Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 1
128 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 275. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS Verða alkóhól- istar í Rússlandi gerðir ófrjóir? RÚSSNESK þingnefnd hefur lagt til að alkóhólistar, eiturlyfjasjúklingar og fólk, sem smitast hefur af kynsjúkdóm- um, gangist undir ófrjósemisaðgerð. Nefndin er að undirbúa frumvarp um mæðra- og fjölskyldumál og vill að í því verði ákvæði um tafarlausa ófrjó- semisaðgerð berist kvörtun frá nánustu ættingjum slíks fólks. Aðrar þingnefnd- ir eiga eftir að fjalla um frumvarps- drögin, meðal annars ein sem fjallar um mannréttindamál og hefur fordæmt þetta ákvæði harðlega. Búist er við að fallið verði frá því þar sem það þykir óraunhæft, ekki síst vegna þess að áfengissýki er gífurlegt vandamál í Rússlandi. Lánsapar fá ekki frí á hvíldardegi OVADIA Yosef, sem var áður æðsti rabbíni ísraels, hefur úrskurðað að tamdir apar megi annast ýmis heimilis- verk, sem gyðingum eru bönnuð á hvíld- ardeginum, svo sem slökkva ljósin. Hins vegar eigi þetta aðeins við um apa sem gyðingar hafa að láni því þeirra eigin apar verði áð fá að hvílast á laugardög- um eins og mennimir. Þetta kemur fram í grein eftir rabbínan í Yom Has- hishi, vikublaði strangtrúaðra gyðinga. Bóndakona ræðst á boðbera ófrjó- semi með rakhníf WANG Darong, 29 ára gömul kínversk bóndakona, hefur verið dæmd í fimm ára fangelsi fyrir að ráðast á embættis- menn sem ætluðu að láta framkvæma á henni ófrjósemisaðgerð. Dagblaðið Anhui skýrði frá því að tveir embættis- menn hefðu fyrir skömmu sótt Wang Darong heim til að fyrirskipa henni að fara í ófrjósemisaðgerð þar sem hún væri þegar tveggja bama móðir. Dar- ong neitaði máialeitan þeirra og þegar þeir ítrekuðu hana daginn eftir réðst hún að þeim með hárbeittum rakhníf. Særði hún annan embættismanninn mjög alvarlega, að sögn blaðsins. Kín- versk sljórnvöld fyrirskipa hjónum að eignast ekki fleiri en eitt barn, til að stemma stigu við offjölgun, en undir sérstökum kringumstæðum, fyrst og fremst í sveitahéruðum, leyfist fólki að eignast tvö börn. „Við reynum að fræða fólk um þessa stefnu en ef það bregst og konan á þegar tvö börn fyrir er gripið til fóstureyðingar eða ófrjósemis- aðgerðar,” sagði kínverskur embættis- maður. BATURINN TEKINN UPP Morgunblaðið/KGA Á þessum árstíma er allra veðra von og vissaca að ganga tryggilega frá hlutunum. Þessi trillukarl í Hafnarfirði var að taka bát sinn upp fyrir veturinn þegar ljósmyndari átti leið hjá á dögunum. Talið öruggt að Úkraínumemi samþykki sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu: Föllumst ekki á neinar breytingar landamæra - segir talsmaður úkraínska þingsins BÚIST er við að mikill meirililuti Úkraínumanna muni greiða sjálfstæði lýðveldisins atkvæði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer í dag. Georgíj Tsjernevskjj, talsmað- ur úkraínska þingsins í Kiev, segir í samtali við Morgunblaðið að í viðræðum við Rússa hafi komið fram að þeir geri ekki neinar landakröfur, þó öðru hafi verið hald- ið fram. Rúmenska þingið hefur samþykkt ályktun um að Úkraínu beri að skila aftur landsvæði sem Sovétríkin sölsuðu undir sig 1940 en talsmaður þingsins segir að hin sjálfstæða Úkraína muni ekki fallast á neinar breytingar landamæra. „Málið er að í síðustu viðræðum okkar við Boris Jeltsín, forseta Rússlands, ítrekaði hann að Rússar gera engar landakröfur á hendur Úkraínumönnum. Þetta var afdrátt- arlaust af hans hálfu. Yfirlýsingar um ann- að, sem haldið hefur verið á lofti, voru ekki frá Jeltsín sjálfum komnar heldur blaðafull- trúa hans eða einhvetjum öðrum. Hvað varðar kröfur Rúmena þá hafa okk- ur ekki borist neinar formlegar kröfur enn. Það verður hins vegar að taka fram að í sjálf- stæðisyfirlýsingu Ukraínu, sem samþykkt var á þinginu, er lögð áhersla á að landsvæði Úkraínu sé ein óskiptanleg heild. Það er okkar afstaða,” sagði Tsjernevskíj. Talsmaður þingsins sagði að ekki kæmi til greina að breyta landamærum og gefa þannig eftir landsvæði sem nú tilheyrðu Úkraínu. Rússar hafa einnig lýst því yfir að ef Úkraína feti braut sjálfstæðis verði hún að greiða þá 80 milljarða rúblna sem hún skuld- ar miðstjórninni í Moskvu. „Við stöndum ein- mitt þessa stundina í samningaviðræðum um skuldir Úkraínu og okkar afstaða er að þær beri að endurgreiða. Við viljum hins vegar fá nákvæmar upplýsingar um hvernig þær eru til komnar. Hvar lánin voru tekin og til hvers þau voru notuð. Sendinefnd frá okkur er nú að ræða þessi mál í Moskvu,” sagði talsmaður þingsins. Ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar yrði sjálfstæði sagði Tsjernevskíj að líklega myndi sjálfstæðinu formlega verða lýst yfir strax á mánudaginn. Dagar og klukkustund- ir skiptu þó litlu máli í þessu sambandi. Hann sagði ýmsar þjóðir hafa gefið í skyn við Úkraínumenn að þær myndu viðurkenna sjálfstæði ríkisins þegar í stað en vildi ekki nefna nein lönd. „Ætli þið komist ekki að því eftir örfáa daga,” sagði hann kíminn. Aðspurður um forsetakosningarnar, sem einnig fara fram í dag, sagði hann að sín persónulega skoðun væri að eftir því sem nær hefði dregið kosningunum hefði stefna frambjóðendanna sex orðið æ áþekkari. Það væri því mjög erfitt að vera með einhveija spádóma. Sjá nánar bls. 4. 30 MUNIfl EFTIR BJARGIÐ JÖRÐINM # 10 FJÁRSJÓÐUR FÓLGINN í FURÐUFISKUM PEARL HARBOR r'' 'rJjjj&iíáS^£á&iÍ&áA' V .ni 4 f c
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.