Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.07.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ M&imm 21. JÚLÍ 1991 23 Kennarar l AUGLYSINGAR Mosfellsbær - atvinna Kennara vantar að Steinsstaðaskóla í Skaga- firði. Tilvalið fyrir hjón. Almenn kennsla, handmennt, sérkennsla og kennsla yngri barna. Steinsstaðir eru 10 km (bundið slit- lag) frá hringvegi, hitaveita á svæðinu og 2 km í næstu verslun. Sundlaug er við skólann. Nemendum, sem eru um 50, er ekið dag- lega. Hálfsdagsmötuneyti er í skólanum. Húsnæði fyrir kennara er í nýjum einbýlishús- um. Daggæsla. Ókeypis flutningur innan- lands er í boði. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 95-38033 og 985-32538, formaður skólanefndar í síma 95-38018, og oddviti í síma 95-38068 eða 95-38035. Sölumaður sjávarútvegur Fyrirtæki í þjónustu við útgerð og fiskvinnslu óskar eftir starfsmanni sem þekkir til í þess- um greinum. Starfslýsing: starfið er fjölbreytt. Fyrst og fremst er um að ræða sölu á vörum fyrirtæk- isins, en einnig starf á skrifstofu og lager. Viðkomandi myndi hafa samskipti við mikinn fjölda viðskiptavina víða um land og sjá að nokkru um erlend bréfaskipti varðandi pant- anir o.fl. Við leitum að starfsmanni sem: - Hefur frumkvæði, er hugmyndaríkur og sjálfstæður í störfum. - Hefur þekkingu á sjávarútvegi, mætti gjarnan hafa verið til sjós og kunnað því vel. - Hefur haldgóða menntun og/eða reynslu. - Hefur gott vald á ensku, eigin bíl til um- ráða og er á aldrinum 25-40 ára. Starfið er laust strax eða eftir nánara sam- komulagi. Byrjunarlaun eru kr. 140.000 á mánuði. Umsókn með greinargóðum upplýs- ingum skal skila til augýsingadeildar Mbl. eigi síðar en 26. júlí, merkt: „Sjávarútvegur - 7273“. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Óskum að ráða starfsmenn í eftirtalin störf á bensínstöð okkar í Mosfellsbæ: kassamað- ur, bensínafgreiðslumaður. Stundvísi, reglusemi og þægileg framkoma eru nauðsynlegir eiginleikar viðkomandi starfsmanna. Bæði störfin henta.jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar gefur yfirmaður bensín- stöðva milli kl. 9 og 12 mánudaginn 22. júlí nk. í síma 689800. Olíuverslun íslands hf. HflNS PETERSEN HF Verslunarstjóri Óskum að ráða verslunarstjóra til starfa í verslun Hans Petersen hf. Lynghálsi 1. Við leitum að manni til að stjórna daglegum rekstri verslunarinnar, reynsla af verslunar- stjórn æskileg. Þekking og áhugi á framköll- un og Ijósmyndun æskileg. Vinnutími 8.45- 18.00 mánud.-föstud. Laust strax. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar: „Verslunarstjóri" fyrir 27. júlí nk. Hagva agurhf Grensásvegi 13 Reykjavík [ Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir TCIÍM KRISTNESSPÍTALI ■ ----------------------------- Lausar stöður hjúkrunarfræðinga Deildarstjóri óskast á hjúkrunardeild okkar. Um er að ræða afleysingastöðu í eitt ár frá og með 1. ágúst að telja eða eftir nánara samkomulagi. Vegna vaxandi starfsemi á endurhæfingardeild okkar vantar okkur hjúkrunarfræðinga til starfa. íbúðarhúsnæði og barnaheimili á staðnum. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-31100. Kristnesspítali. Lausar stöður við grunnskóla íVestfjarðaumdæmi: Skólastjórastaða við Grunnskólann í Bolung- arvík, umsóknarfrestur til 9. ágúst. Umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra við Grunnskólann í Tálknafirði framlengist til 2. ágúst. Umsóknarfrestur um eftirtaldar stöður grunnskólakennara framlengist til 2. ágúst: Grunnskóla Bolungarvíkur, meðal kennslu- greina sérkennsla. Grunnskólann Tálknafirði Grunnskólann Bíldudal Grunnskólann Þingeyri Grunnskólann Suðureyri Grunnskólann Súðavík Grunnskólann Broddanesi Lausar eru til umsóknar við Fræðsluskrif- stofu Vestfjarðaumdæmis staða forstöðu- manns Ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu á Vestfjörðum og staða talkennara. Hvort tveggja með aðsetur á ísafirði eða nágrenni. