Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991
29
TILKYNNINGAR
Auglýsing um tillögu að
breytingu á deiliskipulagi í
Súlunesi, Garðabæ
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Garða-
bæjar og skipulagsstjóra ríkisins og með
vísan til gr. 4.4.1. í skipulagsreglugerð nr.
318/1985 er hér með lýst eftir athugasemd-
um við tillögu að breytingu á deiliskipulagi
fyrir lóðirnar Súlunes 23-25 í Garðabæ.
Breytingin felst í því að lóðirnar eru samein-
aðar og heimilað er að reisa á hinni nýju lóð
eitt hús sem að hluta til er tveggja hæða
auk kjallara.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofunum
í Garðabæ, Sveinatungu við Vífilsstaðavegi
frá 14. október 1991 til 11. nóvember 1991
á skrifstofutíma alla virka daga.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal
skilað til undirritaðs fyrir 25. nóvember 1991.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tiilögunni.
Bæjarverkfræðingurinn í Garðabæ.
Auglýsing
vegna umsóknar Faxamjöls hf.
um staðsetningu og starfsleyfi fyrir
fiskmjölsverksmiðju í Örfirisey,
Reykjavík
Ákveðið hefur verið að kynna nú framan-
greint mál, en engin ákvörðun hefur verið
tekin að því er varðar staðsetningu eða
starfsleyfi.
Öllum þeim er málið varðar er gefinn kostur á
að gera athugasemdir eða láta í Ijós álit á stað-
setningu verksmiðjunnar, hugsanlegu starfs-
leyfi vegna hennar og öðru því er málið varðar.
Gögn og upplýsingar varðandi málið liggja
frammi á skrifstofum Reykjavíkurborgar,
Austurstræti 16 frá 11. október til 22 nóv-
ember 1991.
Skriflegar athugasemdir sendist til Mengun-
arvarna Hollustuverndar ríkisins, Ármúla 1a,
108 Reykjavík, eigi síðar en 25. nóvember.
Rétt til að gera athugasemdir sbr. gr. 8.3.3.
í mengunarvarnarreglugerð nr. 389/1990
hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og
forsvarsmenn tengdrar eða nálægrar
starfsemi.
2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að
geti orðið fyrir óþægindum vegna meng-
unar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem
málið varðar.
Reykjavík, W.október 1991
Hollustuvernd ríkisins
Mengunarvarnir.
Auglýsing
frá félagsmálaráðuneytinu
Kynningarfundir um áfangaskýrslu nefndar
um breytingar á skiptingu landsins í sveitar-
félög verða haldnir sem hér segir:
15/10 ’91 kl. 14.00Hvanneyri, Bændaskólinn.
15/10 '91 kl. 20.30 Búðardalur, Dalabúð.
16/10'91 kl. 14.00 Patreksfjörður, Félagsheim.
16/10 '91 kl. 20.30 ísafjörður, stjórnsýsluhúsið.
18/10 '91 kl. 14.00
Snæfellsnes, Félagsheim. Breiðablik.
21/10 ’91 kl. 14.00 Hvammstangi, Vertshúsið.
21/10’91 kl. 20.30 Sauðárkrókur, Safnahúsið.
22/10 ’91 kl. 14.00 Akureyri, Hótel KEA.
22/10 ’91 kl. 20.30 Húsavík, Hótel Húsavík.
23/10 '91 kl. 14.00 Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf
23/10 '91 kl. 21.00 Höfn, Hótel Höfn.
24/10 ’91 kl. 14.00 Selfoss, Hótel Selfoss.
29/10 ’91 kl. 20.30 Keflavík, Flughótelið.
Félagsmálaráðuneytið, 10. október 1991.
SJÁLFSTfEDISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Opið hús íkvöld
Heimdallur, félag ungra sjálfstaeðismanna í Reykjavík, verður. með
opið hús í kjallara Valhallar, Háaleitisbraut 1 í kvöld. Húsið verður
opnað kl. 21.00.
Allt ungt fólk velkomið.
Hafnarfjörður
Opinn fulltrúaráðs-
fundur sjálfstæðis-
félaganna í Hafnar-
firði verður haldinn
í Skútunni þriðju-
daginn 15. október
kl. 20.30.
Dagskrá:
Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra ræðir
landsmálin.
Fyrirspurnir að lokinni framsögu.
Þingmenn flokksins í Reykjaneskjördæmi verða á fundinum og svara
fyrirspurnum.
Fundarstjóri. Þorgils Ottar Mathiesen.
Allir velkomnir.
Stjórn fulltrúaráðsins.
I IFIMDAI.I IJK
F ■ U S
Nýr veruleiki
fsænskum
stjórnmálum
Sunnudaginn 12. október heldur utanríkis-
nefnd SUS fund um nýjar áherslur í sænsk-
um stjórmálum. Gestur fundarins er
Steingrímur Sigurgeirsson, framkvæmda-
stjóri NUU. Fundurinn verður haldinn í
Lækjarbrekku og hefst kl. 13.00.
Formaður U-nefndar.
