Morgunblaðið - 15.09.1991, Síða 28
>28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991
.. JÁ NÚ SKIL ÉC
T$LVAN
__________Brids____________
Arnór
Ragnarsson
Jöklamót Bridsfélags
Hornafjarðar
Opinn tvímenningur verður hald-
inn á Hótel Höfn helgina 20.-2Í.
september 1991. Mótið hefst kl. 20
á föstudaginn og er áætlað að því
ljúki um kl. 19 laugardaginn 21.
september næstkomandi. Fem pen-
UPPÞVOTTAVEL
(SUM LINE)
Model 7800
7 manna matarstell, 3 þvotta-
kerfi. Hæð 85 cm - breidd 45
cm - dýpt 60 cm.
Verft kr. 56.772.- stgr.
Birgir Andrésson fyrir framan myndröðina „Annars vegar fólk“
NÁLÆGÐ
Myndlist
Eirtkur Þorláksson
í austursal Kjarvalsstaða stendur
nú yfir sýning frá hendi Birgis Andr-
éssonar, sem hann hefur gefið yfir-
skriftina „Nálægð, og undirtitlana
„Imyndir, Litir, Fólk. Sýningin skipt-
ist þannig í þrjá þætti, sem þó vega
misjafnlega í þeirri heildarmynd sem
hér kemur fram.
Birgir hefur um nokkurra ára
skeið unnið með þá þætti, sem hér
koma fram sem „ímyndir. Hér er
um að ræða miklar stækkanir á frí-
merkjum frá Alþingishátíðarárinu
1930, sem listamaðurinn hefur fært
yfir á plastflimur og handmálað, eða
prentað á álplötur. Þessir hversdags-
legu smáhlutir taka á sig algjörlega
nýja mynd þegar þeir eru stækkaðar
á þennan hátt. Frímerki kunna við
fyrstu sýn að virðast ósköp ómerkileg
fyrirbæri, sem fólk handfjatlar dag-
lega án þess að veita þeim nokkra
athygli, en við nánari umhugsun
kemur í Ijós að hér er meira á ferð-
inni.- Hver þjóð setur metnað sinn í
að frímerki, sem eru fyrstu ímyndir
landsins til að berast víða um heim,
gefi jákvæða mynd af landi og þjóð,
og velja því efni á frímerkin í sam-
ræmi við það. Á fyrri hluta aldarinn-
ar, t.d. um 1930, voru íslendingar
að stíga sín fyrstu skref inn í samfé-
lag þjóðanna á nýjum tímum; bænda-
þjóðfélagið var að breytast, iðnaður,
fiskveiðar og verslun að taka við sem
aðalatvinnuvegir þjóðarinnar og
undirstaðan undir framsókn til betra
lífs í framtíðinni.
í ljósi þessa er áhugavert að sjá
hvaða mynd íslendingar vildu gefa
öðrum þjóðum af sjálfum sér á þess-
um tíma. Af frímerkjum sem Birgir
hefur valið til úrvinnslu hér má ráða
að þeir kusu að njóta helst athygli
fyrir ímynd landsins og fortíð þjóðar-
innar. Leturgerð merkjanna er feng-
in úr fornum útskurði, og landakort-
ið á krónumerkinu er fomlegt, á
meðan svipir landsins á öðrum merkj-
um eru óljósir og draumkenndir.
Þannig virðist hjúpur fornrar frægð-
ar og dulúðar hvíla yfir landinu í
þeirri ímynd, sem haldið var fram.
Listamaðurinn hefur hér gert stækk-
aðar eftirmyndir af draumum, ef svo
má segja, því auðvitað á þessi ímynd
ekki við rök að styðjast — eða hvað?
Hver var raunveruleikinn og hvar
byrjaði draumurinn? Eftirmynd
drauma getur nefnilega oft gert þá
ímynd sem þeir gefa mikilvægari en
ímynd raunveruleikans verður nokk-
um tíma.
Einn hluti sýningar Birgis kann
að fara framhjá mörgum, en sá nefn-
ist „Litir". Þennan hluta er ekki að
finna á veggjum sýningarsalarins^
heldur í skrá sem liggur frammi. I
inngangi hennar segir listamaðurinn:
„Hér eru tólf sýnishom af litum ís-
lenskrar menningar. Þau em ekki
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
XJöfóar til
X Xfólks í öllum
starfsgreinum!
BRAMBILLA
Frönsku BRAMBILLA úlpurnar eru ekta dúnúlpur, hlýjar, og fallegar. BRAMBILLA dúnúlpumar eru vendiúlpur.
Því færð þú í raun tvær dúnúlpur á verði einnar. BRAMBILLA dúnúlpumar eru til í öllum stærðum, jafnt á böm og fullorðna.
Nýju BRAMBILLA vendi-dúnúlpurnar kosta 12.900 krónur í fullorðinsstærðum.
BRAMBILLA dúnúlpur - töffbáöum megin
ERT ÞÚ AD FARA í FERDALAG
EOA I TUNGUMÁLANÁM ?
