Morgunblaðið - 21.07.1991, Side 12
}ife
ffiGi Uúl IS HjlOAniWMDK QIÚAJiiMIí;)H(iW':
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 21. UULI 1991
JIIGOSLAVIA
Hingoð til hðfum við bora verið Júgóslovor - núno erumvii allt í einu Slóvenor, Króntnr og Serbnr
Helena Dejak
íslendingar og
Slóvenar um
margt líkir
Alveg frá því ég var lítil man ég
eftir að talað var um að Slóven-
ar væru búnir að borga nógu lengi
til Suður-Júgóslavíu og það hefur
verið talað um
sjálfstæði í mörg
ár. Við erum
öðruvísi, hugsum
öðruvísi og höfum
önnur trúarbrögð.
Mataræði Slóvena
er líkt því sem
tíðkast í Austurríki
og Þýskalandi en
Serbar borða sterk-
ari og kryddaðri
mat. Þar að auki eru tungumálin og
menningin ólík. Þegar maður ber
saman þá getur maður sagt að Serb-
ar séu opnari og blóðheitari. Slóven-
ar eru miklu íhaldssamari. Þeir vinna
mikið og skemmta sér mikið. Mér
hefur alltaf fundist að íslendingar
og Slóvenar eigi mikið sameiginlegt.
Þegar ég kom hingað árið 1974
komst ég að því hve langan tíma það
tekur að kynnast fólki. Svo þegar
það gerist þá er maður bókstaflega
tekinn inn í fjölskylduna. Svona er
þetta líka í Slóveníu.
Slóvenar eru hræddir um að hafa
sært stolt Serba. Einkenni íbúa suð-
urlanda er að ekki má bijóta þá nið-
ur, þeir verða alltaf að vera númer
eitt og þeir hefna sín. Slóvenar eru.
harðari. Þeir geta tekið gagnrýni.
Héðan af verður ekki aftur snúið.
Slóvenar standa vel saman. Þeir eru
ákveðnir í að öðlast sjálfstæði og
þeir eru tilbúnir að beijast fyrir því.
Ef fólk vill vera sjálfstætt þá verður
það að fá að vera það. Þetta er eins
og í hjónabandi — það er ekki hægt
að þvinga fólk til að búa saman ef
það vill það ekki. Ég var mjög hissa
þegar Bandaríkjamenn og Evrópu-
bandalagið ákváðu að styðja ekki
Slóvena. Með því voru þeir að gefa
Serbum leyfi til að gera innrás. Ég
held að ástandið eigi eftir að versna
áður en það batnar aftur. Nú þarf
að byija uppbygginguna á grunnin-
um. Fólk þarf að takast á við vanda-
málin. |
Ég held að aðalvandamálið í heim-
inum sé þáð að allir hugsa meira og
meira um sjálfa sig og að fólk talar
I ekki saman. Allt of lítið tillit er tek-
; ið til annarra. Þetta tillitsleysi byijar
meðal fárra, t.d. innan fjölskyldunn-
ar, svo færist það yfir á heiminn.
Alllr hafa eitthvað að segja en fólk
vill ekki hlusta hvað á annað.
Jani Zilnik:
—
Samkomulag
næst aðeiris
meö aóstoi
að utan
Miklar breytingar hafa orðið í
Júgóslavíu á síðustu 2-3
árum en það eru ekki allir jafnhrifn-
ir af þeim. Yfírmenn í hemum eru
Serbar og þeir eru hræddir um að
missa völdin ef of miklar breytingar
verða. Þær eru hins vegar óhjá-
kvæmilegar því ekki er hægt að
neyða fólk, sem er jafn ólíkt og íbú-
ar Júgóslavíu, til að búa saman.
Sambandsherinn kom ekki af fullu
afli inn í Slóveníu. Það átti bara að
hræða Slóvena því enginn átti von á
svo öflugri mótspyrnu sem raun bar
vitni. Nú eru Slóvenar hræddir við
hótanir hersins og treysta honum
alls ekki.