HÚSNÆÐIÓSKAST
íbúð óskast
Skíðadeild KR óskar eftir að taka á leigu
góða 3-4 herb. íbúð með eða án húsgagna
frá 1. nóv. nk. Fyrir erlenda þjálfara deildar-
innar.
Nánari upplýsingar veita Ásgeir Eiríksson
sími 78433 og Guðjón Ólafsson sími 37591.
augiysmgor
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 = 173101210’/ÆO.
□ GIMLI 599114107 = 1
□ MÍMIR 599110147 - I ATK
FRL---■
fnmhjolp
Opiðhús
í dag kl. 14.00-17.00 verður
opið hús í Þríbúðum, Hverfis-
götu 42. Heitt kaffi á könnunni
og léttar veitingar. Kl. 15.30tök-
um við lagið saman.
Lítið inn og takiö með ykkur gesti.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Tákn og undur, fræðsla og fyrir-
bæn kl. 20.30. Séra Halldór
Gröndal talar. Allir hjartanlega
velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan.
Sunnudagur: Sunnudagaskóli
kl. 11.00. Allir krakkar velkomn-
ir. Almenn samkoma kl. 16.30.
Tákn og undur: Séra Halldór
Gröndal talar.
Miðvikudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Föstudagur: Æskulýðssam-
koma kl. 20.30.
Laugardagur: Bænastund kl.
20.30.
Hvítasunnukirkjan Völvufelli.
Sunnudagur: Sunnudagaskóli kl.
11.00. Allir krakkar velkomnir.
Fimmtudagur: Alfnenn sam-
koma kl. 20.30.
ÚTIVIST
HALLVEIGARSTÍQ 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 14606
Dagsferðir sunnudag-
inn 13. október.
Kl. 10.30: Reykjavikurgangan 11.
áfangi. Esjuberg-Blikastaðakró.
Gengið verður í 11. áfanga
Reykjvíkurgöngunnar frá Esju-
bergi með Esjuhlíðum niður að
Kollafjarðarbotni og síðan um
Álfsnesið með Þerneyjarsundi
og Leirvogi að Blikastaðakró við
Korpúlfsstaöaárós. Fjölbreytt og
skemmtileg 15 km ganga. Brott-
för frá BSÍ bensínsölu. Stansað
við Árbæjarsafn og Kaupfélagið
í Mosfellsbæ.
Kl. 13: Rauðhólar-Blikastaðakró.
Skoðaðir verða gervigígar í
Rauðhólum og gengið um fyrsta
skipulega skógræktarsvæði ald-
arinnar. Frá Grafarholti njótum
við víösýnis og fegurðar Faxaf-
lóans og göngum svo meðfram
Korpúlfsstaöaá allt að Blikastað-
akró. Ógleymanleg hressingar-
ganga fyrir alla fjölskylduna.
Brottför frá BSÍ bensínsölu,
stansað við Árbæjarsafn.
Ath. að skrifstofa Útivistar er
flutt í Iðnaðarmannahúsið Hall-
veigarstíg 1. Óbreytt símanúm-
er: 14606 og 23732.
Sjáumst! Útivist
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 & 11796 19533
Komið með í ferð
um helgina
Sunnudagsferðir
13. október
1. Kl. 10.30 Esja að austan:
Móskarðshnúkar - Hátindur.
Gönguferð upp í Svínaskarð og
um Móskörð og Laufskörö yfir á
Hátind Esjunnar (909 m.y.s.).
Hressandi fjallganga. Verð
1.000,-. Fararstjóri: Bolli Kjart-
ansson.
2. Kl. 13.00 Gönguleiðí
gosbeltinu:
Rjúpnadyngjur - Húsfellsbruni
- Heiðmörk.
Gengið af Bláfjallaveginum
sunnan Sandfells um skemmti-
legt hraunsvæði (Rjúpnadyngj-
ur) niður að Ferðafélagsreitnum
í Heiðmörk. Verð 800,-. Farar-
stjóri: Ólafur Sigurgeirsson.
3. Kl. 13.00.
Lækjarbotnar - Heiðmörk.
Þetta er styttri ganga en nr. 2
og hentar vel fjölskyldufólki.
Verð 800,-. Fararstjóri: Ásgeir
Pálsson. Frítt fyrir börn í fylgd
foreldra sinna.
Brottför í ferðirnar frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin.
Ferðirnar eru öllum opnar, en
það borgar sig samt að gerast
felagi f Ferðafélaginu. Munið
haustferð á fullu tungli 18.-20.
okt. Ferðafélag íslands.
1 UI)
Loksins, loksins, segja eflaust
sumir. Loksins sendir Egill
Ólafsson frá sér sína fyrstu sólóplötu.
Egill hefur sem kunnugt er lengi verið
viöriöinn tónlist og komiö víöa viö.
Platan ber merki þess, er fjölbreytt og
skemmtileg. Fjöldi þekktra listamanna
aöstoöa Egil viö aö gera þessa plötu
aö listaverki. Tvímælalaust ein
athyglisveröasta plata ársins.
T I F i \
■ ■ ■ L