið - 22.05.1991, Side 9
reei íam .22 íiUDAatDHVGit/.íUTTOJWl aiaAJaMUDíiOM
' MÖRGUNBLAÐÍð" IÞRO i lltiMÍÐVIKUDAgDr 22. MAÍ1991
a 8
B 9
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 2. DEILD
SUND
Auðvelt hjá
Skagamönnum
ÍA hafði mikla yfir burði gegn
nýliðum Hauka er liðin mætt-
ust á grasinu í Hvaleyrarholt-
inu í 2. deild íslandsmótsins í
gærkvöldi. Skagamenn lögðu
grunninn að 4:1 sigri með góð-
um leik í fyrri hálfleik.
Það var Bjarki Gunnlaugsson
sem gaf tóninn fyrir gestina á
24. mínútu er hann skoraði af stuttu
færi eftir góðan samleik. Haukar
HHHHi jöfnuðu gegn gangi
Frosti leiksins á 33.
Eiðsson mínútu þegar að
skrifar Brynjar Jóhannes-
son skallaði í markið
frá markteig eftir hornspyrnu
Gauta Marinóssonar. Það tók
Skagamenn ekki nema fimm mínút-
ur að ná aftur forystunni með marki
Arnars Gunnlaugssonar af stuttu
færi og Þórður Guðjónsson bætti
þi'iðja markinu við á 40. mínútu
með föstu skoti af stuttu færi. Leik-
urinn bauð ekki upp á jafn mikla
skemmtun fyrir áhorfendur í síðari
hálfleiknum. Haukar komust meira
inn í leikinn þó að ÍA héldi frum-
kvæðinu. Síðasta markið og jafn-
framt það fallegasta leit svo ljós á
65. mínútu. Karl Þórðarsson lagði
þá boltann fyrir sig fyrir utan víta-
teig og skaut síðan. Boltinn hafnaði
í stönginni efst í hægra markhorn-
inu og skaust þaðan í netið. Karl
sem er að hefja sitt 20. keppn-
istímabil sagði eftir leikinn að
markið væri það fallegsta sem hann
hefði gert á löngum ferli.
Það voru fáir veikir hlekkir í
Skagaliðinu. Liðið náði oft upp
ágætis spili og hreyfanleiki var
mikill, sérstaklega í.fyrri hálfleikn-
um. Tvíburarnir Arnar og Bjarki
voru ásamt þeim Þórði og Alexand-
er Högnasjni bestu menn í annars
jöfnu liði IA.
„Við komum vel undirbúnir í
þennan leik. Baráttan framundan
verður hörð en það kemur ekkert
annað til greina en sigur. Ég hef
verið gagnrýndir fyrir að nota unga
leikmenn en þeir stóðu vel fyrir sínu
í þessum leik,“ _sagði Guðjón Þórð-
arson, þjálfari ÍA.
Þorsteinn, Kristján og Brynjar
sýndu ágæt tilþrif hjá Haukum en
ljóst er baráttan verður erfið hjá-
liðinu í sumar.
Maður leiksins:
Bjarki Gunnlaugsson.
Þróttur krækti
íeittstig
NÝLIÐAR Þróttar kræktu í eitt
stig þegar þeir heimsóttu
Þórsara á Akureyri í gær-
kvöldi. Leikið var á iðagrænum
grasvelli Þórsara.
Nýliðarnir byijuðu frísklega í
leiknum og náðu forystu eftir
aðeins fimm mínútna leik, áhorf-
endum og stuðningsmönnum Þórs
til mikillar skelfing-
ar.Það var Jóhannes
Jónsson sem skoraði
mark gestanna með
góðu skoti af um 20
Anton
Benjamínsson
skrifarfrá
Akureyri
Stórsigur
ÍR-inga á
metra færi. Friðrik Friðriksson,
markvörðui' Þórs, gerði ekki tilraun
til að veija.
