Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 43 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ ísland á mót íTúnis KSI hefurfengið boð um að senda lið á mót með Sheff. Wed. og landsliðum Túnis og Senigal Islenska landsliðinu hefur verið boðið að taka þátt í fjögurra liða móti í Túnis í byijun nóvemb- er. „Þetta er skemmtilegt verkefni og tilvalið tækifæri fyrir nýja landsliðsþjálfarann að vera með landsliðshópinn í æfíngum fyrir Evrópuleikinn gegn Frökkum í París,” sagði Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands íslands í stuttu spjalli við Morgun- blaðið. KSí bíðuð nú eftir endan- legri staðfestingu frá Túnis. Sheffield Wednesday og lands- lið Túnis og Senegal taka þátt í mótinu. Fyrirkomulag mótsins er þannig að hvert lið leikur tvo leiki. Sigurvegarinn úr fyrstu leikjunum leika til úrslita og liðin sem tapa leika um þriðja sætið. Mótið verð- ur í Túnis 5. til 7. nóvember. „Við bíðum eftir staðfestingu. Það er erfitt að hafna þessu boði, enda kostar það okkur ekkert að taka því. Túnismenn borga bæði ferðir og uppihald liðanna, sem taka þátt í mótinu,” sagði Eggert Magnússon. Ferðin til Túnis er tilvalin und- irbúningsferð fyrir landsliðsmenn íslands, sem leika gegn Frökkum 20. nóvember í Evrópukeppni landsliða. Landsliðið heldur til Kýpur á morgun, en þar leikur liðið lands- leik gegn Kýpur á miðvikudaginn kemur. Engin forföll hafa verið í íslenska landsliðahópi Ásgeirs Elíassonar, landsliðsþjálfara. KNATTSPYRNA Sævar Jóns- son í þriggja leikja bann Sævar Jónsson, fyrirliði Valsliðs- ins, var í gær dæmdur í þriggja leikja bann hjá aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA. Sævar og Blaise Piffaretti, fyrirliði Sion, sem fékk einnig þriggja leikja bann, voru dæmdir í bannið fyrir slagsmál í Evrópuleik liðanna í Sviss. Þeir voru reknir C- leikvelh í upphafi seinm halfleiksins. Sævar mun því ekki leika með Valsmönnum í 1. umferð Evrópu- keppni bikarhafa á næsta ári og ef Valsmenn komast þá í aðra umferð mun Sævar geta leikið í seinni leiknum i umferðinni. Ef Valsmenn komast ekki áfram mun einn leikur í banninu geymast. Wim Kieft, miðheiji Eindhoven, var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að argast í dómara í Evrópu- leik gegn tyrkneska liðinu Besiktas. KÖRFUKNATTLEIKUR/ÚRVALSDEILD Sannkölluð eldskím „Þetta var sannkölluð eldskírn að lenda gegn íslandsmeistur- unum og þar að auki í „Ljóna- gryfjunni”, sagði Birgir Mika- elsson, þjálfari og leikmaður Skallagríms, nýliðanna í Úr- valsdeildinni sem mættu Njarðvíkingum í Njarðvík í sín- um fyrsta leik gærkvöldi. Eins og við var búast sigruðu heimamenn nokkuð örugglega eða með 30 stiga mun 93:63 og virðast til alls líklegir. Nýliðamir náðu þó að skora fyrstu stigin í leiknum en Njarðvíkingar voru fljótir að ná hbhmhbí undirtökunum sem þeir héldu síðan allt til loka. „Þrátt fyrir tapið get ég verið ánægður með margt hjá mínum mönnum sem mér fannst á köflum bera fullmikla virðingu fyrir ís- landsmeisturunum. Við erum búnir Bjöm Blöndal skrifar frá Keflavík að leika marga æfingaleiki að undanförnu, en að leika í Úrvals- deildinni er nýr heimur fyrir marga í liðinu,” sagði Birgir. „Hraðinn er miklu meiri en í neðri deildunum og greinilegt er að við þurfum að lagfæra vamarleikinn því Njarð- víkingar náðu að skora mikið úr hraðaupphlaupum vegna þess hve ÚRSLIT Körfuknattleikur UMFN-UMFS 93:63 íþróttahúsið í Njarðvik, Islandsmótið i körfuknattleik, Úrvalsdeild, föstudaginn 11. október 1991. