Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ AWife\íi\iA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1991 Hafnarfi örður: Þing um hreyfimyndagerð Hallfríður Ólafsdóttir lýkur námi í flautuleik HALLFRÍÐUR Ólafsdóttir, flautuleikari, hefur nýlega lokið framhaldsnámi frá Royal Aca- demy of Music í London, með Diploma of Advanced Studies. Hallfríður lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1988. Hún fór þá til framhaldsnáms við Royal Northern College of Music, Manchester, og ári seinna við Royal Academy of Music, London, þar sem hún hefur notið leiðsagnar Williams Bennetts, Sebastians Bells og Michie Bennetts sl. tvo vetur. Hallfríður hefur haldið fjölda tón- leika í London og hér á landi og leik- Hallfríður Ólafsdóttir ur m.a. með Salomon-kammersveit- inni í London. Eiginmaður Hallfríðar er Ármann Helgason, klarinettuleikari. NORDIC Light, samtök þeirra sem fást við hreyfimyndagerð (animation) á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum munu halda hið árlega þing sitt hér á landi í ágúst næstkomandi. Samtökin voru upphaflega mynduð árið 1985, þegar nokkrir aðilar á þessu sviði komu saman í Stokkhólmi. Síðan hafa Norður- löndin skipst á að halda þessj þing, en þetta er í fyrsta sinn sem íslend- ingar eru gestgjafarnir. Árið 1988 slóust Eystrasaltsbúar í hópinn, en í þeim löndum stendur þe'ssi listgrein á gömlum merg og hefur þátttakendum þaðan fjölgað með hveiju ári. Óvíst er þó hversu margir þeir verða í ár, vegna óheyri- legs ferðakostnaðar til íslands, auk þess sem gjaldeyrisskortur þessara landa gerir strik í reikninginn, seg- ir í fréttatilkynningu frá Nordic Light. Þó ekki sé um langa leið að ræða fyrir þessari listgrein hér á landi hafa nokkrar slíkar myndir verið gerðar hér og nú eru í framleiðslu tvær myndir, sem báðar hlutu styrk úr Kvikmyndasjóði og Norræna kvikmyndastjóðnum. Auk þess er verið að leggja síðustu hönd á þá þriðju, Jólatréð eftir Sigurð Örn Brynjólfsson, og verður hún vænt- anlega sýnd á þinginu. Þegar leitað var til bæjaryfir- valda í Hafnarfirði um fyrirgreiðslu varðandi þinghaldið var beiðninni vel tekið og mun þingið án efa setja svip sinn á bæjarlífið meðan á því stendur. í tengslum við þingið verð- ur haldin sýning í Hafnarborg á teikningum, handritum og fleiru sem tengist hreyfimyndagerð. Einnig verða sýndar myndir af myndböndum á fundarstaðnum meðan á þinginu stendur. Þeir aðilar hér á landi, sem áhuga hafa á að taka þátt í þingi Nordic Light og koma verkum sínum á framfæri, geta haft samband við Jón Axel Egilsson og fengið nánari upplýsingar. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Hugleiðsla og hið daglega líf 22. og 24. júlí kl. 20.00-21.30. Verð kr. 1.800,-. Kynning á hugleiðslu og öndunartækni sem aðferðum til að skapa jafnvægi og innri frið. Litið verður á þau hugsanamunstur er hindra andlegan þroska okkar. Sýnt verður hvernig draga má á áhrifaríkan hátt úr þeim óróleika er veldur óánægju og vansæld í lífi okkar. Suðurlandsbraut Til leigu ca 300 fm lagerhúsnæði með mik- illi lofthæð og stórum innkeyrsludyrum. Einn- ig ca 250 fm skrifstofuhúsnæði og 150 fm milliloft innréttað sem skrifstofur. Leigist í einu lagi eða hluta. Góð aðkoma. Næg bíla- stæði. Útsýni. Upplýsingar veitir Ásbyrgi, fasteignasala, Borgartúni 33, Reykjavík, sími 623444. Ysukvótí -1/1-31/8 Viljum láta 150 tonn af ýsukvóta á kr. 30 kg. staðgreitt. Upplýsingar í síma 95-22690. Kvóti Til sölu kvóti fiskveiðitímabilsins 1.1.—31.8. 1991. U.þ.b. 30 tonn af þorski, 30 tonn af ufsa og 10 tonn af ýsu. Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl. fyr- ir 25. júlí nk. merkt: „Þorskur - ufsi - ýsa. Kripalu-jóga. 'A TVINNUHÚSNÆÐI Til leigu við Dragháls lager og geymsluhúsnæði 1000 fm með stórri innkeyrsluhurð. Upplýsingar gefa Gunnar sími 76110 og Hans sími 35832. Til leigu 220 fm á Stórhöfða. Hentar vel fyrir heild- verslun. Stórar innkeyrsludyr. Sérinngangur fyrir skrifstofu og sýningaraðstöðu. Upplýsingar í síma 687474. Kvóti - kvóti Við óskum að kaupa afnotarétt að „fram- tíðarkvóta". Upplýsingar í símum 95-22747 og 22690. Hólanes hf., Skagstrendingur hf. Kvóti - kvóti Óska eftir að leigja þorsk-, ýsu- eða ufsak- vóta þessa árs. Til greina kemur skipti á rækju, skarkola eða grálúðu. Einnig kemur til greina að veiða aflakvóta gegn föstu verði. Upplýsingar í símum 92-15111 og 92-68445. SJÁLPSTIEÐISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F SAMIiANI) HNCKA SIÁLI ST/EDISMANNA Byggða-, sveitarstjórna- og samgöngumál Verkefnahópur SUS um byggða-, sveitarstjórna- og samgöngumál heldur opinn fund fimmtudaginn 25. júlí kl. 20.00 í Valhöll. Allir áhuga- samir velkomnir. FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. KFUK KFUM KFUMog KFUK Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. í kristniboðssalnum Háa- leitisbraut 58. Tvö hús - Matt. 7:24-29. Upphafsorð: Vilborg Jóhannesdóttir. Ræðumaður: Guðmundur Jóhannsson. