Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 36
FORGANGSPÓSTUR UPPL ÝSINGASÍMI 63 71 90 varða i i Landsbanki Landsb. Bk islands Banki allra landsmanna MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Miðbærinn: Atta færðir fyrir dómara ~r'vegna óspekta GÍFURLEGUR mannfjöldi var í Miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardagsins og fram undir morgun. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar varðstjóra lögregl- unnar var einkum um að ræða gesti öldurhúsa sem héldu gleð- skap áfram eftir að veitingahús- um var lokað, enda óhægt um að komast heim, þegar svo margt fólk kemur samtímis út af 19 veit- ingahúsum og skemmtistöðum á svo litlu svæði. Ekki urðu alvar- legar óspektir, en þó voru átta manns færðir fyrir dómara og gert að greiða dómsátt. Guðmundur sagði í samtali við ' Morgunblaðið að unglingar hafi ekki átt stóran hlut að samkomunni, fjöldinn hafi verið fólk sem rápaði á milli veitingahúsa og eftir lokun, klukkan þijú, hafi gestir öldurhús- anna þúsundum saman samtímis komið á götuna. Guðmundur sagði að ekki væri að undra þótt mikill mannfjöldi safnaðist saman við þess- ar aðstæður, um væri að ræða best auglýstu útihátíð landsins eftir mikl- ar fréttir af mannsöfnuði í Miðbæn- um um helgar. «—'i Þrátt fyrir mikla ölvun og mann- fjölda, var ekki mikið um skemmd- arverk, Guðmundur sagði að einn maður hefði verið tekinn fyrir að skemma bíl. Átta manns voru þó færðir í fangageymslur og fyrir dóm- ara í gær. Voru þeir krafðir um greiðslu 9 þúsund króna og 6 þús- und króna dómsátta vegna slags- mála og annarra óspekta. -----M-» Grúturínn reyndist vera froða SKIPVERJAR á Ófeigi VE 324 töldu sig sjá grútarflekk í sjónum skammt austur af Vestmannaeyj- um sídegis á föstudag. Þegar skipverjarnir sáu flekkinn settu þeir út körfu til að ná í sýni. Sýnið hvarf hins vegar þegar karfan var dregin um borð og töldu þeir þá víst að þarna hefði aðeins verið um froðu að ræða. Vinuríraun Svipurinn á stúlkunni sem ljósmyndari Morgunblaðsins hitti í Þingholtsstræti á dögunum er ólýsanleg- ur. Hinsvegar er ljóst hver er vinur í raun. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bílnúmerin: AI stendur fyrir letidýr ÍSLENSKU bílnúmerin hafa tvo bókstafi og þrjá tölustafi. Menn hafa velt fyrir sér merkingu bók- stafanna og nú er komin út bók sem sviptir hulunni af þeim leynd- ardómum. Þar kemur meðal ann- ars fram að AI er enskt nafnorð og þýðir letidýr. Þá kemur í ljós að BP er skammstöfun úr við- skiptum og merkir „ógreiddir reikningar.“ Stafírnir hafa fjölbreytilega þýð- ingu og misjafnlega augljósa. Það er til dæmis gamalkunnugt úr ís- lenskri skipaskrá að GK stendur fyrir Gullbringusýslu og SH fyrir Snæfellsness- og Hnappadalssýslu. Hitt hefur ekki verið á almanna vitorði, að GJ þýðir „brak á reki“ samkvæmt siglingafræðum. Úr sömu fræðum sést, að JH merkir „ég hef strandað, engin hætta“ og að CB þýðir „ég þarfnast hjálpar strax.“ ------*-6-4--- Hrossaviðskipti: Hátt í tveir milljarðar undir borðið? UMFANG hrossaviðskipta innan- lands svo og útflutnings gæti ver- ið mun meira en fram kemur í skýrslum til hins opinbera. Út- flutningsverðmæti íslenskra hrossa, sem í fyrra var rúmlega 150 milljónir króna samkvæmt skýrslum, kann að vera mun hærra í raun vegna hagræðinga kaupenda og seljenda til lækkun- ar skatta og innflutningstolla. Þetta kemur fram í grein um hrossamarkaðinn í Morgunblað- inu i dag. Engar skrár eru til yfir íjölda eig- endaskipta hrossa innanlands, og það er undir hælinn lagt hvaða upp- hæð er gefin upp á þeim sölum sem eru tilkynntar. Upplýsingar sem Morgunblaðið hefur aflað sér gætu bent til þess að hátt á annan millj- arð króna vantaði á framtöl ár hvert í hrossaviðskiptum og verslun með fóður, hey og tamningaþjónustu. Samkvæmt lauslegum áætlunum gæti þetta þýtt að um hálfur millj- arður króna tapaðist árlega af skatt- tekjum ríkisins. Sjá „Hrossakaup", bls. 16. Morgunblaðið/Ingvar Lék listir á ljósaskilti Unglingspiltur kleif upp á þak hús Nýja bíós í Reykjavík aðfara- nótt laugardags og upp á ljósaskilti sem þar er og hóf að leika glæfrakúnstir. Skiltið er í um 20 metra hæð. Lögreglumenn fóru á eftir honum og handtóku þar uppi, en ekki fékkst maðurinn niður og varð að kalla til körfubíl frá slökkviliði til að ná honum niður. Piiturinn var færður fyrir dómara á laugardagsmorgun og féllst á að greiða 15 þúsund króna dómsátt, auk 12.500 króna kostnaðar vegna körfubílsins. Trúi ekki að Islendingar óhlýðnist hvalveiðiráðinu - segir John Gummer, sjávarútvegsráðherra Bretlands JOHN Gummer, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra Bretlands, segist ekki hafa trú á því að íslendingar muni óhlýðnast ákvörðunum Alþjóða hvalveiðiráðsins. Hann bendir á að íslendingar séu nú í við- ræðum við Evrópubandalagið, að reyna að treysta stöðu sína á þeim vettvangi, séu skynsöm þjóð og hafi gott orð á sér á alþjóðavett- vangi. Því sé ótrúlegt að íslendingar vilji tefla þeim hagsmunum í tvísýnu með því að ganga gegn hvalveiðiráðinu, en bíði frekar átekta þar til í ljós kemur hvað kemur út úr nánari rannsóknum á hvalastofnunum í viðtali, sem birtist í Morgun- blaðinu í dag, mótmælir John Gummer meðal annars þeirri skoð- un, að Alþjóðahvalveiðiráðið sé orð- in eins konar verndarstofnun fyrir hvali, og segir það alls ekki vera stefnu bresku ríkisstjórnarinnar að útiloka að hvalveiðar verði teknar upp aftur, þegar og ef þau vísinda- rök liggi fyrir að hvalastofnarnir séu ekki í útrýmingarhættu. Gummer líkir stöðu íslensku rík- isstjórnarinnar innan hvalveiði- ráðsins við stöðu bresku ríkis- stjórnarinnar í máli gegn Spán- verjum innan Evrópubandalags- ins. Evrópudómstóllinn hefur ógilt lög sem Bretar settu til að koma í veg fýrir svokaliað kvóta- hopp Spánverja, og segir Gum- mer að bresk stjórnvöld muni sætta sig við þá niðurstöðu, þar sem ekki gangi í alþjóða sam- skiptum að sætta sig einungis við þá niðurstöðu sem sé eigin þjóð hagstæð. Sjá „Siðaðar þjóðir virða lög og reglu“ á bls. 4-5C.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.