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:5, 8:5, 21:13, 30:22, 40:26, 52:35, 58:40, 63:46, 69:58, 81:62, 87:63, 93:63. Stig UMFN: Teitur Örlygsson 28, Rondey Robinson 14, Kristinn Einarsson 12, Jó- hannes Kristbjömsson 11, Rúnar Jónsson 8, Friðrik Ragnarsson 8, Ástþór Ingason 5, ísak Tómasson 5, Brynjar Sigurðsson 2. Stig UMFS: Maxim Krupachev 19, Eggert Jónsson 12, Elvar Þórólfsson 10, Birgir Mikaelsson 8, Guðmundur Kr. Guðmunds- son 8, Hafsteinn Þórisson 4, Gunnar Jóns- son 2. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Helgi Bragason er dæmdu vei. Áhorfendur: Um 200. Knattspyrna Þýskaland: Þrír leikir voru leiknir í þýsku úrvalsdeild- inni í gærkvöldi: Bochum - Karlsruhe..................1:3 Niimberg - Stuttgart.............. 4:3 ■Eyjólfur Sverrisson skoraði ekki fyrir Stuttgart. Frankfurt - Mönchengladbach.........0:0 EM 21 árs liða Cordoba, Spáni: Spánn - Frakkland...................0:0 Um helgina Einn leikur fer fram í úrvals- deildinni í dag kl. 16. Haukar fá Grindavík í heimsókn. Á morgun verða þrír leikir. Skallagrímur - Snæfell-kl. 16 og Þór - ÍBK og Tindastóll - Njarðvík kl. 20. Morgunblaðið/Einar Falur Teitur Örlygsson lék vel með Njarðvíkingum og var stigahæstur. KNATTSPYRNA Maradona vill setjast að í Bandaríkjunum Knattspyrnukappinn Diego Maradona frá Argentínu sagði í gærkvöldi að hann vilji setjast að í Bandaríkjunum. „Ófriðurinn er orðinn mik- ill við heimili mitt. Fréttamenn og ljósmyndarar eru þar allan sólarhring- inn og ég fæ ekki stundlegan frið. Eg þolt þetta ekki lengur og vil setjast að í Bandaríkjunum. Ég gerði mistök, en það er óhæft að það komi niður á fjöískyldu minni. Það eins sem ég óska eftir nú er að lifa í friði.” seinir við vorum að snúa í vörnina.” Teitur Örlygsson besti maður vallarins og var í sannkölluðum vígamóð. Rondey Robinson og Krisinn Einarsson voru einnig sterkir. Rúnar Jónsson sem til þessa hefur ekki verið í byijun- arliðinu sýndi einnig góð tilþryf. Maxim Krupachev var yfirburðar- maður í liði Skallagríms en eigi að síður eru þar nokkrir athyglis- verðir leikmenn svo sem Eggert Jónsson og Elvar Þórólfsson. Birg- ir Mikaelsson lék vel í fyrri hálf- leik en náð sér ekki á strik í þeim síðari. „Lið Borgnesinga er sterk- ara en þessi úrslit gefa til kynna og ég er sannfærður um að þeir eiga eftir að gera það gott. Liðinu vantar greinilega meiri leikreynslu og þegar hún er fengin geta Borg- nesingar velgt hvaða liði sem er undir uggum,” sagði Friðrik Rún- arsson, þjálfari UMFN. UEFA-KEPPNIN Tottenham* heima fyrst Forráðamenn Tottenham eru afar óhressir með ákvörðun UEFA í gær að Tottenham leiki fyrst heima í Evrópukeppni bikar- hafa gegn portúgalska félaginu Porto, en fyrri leikurinn átti að fara fram í Portúgal 23. október. Ástæð- an fyrir þessari breytingu er að Arsenal leikur sama dag í Evrópt^^ keppni meistaraliða í Portúgal - gegn Benfica. UEFA óttaðist að til. óláta stuðningsmanna félagsins kæmi ef þeir væru á ferð í Portúgal á sama tíma. „Við hefðum vilja eiga heimaleik- inn til góða,” sagði Peter Shreeves, framkvæmdastjóri Tottenham. Heilir og tvískiptir gallar Verb st. 120 -130 kr. 6.880.- " st. 140 -150 kr. 7.880,- " st. 160 -170 kr. 8.880.- Cullfallegur sænskur vetrarfatnabur. ^^■■■■■^B Verö frá: 4.550.- Sportfatnabur 100% vind- og vatnsþéttur 13 Heilir oq tvískiptir gallar 3 Úlpur 13 Pólarpeysur Gengt Umferöamiöstöðinni sími:19800 og 13072 alpina Skólaskór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.