Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/IIMNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1991 EFNI Einn á slysa- deild með reykeitrun ELDUR kviknaði í risíbúð við Framnesveg á laugardagsnótt. Tilkynnt var um eldinn klukkan hálf þrjú og kom lögregla fljótt á vettvang. Reyndu íbúðareigandi og lög- regla að ráða niðurlögum eldsins með slökkvitækjum en tókst ekki. Skömmu síðar kom slökkvilið á vettvang. Einn íbúi var fluttur á slysadeild með reykeitrun, hann var ekki í lífshættu. Um hálfa klukkustund tók að slökkva eldinn og urðu miklar skemmdir á íbúðinni. Morgunblaðið/Ingvar Miklar skemmdir urðu á ris- íbúð húss við Framnesveg af völdum elds í fyrrinótt. Rekstrarlán til fiskeldis: Þrjú fyrirtæki fá meginhluta fjárins ÞRJÚ fyrirtæki fá meginhluta rekstrarlána til fiskeldis sem nýlega var úthlutað. Pharmaco hf., Silfurstjarnan hf. og Silfurlax hf. fá 78 milljónir af þeim 93 sem úthlutað var, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Pharmaco fær í sinn hlut 30 millj- ónirkróna, Silfurstjarnan 28 milljón- ir og Silfurlax 20 milljónir. 15 millj- ónir skiptast á milli Óslax hf., Straumfisks hf., Strandarlax hf. og Læks hf. Ingimar Jóhannsson fískifræðing- ur var formaður úthlutunarnefndar rekstrarlánanna, en nefndin var skipuð af landbúnaðarráðherra. Ingimar vill sem minnst um úthlut- unina segja enda hafí nefndarmenn orðið ásáttir um að fjölyrða ekki um störf sín opinberlega. Auk þess hafí nefndin ekki lokið úthlutun og enn eigi nokkur fyrirtæki von í úthlutun lána. Með Ingimar sátu í nefndinni Snorri Tómasson hagfræðingur og Jóhanna Ottesen viðskiptafræðing- ur. Bændaskólarnir á Hólum og Hvanneyri: Engir nemendur í skipu- lögðu námi í loðdýrarækt Mun minni aðsókn að námi í fiskeldi en áður ENGIR nemendur raunu stunda nám í loðdýrarækt sem valgrein í bændaskólunum á Hólum og Hvanneyri í vetur. Fyrir nokkrum árum var mikil aðsókn að námi í greininni, en nú er hún eingöngu kennd sem hluti af almennu grunnnámi. Aðsókn að námi í fiskeldi hefur einnig dregist verulega saman að undanförnu. Á Hólum velur nú um fjórðungur nemenda nám í greininni en það hlutfall var fyrir fjórum árum tveir þriðju. Eins er aðsókn nú dræm að námsbraut í fiskeldi, sem starfrækt er á Kirkjubæjarklaustri. Sveinn Hallgrímsson, skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri, segir að aðsókn að skólanum í haust sé svipuð og undanfarin ár. Þróunin hafí verið sú, að fækkað hafí í al- menna grunnnáminu, en nemend- um í búvísindadeild skólans, sem er á háskólastigi, og í endurmennt- unamámskeiðum hafí fjölgað. Sveinn segir að undanfarin 2 til 3 ár hafí enginn nemandi valið loð- dýrarækt sem valgrein. Hins vegar sé kynning á henni fyrir nemendur á fyrsta ári, eins og á öðmm bú- greinum. Hann segir að þrátt fyrir minni áhuga á greininni reki skólinn áfram loðdýrabú með húsum fyrir 100 refi og 300 minnka og geri menn það í því skyni að viðhalda þekkingu og vera við því búnir að mæta aukinni aðsókn, ef áhugi á Ioðdýrarækt aukist aftur. Jón Bjamason, skólastjóri Bænd- askólans á Hólum, segir að aðsókn að skólanum