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Brauðsbrotning í dag kl. 11.00. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Almenn samkoma kl. 20.00 „Kings kids“ frá Norðurlöndum taka þátt í samkomunni. Fimmtudagur til sunnudags: Tjaldsamkomur við Laugarnes- skóla hvert kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Hjálpræðissamkoma kl. 20.30. Deildarstjórahjónin Anne Gurine og Daníel Óskars- son stjórna og tala. Allir velkomnir. Audbrekka 2 . Kópavcciur Sunnudagur: Samkoma í dag kl. 16.30. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Laugardagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. fomhjólp Samkoma verður í Þríbúðum í dag kl. 16.00. Fjölbreytt dag- skrá. Samhjálparkórinn leiðir fjöldasöng. Vitnisburðir. Prédik- un: Kristinn Ólason. Stjórnandi: Gunnbjörg Óladóttir. Barna- gæsla. Kaffi eftir samkomu. Allir hjartanlega velkomnir. m* VEGURINN GiJÍ ■ Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kóp. Kl. 19.30 Bænastund. Kl. 20.30 Kvöldsamkoma. Lof- gjörð. Predikun orðsins. Bæn fyrir sjúkum. „Statt upp, skín þú, því að Ijós þitt kemur og dýrð Drottins rennur upp fyrir þér.“ Verið velkomin. ÚTIVIST GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI H606 Sunnudag 21. júlí Kl. 8: Básar Kl. 9: Heklugangan Kl. 13: Gjárnar á Þingvöllum Brottför í ferðirnar frá BSI- bensínsölu. Stansað við Árbæj- arsafn. Um næstu helgi # Hólmsárlón - Brytalækir Gist i húsi. Gengið frá Mælifelli um Veðurháls í Strútslaug. Það- an austur með Hólmsárlóni í Rauðabotn sem er hluti af Eld- gjársprungunni og áfram í Bryta- læki. • Básar á Goðalandi Tilvalinn staður til þess að slappa af eftir annir vinnuvikunnar. Sjáumst, Útivist. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Sunnudagsferðir 21. júlí kl. 8 Þórsmörk - Langidalur Stansað 3-4 klst. í Mörkinni. Verð 2.300,- (hálft gjald fyrir 7-15 ára). Kynnist Mörkinni með Ferðafélaginu. Munið einnig miðvikudagsferðirnar og sumar- dvöl í Þórsmörkinni. Kl. 13 Hrútagjárdyngja - Lambafellsgjá Gengið frá einni af mestu gos- dyngjum Reykjanesskagans yfir á Höskuldarvelli. Lambafellsgjá er tilkomumikil misgengis- sprunga. Verð 1.100,-. Munið kvöldgöngu á miðviku- dagskvöldið kl. 20. Gengið um nýja skógarstíga í Vífils- staðahlíð. Trjásýnireiturinn skoðaður. Brottför frá Umferð- armiðstöðinni, austanmegin. Ferðafélag islands. 'lífandiferf ÚTIVIST GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606 Útivist um verslunarmannahelgina • Núpstaðaskógur Tjaldferð. Núpstaðaskógar eru svo til ósnortin náttúruvin í hlíðum Eystrafjalls vestan Skeið- arárjökuls. Tjaldað verður undir Fálkatindi þar sem Útivist hefur komið upp mjög góðri hreinlæt- isaðstöðu. Gengið verður út frá tjaldbúðunum að Tvílitahyl, á Bunka og yfir á Súlutinda að hinni sérkennilegu Súlu, sem tróni þar upp sem kirkjuturn. Af Súlutindum er gott útsýni yfir biksvartan Skeiðarárjökul og yfir til Öræfajökuls. • Eiríksjökull - Geit- land - Þórisdalur Tjaldferð. Tjaldbúðum verður slegið upþ I Torfabæli. Gengið verður á Eiríksjökul, 1675 m. Næsta dag verður gengið í Þór- isdal, sem liggur milli Þórisjökúls og Geitlandsjökuls. Þá verður gengið um Geitland eftir þvi sem tími vinnst til. Tilvalið er að nota tækifærið að skoða Geitlands- hella og er fólk þar af leiðandi hvatt til að taka vasaljós með. Allt þetta svæði, Eiríksjökull, Geitland og Þórisdalur er mjög áhugavert til skoðunar. • Tröllaskagi Gengið úr Baugaseli um Hóla- mannaskarð í Tungnahryggs- skála en það er um 5 klst. ganga og gefst góður tími til að skoða umhverfið. Þá verður genginn Hólamannavegur að Hólum í Hjaltadal (sundlaug). Flogið til baka frá Sauðárkróki. Fólk á Akureyri getur komið í ferðina í Baugaseli á föstudgskvöld. Svefnpokagisting. • Básar á Goðalandi Gist verður í Útivistarskálunum í Básum en þar er aðstaða öll hin besta. Gönguferðir um Goðaland og Þórsmörk þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, fjallgöngur jafnt sem róleg- ar fjölskyldugöngur. Á kvöldin er safnast saman við varðeld og slegið á létta strengi. Sjáumst! Útivist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.