ú
ÍSLENSKA. DANSKA. ENSKA,
FRANSKA. ÞÝSKA. SPÆNSKA
ALLT í SÓMU TÖLVUNNI
YFIR 3000 ORÐ OG ORÐA-
SAMBÖND Á HVERJU HINNA SEX
TUNGUMÁLA SEM TÖLVAN BÝR YFIR
UTILIF
Glæsibæ
Sími91-812922
unnin út frá litum úr náttúrulegum
efnasamböndum, svosemjurtum eða
jarðefnum, Heldur úr þeim litbrigð-
um sem mér hafa sýnst mest áber-
andi í sköpunarverkum þjóðarinnar
í gegnum aldirnar.
Hugmyndin er góð; þeir litir sem
Birgir velur í þessum tilgangi eru
samsettir, og bera allir nafnið „Is-
lenskur". Sköpunarverk þjóðarinnar
í gegnum aldirnar eru jafn misjöfn
og þau eru margvísleg, en það vekur
athygli að þar er engan hreinan lit
að finna að mati listamannsins; jafn-
vel sá bjartasti (magneta 11,5%,
yellow 94%, black 6%) heldur aftur
af birtunni, situr á sér. Hins vegar
eru dýpstu litirnir þannig settir sam-
an, að augu áhorfandans taka
ósjálfrátt að mynda form lands og
lagar í fletinum — þeir minna það
vel á raunveruleikann.
„Annars vegar fólk“ er mest gríp-
andi þáttur sýningarinnar og mest
áberandi. Einföld uppröðun mynd-
anna gerir það að verkum að þær
styrkja hver aðra; misjöfn myndgæði
verða einungis til þess að færa fólk-
ið nær raunveruleikanum. I inngangi
að þessum hluta sýningarinnar segir
listamaðurinn m.a. eftirfarandi:
„Að vera venjulegur, krefst þess
einungis að farið sé eftir settum regl-
um þess ástands sem varir hveiju
sinni. Sá sem fetar ótroðnar slóðir
og stikar utan vega þeirra kortagerð-
amanna er skrásetja vilja og skipu-
leggja með lögbundnu valdi „skyn-
seminnar“ gerðir fólks, er undarlegt
fyrirbæri í augum fjöldans. Myndröð-
in „Annars vegar fólk“ samanstend-
ur af þess konar manneskjum er í
samtíma sínum taldist til þess síðar
nefnda.
Birgir nær að setja þessar myndir
í það samhengi sem þarf til að fólk-
ið á þeim sé ekki skoðað sem furðu-
fyrirbæri, fáráðlingar og þaðan af
verra; þetta eru einstaklingar sem
gengu aðrar brautir en almenningur,
en eiga fulla virðingu skilda sem
hluti þess menningararfs, sem við
búum að. Það er t.d. erfítt að horfa
í augu Jóns söðla, stuttu Siggu og
Auðuns skökuls I. af íslandi án þess
að langa að kynnast sögu þessa fólks
betur, og þar með eigin þjóðarsögu.
Þrátt fyrir ólíka þætti er þessi
sýning mjög heildstæð og stendur
nálægt okkur, og gefur gestum
þannig drjúgt tilefni til hugrenninga
um sjálfa sig og sinn menningararf.
Og þar sem það er vissulega einn
megintilgangur allrar listar og vekja
fólk til umhugsunar, má segja að
hér vinni Birgir Andrésson ákveðinn
sigur fyrir hönd myndlistarinnar.
Sýningu Birgis Andréssonar í
austursal Kjarvalsstaða lýkur sunnu-
daginn 15. september.
ingaverðlaun verða veitt og spilað
verður um silfurstig.
1. Verðlaun: Peningaverðlaun kr.
60.000 og jöklaferð fyrir fjóra að
verðmæti kr. 30.000 eða samtals
kr. 90.000.
2. Verðlaun: Peningaverðlaun kr.
40.000.
3. Verðlaun: Peningaverðlaun kr.
30.000.
4. Verðlaun: Peningaverðlaun kr.
6.000.
Parafjöldi takmarkast við 40 pör
og hægt er að skrá sig til fimmtu-
dags 19. september hjá: Hótel Höfn,
sími 97-81240.
BSÍ (Elín), sími 91-689360.
Sigurpáll, sími 97-81268 eða
97-81200 (vinnusími).
Keppnisgjald er kr. 6.000 á parið
og er kaffi innifalið í því meðan á
móti stendur. Þá mun bæjarstjórn
Hafnar bjóða spilurum í kaffisam-
sæti á laugardaginn.
Að auki er boðið uppá: Flugfar
með Flugleiðum REK-HFN-REK
kr. 7.950 á mann. Flogið á föstu-
degi frá Reykjavík og sunnudegi
frá Höfn. Gisting á Hótel Höfn; ein
nótt með morgunverði kr. 2.700 og
tvær nætur kr. 5.000 á mann.
Formaður B.H. er Sigurpáll Ingi-
marsson. — JGG
UM LAND ALLT