Morgunblaðið - 22.05.1991, Síða 11
7.7 i MOUGUNBIjXÐIÐ'IÍWIOI IiRMlÐVlKUDAjGUR 22. MAÍ 1991
B <U
KNATTSPYRNA / ENSKA BIKARKEPPNIN
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Fra
JóniHalldóri
Garðarssyni
ÍÞýskalandi
Morgunblaðið/Andrés Pétursson
Guðni Bergsson lék ekki úr-
slitaleikinn, en hér er hann með
bikarinn. Á myndinni til hliðar
eru miklir stuðningsmenn
Pauls Gascoignes á Wembley.
ÍÞRÚmR
FOLX
I SIEGFRIED _ Held, fyrrum
landsliðsþjálfari íslands í knatt-
spyrnu, er kominn á launaskrá á
ný. Hann var ráðinn þjálfari aust-
urríska liðsins
Admira Wacker til
eins árs og er tak-
markið að liðið
tryggi sér sæti í
Evrópukeppni næsta ár.
■ BAYERN Miinchen hefur
augastað á belgíska landsliðs-
manninum Enzo Scifo, sem leikur
með Auxerre. Tórínó á Italíu hef-
ur hann einnig undir smásjánni.
■ BAYERN hefur einnig litið til
Englands með Paul Innes hjá
Manchester United, Dean Saund-
ers hjá Derby og David Platt hjá
Aston Villa í huga.
■ INTER Mílanó og AC Milan
hafa bæði áhuga að fá Rudi Völler
til liðs við sig. Ef Völler fer til AC
Milan, mun hann taka stöðu Ruud
Gullit.
■ NAPOLÍ er tilbúið að kaupa
Thomas Doll frá Hamburger.
■ GUMMERSBACH varð þýsk-
ur meistari í handknattleik. Liðið
vann fyrri úrslitaleikinn gegn Kiel,
22:14, á heimavelli, og seinni leik-
inn 13:11. Thiel, markvörður, varði
frábærlega í báðum leikjunum og
lagði grunninn að titlinum. Liðið
leikur tvo leiki við Magdeburg um
hvort liðið tekur þátt í Evrópu-
keppni meistaraliða.
■ KARL-HEINZ Körpel verður
heiðraður fyrir leik Frankfurt og
Leverkusen 30. maí. Það verður
600. leikur hans í úrvalsdeildinni
og hefur enginn náð því marki.
■ STUTTGART stóð fyrir söfnun
á mjólkurvörum, lyfjum og sjúkra-
tækjum og gaf borginni Kiev í
Sovétríkjunum. Verðmætið var
tæplega 568 þúsund mörk eða tæp-
lega 20 millj. ísl. kr.
Hápunktur ferilsins
eftir mjög erfitt ár
- sagði Terry Venables eftir að hafa stjórnað Tottenham til sigurs
sagði Clough, sem er 56 ára og
hefur á 25 ára þjálfaraferli aldrei
sigrað í bikarkeppninni.
Leikmenn Forest tóku ósigrinum
illa og voru miður sín inni í búnings-
klefa, en Clough stappaði í þá stál-
inu. „Eg ætla ér að koma hingað
aftur,“ sagði hann. „Ég iief fundið
smjörþefinn af úrslitaleiknum og
mér iíkar það. Því spyr ég: Hveijir
verða mér næst samferða?“ Síðan
tók hann að syngja „Fly me to the
moon“ sem Frank Sinatra söng á
sínum tíma, og hópurinn fór léttur
í bragði út í rútu.
ÍÞRÚmR
FOLX
■ TOTTENHAM sigraði í átt-
unda sinn í bikarkeppninni, sem er
met. 80.000 áhorfendur greiddu lið-
lega 200 milljónir í aðgangseyri,
600 milljónir fylgd-
FráBob ust með leiknum í
Hennessy sjónvarpi og Tott-
/ Englandi enham gerir ráð
fyrir að Evrópu-
keppnin á næsta tímabili færi fé-
laginu rúmlega 200 milljónir í vas-
ann.
