Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 27
iMORGUNBLAÐlÐ SUNNUDAGUH 15. SEPTEMBER 1991 Vaðið til lands með góðan feng. Morgunblaðið/gg sagði vinurinn og brosti „frá eyra til eyra“. Það var eitthvað annað hljóðið í mannskapnum hér eða á aðalsvæðinu í Norðurá. Grh gat ekki varist þeirri hugsun að hér væri komið hugarfarið sem skorti í Norðuránni. I þessum ham hefði kappinn í Leirársveitinni mokað upp laxi hvar sem væri. Nær bænum, í Laxá í Kjós, var einnig hið besta hljóð í fólki. Þarna var aldraður Bandaríkjamaður ásamt systur sinn. Þau voru reyndar nýkomin úr Norðurá þar sem sú gamla dró nokkra laxa. „Hún er veiðimaðurinn í fjöskyldunni," sagði sá gamli og bætti við að hann væri hingað kominn til veiða í tíunda skipti. „Ég - elska þetta land og laxveiðiár þess,“ sagði kappinn. Þarna var einnig mr. Jones frá Houston í Texas. Hann var að veiða hér á landi í fyrsta skipti, en er annars vanur veiðimaður og veiðir einkum urriða í Madisonánni í Montana og beinfisk og tarpon í Florida. „Að koma til ísiands er eins og upplifa ljúfan draum. Hingað hef ég stefnt lengi og það er eiginlega alveg sama hvernig veiðin gengur hjá mér, það er þegar búið að vera svo gaman að þetta mislukkast ekki,“ sagði Jones, sem var búinn að dvelja ásamt fjölskyldu sinni í einar þrjár vikur hér á landi áður en hann skrapp í Kjósina. Fjölskyldan fór heim á undan, „konan og börnin þola ekki veiðiskapinn, en sýna mér skilning og vilja að ég veiði sem mest,“ sagði Jones. Breitt bros Texasbúans setti punktinn yfir i-ið í þessari ferð. Það hafði gengið á ýmsu, erj — þannig er jú lífið á bökkum vatnanna. ur og hann hafði veitt nokkra laxa í túrnum. En hann sagði að það væri ekki mikill lax á svæðinu. „Það er fiskur í Stekknum og Myrkhyl, en svo ekki að viti fyrr en frammi í Dal. Svæðið milli Lax- foss og Glanna er laxlítið og víða neðan Laxfoss er lítið að sjá þótt víða séu nokkrir legnir fiskar að skvetta sér.“ Ekki er öll sagan sögð þótt ekki sjái menn laxinn. Fyrir nokkru voru til dæmis tveir kunnugir menn að veiða frammi í Dalnum, en á aðalsvæðinu þó. Er annar renndi, fékk hinn sér göngutúr eitthvað upp með á. Kom hann þar að þar sem einhvers konar steypubitar lágu í ánni og við hana. Þar átti ekki að vera veiðistaður, enda „dautt vatn“, eða straumlaust. En djúpt. Er veiðimaður hreykti sér á háan stein til að glugga ofan í pyttinn, trúði hann vart því sem fyrir augu bar. Engu var líkara en að botninn færi af stað á stóru svæði. Þama var laxatorfa! Og hún ekki lítil. Aætlaði kappinn að þarna væru milli 200 og 300 laxar. Hann hafði sjaldan á löngum ferli séð annað eins af fiski samankomið á einum stað. Það er nefnilega eins og Dóri veiðivörður sagði, „það er alveg sama hvað menn tauta og raula um að það sé enginn fiskur í ánni. Það er alltaf lax og oftast nóg af honum. Og það er stað- reynd þótt menn glápi og góni og sjái ekki neitt.