Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MYNDASÖGUR
SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1991
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) a*
Hrúturinn verður fyrir minni
háttar óþægindum í dag og
böm kunna að reyna nokkuð á
þoirifin í honum. Erfiðleikar
gera einnig vart við sig í ástar-
sambandi hans.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið ætti ekki að reyna að
breyta skoðunum einhvers,
sem er á allt annarri bylgju-
lengd en það sjáift. Það þarf
að ganga frá ýmsum lausum
endum heima fyrir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Fjármáiaviðskipti geta reynst
varasöm fyrir tvíburann núna.
Honum gengur erfiðlega að
koma skoðunum sínum áleiðis
því að sumir fást ekki með
neinu móti til að hlusta.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) *“Í8
Krabbinn finnur ekki það sem
hann leitar að þrátt fyrir mikla
fyrirhöfn. Hann ætti að leggja
áherslu á hreinskilni og heiðar-
leika við sína nánustu núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) W
Það gengur ekki upp hjá Ijón-
inu að vinna ákveðið verk með
hangandi hendi. Annaðhvort
leikur það sér eða vinnur. Það
má' ekki falla í sömu gömlu
gryfjuna.
MeyjU **
(23. ágúst - 22. september)
Þó að sumir séu ekki allir þar
sem þeir eru séðir er ekki
ástæða fyrir meyjuna að vera
alltaf að hugsa um hvort sam-
ferðarmenn hennar séu það eða
ekki. Fleira-skiptir máli í lífinu.
V°g **
(23. sept. - 22. október)
Eins og vogin veit er enginn
fullkominn. Hún verður að
umbera ágalla fólks. Vinur
hennar gefur henni gagnlega
ábendingu í viðskiptum.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það er ekki allt satt og rétt sem
sporðdrekanum berst til eyrna
í dag. Hann ætti ekki að taka
of mikið mark þeim sem eru
stórorðir.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Það mundi gera bogmanninum
lífið erfitt ef hann byggist allt-
af við því að aðrir stæðust þær
kröfur sem hann gerir til
þeirra. Hann verður að muna
að þetta eru þó bara menn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Maki steingeitarinnar reynist
hennar besti fjármálaráðgjafi í
dag. Þó er samband þeirra ekki
sem best á öðrum sviðum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðb.
Vatnsberinn á erfitt með að
halda sig við efnið í dag. Hann
ætti að salta ákveðin mál og
taka þau til meðferðar þegar
betur stendur á.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fiskurinn ætti að reyna að
hafa stjórn á áhrifagimi sinni.
Það sannast á honum núna að
það er oft erfitt að standa við
stóru orðin þó að ásetningurinn
sé góður.
Stjörnusþána á að tesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
GRETTIR
T skkebt
> Þ/IICICA/ /
TOMMI OG JENNI
þAÐEfZSAGr 1
ae> perr/* /.eitr-
FXUtS GEfZJ I
/hauuafwk!
AB uerrLy
þAÐ EWJ
t/ísr euGAR
'ÓV'T/|£3 I
LJOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
HEV, MANAéER.. LÚE HAVE A
PR03LEM..UJE'RE TRYIN6 THE 0L'
HIPPEN BALL PLAY A6AIN
■v
Heyrðu framkvæmdastjóri,
okkur er vandi á höndum ...
við erum aftur að reyna að
spila gamla falda boltaleik-
inn ...
Hvert er vandamálið?
Við gleymdum hvar við földum
hann ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Skólabókardæmi," sögðu
skýrendur í sýningarsalnum, en
Sovétmaðurinn mundi ekki eftir
því við borðið í vörn gegn þrem-
ur gröndum Jóns Baldurssonar.
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ G94
VÁ764
♦ 65
♦ K1032
Vestur Austur
♦ 86532 ... 4»Á107
VKD V 10853
♦ D98 ♦ KG10
*G74 +986
Suður
+ KD
V G92
♦ Á7432
♦ ÁD5
í töfluleik íslands og Sov-
étríkjanna runnu Jón og Aðal-
steinn Jörgensen hratt og ör-
ugglega upp í þijú grönd án
afskipta móthetjanna. Útspilið
var spaði, sem austur tók á ás
og spilaði tíunni um hæl. f þess-
ari legu má vinna spiiið með því
að fría slag á hjartagosa. En
líkur á hjónunum stökum eru
ekki miklar og Jón kaus að verka
tígulinn — spilaði smáum tígli
að heiman.
Austur drap á tíuna og spil-
aði spaða. Nú gat Jón fríað tígul-
inn án þess að vestur kæmist
inn: 430. Rússarnir létu sér
nægja að spila eitt grand á hinu
borðinu, en unnu þijú.
Daninn Jan Nicolaisen var
betur lesinn í þessari stöðu.
Hann drap fyrsta tígulslaginn
með kóngnum og tryggði
makker þar með innkomu á
drottninguna.
SKÁK
Umsjón Margeir -
Pétursson
Skáklíf í Suður- og Mið-
Ameríku hefur verið nokkuð dauft
undanfarin ár, en nú hefur verið
sett á fót bikarkeppnin „Copa
Latinoamericano" til að hressa
upp á það. Þetta endatafl kom upp
á bikarmóti í Bogota i Kólumbíu
í vor í viðureign stórmeistaranna
Roman Hernandez (2.445),
Kúbu, og Alonso Zapata (2.530),
Kólumbíu, sem hafði svart og átti
leik. Hvítur Iék síðast 40. Rd5 og
hafði greinilega hugsað sé að ná
jafntefli í mislitu biskupsendatáfli,
en Zapata sá við því:
40. - Bxb2! og hvítur gaf, því
eftir 41. Rxb6 - c3 verður svarta
c peðið ekki stöðvað. Jafnir og
efstir á mótinu urðu heimamenn-
irnir Raul Henao sem er alþjóðleg-
ur meistari og hinn nýbakaði stór-
meistari Gildardo Garcia með 8V2
v. af 11 mögulegum. Á meðal
þeirra sem hlutu 8 v. voru stór-
meistararnir Zapata, Sunye Neto
frá Brasilíu og Amador Rodrigu-
ez, Kúbu.
Varla eykur það hróður skák-
listarinnar á þessum slóðum að
einn helsti forsprakkinn í'stærsta
eiturlyfjahring Kólumbíu er upp-
nefndur „skákmaðurinn" fyrir
þaulhugsaðar og kaldrifjaðar
ákváraðnir sínar.