sé mjög góð og fleiri sæki um skólavist en hægt sé að taka inn. í skólanum séu tvær brautir, almennt landbúnaðamám annars vegar og fiskeldi og físki- rækt hins vegar. Almenna landbún- aðarnámið skiptist í nám í búfjár- rækt og hrossarækt og reið- mennsku. Sú breyting hafí orðið á undanförnum áram, að verulega hafí fækkað í fiskeldisnáminu en mikill áhugi sé á hrossaræktinni og öllu því sem við kemur hestum. Hann segir að fyrir fjóram árum hafí tveir þriðju nemenda við skól- ann valið fískeldisnám en nú sé það einungis um það bil fjórðungur. Jón segir að áður hafi verið vera- legur áhugi á námi í loðdýrarækt en nú stundi engir nemendur skipu- la.gt nám í greininni. Skólinn eigi hins vegar kennslubú og loðdýra- ræktin sé kynnt fyrir fyrsta árs nemum en nú sé fyrst og fremst lögð áhersla á námskeiðahald og stuðning við fólk í atvinnugrein- inni. I kennslubúinu séu 250 minka- læður og 50 refalæður og skólinn sé vel undir það búinn að hefja skipulagða kennslu ef áhugi fari aftur vaxandi. í Kirkjubæjarskóla á Kirkjubæj- arklaustri er boðið upp á námsbraut í fískeldi og varð hún hluti Fjöl- brautaskóla Suðurlands fyrir tveim- ur áram. Hanna Hjartardóttir, skólastjóri, segir að útlit sé fyrir að aðsókn að brautinni í haust verði svipuð og í fyrra, en þá hafí hún verið fremur dræm. Áður hafí ekki verið hægt að taka inn nema hluta umsækjenda en nú sé hægt að veita flestum skólavist, sem uppfylli lág- markskröfur um undirbúning. Hanna segir að ekki hafi orðið veralegar breytingar á náminu frá því námsbrautinni var komið á fót, en þó sé sífellt unnið að nýjungum. Nú sé til dæmis unnið að rannsókn- um á kvíaeldi í stöðuvötnum og álarækt. Þá sé einnig lögð aukin áhersla á námskeiðahald fyrir þá sem stundi rekstur í greininni. Hanna segist óánægð með þá umræðu sem fari fram í þjóðfélag- inu um stöðu fiskeldisins. Til séu fiskeldisstöðvar sem gangi mjög vel og meðal annars sé fiskeldisstöð skólans rekin með hagnaði. Uppgröftur í Viðey: Fullvíst talið að rústirnar séu af klausturbyggðinni Perlur úr talnaböndum finnast í stofu bæjarins MARGRET Hallgrímsdóttir borgarminjavörður, sem stjórnar uppgreftri fornleifa í Viðey, telur að nú sé fullvíst að rústirnar sem grafið er í séu af klausturbyggðinni í eynni, en þar var klaustur starfrækt frá 13. öld til 16. aldar. Þessa dagana er ver- ið að rannsaka stofu gangabæjar er tilheyrði klausturbyggðinni og hafa ýmsir athygliverðir hlutir verið grafnir upp að sögn Margrétar. Þetta er fimmta sumarið sem grafíð er í rústunum í Viðey. Margrét segir að nú sé verið að rannsaka miðaldalög í stofu er liggur út frá gangi klausturbæjar- ins en þegar hafa verið athuguð skáli og búr bæjarins. I stofunni hefur ýmislegt verið grafíð upp t.d. soðhola og eldstæði. Einnig hafa fundist bökunarhellur, kvarnarsteinar, perlur úr talna- böndum og steinkolur eða stein- lampi og ílát úr svokölluðu stein- taui, sem hafa líklega verið undir krydd eða olíu. í einum torfvegg stofunnar sést lag af svonefndri landnámsgjósku, en það gefur til kynna að stofan sé byggð eftir 900, en Viðeyjarklaustur var starfrækt frá 