Morgunblaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR l.: ÚESEMBER J991
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér bjóðast Óvæntir möguleik-
ar í vinnunni í dag, en þú ætt-
ir að fara að öllu með gát.
Láttu skapið ekki koma í veg
fyrir að þú getir notfært þér
þessa breyttu stöðu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur ríkulegt tilefni til að
gleðjast í dag, svo að þér ætti
að vera léttur leikurinn að
hugsa jákvætt. Verðir þú á
faralds fæti skaltu fara varlega
í umferðinni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Deildu ekki um peninga við vin
þinn. Fjárhagsstaða þín er alls
ekki slæm. Reyndu að notfæra
þér sem flesta af þeim mögu-
leikum sem þér bjóðast núna.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlí) HitS
Þú kynnist mikilvægri persónu
í dag. Þú kannt að lénda í deilu
við ættingja þinn út af ein-
hverju smávægilegu. Reyndu
að eiga sem best samstarf við
fólk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ný gefst þér tækifæri til að
bæta stöðu þína í starfi. Aðrir
kunna að hafa aðra lífssýn en
þú. Sýndu umburðarlyndi.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þér hættir til að eyða of miklu
núna, en dagurinn verður að
öðru leyti ánægjulegur. Þú
færð tækifæri til að ferðast
áður en langt um líður.
V°S ^
(23. sept. - 22. október) 2$*®
Þú gerir stórinnkaup fyrir
heimilið í dag. Þú færð gjöf
úr óvæntri átt. Vertu sam-
vinnufús við maka þinn og ljöl-
skyldu.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú lýkur ákveðnu verkefni í
miklum flýti. Hægðu á þér og
vandaðu vinnubrögð þín. Þú
ferð út að skemmta þér með
ástvini þínum og færð góðar
fréttir úr fjarlægð.
Bogmaóur
(22. nóv. — 21. desember) m
Þú færð vcrkefni sem þér geðj-
ast sérlega vel að. Þér hættir
til að eyða of miklu í skemmt-
anir í dag. Ef þú ert að leita
að vinnu er þetta rétti dagur-
inn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Deildu ekki við einhvem úr fjöl-
skyldunni í dag. Þú hefðir mjög
gott af því að sletta ærlegga
úr klaufunum núna. Ástin er
efst á blaði hjá þér.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Farðu með mikilli gát ef þú
þarft að vera á ferli eftir mið-
nætti. Þér lætur best að vinna
heima núna. Ættingi þinn fær-
ir þér góðar fréttir.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Eyðileggðu ekki góðan dag
með því að þrasa við vin þinn
um peninga. Þér gengur vel
við skapandi störf sem þú hefur
með höndum núna. Ferðalag
sem þú tekst á hendur reynist
hin ágætasta skemmtun.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
r\\/n a i—ivio
DYRAGLENS
PAVfS 10-Z
TOMMI OG JENNI
A \\ .
i^F
LJOSKA
FERDINAND
OIUIÁ rAl IX
SMAFOLK
600D TIME
A6AIN
T0DAV
DIDM'T WE?
ANYTHIN6
VOU'D LIKE
TO DO
T0M0KR0U)?
II'zr
C0ULD TRV
50METHIN6
J?IFFERENTy
T0M0RR0W LET'S HAVE
THE JELLV D0U6HNUTS
BEFORE THE PIZZA..
Við skemmtum okkur aftur vel í Er það eitthvað sem þig langar til
dag, ekki satt? að gera á morgun? Kannski við ætt-
— Hvort við gerðum. um að reyna að gera eitthvað frá-
brugðið.
Á morgun skulum við borða kleinu-
hringinn á undan pizzunni.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Eru 2 hjörtu krafa?”
spurði Przybora og lyfti
brúnum. Það var greini-
lega eitthvað bogið við
sagnir:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ ÁG3
♦ K5
♦ ÁD8632
*K9
Vestur Austur
♦ K764 * D9852
¥6 1|| VÁD74
♦ 105 ♦ G97
♦ 1087652 *Á
Suður
♦ 10
♦ G109832
♦ K4
♦ DG43
Spilið er frá Top-16 mótinu í
Campione á Ítalíu. Úr viðureign
Þorláks Jónssonar og Guðm.
Páls Arnarsonar við Pólverjana
Przybora og Ostrowsky. Það
kom í ljós að sá síðastnefndi er
lúmskari en skrattinn sjálfur í
sögnum:
Vestur
Ostr.
Norður
Guðm.
— 1 tígull
2 grönd! Dobl
Dobl! 3 hjörtu
3 spaðar 4 tfglar
4 spaðar Dobl
Pass
Austur Suður
Przybora Þorl.
1 spaði 2 hjörtu
Pass 3 lauf
Dobl Pass
Pass 4 hjörtu
Pass Pass
Jú, jú, svar Þorláks á 3 hjört-
um er krafa, svo það var aug-
ljóst frá bæjardyrum Przybora
að einhver við borðið átti ekki
fyllilega fyrir sögnum sínum.
En makker hans hafði doblað 3
lauf, svo kannski var Þorlákur
að bregða á leik?
Síðar kom á daginn að
Ostrowsky var prakkarinn. Það
reyndist hins vegar vel til fundið
hjá honum að keyra í 4 spaða,
því hjartageimið stendur. Przy-
bora gaf aðeins 4 slagi, 2 á tíg-
ul og 2 á spaða og Pólveijar
uppskáru 3 IMPa í Butler-sam-
anburðinum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Svíinn Jonny Hector náði síð-
asta áfanga sínum að stórmeist-
aratitli á móti í Valby í Danmörku
í haust. Þetta endatafl kom upp
þar í viðureign sovézka stórméist-
arans Sergei Smagin (2.535),
sem lék síðast 52. Ke4—e5? og
Hectors (2.500), sem hafði svart
og átti leik.
52. — Kb3! (Hvíti biskupinn á nú
enga undankomuleið.) 53. Kxe6
- Kxb2, 54. Kf6 - Kc3, 55.
Kxg6 - b3, 56. Kh6 - b2, 57.
g6 — bl=D, 58. g7 — Da2 og
Smagin gafst upp.
í síðustu umferð þurfti Hector
að ná jafntefli gegn Bent Larsen
til að tryggja sér titilinn. Bjugg-
ust flestir við hörkuviðureign en
svo bregðast krosstré sem önnur-
tré og danski baráttujaxlinn féllst
á jafntefli eftir aðeins tólf leiki.
Hann hefur líklega ekki gert mörg
styttri um dagana.