■ TERRY Venables verður boð-
inn nýr samningur til árs í vikunni
liðlega 30 milljónir í árslaun.
■ 250.000 manns fögnuðu meist-
urunum í Norður-London á sunnu-
dag, þegar þeir óku sigurhring.
■ PAUL Gascoigne lék aðeins
17 mínútur í „kveðjuleiknum". ít-
alska liðið Lazio ætlaði að kaupa
hann á tæplega milljarð, en hann
verður vart góður fyrr en um jól
og óvíst hvort af kaupunum verður.
I ROGER Milford, dómari, sagði
að Gazza hefði undir venjulegum
kringumstæðum fengið rautt spjald
fyrir brotið. „Ég gerði ekki rétt
vegna samúðar og mannlegs eðlis.
Þegar ég sá hvað hann kvaldist og
sjúkraþjálfarinn sagði „þetta er
búið hjá honum“ fannst mér nóg
komið.“
■ DES Walker hefur leikið 292
leiki með Nottingham Forest og
aldrei skorað réttu megin. „Hann
hefur mikla hæfileika og fær vel
borgað, en þegar hann gerir sjálfs-
mark er það 'hans ábyrgð. Ég fann
meira til með sjálfum mér en hon-
um, þegar hann skoraði," sagði
Brian Clough.
■ STEVE Kirk kom inná sem
varamaður og gerði sigurmark
Motherwell í framlengingu í 4:3
sigri gegn Dundee United í úrslit-
um skosku bikarkeppninnar. Kirk
skoraði einnig sem varamaður gegn
Aberdeen Falkirk og Celtic í fyrri
umferðum.
■ „EINVÍGI bræðranna“ var
viðureignin gjarnan nefnd. Tommy
McLean stjórnar Motherwell og
Jim, bróðir hans, er við stjórnvölinn
hjá United.
■ MOTHERWELL, sem sigraði
einnig í bikarkeppninni fyrir 39
árum, tekur í fyrsta sinn þátt í
Evrópukeppni í haust. Dundee
United hefur sex sinnum leikið til
úrslita í bikarnum, en aldrei sigrað.
■ TONY Boyd, fyrirliði Mother-
well, var seldur til Chelsea í gær
fyrir liðlega 80 milljónir.
■ DON Howe var f gær látinn
taka poka sinn hjá QPR eftir 18
mánuði við stjórnvölinn.
TOTTENHAM fagnaði sigri í
ensku bikarkeppninni um helg-
ina eftir 2:1 sigur gegn Notting-
ham Forest í framlengdum leik
á Wembley á laugardag. Stuart
Pearce skoraði fyrir Forest úr
aukaspyrnu, Paul Stewart jafn-
aði skömmu eftir hlé og Des
Walker gerði sjálfsmark í byrj-
un framlengingarinnar.
Tottenham fékk óvæntan mót-
byr. Paul Gascoigne fór í mjög
svo vafasamt návígi, sleit krossband
og Forest skoraði úr aukaspyrn-
unni. Gary Lineker
FráBob skoraði en var
Hennessy dæmdur rangstæð-
i Englandi ur 0g svo fiskag;
hann vítaspyrnu, en
Mark Crossley varði frá honum.
Mótlætið var mikið, en sigurinn
sætari fyrir bragðið.
„Eftir allt, sem á undan hefur
gengið verð ég að segja að þetta
sé hápunkturinn á ferlinum," sagði
Terry Venables. „Árið hefur verið
erfitt. Það hefur komið leikmönnun-
um úr jafnvægi og því er þetta
mikill sigur fyrir þá. Einnig fyrir
stuðningsmennina og ég er svo
sannarlega hreykinn."