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst. Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis. H| BORCARSPÍmiNW ^ Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar á öldrunardeildir. Vinnutími og starfshlutfall samkomulag. Aðstoðar- deildarstjórastöður lausar. Upplýsingar gefur Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 696358. Aðstoðarfólk vantar nú þegar á slysa- og sjúkravakt. Vaktavinna. Upplýsingar gefur Svanlaug Skúladóttir hjúkrunarstjóri í síma 696650. Hjúkrunarritara vantar á lyflækningadeildir í 50-60% störf frá 15. ágúst og 1. september bæði fyrir og eftir hádegi. Upplýsingar um störfin eru gefnar á skrif- stofu hjúkrunarforstjóra í síma 696351. Starfsmenn vantar í rúmaþvott og ýmis aðstoðarstörf á skurðlækninga- og lyflækningadeildum hálf- an daginn, strax og frá 15.ágúst. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu hjúkrun- arforstjóra í síma 696351. Sjúkraliða vantar á gjörgæsludeild. Vaktavinna. Upplýsingar gefur Kristín Gunnarsdóttir deildarstjóri í síma 696336. Læknaritara vantar á nokkrar deildir spítalans nú þegar eða í haust. Upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 696204. Gæðavottun Vottun hf. auglýsir eftir starfsmanni til að leiða starfsemi félagsins. Um er að ræða nýtt félag í eigu aðila í sjávar- útvegi, iðnaði, verslun og þjónustu. Hlutverk starfsmannsins verður að vinna að uppbygg- ingu þekkingar á úttektum og vottun gæða- kerfa fyrirtækja og byggja upp .skipulag slíkrar þjónustu fyrir íslensk fyrirtæki í sam- ræmi við EN-45000 og ISO-9000 staðlana og aðrar reglur sem gilda um vottunarstarf- semi. Starfsmaðurinn verður sendur í þjálfun er- lendis á vegum fyrirtækisins í úttektum á gæðakerfum fyrirtækja samkvæmt ISO-9000 stöðlunum. Leitað er að verkfræðingi eða manni með sambærilega menntun og minnst 4 ára starfsreynslu. Hann þarf að hafa góða mála- kunnáttu og vera vel að sér í rekstri fyrir- tækja. Æskilegt er einnig að hann hafi trausta þekkingu og reynslu í gæðastjórnun. Viðkomandi þarf að hafa stjórnunarhæfileika, vera opinn og eiga gott með að setja sig inn í verklag og skipulag fyrirtækja. Hann þarf að geta starfað í fullum trúnaði við fyrirtæk- in og geta að þjálfun lokinni lagt sjálfstætt mat á gæðakerfi þeirra og skorið úr um at- riði hjá fyrirtækjunum, sem standast ekki kröfur. Boðið er upp á spennandi og nýtt starf í nánum tengslum við íslenskt atvinnulíf í Ijósi nýrra strauma í alþjóðlegum viðskiptum. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsreynslu, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1, september, merktar: „Vottun hf.“. Bókarar Óskum eftir að ráða bókara nú þegar hjá eftirtöldum aðilum: 1. Húsgagnainnflytjanda í Reykjavík. Fjármálastjórn og bókhaldsstörf (Ráð), innheimta og áætlanagerð. Aðeins koma til greina aðilar með mikla reynslu af ofan- greindu. 2. Fyrirtæki í ferðaþjónustu. Starf í 1 ár. Aðalbókari sem annast öll bókhaldsstörf (Alvís), afstemmingar og frágang til end- urskoðanda. Yfirumsjón með bókhalds- deild og eftirlit með tölvu (IBM 36). Reynsla skilyrði. 3. Prentsmiðju í Kópavogi. 60-70% bók- halds- og skrifstofustarf við útskrift reikn- inga, merkingu fylgiskjala (Opus), innslátt bókhaldsgagna, launabókhald og vinnu við tilboðagerð ásamt öðru tilfallandi. Sjálfstætt starf sem krefst reynslu og nákvæmni. 4. Opinberri stofnun. Starf í bókhaldsdeild við merkinu fylgiskjala, undirbúning skráningar ásamt afstemmingum. Leitað að töluglöggum starfsmanni með undir- stöðuþekkingu á bókhaldi. Vinnutími frá kl. 8-16. Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Skóla^'úrdustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.