Morgunblaðið - 15.09.1991, Qupperneq 20
120
MORGUNBL^lPíWIYNÐASOeUR^WNUmetJítr^a SEPTEMBER 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn er upplagður til úti-
vistar og líkur eru á því að
ástin sé í uppsveiflu. Ökuferð
með bömunum er ráðleg.
Vertu ekki of atorkusamur,
það gæti valdið ofþreytu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Haltu fast um budduna því
þú hefur tilhneigingu til
eyðslusemi í dag. Fjölskyldan
á hug þinn allann og það væri
skynsamlegt að bjóða vinum
eða vandamönnum heim.
Tvíburar
(21. maí - 20. jún!) 5»
Mjög kært verður með hjóna-
fólki og því er nauðsynlegt að
njóta lífsins í dag. 1 kvöld
muntu hafa áhyggjur af
ákveðnu fjölskyldumáli.
Krabbi
' (21. júní - 22. júlf)
Þér farnast vel í skemmtana-
lífinu og töírar þá sem í kring-
um þig era upp úr skónum.
Varastu að missa tökin á því
sem þú ert að sýsla við um
þessar mundir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gengur í augun á fólki sem
þú átt samskipti við og sterkur
persónuleiki þinn skín í gegn.
_, Reyndu að slappa af og varast
eyðslusemi.
Meyja
(23. ágúst - 22. septembcr)
Þú kannt best við þig heima
í dag og rétt er að nota tímann
til þess að bæta eða breyta.
Sýndu ekki fjölskyldunni yfir-
gang.
V°g „
(23. sept. - 22. október)
Þér mun líða vel meðal vina í
dag. Astarmálin taka góða
stefnu. Þú verður að horfast
óhræddur í augu við stað-
reyndir.
Sporódreki ,
(23. okt. - 21. nóvember)
Það verður skotið að þér hug-
myndum sem nýtast þér í
starfi og leiða til aukinna
tekna. Dagurinn er óheppileg-
ur til búðaferða og þú getur
lent í deilum við ákveðinn vin.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Ferðalög og vinafundir munu
veita þér mikla ánægju í dag.
Beittu skynsemi þegar hags-
munir fyrirtækisins eru ann-
ars vegar.
Steingeit
j (22. des. - 19. janúar)
Þú ert vantrúaður á ráð sem
þér verða gefin í dag og kýst
umfram allt að vera sem mest
einn með þínum heittelskaða.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh.
Notaðu helst ekki greiðslu-
kortið í dag. Taktu öllum
heimboðum sem orðið geta til
að treysta vináttubönd eða
ástarsamband.
Fiskar
i (19. fébrúar - 20. mars)
Það fer mikill tími í að mynda
ný sambönd sem koma að
góðum notum í starfi þínu.
Þú öðlast traust og tiltrúnað
annarra. Vertu maður sátta
og samlyndis heima fyrir.
Stj'órnusþána á aó lesa sem
\ dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
GSEte tV&CG L'ANSAM-
J OfZ! Þ/IÐ TEGST S\rO
fj EHU/U An/d/eJCF1 SÍR
JÓPOR. / V£ZÖt-C>/ONt
GRETTIR
LJÓSKA
1 "nu 221’ 1 i mr i ~ ir
KCNO/NGO,
/'vag
■JL
"D lU 1 1 rtnUIIMAIMU
i—i i| r !21í 'Tí *’
SMAFOLK
And so they
decided to get
married.
“But I worry,” he
saíd,“that I won’t
make you happy.”
She smiled,
and said,
Og þau ákváðu að gifta sig.
„En ég hef áhyggjur af því,“ Hún brosti og sagði, „það er sko ekkert vandamál."
sagði hann, „að ég geri þig ekki
hainingjusama."
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
íferðin í trompið er helsta við-
fangsefni suðurs í 4 hjörtum:
Norður gefur; allir á hættu.
Sveitakeppni.
Norður
♦ ÁDIO
VK643
♦ ÁK1087
♦ 4
Suður
♦ G8
♦ D10752
♦ DG9
♦ K92
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tígull 2 lauf 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Útspil: laufátta.
Austur tekur á laufás og spil-
ar drottningunni um hæi. Suður
drepur á kónginn og hendir
spaða úr borðinu. Hver er besta
áætlunin?
Eftir innkomu austurs á hætt-
unni er ekki óeðlilegt að eigna
honum spaðakóng og hjartaás.
Því kemur vel til greina að fara
inn á borð og spila hjarta að
drottningunni — ásinn gæti
hæglega verið blankur.
En hér hangir fleira á spýt-
unni. Það er nefnilega óhætt að
gefa tvo slagi á tromp, svo fram-
arlega sem vestur fái ekki tæki-
færi til að spila spaða í gegnum
ÁD.
Vestur
♦ 97632
VÁG9
♦ 64
♦ 873
Norður
♦ ÁD10
♦ K643
♦ ÁK1087
♦ 4
Austur
♦ K54
¥8
♦ 532
♦ ÁDG1065
Suður
♦ G8
V D10752
♦ DG9
♦ K92
Öruggasta leiðin er því að
spila hjarta á kóng og snúa sér
síðan að tíglinum ef kóngurinn
heldur. Þá vinnst tími til að losa
sig við spaðahund heima áður
en vestur nær að fría slag á
spaðakóng.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hraðmóti enska Kings Head-
félagsins í London í júní kom þessi
staða upp í skák þeirra M.A.
Shaw, sem hafði hvítt og átti leik,
og J.H. Fleischer. Hvítur hafði
fórnað manni fyrir stórsókn og
fórnaði nú öðrum til að vinna tíma
í sóknina:
21. Ba6! - Dxa6, 22. Hh3 -
Rxd4 (22. - f6, 23. Dxg6 - fxg5,
24. Hh7 - He7, 25. Dh5 hefði
heldur ekki bjargað svarti) 23.
Dh7+ — Kf8,24. Dh8+! og svart-
ur gafst upp, því eftir 24. — Rxh8,
25. Hxh8 er hann mát.
Þessa skák dæmdi hinn kunni
enski stórmeistari Speelman sem
þá beztu á mótinu. Þess verður
þó að geta að í stöðunni á stöðu-
myndinni er svartur í svo mikilli
úlfakreppu að hvítur þarf ekki á
biskupafórninni að lialda, hann
gæti t.d. leikið 21. Bfl því svartur
á enga viðunandi vörn við ferða-
lagi hvíta hróksins yfir í kóngs-
væng. _____________________j . .