Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 26
—>26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMjiKR )9(,H EKKIÁVÍSAN AÐRÓAÍ Laxveiöivertíöin er langt komin. I sumum ánum er aðeins veitt út ágústmánuö, í öðrum til 9. september, en veiði í þeim síö- ustu lýkur 20. september. Nokkrir ein- staklingar sem langt eru leiddir "af veiðibakterí- unni eru aö elt- ast við sjóbirt- ing suöur meö sjó fram til 20. október. Veiðigarparnir Gunnar Karlsson t.h. og Hafsteinn Guðjónsson í miðið fá aðstoð Haildórs Nikulássonar veiðivarðar og Birgis Þórs Jóhanns- sonar við að sýna morgunveiðina. Meiri mannskap hefði þurft ef sýna hefði átt alla veiðina. eftir Guðmund Guðjónsson Vertíðin að þessu sinni hefur reynt mjög á geðslag stangaveiðimanna. Lengst af hafa skilyrði til veiða verið slæm, en hafa batnað nú allra síðustu vikur. Hit- arnir, vatnsleysið, hin mikla sólar- birta, allt tók höndum saman og gerði laxinn venju fremur óúreikfi- anlegan, veiðimönnum oft til mik- illar armæðu. í ljós kom, að veiði- menn reyndust ekki allir vera and- lega undir það búnir að Ienda í þeim hremmingum á bökkum vatn- anna að veiða lítið eða jafnvel ekk- ert. Morgunblaðið fór í yfirreið á dögunum og varð þessa áskynja. Engin barlómur Ekið var sem leið lá og ekki áð fyrr en í Borgarfirðinum, enda stóð til að taka menn tali á bökkum vatna norðan heiða fyrri dag út- haldsins. Það var eiginlega stöðvað við Glitstaðabrú við Norðurá til þess að bijóta upp tilbreytingaleys- ið í rignigunni og sofna ekki undir stýri. Morgunvakt veiðimanna var að ljúka og Subarúbifreið og nokkrum veiðistöngum tifandi út um glugga var ekið að. Út stigu Gunnar Karlsson og Hafsteinn Guðjónsson, karlar tveír sem báru utan á sér að hafa veitt lenpd sam- 4h. Aðspurðir sögðu þeir að það hefði gengið vel. Þeir voru dijúgir með sig og máttu það vel. Þeir voru búnir að vera í ánni, „á Dalnum“ í Norðurá, í einn og hálfan dag. Voru með eina stöng af þremur. Og það lágu 12 laxar í valnum! m Það var því enginn barlómur sem barst úr þeirra börkum. Gunnar sagði að þetta væri allt Dóra veiði- verði að þakka, hann þekkti ána svo vel og hafði vísað þeim á veiði- staði. „Ég vil helst hafa það þann- ig, að leyfa hinum stöngunum að velja sér hyljí, taka svo afganginn og ramba um eyrar og pilla upp fiska á milli veiðistaða. Þeir eru ófáir í aflanum núna sem eru þann- ig teknir. Annars gekk okkur best inni í Olnboga. Tókum sex laxa þar,“ sagði Gunnar og þeir félagar losuðu síðustu fímm laxana úr plastinu fyrir myndatöku. Hinir laxarnir sjö voru í frysti á Hreða- vatni. Þetta var að því leyti enn fallegri veiði, að þrír laxanna voru 8 til 10 punda. Gunnar hafði á orði að hollið á aðalsvæðinu hefði ekki veitt samtals öllu fleiri laxa heldur en þeir Hafsteinn höfðu dregið á eina stöng. Nú kom Dóri vörður aðvífandi og með honum drengurinn Birgir Þór, barnabarn með meiru. Dóri sagði að stelpurnar í veiðihúsinu á aðal- svæðinu hefðu hvíslað að sér að hollið væri óánægt. Það hefði verið lítil veiði og menn kvörtuðu undan laxleysi. Blaðamaður sagði við Dóra og honum væri þökkuð hin mikla veiði Gunnar og Hafsteins, en hann leit varfærinn í kring um sig, togaði í olnbogann á blaða- manni og hvíslaði, „ég skal segja þér, að ég get ekkert kennt honum Gunnari. Hann er sá mesti veiði- maður sem ég þekki og ef það kæmu fleiri eins og hann í ána væri hægt að moka hér upp laxi. Það er fullt af honum í ánni.