Ef Slóvenía öðlast sjálfstæði þá
verða Slóvenar að fá eigin gjaldmið-
il og auka þarf útflutning því stærsti
markaður fyrir vörur þeirra hefur
verið hinn hluti Júgóslavíu. Eftir að
Slóvenar studdu Albani í Kosovo
settu Serbar viðskiptabann á slóv-
enskar vörur í Serbíu. Það á sinn
þátt í versnandi efnahagsástandi í
Slóveníu. Eftir að sjálfstæði er feng-
ið þá verður lífið erfítt í þijú til fjög-
ur ár en svo fara hlutirnir að skána.
Það hefur alltaf verið erfítt fyrir
Slóvena að eiga við Serba því þeir
hafa alltaf meirihluta í forsætisráð-
inu. Af þeim ástæðum hafa Slóvenar
ekki trú á sam-
bandslýðveldinu.
Þar að auki stela
Serbar frá Seðla-
banka Júgóslavíu
og veija fénu án
samráðs við önnur
yfírvöld annarra
lýðvelda.
Það sem Slóven-
ar sækjast eftir
fyrst og fremst er
efnahagslegt sjálfstæði. Bandaríkja-
menn munu viðurkenna sjálfstæði
Slóveníu ef aðskilnaðurinn fer frið-
samlega fram en það verður ekki án
utanaðkomandi hjálpar. Sameinuðu
þjóðirnar eða Evrópubandalagið
verða að skerast í leikinn og senda
samninganefndir til að standa fyrir
viðræðum milli deiluaðila. Ég veit
ekki hvernig þetta fer að lokum en
vona það besta.
Úros Ivanovic
Margir
kommúnistar
eins og úlfar
í sauðargæru
r
Eg fæddist í Svartfjallalandi en
fluttist til Slóveníu árið 1956
þar sem ég gekk í hótelskóla og lék
knattspymu. Ég á skyldmenni á báð-
um stöðum og
þekki^ stöðu mála
vel. í byijun var
erfitt að búa þar,
tungumálið er
öðruvísi _ og fólkið
ólíkt. Á þessum
tíma var mikill
uppgangur í iðnaði
í Slóveníu en fólkið
er óhemju duglegt
og í dag lifir það
góðu lífi, sérstaklega N-Slóvenar.
Júgóslavíustjórn gerði mikil mis-
tök með þvf að senda herinn til Slóv-
eníu. Fyrir 26. júní vissu allir að
Silóvenar og Króatar vildu sjálfstæði.
Fyrir fjórum mánuðum sagði Ante
Markovic forsætisráðherra að það
væri í góðu lagi en svo þegar þeir
gerðu alvöru úr því þá voru ungir
og óreyndir hermenn sendir til Slóv-
eníu og þeir gáfust bara upp. Þeir
kunna ekki að beijast. Júgóslavneski
herinn var ekki að gera alvöru árás,
það áttí bara að hræða Slóvena
svolítið. En á þessum fjórum mánuð-
um sem liðu keyþtu Slóvenar vopn
fyrir 40.000 manns. Þeir voru búnir
að ákveða að beijast og þeir voru
tilbúnir til þess. Margir hermann-
anna sem komu til Slóveníu voru frá
borgum á svæðinu. Þeim var ætlað
að beijast við nágranna sína og það
gengur ekki. Enginn sigurvegari
stendur uppi eftir þessi átök.
Júgóslavar skulda Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum 17 milljarða Banda-
ríkjadala. Slóvenar neita að borga,
þeir vilja bara verða sjálfstæðir. Eg
er fylgjandi því að Slóvenar fái sjálf-
stæði en það á ekki að gerast með
vopnavaldi. Þeir sem helst eru mót-
fallnir sjálfstæði Slóvena og Króata
eru gamlir kommúnistar. Vel var
gert við þá, þeir fengu góð hús,
hærri laun en aðrir o.s.frv. Þeir eru
ekki tilbúnir til að neita sér um þæg-
indin sem þeir eru orðnir vanir.
