Morgunblaðið - 15.09.1991, Page 36

Morgunblaðið - 15.09.1991, Page 36
N • Á • M • A • N Landsbanki ísiands Banki allra landsmanna Bögglopóstur um ollt Iflnd PÓSTUR OG SÍMI MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. 200 úrum var stolið INNBROT var framið í mann- lausan bíl í porti við Berg'þóru- Cíi#ötu aðfaranótt laugardags og þaðan stoiið tösku með um 200 úrum að verðmæti um 2 milljón- ir króna. Það var sölumaður frá Jóni Bjarnasyni úrsmið á Akureyri, sem skildi töskuna eftir í bílnum, falda á bak við framsætin. Taskan er ómerkt, lág úr leðri með talnalás og eru þeir sem fínna slíka tösku beðnir um að snúa sér til lögregl- unnar. „Þetta eru ný og fín sviss- nesk Tissut og Edox úr, sem ég er með umboð fyrir og sendi suður í sölu,“ sagði Jón. „Ætli útsöluverð þeirra sé ekki um 2 milljónir króna." Þjófurinn komst að töskunni með því að henda bíltékk í rúðu á bílnum ^g brjóta hana. Davíð hittir George Bush DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, mun hitta George Bush Bandaríkjaforseta á stuttum fundi í Bandaríkjaför sinni, en hann er nú leið þangað til að vera viðstaddur hátíðahöld vegna komu vikingaskipsins Ga- iu til New York. Forsætisráðherra fer til Banda- ríkjanna frá París þar sem hann sat fund leiðtoga EDU, Sambands evr- ópskra lýðræðisflokka. Til þessa hafa íslensku fulltrúarnir verið áheyrnarfulltrúar á fundunum en eru nú fullgildir meðlimir. Eigendur Guðbjargar buðu best í Elínu Þorbjamardóttur HRÖNN hf. á ísafirði, sem gerir út aflaskipið Guðbjörgu ÍS, gerði hæsta tilboð í hlutabréf Hlaðsvík- ur hf. á Suðureyri, útgerðarfélag Elínar Þorbjarnardóttur IS. Til- boð Sjólastöðvarinnar í Hafnar- firði var næsthæst þeirra sjö boða sem bárust. Fáfnir hf. á Þingeyri og Stálskip í Hafnarfirði buðu einnig í Hlaðsvík. Stjórn Fiskiðj- unnar Freyju sem á bréfin í Hlaðsvík fundaði um tilboðin í gær, laugardag. Helgi Þórðarson, stjórnarformaður Hlaðsvíkur, segir menn helst vilja semja um rekstur Fiskiðjunnar Freyju í heild. Helgi segir vænlegast fyrir at- vinnurekstur á Suðureyri að samn- ingar náist um samstarf um allan rekstur Freyju, ekki einungis útgerð togarans Elínar Þorbjarnardóttur. Frystihúsinu á Suðureyri vilji menn reyna að halda opnu og Byggðastofn- un hljóti að horfa til hagsmuna sveit- arfélagsins. Byggðastofnun ræður yfir 54% bréfa í Freyju, Sjávarafurðir hf. eiga 20% bréfanna, Suðureyrarhreppur rúm 15% og afgangur skiptist milii 23 minni hluthafa. „Nýir hluthafar eru besti kostur- inn, að því frágengnu að núverandi eigendur leggi aukið fé í Freyju," segir Helgi Þórðarson. „Annar kostur er samstarf við nágranna um rekst- urinn og við höfum í vetur og aftur síðustu daga átt viðræður um það. Þriðji möguleikinn væri sá að selja eignir fyrirtækisins." Öll tilboð í Hlaðsvík þykja of lág samkvæmt upplýsingum blaðsins. Hlutabréfin voru auglýst með 75% af kvóta Elínar Þorbjamardóttur, en misjafnt er hvort boðin taka mið af því eða fullum kvóta. Hrannarmenn munu frekar vilja kaupa togararin og gera hann upp heldur en fara í atvinnustarfsemi á Suðureyri. Þeir hafa þó eftir heimild- um Morgunblaðsins ekki lokað á Kannaðir möguleikar á flutn- ingi rafmagns vestur um haf Washington, frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins : _^-Í^ANDARÍSKT verkfræðinga- fyrirtíeki hyggst kynna sér möguleika á stórframleiðslu raf- magns á íslandi til notkunar í Bandaríkjunuin og Kanada. Sam- kvæmt upplýsingum frá verk- fræðingum félagsins er nú til- tölulega auðvelt að flytja raf- magn í stórum stíl frá Islandi til ^■Prýfundnalands með nýjustu tækni til flutnings rafstraums um langan veg. Verkfræðingarnir hafa fyrst og fremst augastað á íslandi, þar sem þeir telja möguleika á að framleiða hér rafmagn í stórum stíl, ekki ein- ungis með vatnsafli heldur og e.t.v. frekar með því að virkja jarðhita landsins í þeim tilgangi. Verkfræðingafyrirtækið sem hér um ræðir mun á næstunni snúa sér til íslenskra yfirvalda vestan hafs og reifa málið fyrir þeim. