Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 Morgunblaðið/Þorkell Aðstandendur Vináttu ’91 halda á lofti í lófum sér merki verkefnis- ins. Frá vinstri, Petrína Ásgeirsdóttir forstöðumaður Útideildar, Vilmar Pétursson deildarstjóri Unglingadeildar, Sveinn M. Ottósson og Edda Olafsdóttir framkvæmdastjórar Vináttu ’91, Benóný Ægis- son forstöðumaður Fellahellis og Logi Sigurfinnsson forstöðumaður Frostaskjóls. Mannleg samskipti efld með Yináttn ’91 VINÁTTA ’91 nefnist verkefni sem sett hefur verið á laggirnar um allt land, og er markmiðið að efla öll mannleg samskipti milli ungra sem aldraðra. Hugmyndin er að fá alla aldurshópa til að taka sér eitthvað jákvætt og skemmtilegt fyrir hendur og minnka þar með kynslóðabilið. Það eru íþrótta og Tómstundaráð Reykjavíkur og Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur sem hafa haft frum- kvæði að þessu verkefni. Forsvarsmenn verkefnisins von- ast eftir samstarfi skólanna, þar sem unnið væri að þessu átaki í allann vetur. Félagsmiðstöðvar hafa nokkurs konar yfirumsjón með starfinu í sínum hverfum og í nóv- ember nk. verða haldnir vináttudag- ar í hverfunum með ýmsum uppá- komum. Að sögn aðstandenda Vináttu ’91 er hugmyndin m.a. sú að fá mis- munandi aldurshópa til að kynnast hvor öðrum og þar með vinna gegn öllum fordómum á milli kynslóða. Vináttustarfið hefst í Grafarvogi i næstu viku með vináttugöngu um liverfið og einnig fara fermingar- börn á barnaheimili í hverfinu og gefa bömunum kerti. Öllum er velkomið að taka þátt verkefninu á hvern þann hátt sem veijum þykir við hæfi. Skemmtun rir allar kynslóðir verður svo hald- 2. nóvember nk. í Laugardalshöll- PHUPS-RALUÐ í tilefni PHILIPS-RALLSINS höfum við opið í dag frá kl. 10-14 og bjóðum. Ath. ikl. 11:30-12:30 ídag verða allir bílarnir á planinu hjá okkur við Sætún 8. HEITT A KONNUNNI! o afslátt afölium pHlLIPs vorum Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 í SCUKHÚUJUM Dagur Ijóssins 1991 Vinnulýsing á heimilum Ráðgjöf um lýsingu, sjónstarf og umgengni við rafmagn verður í dag kl.13-15 í eftirtöldum versl- unum: Rafbúð, Bíldshöfða 16, + Ljós og orka, Skeifunni 19, Borgarljós, Skeifunni 8, f XtV * Rafkaup, Ármúla 24, Rafbúð, Domus Medica. Verið velkomin! Ljóstæknifélag íslands Félag raftækjasala Ferðamálaráðstefnan í Hveragerði: Fjöldi ferðamanna aldrei meiri en í fyrra Tekjur af ferðamönnum hafa aukist um 60% á fjórum árum Selfossi. FJOLDi erlendra ferðamanna sem komu til landsins varð meiri á síðastliðnu ári en nokkru sinni eða 141.718 sem er 8,6% aukning frá fyrra ári. Liðið ár er einnig metár hvað snertir dvalartíma ferðamannanna í Iandinu og heildartekjur af þjónustu við þá. Gjaldeyristekjur af þessum ferð- amönnum nema 11,1 milljarði ’króna. Á síðustu fjórum árum nemur raunaukning gjaldeyris- tekna af ferðamannaþjónustu 60%. Þetta kemur meðal annars fram í inngangsorðum Magnúsar Oddssonar í skýrslu um störf Ferðamálaráðs íslands 1990 sem lögð var fram á ferðamálaráð- stefnunni á Hótel Örk í Hvera- gerði á fimmtudag. Um árangurinn í ferðaþjón- ustunni segir Magnús Oddsson: „Hér er að skila sér árangur af starfi einstaklinga og fyrirtækja í 'ferðaþjónustu, sem unnið hafa af miklum dugnaði að uppbyggingu, landkynningu og móttöku ferða- manna. Við setningu ráðstefnunnar fluttu ávörp Kristín Halldórsdóttir formaður Ferðamálaráðs, Halldór Blöndal samgönguráðherra og Hall- grímur Guðmundsson bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þrjú framsögu- erindi um ferðamál voru flutt á fímmtudag. Eiður Guðnason um- hverfísráðherra flutti erindi um ferðaþjónustu og umhverfismál, dr. Karl Lukas, ferðamálastjóri Austur- ríkis og formaður ferðamálanefndar Evrópu, talaði um ferðaþjónustu í Evrópu og þróun greinarinnar inn- an EB og EFTA. Karl Sigurhjartar- son framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra ferðaskrifstofa talaði um ferðaþjónustu utan háannatíma. „Við verðum að auka eftirlit með ferðalögum á hálendinu. Mönnum fínnst það ef til vill ekki sérstaklega aðlaðandi hugmynd en undan þessu verður ekki vikist,” sagði Eiður Guðnason meðal annars í sínu er- indi er hann ræddi umgengni ferða- manna um landið. Hann sagði auk þess að hugsanlegt væri að þeir sem vildu ferðast um hálendið greiddu fyrir það og þyrftu að kaupa sér sérstakt hálendisvegabréf til að sýna löggæslumönnum og kæmu sektir til ef það væri ekki ’til stað- ar. Hann sagði einnig að stöðva þyrfti lausagöngu búfjár og einnig að takmarka eða stöðva lausagöngu ferðamanna um hálendið. Dr. Klaus Lukas sagði að heildar- velta ferðaþjónústu á heimsvísu næmi 2.700 milljörðum bandaríkja- dala og það væri meira en velta landbúnaðar, rafeindatækni og bíla- iðnaðar. Fyrirtæki í ferðaþjónustu væru ábyrg fyrir 5,5% af þjóðartekj- um á mann á heimsvísu og við þau störfuðu 112 milljónir manna. „Á næstu árum verður ferðaþjónustan sú atvinnugrein sem mest vex í heiminum. Það vekur þó athygli að aðeins 6% mannkyns ferðast milli landa,” sagði Karl Lukas meðal annars í erindi sínu. í máli Karls Sigurhjartarsonar kom fram að Hagstofan áætlar að 6000 ársstörf séu í ferðaþjón- ustunni. Hann lagði áhérslu á að auka þyrfti ferðamannastraum til landsins utan háannatímans. Hann benti á að ef sama nýting á gisti- rými næðist og er á sumrin, 83% þá myndu tekjur af fiugi og gist- ingu aukast um tvo milljarða. Hvert prósentustig sem bætist við vetrar- nýtingu þýðir tekjuaukningu um 80 milljónir, nánast án tilkostnaðar. „Með markvissum aðgerðum er ég sannfærður um að hægt er að auka hér verulega ferðamennsku að vetr- arlagi og það þarf ekki að taka ýkjalangan tíma,” sagði Karl í lok erindis síns. Sig. Jóns. I < < i < < i < < i i ( <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.