Margir þeirra sem nú þykjast vera
lýðræðissinnar voru í ábyrgðarstöð-
um í kommúnistaflokknum. Um alla
Júgóslavíu eru kommúnistar eins og
úlfar í sauðargæru.
Eftir 1946 flutti 1,6 milljón Júgó-
slava úr landi. Margir þeirra vildu
ekki búa við einræði Titos. Þeir sem
fæddust eftir 1950 hugsa allt
öðruvísi. Þeir sjá Vestur-Evrópu og
halda að þar sé allt gott. Lýðræðis-
hreyfingin hefur teygt sig til Júgó-
slavíu en við getum ekki breytt kerf-
inu á einni nóttu.
Stærsta vandamálið er milli Kró-
ata og Serba. Þeir hafa búið saman
í friði í Króatíu í 40-50 ár en eru allt
í einu orðnir óvinir. Þetta er ekki
komið frá fólkinu sjálfu, þetta er
allt komið frá stjórnmálamönnum.
760.000 Serbar búa í Króatíu. Það
sem gerðist í Slóveníu er bamaleikur
á móts við það sem á eftir að gerast
ef átök bijótast út milli Serba og
Króata.
Ef Slóvenía segir sig úr ríkjasam-
bandinu þá er Júgóslavía ekki til
lengur. Lýðræði verður ekki skapað
af flokkum eða leiðtogum, fólkið
sjálft verður að standa á bak við
raunverulegt lýðræði. Stjórnmála-
menn segja ýmislegt sem þeir standa
ekki við, við þekkjum það nú hér á
íslandi líka. Munurinn er sá að ís-
Iendingar hlæja að því en í Júgó-
slavíu grætur fólk.
Marjan Zak
Erfiileikar
breyta alltaf
afstöiu fólks
að er alveg sama hvert er litið.
Þegar erfiðleikar bytja þá kem-
ur upp óánægja og skuldinni er
skellt á einhvern, yfirleitt stjórnmála-
menn. Það hefur
verið erfitt í Júgó-
slavíu, verðlag er
hátt og kaupið lágt.
Þeir sem stjóma
landinu núna ólust
upp á tímum
kommúnismans og
þeir hafa lifað góðu
lífi. Það er stað-
reynd og þeir vilja
ekki neita sér um
þægindin sem þeir búa við. Þeir vita
að ef ástandið breytist þá missa þeir
ýmis forréttindi. Þessir menn eru úti
um allt land - ekki bara í Serbíu.
Það er ekki venjulegu fólki að kenna
hvemig ástandið er orðið, það em
nokkrir stjórnmálamenn og herfor-
ingjar sem kynda undir og segja fólki
hvað því á að fínnast.
Eftir að Tito dó og lífíð fór að
verða erfiðara í Júgóslavíu þá fór
umræðan í Slóveníu um að Slóvenar
væm búnir að borga nóg til suður-
hlutans að aukast. Þetta er að sumu
leyti rétt, að öðm leyti ekki. Slóven-
ar hafa alltaf fengið heilmikið til
baka frá suðurhlutanum og ég held
að þetta hafi ekki verið svo ójafnt.
Þegar efnahagur Slóvena fór að
versna þá kenndu þeir íbúum suður-
hlutans um. Þessari togstreitu lýkur
aldrei fyrr en lýðveldin fá sjálfstæði
og jafnvel þá verður hún ekki úr
sögunni. Það á eftir að taka langan
tíma, 10-20 ár, fyrir lýðveldin að
koma undir sig fótunum. Þetta er
alveg eins og með fyrirtæki sem
kemst í erfiðleika. Það er ekki hægt
að reisa það úr rústum á einni nóttu.
Ég held að það verði langbest ef
Slóvenar og Króatar fá sjálfstæði,
eins og þeir vilja, en herinn á fyrir
alla muni ekki að blanda sér í það
því hann getur eyðilagt allt saman.
Óbreyttir hermenn hafa ekki vit á
pólitík en það em gömlu hershöfð-
ingjarnir, sem em aliir harðir komm-
únistar í hjarta sínu, sem vilja hella
olíu á eldinn. Yfírskin þeirra er að
herinn sé að veija landið.