13. öld til 16. aldar. Að sögn Margrétar hefur í sum- ar einnig verið grafíð í bæjar- göngunum og fannst þar lítið ker- ald en það þykir nokkuð sérkenni- legt að finna keraldið á þessum stað. Þess má geta að 15 stór keröld fundust í búrinu þegar það var rannsakað. Undir göngunum hefur einnig komið í ljós ræsi sem e.t.v hefur verið tengt kamri eða séð um eitthvað vatnsrennsli um bæinn. Um átta manns vinna við upp- gröftinn í Viðey í sumar en hann hófst í byijun júní. Fólk sem hefur áhuga á því að kynna sér uppgröftinn í Viðey betur getur þessa dagana farið á Árbæjarsafn en þar stendur yfir sýning á munum sem hafa verið grafnir upp síðastliðin sumur. 28. þessa mánaðar verður flutt- ur fyrirlestur í Árbæjarsafni um uppgröftinn í Viðey. Morgunblaðið/Bjarni Séð austur yfir rústir Viðeyjarklausturs, næst á myndinni er stofa, þaðan liggja göngin og má þar sjá yfirbreiðslu sem hylur ræsi undir þau. ► 1-36 Júgóslavía — ríki að hruni komið ► Sex Júgóslavar sem búsettir eru á íslandi leggja mat á þróunina og stjórnmálaviðhorfin í föðurland- inu /10 Hrossakaup ►Hestamennskan og allt sem henni viðkemur er orðin meirihátt- ar atvinnugrein á íslandi. Lausleg- ar áætlanir benda til að heildar- velta þessarar greinar sé ríflega tveir milljarðar og allir þessir fjár- munir renna meira og minna fram hjá skattkerfinu /14 Botnlausa hítin hans Gorba ►Vesturlönd vilja ekki veita Sov- étmönnum hjálparhönd fyrr en þeir hafa tekið ætlegha til hend- inni heima fyrir/14 Bheimili/ FASTEIGNIR ► 1-24 Aðalskipulag Reykjavíkur til 2010 ►Útvega verður lóðir fyrir 10-12 þúsundíbúðir/12 Hetjudauði við Mýrar ►Elín Pálmadóttir segir frá franska vísindamanninum og land- könnuðinum Jean Babtiste Charc- ot og hetjudauða hans á rannsókn- arskipinu Pourqoui pas? úti fyrir Mýrum þar sem skip hans strand- aði. Um þessar mundir er Kristín Jóhannesdóttir einmitt að hefja tökur á kvikmynd sem byggir á þessum atburði. /1 Siðaðar þjóðir virða lög og rétt ►John Gummer, sjávarútvegsráð- herra Breta, í viðtali við Morgun- blaðið um hótanir íslendinga um að segja sig úr Alþjóða hvalveiðir- áðinu, sjávarútvegsstefnu Evrópu- bandalagsins og fleira /4 10 mílurfrá miðbænum ►Frá leitinni að kvöldverði í kafi á sjóstangaveiðiskipinu Árnesi sem áður hét Baldur og feijaði fólk og bfla yfir Breiðafjörð /8 Þessi eilífi erill ►í vitjun með Elvu Ágústsdóttur dýralækni á Akureyri /10 Fiskar, furður og englar ►Friðrik Þór Friðriksson í viðtali um þjóðararfinn, kvikmyndir og heimþrá sem nálægð dauðans vek- ur, en Friðrik frumsýnir væntan- lega mynd sina Börn náttúrunnar um mánaðamótin /12 Réttindi samanna tryggð með lögum ►Ágúst Ingi Jónsson lýkur að segja frá för sinni um nyrsta hluta Noregs /28 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 32 Dagbók 8 Gámr 35 Leiðari 18 Mannlífsstr. 6c Helgispjall 18 Fjölmiðlar 16c Reykjavíkurbréf 18 Kvikmyndir 18c Myndasögur 20 Dægurtónlist 19c Brids 20 Minningar 20c Stjömuspá 20 Bió/dans 22c Skák 20 Afömumvegi 24c Fólk i fréttum 30 Velvakandi 24c Karlar/Konur 30 Samsafnið 26c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.