Morgunblaðið - 22.05.1991, Side 12
WBsast
mm
JHaygíimWflMÍ*
Svona hópur
kemur ekki
fram nema
á 20-30
ára
Morgunblaöiö / Theodór Halldórsson
""Á leiðinni heim méð sigurlaunin sem keypt voru í fríhöfninni í Helsinki. Jason hampar kristallsbikamum og fyrir aftan hann eru þeir Páll og Dagur. Patrekur
fyrirliði og Ragnar eru hægra megin á myndinni.
ísland sigraði á IMM
með fullu húsi sliga
X)agur Sigurðsson bestur og Karl Karlsson markahæstur
ÍSLENSKA landsliðið fhand-
knattleik, skipað leikmönnum
18 ára og yngri, tryggði sér
Norðurlandameistaratitilinn í
handknattleik um Hvítasunnu-
helgina en mótinu lauk á
sunnudag í Karel í Finnlandi.
Liðið vann Dani á laugardag
23:19 í leik þar sem ísland
leiddi með 1-2 mörkum nær allan
tímann. Síðasti leikur liðsins var
gegn Noregi. Hann vannst 22:19 í
miklum baráttuleik og þar með var
Norðuriandatitillinn í höfn. Norð-
menn, sem eygðu möguleika á 2.
sætinu í mótinu með sigri komu
ákveðnir til leiks en leikreynsla
íslensku piltanna og stórleikur Ja-
sonar Olafssonar höfðu mikið að
segja þegar upp var staðið. Svíar
hafa verið með sterkasta liðið und-
anfarin ár en þeir þurftu að sætta
sig við annað sætið eftir tap í opn-
unarleiknum gegn íslandi. Annars
var mótið jafnara en undanfarin ár,
bæði Norðmenn og Danir tefldu
fram sterkum liðum og úrslitin réð-
ust ekki fyrr en eftir síðasta leikn-
um, gegn Noregi.
íslensku piltarnir, sem leikið hafa
sautján leiki á síðustu tveimur
árum, tókst að halda fullu húsi í
mótinu en þessi aldurshópur hefur
einu sinni áður orðið Norðurlanda-
meistari. Það var árið 1970 en þá
voru meðal annarra í liðinu Páll
Björgvinsson og Stefán Gunnars-
son.
Dagur besti leikmaðurinn
„Það kom mér á óvart að fá þessa
útnefningu og ég hefði ekki getað
látið mér detta það í hug fyrir
mótið að ég yrði valinn besti leik-
maðurinn. Eg fann mig vel í keppn-
inni en það sem skipti mestu var
að liðið small saman og hópurinn
var mjög samstilitur,“ sagði Dagur
Sigurðsson, sem var kosinn besti
leikmaður mótsins. Hann tók við
hlutverki leikstjórnanda þegar að
Patrekur Jóhannesson, fyrirliði liðs-
ins meiddist í vetur. Patrekur sem
hefur að mestu náð sér var hins
vegar ein af kjölfestunum í 6-0
vörn liðsins sem gaf góða raun.
Liðið fékk aldrei meira en tuttugu
mörk á sig í leikjunum ijórum.
Karl Karlsson varð markahæsti
maður mótins en hann skoraði 33
mörk í fjórum leikjum eða rúm átta
mörk í leik.
„Það er mikill styrkur í þessu liði
og við áttum þetta fyllilega skilið.
Mér fannst leikurinn við Dani erfið-
astur, Svíarnir eru svipaðir að getu
og við en það var einfaldlega dags-
formið sem réði úrslitum," sagði
Karl.
Langflestir leikmanna liðsins eru
fæddir 1972 og því færast þeir upp
á næsta ári. Dagur er hins vegar
fæddur 1973 og hann á því eitt ár
eftir með þessu landsliði eins og
félagi hans í Val, Ólafur Stefáns-
son.
Það var finnskt félagslið sem
hafði umsjón með mótinu og að
sögn fararstjóra liðsins var aðbún-
aður nokkuð frumstæður. Hópurinn
gisti í tveimur herbergjum, tíu
manns í hvoru í herskóla í Karis.
Þá var Islenska liðinu ekki veittur
bikar fyrir sigurinn á mótinu og
hlýtur það að teljast all sérstætt
þegar um er að ræða Norðurlanda-
mót í flokkaíþrótt.
Urslit / B10
valdir
ÍU-21
hópinn
SEX. leikmenn úr landsliðinu
18 ára og yngri í handknatt-
leik hafa verið valdir ungl-
ingalandsliðið undir 21. árs
sem tekur þátt í Evrópumót-
inu í Grikklandi í september.
Þrír leikmenn úr Fram voru
valdir. Karl Karlsson,
Ragnar Kristjánsson og Páll
Þórólfsson en auk þeirra Patrek-
ur Jóhannesson úr Stjörnunni,
Dagur Sigurðsson Val og Ingvar
Ragnarsson markvörður úr
Stjörnunni.
•tóoiMiVAœii
K*<«
Sf.uw»iNri
mm m m ■ ■ ■ Morgunblaðið / Theodór Halldórsson
Nordurlandameistarar
Islenska liðið sem tiyggði sér Norðurlandameistaratitilinn. Fremri röð frá vinstri: Jason Ólafsson, Gunnar Kvaran,
Reynir Reynisson, Asgeir Baldursson, Ingvar Ragnarsson, Andri V. Sigurðsson, Björgvin Björgvinsson, Valgarð
Thoroddsen. Efri röð frá vinstri: Geir Hallsteinsson þjálfari, Róbert Sighvatsson, Páll Þórólfsson, Ragnar Kristjáns-
son, Patrekur Jóhannesson, Dagur Sigurðsson, Karl Karlsson, Ólafur Stefánsson og Kristján Halldórsson aðstoðar-
þjáifari.
„HÓPUR af þessum styrk-
leika kemur ekki fram nema
á 20-30 árs fresti. Strákarn-
ir hafa allt sem þarf að bera
til að ná árangri; hæfileika,
metnað, aga, „karakter,“ og
mikla samheldni þar sem
allir hjálpast að,“ sagði Geir
Hallsteinsson þjálfari pilta-
landsliðsins eftir sigurinn á
Norðurlandamótinu.
Þetta var mjög jafnt mót og
það mátti ekkert út af bera.
Við höfum oft verið nálægt því
að sigra en Svíamir hafa alltaf
verið erfiðir. Það var gott að fá
þá í fyrsta leik, ég hefði ekki
viljað mæta þeim í lokin því að
þeir voru mjög stígandi á mót-
inu. Þessi sigur er rós í
hnappagatið hjá unglingáþjálf-
umm hér á landi og sýnir að
við emm á réttri leið. Þetta er
án efa stærsta stund mín sem
þjálfari og ég er illa svikinr. ef
að þessi kjami verður ekki í
eldlínunni fyrir a-landsliðið í
heimsmeistarakeppninni 1995,
• hér heima,“ sagði Geir sem að
öllum líkindum mun halda áfram
með liðið á næsta ári en formað-
ur unglingalandsliðsnefndar,
Gunnar Kvaran sagði að nefndin
myndi mæla með endurráðningu
hans.
NM íhandknattleik, 18 ára og yngri:
GETRAUNIR: 221 11X 12X 22 2
LOTTO: 3 4 13 15 26 + 36