Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 15
; MORftUNBlABIÐ .SUNN'UDAGL’R l5.,SW'TeAlBER lí)91
ttð
Mona Sahlin, vinnumálaráðherra Svíþjóðar, ræðir við ungt skólafólk
um atvinnustefnu stjórnar jafnaðarmanna.
menningur treysti borgaraflokkun-
um mun betur til að bæta efnahags-
ástandið en krötum. Ekki hefur það
heldur bætt úr skák að Feldt gaf
fyrr á árinu út bók þar sem hann
lýsir mjög opinskátt þeim ágreiningi
sem uppi var í stjóminni í ráðherra-
tíma hans.
Sameining sjóða
Eitt helsta ágreiningsmálið í
kosningunum eru áætlanir jafnað-
armanna um að sameina ellilífeyris-
sjóði landsins og hina svokölluðu
„launþegasjóði". Launþegasjóðirnir
voru settir á laggirnar fyrir nokkr-
um árum til að kaupa hlutabréf í
fyrirtækjum en peningarnir fengust
með því að taka gjöld af hagnaði
fyrirtækja. Er launþegasjóðunum
stjórnað af verkalýðshreyfingúnni.
Launþegasjóðirnir eru þegar mjög
sterkt afl á sænskum hlutabréfa-
markaði en ef sjóðunum yrði slegið
saman við lífeyrissjóðina myndu
þeir ráða yfir rúmlega 250 milljörð-
um sænskra króna sem festa ætti
í verðbréfum. Segja jafnaðarmenn
þetta nauðsynlegt til að ávaxta fé
lífeyrissjóðanna á hagkvæmari
hátt. Borgaralegu flokkarnir segja
þetta hins vegar mjög hættulegt
skref í átt til „sjóðasósíalisma“.
Enda er þetta engin sfnáupphæð
sem ætlunin er að ijárfesta fyrir.
Um síðustu áramót var heildarverð-
mæti hlutabréfa á „sænska Börsen"
548 milijarðar sænskra króna. Þeg-
ar frá hafa verið dregin ýmis hluta-
bréf sem ekki kæmi til álita að festa
kaup á, m.a. þau sem þegar eru í
eigu ríkisins, standa eftir 400 millj-
arðar. Með milljörðunum 250 væri
hægt að kaupa um 63% þessara
bréfa.
Hrun sósíalismans í Sovétríkjun-
um og Austur-Evrópu hefur liká
haft óbein áhrif. Það hefur gefið
fijálslyndum sjónarmiðum byr und-
ir báða vængi og fært miðju stjórn-
málanna til hægri. Þeir Carl Bildt,
formaður Hægriflokksins, og Bengt
Westerberg, formaður Þjóðar-
flokksins, spyija kjósendur á fund-
um um Iandið: „Af hveiju eigum
við að fara að auka sósíalisma í
Svíþjóð á sama tíma og menn eru
að afnema hann alls staðar annars
staðar?“ Sjálfir hafa þeir kynnt
sameiginlega stefnuskrá undir heit-
inu „Nýtt upphaf fyrir Svíþjóð" þar
sem meginatriðið er skattalækkanir
og minni ríkisafskipti.
Hlutur ríkisvaldsins er hvergi í
hinum þróuðu iðnríkjum meiri en í
Svíþjóð og samkvæmt nýjum tölum
frá OECD er skattbyrðin einnig sú
hæsta eða 56,7% af landsfram-
leiðslu. Boðskapur borgaralegu
flokkanna er að þessu verði að
breyta, eigi Svíþjóð, sem nú stendur
á þröskuldi Evrópubandalagsins,
ekki að verða undir í samkeppninni.
En þó að borgaraflokkamir stefni
að minni ríkisafskiptum, lægri
sköttum og einkavæðingu, leggja
þeir áherslu á að þeir vilji ekki gera
grundvallarbreytingar á sænska
kerfinu. Svíar hafa sterkar taugar
til „velferðarkerfisins“ og um
grundvallaratriði þess ríkir sæmileg
pólitísk sátt. Og þó að jafnaðar-
menn reyni í áróðri sínum að líkja
Bildt við Margréti Thatcher, fyrrum
forsætisráðherra Bretlands, og segi
hann ætla að koma á „Thatch-
erisma“ í Svíþjóð, eru breskir
stjórnmálaskýrendur almennt sam-
mála um að hann minni frekar á
annan breskan forsætisráðherra,
nefnilega Edward Heath.
Áherslumunur í
utanríkismálum
Það er ekki við því að búast að
sænsku þjóðfélagi verði umturnað
þótt borgaralegu flokkunum takist
að mynda ríkisstjórn. Hins vegar
er víst að áherslurnar munu breyt-
ast ekki síst í utanríkismálum.