Ég hef aldrei verið í pólitískum
hugleiðingum. Pólitík skiptir mig
ekki máli. Ég horfí bara á málin eins
og venjulegur maður. Þegar ég var
að alast upp þá varð ég aldrei var
við neina togstreitu milli Slóvena og
Serba eða annarra. í hernum vomm
við 40 saman, mjög góðir vinir. En
ef við kæmum saman í dag þá yrði
sjálfsagt ekki mikill kærleikur milli
okkar. Það er búið að hafa svo mik-
il áhrif á viðhorf fólks. Áður skipti
engu máli hvaðan við vomm. Sömu
sögu er að segja af þeim Júgóslövum
sem hér hafa verið. Við höfum alltaf
verið góðir vinir og verðum það
áfram. Hingað til höfum við bara
verið Júgóslavar — núna emm við
Slóvenar, Króatar og Serbar.
Ég held að friður haldist ekki í
þijá mánuði, það á allt eftir að fara
í bál og brand. Meðan átökin em
bara í Slóveníu þá er hægt að tala
saman en ef Serbar og Króatar fara
að beijast þá getur enginn stöðvað
það fyrr en eftir mikið blóðbað.
Mikael Gabríelsson
Sjúlfslæúis-
yfirlýsingarnar
neyðarúrræði
Enginn getur ímyndað sér hvernig
er að búa við kommúnisma
nema sá sem hefur reynt það. Ég
flýði frá Júgóslavíu af pólitískum
ástæðum, ekki
efnahagslegum,
því foreldrar mínir
voru efnaðir og ég
hlaut góða mennt-
un. Fólk var orðið
svo heilaþvegið. í
skólanum var börn-
um innprentað að
allt vestrænt væri
slæmt og það var
alltaf verið að
reyna að finna ástæður til að fara í
kröfugöngur. Kommúnismi er bara
fyrir vélar, ekki fyrir fólk.
Nú er kommúnisminn að hrynja
alls staðar og Slóvenar og Króatar
sjá tækifæri til að losna við að borga
til Suður-Júgóslavíu. Þeir vilja ekki
borga lengur. Þeir vilja ekki að aðrir
stjórni þeirra efnahag. Serbar hafa
verið í aðstöðu til þess vegna þess
að þeir em alltaf í meirihluta í for-
sætisráðinu. Þeir hafa alltaf meiri
ítök í öllum málum en aðrir, bæði
pólitískum og efnahagslegum.
Bandaríkjamenn og Evrópubanda-
lagið hefðu ekki átt að lýsa því yfír
að þeir myndu aldrei viðurkenna
sjálfstæði Slóvena og Króata. Þeir
hefðu bara átt að þegja. Það var
ekki yfírstjórn hersins sem sendi
hersveitimar af stað. Það vom serbn-
eskir herforingjar sem héldu að þeir
hefðu tromp á hendi vegna yfírlýs-
inga Vesturveldanna.
Þar sem Serbar og Króatar hafa
búið saman í Króatíu um langan ald-
ur hafa aldrei verið vandræði. Nú
er allt í einu búið að etja þessu fólki
saman. Bróðir minn sagði mér að
1.500 Serbar hefðu komið frá Serbíu
til að skapa vandræði á svæðum þar
sem Serbar og Króatar búa saman.
Á þessu sér maður hvað Serbar grípa
til örvæntingarfullra ráða til að
skapa glundroða og óeiningu.
Það var ekki meiningin hjá Króöt-
um og Slóvenum að segja sig úr
ríkjabandalaginu, þeir vildu bara fá
að ráða sínum efnahag. Þegar kosið
var á síðasta ári töpuðu kommúnist-
ar alls staðar nema í Serbíu og þeir
vilja engar breytingar. Þess vegna
var sjálfstæðisyfírlýsingin neyðarúr-
ræði. Núna em Serbar sjálfir
óánægðir með leiðtoga sína, þeir vilja
líka breytingar. Annaðhvort verða
Serbar að aðlagast Slóveníu og Kró-
atíu eða þeir standa einir og einangr-
aðir eftir. Almenningur stendur held-
ur ekki á bak við aðgerðir hersins.