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði i samtali við Morgunblaðið í gær að fyrirtækið hefði ekki kynnt sér möguleika á fiutningi raforku vestur um haf en möguleikinn til flutnings raforku um sæstreng til Bretlandseyja er í athugun á vegum fyrirtækisins. Vegalengdin frá íslandi til Ný- fundnalands er nær þrefalt lengri en vegalengdin milli íslands og Bretlandseyja. þann möguleika. Rætt hefur verið við útgerðarmenn frá Þingeyri til Súðavíkur um samvinnu við Freyju en ekki kominn botn í málið. Sam- starf Þingeyrar og Suðureyrar er einn þeirra möguleika sem nefndir hafa verið, þá yrði togara Hlaðsvíkur væntanlega iagt. Togarinn Bessi frá Súðavík gæti einnig veitt allan kvóta Elínar Þorbjarnardóttur. Talið er að auka þurfí hlutafé í Freyju um 100 milljónir hið minnsta til að halda rekstri áfram. Skuldir fyrirtækisins nema rúmum 500 millj- ónum króna þrátt fyrir 580 til 600 milljóna eignir. Samningar við Rupari Food: Gert ráð fyrir að ganga frá sölu Igöts í upphafi vikunnar GERT ER ráð fyrir að undirrita upp úr helginni samninga um sölu til Bandaríkjanna á lambakjöti frá því í fyrra og ærkjöti úr slátrun haustsins. Þetta segir Sigurgeir Þorgeirsson aðstoðarmaður Halldórs Blöndal landbúnaðarráðherra og bendir á að enn sé ekki fullljóst hve mikið af kjöti verði skýrast snemma í vikunni. Sigurgeir kveðst ekki búast við að dómur er féll í mútumáli banda- ríska samningsaðilans fyrir níu árum hafi áhrif á samninga við hann. Hann segir að ráðuneytið hafi vegna þessa leitað upplýsinga opinberra aðila vestanhafs og í helstu viðskiptalöndum Rupari food, Danmörku og Finnlandi. Samningur um sölu á 800 til 1.000 tonnum af ærkjöti er fullfrá- genginn en ekki undirritaður. Ljóst verður í vikunni, að sögn Sigur- geirs, hve mikið verður skorið af fé. Ekki hefur heldur verið skrifað undir samning við Rupari Food um sölu á árs gömiu lambakjöti. í til sölu. Það segir hann hljóta að fyrstu var rætt um 800 tonn af því og segir Sigurgeir gert ráð fyrir að magnið fari ekki undir 500 tonn. Verið er að kanna birgðir dilka- kjötsins og ekki fulljóst nú um helgina hve mikið er enn til í heil- um skrokkum. Bandaríski samn- ingsaðilinn, Rupari food, vill ein- ungis kaupa lambaskrokkana í heilu lagi. Giskað var á um síðustu mánaðamót að eftir væru um 700 tonn af heilum skrokkum frá því í fyrra. Hugsanlegt er talið að vinnslustöðvar hafi birgt sig eitt- hvað upp af dilkakjöti vegna frétta um verðhækkun. Sjá nánar á bls. 6. Málað fyrir veturinn Morgunblaðið/KGA Haustið hefur minnt á sig um alit land að undanförnu. Fyrir norðan hefur gránað í fjöll. Húseigandi í Garðastrætinu taldi síðustu forvöð að huga að málun þaksins fyrir veturinn. Samning- ar ASÍ-fé- laga lausir KJARASAMNINGAR aðildarfé- laga Alþýðusambands Islands og flestra annarra félaga annarra en félaga opinberra starfsmanna verða lausir í dag 15. september. Undirbúningsnefnd ASÍ vegna kjarasamninga hefur samþykkt að sérmál á vettvangi landssambanda verði rædd áður en hugað verður að sameiginlegum málum og sama gildir um BSRB og BHMR, en samningar þar voru lausir um mán- aðamótin. Kjarasamningarnir sem nú eru að renna sitt skeið voru undiritaðir 1. febrúar 1990. Þeir hafa gengið --^tndir heitinu þjóðarsáttarsamning- amir og mörkuðust af þeirri megin- stefnu að ná tökum á verðbólgunni. ♦ ♦ »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.