Borgaraflokkarnir eru mun opnari
en jafnaðarmenn fyrir því að varpa
hlutleysi Svíþjóðar endanlega fyrir
róða og taka þátt í einhverskonar
hernaðarbandalagi, að öllum líkind-
um innan ramma EB. Þá má búast
við áherslubreytingum í stefnu Svía
gagnvart Mið-Austurlöndum. Borg-
araleg ríkisstjórn myndi án efa ekki
vera eins höll undir Frelsissamtök
Palestínumanna (PLO) ogjafnaðar-
menn hafa verið. Loks er búist við
öðrum áherslum Svíþjóðar á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna þar sem
Svíar hafa löngum litið mjög til
þriðja heimsins. Ekki er ágreiningur
um að Svíar eigi áfram að veita
jafn miklu ijármagni til þróunarað-
stoðar og þeir hafa hingað til gert
en líklegt er að peningarnir muni í
minni mæli renna til þróunarlanda
þar sem sósíalísk tilraunastarfsemi
fer fram, s.s. Víetnam.
Það sem helst gæti orðið til að
koma í veg fyrir að flokkarnir kom-
ist í stjórn er að litlu flokkarnir fái
það mikið fylgi að pattstaða komi
upp í þinginu. Menn eru mjög treg-
ir til að ræða hvað þá sé til ráða
en helst virðast líkur á því að komi
slík staða upp muni einhver eða
einhveijir borgaraflokkanna taka
upp samstarf við jafnaðarmenn og
þá helst Miðflokkurinn og/eða Þjóð-
arflokkurinn. Innan Hægriflokksins
eru þeir einnig til sem gætu hugsað
sér minnihlutastjórn með Þjóðar-
flokknum sem nyti stuðnings Mið-
flokksins, Þjóðarflokksins og...
Nýs lýðræðis.
Fæstir búast þó við að til svona
lausna þurfi að koma. Mat manna
á stöðunni er mjög einhlítt. Það
verður mynduð borgaraleg stjórn
og Carl Bildt verður forsætisráð-
herra. Ef svo ólíklega vill til að svo
verður ekki munu margir neyðast
til að éta hattinn sinn.
ÞESSIR SKÓR
STÆRÐIR 32-46
Pottþéttir skór í innanhúsíþróttirnar í vetur.
Tilvaldir í leikfimina, handboltann, fótboltann,
blakið, batmintonið o.s.fv..
Á aldeilis frábæru verði!
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Suðurnes: Samkaup, Njarðvík-Aldan, Sandgerði.
Kópavogur: Sportlínan Reykjavík: Bikarinn,
Boltamaðurinn, Búsport, Mikligarður, Sportmarkaðurinn,
Sportval, Sportmaðurinn, Trimmið, Útilíf. Akranes: Versl.
Óðinn. Borgarnes: Borgarsport. Stykkishólmur:
Litlibær. Siglufjörður: Torgið. Akureyri: Sporthúsið.
Seyðisfjörður: Aldan. Neskaupstaður: Verl. S.Ú.N.
Hornafjörður: Kask. Selfoss: Vöruhús K.Á.
Vestmannaeyjar: Axel Ó.
FYRIR ÞIG!
LANGAR ÞIG AÐ STARFA í
HJÁLPARSVEIT?
Hjálparsveit skáta í Kópavogi mun nú í
haust hefja nýliðaþjálfun.
Við leitum að fólki frá 17 ára aldri sem
hefur áhuga á útivist og
bj örgunarmálum.
Miðvikudaginn 18. september
klukkan 20.00 verður kynning á
starfsemi sveitarinnar og íyrirhugaðri
nýliðaþjálfun. Kynningin verður í
húsnæði hjálparsveitarinnar við
Hafharbraut í Kópavogi.
Hjálparsveit skáta
Kópavogi
SUNNUDAGURINN
/ dag hefst sunnudagsopnun
Kolaportsins og afþví tilefni
ætlum við að gera okkur glaðan dag:
• Simpson fjölskyldan
verðurí heimsókn frá kl. 11-13.
• Allir krakkar fá gefins lukkupoka.
• Útvarpsstöðin FM 95,7 verður
með beina útsendingu úr
Kolaportinu frá kl. 12.
• Margt fleira skemmtilegt og gott
verður á boðstólum.
• Síðast en ekki síst -
frábært markaðstorg að venju.
Opiö frá kl. 11-17.
KOIAPORTIÐ
MrfRKa-Ðí/OÉ/r