Jafnræði var fram í leikhlé en
heimamenn mættu mun ákveðnari
til síðari hálfleiks. Jöfnunarmarkið
lét þó á sér standa og það kom
ekki fyrr en á 62. mínútu þegar
Júlíus tryggvason skoraði úr vítasp-
rynu sem dæmd var þegar Guð-
mundur Erlingsson, markvörður
Þróttar, felldi Bjarna Sveinbjörns-
son sem var nýkominn inná sem
varamaður.
Þórsarar voru beittari í sóknarað-
gerðum sínum það sem eftir var
og fengu tvö mjög góð færi sem
ekki nýttust. Fyrst skaut Birgir
Karlsson framhjá eftir að hann
komst einn inn fyrir vörn Þróttar
og síðan átti Bjarni gott skot sem
Guðmundur varði frábærlega vel.
Maður leiksins:
Halldór Áskelsson, Þór.
Selfossi
ÍR sigraði Selfoss með fjórum
mörkum gegn engu ífyrstu
umferð 2. deildar þegar liðin
mættust á Selfossi í gærkvöldi.
Ragnheiður og Eðvarð
Þór náðu bestum árangri
RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir, ÍA, og Eðvarð Þór Eðvarðsson,
SFS, náðu bestu afrekunum á Stórmarkaðsmótinu í sundi sem
fram fór í Keflavík á laugardaginn. Ragnheiður synti 200 m bringu-
sund á 2:41,23 mfn. sem gaf 753 stig og Eðvarð Þór synti 50 m
baksund á 0:28,15 mín. sem gaf 720 stig. Þau hlutu bæði glæsi-
lega verðlaunagripi sem Jónas Ragnarsson eigandi Stórmarkaðs
Keflavíkur gaf af þessu tilefni. Eðvarð Þór fékk harða keppni frá
Magnúsi Ólafssyni, SFS, sem náði næst besta afrekinu f karla-
flokki, en hann synti 50 m skriðsund á 0:24,96 mín.
Mikil þátttaka var á mótinu
og voru keppendur 108 frá
8 félögum. Ágætur árangur náðist
í mörgum greinum þrátt fyrir óhag-
stætt veður og þá
Björn sérstaklega hjá
Biöndai yngra sundfólkinu
skrifarfrá en hjg varg ag gera
a keppnmm í
tvígang vegna úrkomu. „Ég gerði
ekki ráð fyrir að gera neina stóra
hluti á þessu móti, enda var það
meira hugsað sem æfingamót fyrir
okkur vegna smáþjóðaleikanna í
Andorra,“ sagði Eðvarð Þór Eð-
varðsson eftir mótið. Eðvarð sagist
miða undirbúning sinn við Evrópu-
meistaramótið í Aþenu í ágúst.
Sundlandsliðið hélt utan á hvíta-
sunnudag til Andorra en að lokinni
keppni þar verður haldið til Frakk-
lands þar sem áætlað er að dvelja
í æfingabúðum í mánaðartíma. Jón
Helgason fararstjóri hópsins sagði
að einnig væri rágert að keppa á
nokkrum sterkum mótum til að
veita þeim sundmönnum tækifæri
sem enn hefðu ekki náð lágmörkum
fyrir Evrópumeistaramótið.
Morgunblaðið / KGA
Karl Þórðarson og Bjarki Gunnlaugsson fagna Þórði Guðjónssyni eftir þriðja mark ÍA. Vonleysið leynir sér ekki hjá
Haukunum Guðjóni Guðmundssyni, Siguijóni Dagbjartssyni, Birni Svavarssyni og Þorsteini Ólafssyni.
Gríndvíkingar sprækir
GRINDVIKINGAR tóku hraust-
lega á móti Tindastólsmönnum
ífyrstu umferð 2. deildar í
Grindavík ígærkvöldi. Þeir
gerðu fjögur mörk gegn engu
gestanna og áttu færi á að
gerafleiri.
Heimamenn voru aðgangsharð-
ari við mark Tindastóls í fyrri
hálfleik og fyrstá markið kom á 22.
mínútu. Páll Björnsson fékk knött-
•■■■■■ inn frá varnarmanni
Frimann Tindastóls, lék á
Ólafsson skrifar Gísla Sigurðsson
frá Grindavík markvörð og renndi
knettinum í netið.
