Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1991
7
Morgunblaðið/Theodór
Komið að Langavatni yfir Staðarhnúk, fremst sjást Beilárvellir en
upp af þeim eru veiðihús Stangveiðifélags Borgarness.
Bátar Slysa-
varna-
félagsins
við Gróubúð
Bátar Slysavarnafélagsins
Henry Hálfdánarson, Jón E,
Bergsveinsson og Skagfirð-
ingur frá Sauðárkróki, sem
verið hefur hér til viðgerða,
speglast í rennisléttum sjónum
fyrir framan Gróubúð í
Reykjavíkurhöfn. Slysavarna-
félagið á 23 báta eins og
smærri bátanna sem dreift er
víðsvegar um landið, auk 90
slöngubáta.
Morgunblaðið/HG
Stangveiðifélag
Borgarness:
Netaveiði
heimiluð í
Langavatni
Borgarnesi.
NÝ STJÓRN Stangveiðifélags
Borgarness hefur samþykkt að
leyfa netaveiði í Langavatni í
sumar, auk hefðbundinnar stang-
veiði.
Stangveiðifélag Borgarness hefur
verið með Langavatn í Borgarhreppi
á leigu síðan 1983. A liðnum árum
hafa farið fram rannsóknir á fiski-
'stofnum vatnsins sem er aðallega
bleikja, sem er í meirihluta og síðan
urriði. Komið hefur í ljós að bleikju-
stofn í vatninu er ofsetinn. Hefur
því verið ákveðið að leyfa netaveiði
meðfram stangveiðinni í vatninu til
að freista þess að grisja vatnið og
ná _upp meðalstærð fiska.
Áður fyrr var illfært fyrir fólks-
bíla inn að Langavatni en félagar
Stangveiðifélags Borgarness hafa
brúað Gljúfurá og Beilá sem voru
verstu farartálmarnir og nú er skot-
vegur að vatninu fyrir alla bíla.
Langavatn er í um 215 metra hæð
yfir sjávarmáli og er um 5 ferkíló-
metrar að stærð. Það liggur í kvos
og er umlukið flöllum. Stangveiðifé-
lag Borgarness er með tvö veiðihús
við vatnið og jafnframt eru leigðir
út tjórir traustir árabátar. Veiðileyfi
eru seld í söluskálum í Borgarnesi
og þjónustumiðstöðinni við
Svignaskarð.
Nýverið var kosin ný stjórn í fé-
Iaginu. Hana skipa Ari Björnsson
formaður, Þorvaldur Heiðarsson
gjaldkeri og Hafsteinn Þórisson rit-
ari. Meðstjórnendur eru Einar Páls-
son og Hans Egilsson.
TKÞ
-----♦ ♦ ♦
Stokkseyri:
Myndlistar-
sýning í Gimli
Selfossi.
SAMSÝNING fimm listamanna
var opnuð í gær, laugardag, í fé-
lagsheimilinu Gimli á Stokkseyri.
Á sýningunni eru olfumálverk,
vatnslitamyndir og teikningar. Þetta
eru listaverk þeirra Kristrúnar Kal-
mansdóttur, Harðar Antonssonar,
Gunnhildar Magnúsdóttur, Harðar
Sigurðssonar og Lindu Hafsteins-
dóttur.
Sýningin er liður í M-hátíð á Suð-
urlandi og verður opin laugardaga
og sunnudaga frá klukkan 14-22 og
virka daga frá klukkan 17-22. Sýn-
ingunni lýkur 28. júlí.
Sig. Jóns.
♦ ♦■♦----
Leiðrétting
í frétt um gjöf á frímerkjasafni
til Vestmannaeyjabæjar í blaðinu í
gær misrituðust nöfn gefendanna,
Guðmundar Ingimundarsonar og
Jóhönnu M. Guðjónsdóttur frá Hlíð-
ardal í Vestmannaeyjum. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Við flytjum lagerinn og þess vegna
D Æ u
Melinda vatnsrúm
með dýnu, hitara, hlífðarlaki, öryggisdúk
og rotvarnarefnum._
Verð áður kr.^MíSͧ7,*.
Verð nú kr. 70.278,- stgr.
Rúmnúfrákr. .. 24.174,-
Hjónarúm nú frá kr. .. 28.993,-
Vatnsdýnur nú frá kr..... .. 21.201,-
Hlífðarlök nú frá kr ... 4.560,-
Öryggisdúkur nú frá kr... .. 2.080,-
Hitarar nú frá kr. ... 8.064,-
Dýnam/öllunúfrákr. ... .. 33.039,-
n<ikr.
****'*■
seei
)f19ur
Wkr.
Látið ekki happ úr hendi sleppa
Ath. Verslunin Vatnsrúm veröur áfram í Skeifunni 11.
Það er einungis lagerinn sem fer í nýtt húsnæöi.
Vatnsrum
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 688466