“ Þarna í veiðihúsinu sannaðist það betur en nokkru sinni fyrr, að það eiga ekki allir að leggja fyrir sig veiðiskap. Það eru ekki allir undir það búnir andlega að fara heim með öngulinn í rassinum. Laxveiði- leyfi eru dýr og þegar fæði og gist- ing bætist við verða þetta hinar vænstu summur, en keyptu veiði- leyfi fylgir engin trygging fyrir góðri veiði, enda er gæfan hverful í veiðiskap og mikilsvert að vera jafnan jákvæður og ætlast ekki til of mikils. Gangi menn ekki þannig til leiks er hætt við að vonbrigðin knýji dyra. Einn kúnninn hafði lesið ærlega yfir kokkinum, skellt hurðum og ekið heim í grjótflugi þegar eftir fyrstu vaktina, með þeim orðum að hann gæti allt eins dorgað í bæjarlæknum. Í höfuðstaðnum ætlaði hann að stika inn á skrifts- ofu SVFR og lesa enn betur yfir Jóni Gunnari framkvæmdastjóra. Eins og það væri kokkinum að kenna. Eins og það væri Jóni að kenna. Sú geðshræring sem gripið hafði manninn var þess eðlis að hann var ekki líklegur til að ná neinu í bæjarlæknum frekar en Norðurá. í veiðihúsinu voru fleiri sem betur hefðu setið heima. Þarna upplifði blaðamaður það í fyrsta skipti í veiðihúsi að heyra og sjá menn hnakkrífast og jafn vel hrinda hver öðrum til vegna misklíðar um skiptingar, bæði liðnar og væntan- legar. Þetta var ömurlegt. allt í kring um hann. Vestur í Álftá var enginn að veiða og því var stefnan tekin á Laxá í Leirársveit. Laxá var hin álitlegasta, enda hafði vaxið aðeins í henni við rigninguna sem var búin að lemja á allt og öllu síðasta sólarhringinn. Fyrir ofan brúna við Miðfellsfljótið var veiðimaður að landa fiski. Það reyndist vera 5 punda sjóbirtingur. Kappinn óð síðan yfir kvísl og klifraði upp bakkann til að taka blaðamann tali. „Hann er fallegur þessi og svo er ég búinn að taka fimm laxa í morgun,“ sagði vinurinn brosandi út að eyrum. Og allt á flugu? var spurt, „Allt á þessa flugu,“ sagði veiðimaður og sýndi gripinn. Það var ekki rriikið eftir af flugunni og blaðamaður hafði orð á því. „Þetta var einu sinni Micky Finn og hún er orðin svona vegna þess að ég er búinn að taka 12 laxa á hana í túrnum,“ Þetta var einu sinni Micky Finn... Stefnan var tekin til höfuðstaðarins á nýjan leik í birtingu. Þó ekið fyrst vestur á Mýrar og litið við á neðsta svæðinu í Langá. Þar var einungis einn maður á veiðum og lax stökkvandi BMW 5 línan er fyrir kröfuharða Fyrir þá sem eiga BMW er sérhver bflferð tilhlökkunarefni Hjá BMW er ailt lagt í sölurnar til að fullnægja kröfum þeirra sem ekkert láta sér nægja nema það fullkomnasta á markaðnum hverju sinni. Við látum aðra hafa orðið: LMJ Bíllinn "90: "BMW520Í verkar traustur, mjög hljóðlátur og mjúkur. Þetta er stór, efnismikill og vandaður bíll, -glæsilegt tæki sem gaman er að eiga." ÞJ Mbl. 20/1 "90: "Fimman, einn best heppnaði bíll síðari ára." BMW 520i er með 6 strokka, 24 ventla, 150 hestafla vél sem búin er tölvustýringu GS Mbl. 5/5 "90: "Aksturseiginleikarþessa bíls eru stórkostlegir. Það er tilfinning, sem verður að telja sér á parti að aka honum." SH DV 30/6 "90: "Bíll í háum gæðaflokki; þetta er einn af þeim bílum sem hafa persónuleika og virðuleika. Góð og notaleg öryggiskennd að sitja í bílnum." Þyngdarhlutfall er jafnt á fram- og afturás, sem skilar betri aksturseiginleikum við íslenskar aðstæður. Reynsluakstur færir þig í allan sannleikann um það sem þig hefur alltaf grunað: BMW er engum líkur. Bílaumboðið hf Krókhálsi I - 110 Reykjavík - Sími: 686633 1916-1991 Höfóar til .fólks í öllum starfsgreinum! MUSIKLEIRFIMI Við hjá íþróttafélagi kvenna viljum bjóða stelpur á öllum aldri velkomnar í músíkleikfimi okkar í Austurbæjar- skólanum. Kennsla hefst 23. september og fer fram mánudaga og fimmtudaga kl. 18-19. Nánari upplýsingar í síma 79243 og 666736.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.