Brian Clough Ieit út sem gamall
maður í grænni peysu, en tók fyrir
að hann væri að hætta. „í knatt-
spyrnunni er aðeins hægt að horfa
fram á við og það kemur ekki til
greina að hætta strax. Ég ætla að
vera hér að ári og ná í bikarinn,“
Olafur í lykilhlutverki
DAGINN fyrir þjóðhátíðardag Norðmanna, 16. maí, sigraði Lyn
Strömsgodset 1:0. Besti maður vallarins var Ólafur Þórðarson.
í leiknum gegn „gamla“ stórliðinu Lilleström, sem fram fór á
annan í hvítasunnu voru ekki liðnar nema 45 sekúndur, er Ólaf-
ur hafði skorað stórglæsilegt mark. Tom Fodstad komst upp
vinstri kant og gaf góða sendingu fyrir markið, sem Ólafur tók
á móti með sínum breiða brjóstkassa og skoraði síðan með
góðu skoti. Lyn vann örugglega 3:2 og Olafurvar valinn maður
leiksins af stuðningsmönnum Lyn.
KNATTSPYRNA / ITALIA
„Höfum aldrei
leikið betur"
SAMPDORIA tryggði sér
meistaratitiiinn á Italíu í fyrsta
sinn með 3:0 sigri gegn Lecce
um helgina, en ein umferð er
eftir og Sampdoria með f imm
stig á AC Milan, sem tapaði
óvænt, 2:1, gegn Bari á úti-
velli. Lecce féll hins vegar í 2.
deild ásamt Bologna, Cesena
og Pisa.
Brasilíumaðurinn Cerezo, varn-
arnaðurinn Mannini og marka-
kóngurinn Vialli skoruðu fyrir
meistarana í mjög góðum leik.
„Við lékum sannkallaðan
draumaleik fyrir hlé,“ sagði Júgó-
slavinn Vujadin Boskov, þjálfari
Sampdoria. „Við höfum aldrei leikið
betur og höfðum mikla yfirburði
hvað nákvæmni og tækni varðar.
Jafnvel mörkin voru þau bestu, sem
við höfum gert í langan tíma. Ég
er sannfærður um að titillinn var
verðskuldaður. Við höfum aðeins
tapað þremur af 33 leikjum oggerð-
um flest mörk allra liða í deildinni."
Schillaci skoraði loks eftir sex
mánaða bið, þegar Juventus vann
Pisa 4:2. Juventus, Genoa, Parma
og Tórínó beijast um þrjú UEFA-
sæti.
Eftir markið hafði Lyn ávallt
frumkvæðið í leiknum og sigur
liðsins var aldrei í hættu. Ólafur
sagði við Morgunblaðið að hann
^I væri mjög ánægður
Erlingur með leiki liðsins.
Jóhannsson „Það eina sem er
skrifar ábótavant er að við
ra oregi náum ekki að nýta
öll marktækifæri, sem við fáum.
Við hefðum átt að vinna Lilleström
með þremur til fjórum mörkum.
Annars er ég mjög sáttur við mína
frammistöðu að undanförnu og ég
finn að ég tek framförum í hveijum
leik.“
Ekki með gegn Tromsö
Ólafur fer í dag til móts við
íslenska landsliðið, sem Ieikur gegn
Albaníu á sunnudag og því verður
hann ekki með í næsta leik Lyn —
gegn Tromsö. Ólafur sagði að Teit-
ur bróðir sinn væri óhress með það,
en við þessu er ekkert að gera því
í samningi Ólafs við Lyn kemur
skýrt fram að ef leikir Lyn og lands-
liðsins beri upp á sama dag, þá
hefur landsliðið forgang.
að loknum fimm umferðum í
norsku 1. deildinni, hafa þijú lið
stungið af; Viking með 13 stig, Lyn
með 12 stig og Kongsvinger með
11 stig. Sogndal er í fjórða sæti
með sjö stig. Athyglivert er að
Rosenborg, sem vann tvöfalt í fyrra
og spáð var góðu gengi í sumar er
neðst með þijú stig.