Hvenær hefur það gerst áð foreldrar
fari til yfirvalda og heimti að fá syni
sína heim úr hernum?
Mín skoðun er sú að Serbar geri
sér grein fyrir því að stríðið er tapað
og að þeir verði að semja. Eitthvert
samkomulag verður gert til að halda
Júgóslavíu saman en Króatar og
Slóvenar verða sjálfstæðir að lokum.
Eins og bróðir minn sagði þá vita
allir hvað gerist það er bara spurning
hvenær.
Friðrik Borg
Tito leyndi
stríisglæpum
Króata
Sjálfstætt ríki var stofnað í Kró-
atíu í seinni heimsstyijöldinni
af Hitler. Þá voru 800.000 Serbar,
gyðingar og sígaunar og aðrir sem
óæskilegir þóttu drepnir í útrýming-
arbúðum og á annan hátt. Nasistum
í Króatíu var ekki refsað því Tito var
Króati og hann verndaði þá.
Fram að síðari heimsstyijöld var
Króatía mun stærri en hún er nú en
Tito skipti lýðveldinu niður þegar
sambandsríkið var stofnað. Hann
vildi ekki þýðast Stalín og naut í
raun virðingar fyrir hvað hann stóð
uppi í hárinu á honum. Til að veijast
innrás frá Sovétríkjunum vom verk-
smiðjur fluttar frá Serbíu til Slóv-
eníu og Króatíu árið 1948. Hluti af
velferð Króata og Slóvena er þess
vegna því að þakka að verksmiðjur
voru fluttar þangað frá Serbíu.
Hernum er stjórnað af gömlum
kommúnistum sem lifa í drauga-
heimi. Þeir skilja ekki að kommún-
isminn er búinn að syngja sitt síðasta
og hvað hann er búinn að gera margt
illt í heiminum. Ef ég fengi ein-
hverju ráðið þá tæki ég alla kommún-
ista og léti þá sæta geðrannsókn.
Margir flokkar buðu fram í Serbíu
en þeir hlutu ekkert fylgi. Við megum
ekki gleyma því að kommúnistar em
búnir- að stjóma öllu í 50 ár. Fólk
veit varla að hægt er að hafa hlutina
öðmvísi. Þetta er eins og á Islandi.
Manstu, jiegar það var bara ríkissjón-
varp á Islandi? Ég þjáðist í sálinni
þegar „Kana-sjónvarpið“ var tekið
og ríkissjónvarpið kom með þetta líka
drepleiðinlega efni. Fólk var alltaf
að mótmæla og stjórnendur hvöttu
það til að láta óskir sína í ljósi og
þeir myndu síðan gera sitt besta. Þá
var staðan bara orðin þannig að fólk
var búið að gleyma hvernig gott sjón-
varpsefni var. Þetta gerðist í Júgó-
slavíu, kommúnistar sögðust ætla að
reyna að bæta hlutina og fólk hugs-
aði með sér að það væri best að leyfa
þeim að reyna einu sinni enn.
Þeir sem nú em við völd í Króatíu
em allt kommúnistar sem segjast
vera orðnir lýðræðissinnar. Engin
andstaða við stjórnvötd líðst í Kró-
atíu en í Serbíu er gífurleg andstaða
við stjórnvöld.
Serbar eru ósáttir við að Slóvenar
segi sig úr ríkjasambandinu án þess
að borga sinn skerf af þjóðarskuldum
Júgóslava sem em gífurlegar. Þá eru
þeir þeirrar skoðunar að leiðrétta
beri landamæri innan ríkisins, sem
em bandvitlaus. 1 Króatíu býr mikill
flöldi Serba og þá verður að veija
ef til átaka kemur. Ég er á því að
langbest sé að Slóvenar og Króatar
fái sjálfstæði en í Króatíu a.m.k.
verður það ekki fyrr en eftir mikið
blóðbað.