“ Ein- hvern veginn slæddist það inn í samtalið að þeir Gunnar og Haf- steinn höfðu komið í Norðurána beint úr Laxá í Skefílstaðahreppi og fengið þar 9 nýrunna og fallega laxa. Ekki amalegur veiðitúr þetta hjá þeim félögum og það fréttist síðar af þeim, að þeir veiddu 6 laxa til viðbótar seinni síðdegis- vaktina í Norðurá. Þrír dagar: Einn í Laxá í Skefílstaðahreppi og tveir í Norðurá 2. Afraksturinn: 27 lax- ar. Barlómur „Hér er ekkert að gerast maður, ha! Við erum með fjóra eftir dag- inn og ég ætla ekki að segja þér hvað dagurinn kostaði. Geri þó ráð fyrir að þú hafír nokkra hugmynd um það. Við reyndum að selja dag- inn en það vildi enginn kaupa hann,“ sagði annar tveggja ónafn- greindra veiðimanna sem Morgun- blaðið hitti á bökkum Laxár á Ásum. Það var þungt í þeim. Þeir höfðu veitt í Laxá í tvo-þijá daga sumar hvert í ein tíu ár og töldu sig aldrei hafa séð minna af fiski í ánni. „Nú eru komin þijú svona sumur í röð og við bjóðum ekki í þetta lengur,“ sagði maðurinn og vildi fara komast af stað heim. Morgunblaðið hitti einnig Ómar B. Siggeirsson sem var nýlega hættur í ánni. „Við veiddum alveg þokkalega, en þetta var hrikaleg vinna, því laxinn hefur hagað sér skringilega í sumar. Ég vil nú helst veiða hann á flugu, en það er með ólíkindum hvað hann hefur tekið hana illa, ekki bara hérna í Ásun- um, heldur alls staðar þar sem ég hef komið í sumar. Fleiri segja sömu sögu. Ég hélt að ég væri farinn að hafa pínulítið vit á þessu, en þá kemur laxinn og hlær bara að manni,“ sagði Ómar. „En hann vildi maðkinn og við fengum nokkra,“ bætti hann við. Leiðin lá austur til Blöndu. Þar stóð til að horfa á frægar veiðiað- ferðir og festa jafn vel á filmu nafntogað veiðitæki: „Blöndu- spúninn“. Þegar að Blöndu kom reyndist áin vera glettilega hrein og trúlega „maðktæk“ eins og sumir hafa kallað það. Hvort sem það var vegna þess að vel hefði mátt beita löglegum veiðiaðferðum eða eitthvað annað, þá var enginn að veiða í Blöndu þennan eftirmið- dag. Allt svæðið var grandskoðað og hvergi var stangarbera að sjá. Við fiskveginn í Ennisflúðum voru hins vegar starfsmenn Veiðimála- stofnunnar að vega og mæla fisk úr gildrunni og sleppa upp.fyrir. Enginn reyndist vera laxinn að þessu sinni, heldur dijúgt af sjó- bleikju, og hvert þrep laxastigans var fullt af þeim fiski. Á Blöndu- ósi var leitað að „Blöndukitti“, en ekkert fannst. Maður sem vildi ekki láta nafns getið sagði menn einfaldlega fara þannig að, að þeir festu aukaþríkrækju við auga venj- ulegs Tóbíspóns sem reyndar væri ekki af smærri sortinni. „Annars eru fleiri og fleiri að komast að því að besta húkktækið er ef til vili flugan. Þeir nota steinsökk- vandi línu og setja hagl eða högl við fluguaugað. Önglarnir eru litlir og beittir og þurfa minna átak til að ná góðri festu heldur en stóru spónönglarnir. Ég held að Blanda myndi missa allan sinn sjarma ef gruggið fer úr henni og hún yrði eins og allar aðrar ár,“ sagði við- mælandi Morgunblaðsins. Ferðinni var nú haldið áfram og ekið til baka. Að þessu sinni hitti Morgunblaðið fyrir tvo veiðimenn, annan á silungasvæðinu í Vatns- dalsá og hinn skammt frá brúnni á Víðidalsá. Báðir tóku því engan veginn að ræða málin, töldu sig ekki vera í veiði til þess að standa í blaðaviðtölum. Var það sjónarmið sem bar að virða. Meiri barlómur og vel það... Beiðst var gistingar í veiðihúsinu á aðalsvæðinu í Norðurá. Þar voru laus herbergi sem öllu jöfnu eru notuð af leiðsögumönnum sem ekki er að finna á þessum tíma sumars. Kokkurinn Sigurður tók blaðamanni vel og stúlkurnar hans leiddu hann til herbergis. Veiðifólk sat við kvöldverðarborðið og var málsverðinum um það bil að ljúka. Sigurður kokkur sagði hljóðið í veiðifólkinu ekki upp á það besta. Aðeins um 20 laxar lágu dauðir í kælikompunni, afrakstur 12 dags- stanga í tvo og hálfan dag. Sannar- lega ekki mikið og voru ytri skil- yrði þó góð dijúgan hluta veiði- tímans. En hvernig stóð á því? Þarna var á höttunum, ungur mað- ur að nafni Ágúst Rúnarsson. Hann þekkir Norðurá það vel að hann hefur verið þar leiðsögumað-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.