Á 35. mínútu skaut Einar Dan-
íelsson óvænt að marki Tindastóls
en Gísli sló boltann aftur fyrir og
upp úr horninu barst boltinn til
Einars sem skoraði með góðu skoti
af stuttu færi.
Þriðja markið kom síðan á
markamínútunni, þeirri 43. og enn
var Einar Daníelsson að verki. Hann
skoraði eftir að Omar Torfason
hafði átt bylmingsskot í stöngina á
marki Tindastóls.
Gestirnir sóttu nokkuð í upphafi
síðari hálfleiks en komust lítið áleið-
is gegn sterkri vörn Grindvíkinga.
Heimamenn náðu síðan yfirhönd-
inni á ný og á 65. mínútu skoraði
Einar sitt þriðja mark og íjórða
mark Grindvíkinga. Þar með inn-
siglaði hann góðan sigur heima-
manna.
Leikurinn var í heild ágætlega
leikinn á mölinni í Grindavík og
áttu heimamenn ágæta spretti en
duttu nokkuð niður í síðari hálfleik.
Einar Daníelsson átti mjög góðan
leik og réðu gestirnir ekkert við
hraða hans og leikni.
Maður leiksins:
Einar Daníelsson, UMFG.
Keflvíkingar jöfnuðu
„VIÐ vorum betri og hefðum
átt að sigra, en málið var að
okkur tókst ekki að nýta fær-
in,“ sagði Kjartan Másson
þjálfari ÍBK eftir að lið hans
hafði náð jafntefli á síðustu
stundu gegn Árbæjarliðinu
Fylki í Keflavík í gærkvöldi.
Keflvíkingar voru lengstum
sterkari aðilinn, en Fylkismenn
voru fastir fyrir og beittu snörpum
Blöndal
skrifar frá
Keflavik
skyndisóknum sem oft sköpuðu
■■■■■ hættu við mark
Björn heimamanna. Mark
Fylkis kom einmitt
eftir skyndisókn á
43. mínútu og var
þar að verki Finnur Kolbeinsson.
í síðari hálfleik héldu Keflvíking-
ar uppteknum hætti og gerðu hvað
eftir annað harða hríð að marki
Fylkis og það var síðan ekki fyrr
en á 87. mínútu að Óla Þór Magnús-
syni tókst að jafna.
„Ég get vel verið sáttur við þessi
úrslit þó að það hafi verið hálfs-
vekkjandi að fá á sig mark á síðustu
mínútunum. Þetta v.ar skemmtileg-
ur baráttuleikur og ég held að eftir
atvikum hafi jafntefli verið sann-
gjörn úrslit,“ sagði Marteinn Geirs-
son þjálfari Fylkis.
Maður leiksins:
Páll Guðmundsson, Fylki.
Helgi
Sigurðsson
skrifarfrá
Selfossi
Fyrri hálfleikur var jafn og bæði
lið sóttu grimmt, þó voru Sel-
fyssingar ívið sterkari. En fyrsta
mark leiksins kom á 40. mínútu og
var þar að verki IR-
ingurinn Bragi
Björnsson, sem átti
eftir að koma mikið
við sögu.
Síðari hálfleikur byijaði líkt og
sá fyrri endaði. Bæði lið sóttu á
víxl en þegar rúmar tuttugu mínút-
ur voru liðnar tóku ÍR-ingar öll
völd og skoruðu þijú mörk á fimm
mínútum. Bragi Björnsson gerði öll
mörkin og var vel staðið að öllum
þeirra.
Besti maður Selfyssinga var Guð-
jón Þorvarðarson, sem barðist vel
í leiknum og gafst aldrei upp. Bragi
Björnsson stóð sig mjög vel í liði
ÍR og var síógnandi.
Dómari var Ólafur Sveinsson
Maður leiksins:
Bragi Björnsson, IR.
Morgunblaðiö/Bjöm Blöndal
Eðvarð Þór Eðvarðsson SFS og Ragnheiður Runólfsdóttir ÍA með verð-
laun sín.