Morgunblaðið - 01.12.1991, Page 48

Morgunblaðið - 01.12.1991, Page 48
MORGUNKLJA'ÐIÐ. SCMNUDAWRI5!. (D03íJMBMR)íÍ@W m___________ Yfirlýsing Opið bréf til for- sætisráðherra MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: „í fréttatíma Ríkisútvarpsins að kvöldi-21. þessa mánaðar var viðtal við Skúla G. Johnsen héraðslækni í Reykjavík. í þessu viðtali lýsti héraðslæknir- inn skoðun sinni á sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala- og greindi frá kostnaði við þessa sameiningu og taldi sameiningar- hugmyndina óraunhæfan kost. Vegna þessarar fréttar verður nefnd sú sem vinnur að tillögu og áætlanagerð um þetta mál að til- hlutan heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra að upplýsa eftirfar- andi: Héraðslæknirinn í Reykjavík hef- ur ekki komið á neinn hátt að vinnu þessarar nefndar og þær kostnaðar- tölur sem hann nefndi eru í engu samræmi við þær úrlausnir sem nefndin leggur til grundvallar vinnu sinni, að öðru leyti en því að kostn- aður við lúkningu B-álmu Borgar- spítala er um 400 milljónir króna og lok þeirra framkvæmda eru óháð hugsanlegri sameiningu spítalanna. Nefndin mun innan skamms leggja fyrir ráðherra tillögur sínar á málinu en þar mun gerð tillaga um framtíðarfyrirkomulag nýs spít- ala, kostnaðar- og tímaáætlun um breytingar og rekstraráætlun hins nýja spítala. Aður en þessar tillögur liggja fyri.r vill nefndin að öðru leyti ekki tjá sig um þetta mál. Reykjavík 22. nóvember 1991, Páll Sigurðsson, ráðuneytis- stjóri, Jóhannes Pálsson, fram- kvæmdastjóri, Svanhvít Jakobs- dóttir, deildarstjóri, Logi Guð- brandsson, framkvæmdasijóri, Höskuldur Ólafsson, stjórnar- formaður, Jóhannes Gunnarsson, yfirlæknir, Sigríður Snæbjörns- dóttir, hjúkrunarforstjóri, Ólaf- ur Örn Arnarson, yfirlæknir, Rakel Valdimarsdóttir, hjúkrun- arforstjóri. Arni Sigfússon, stjórnarfor- maður Borgarspítala og Haraldur Ólafsson, formaður stjómar sjálfs- eignarstofnunar St. Jósefsspítala, eru báðir í nefndinni en þeir eru erlendis.” MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Þroskahjálp: Landssamtökin Þroskahjálp sem eiga aðild að NFPU (Nordiska For- bundet Psykisk Utviklingshæmn- ing) hafa verið beðin að koma með- fylgjandi „opnu bréfi” til Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra ís- lands, á framfæri. „Nordiska Forbundet Psykisk Utviklingshæmning NFPU, sem eru norræn heildarsamtök þeirra sem berjast fyrir bættum lífskjörum og jöfnum rétti allra þroskaheftra, iýsa áhyggjutn sínum vegna þeirrar nei- kvæðu umijöllunar sem málefni fatlaðs fólks hafa fengið á íslandi að undanförnu. Umræða af þessu tagi lýsir miklu þekkingarleysi, veldur óbætanleg- um skaða og dregur úr nauðsynleg- um úrbótum á frekari lífsgæðum fyrir alla fatlaða. Þá benda samtök- in á að samkvæmt lögum hafi fatl- aðir sama rétt og aðrir til fullrar þátttöku í þjóðfélaginu og til að eiga búsetu í samfélagi við aðra menn þar sem þeim vegni best. NFPU bendir á að Alþingi íslend- inga hafi samþykkt ýmsa alþjóða- sáttmála sem staðfesta þennan rétt fatlaðra. Ber þar fyrst að nefna alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi sem ísland undirritaði 30. desember 1968 en samkvæmt honum eiga allir menn að njóta efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra rétt- inda auk borgaralegra og stjórn- málalegra. Alyk'tun Sameinuðu þjóðanna nr. 3447 frá 1975 um réttindi fatlaðra kveður nánar um þessi réttindi. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóð- anna, sem tók gildi árið 1990, ger- ir kröfu um að fötluð börn njóti sámbærilegra lífskjara og ófötluð börn. Þá er Island aðili að Félagsmála- sáttmála Evrópu en samkvæmt honum skulu stjórnvöld stuðla að velferð og þroska einstaklingsins og hópa í samfélaginu og að aðlög- um þeirra að hinu félagslega um- hverfi. Félagsmálanefnd Evrópu- ráðsins tekur undir markmið sæn- skrar löggjafar um málefni þroska- heftra þar sem réttur þeirra til fullr- ar þátttöku á öllum sviðum samfé- lagsins er viðurkenndur. Því ganga yfirlýsingar og ákvarðanir tveggja sveitarstjórna á íslandi þvert á þær alþjóðasamþykktir sem ísland er aðili að. Þetta harma samtökin. Nordiska Forbundet Psykisk Ut- viklingshænlning kallar eftir stuðn- ingi yðar, hr. forsætisráðherra, alira stjórnmálamanna á íslandi og alls almennings og heitir á þessa aðila að standa vörð um lagalegan og siðferðilegan rétt fatlaðra til að eignast eigið heimili. Sá réttur er samvæmt lögum að þeir eigi heim- ili sitt í venjulegri íbúðarbyggð með sambærilegum hætti og aðrir og séu auk þess virkir þátttakendur á öllum sviðum samfélagsins á ís- landi.” ■ FJÖL VA ÚTGÁFAN hefur gefið út bókina Aldrei, aldrei án dóttur minnar eftir Betty Mahm- oody í þýðingu Sigurlaugar Bjarnadóttur. í kynningu Fjölva segir m.a.: „Bókin skýrir frá þeim raunum sem bandarísk kona lenti í, er hún fór með írönskum eigin- manni sínum Moddy, til að heim- sækja fjölskyldu hans í Teheran,- Þegar þangað kom sveik hann hana og sagði að hún og fimm ára dótt- ir þeirra, Mahtob, fengju aldrei að snúa aftur heim. Þær yrðu um allan sinn aldur í íran. Samkvæmt íslömskum rétti er kona og börn eign eiginmannsins og ætlaði Moody að kúga þær til hlýðni, hann misþyrmdi þeim og lokaði inni. Þar með hófst hin þrotlausa barátta Bettyar upp á líf og dauða. Hún varð að gera allt í leynum og til að undirbúa æsilegan flótta sinn, varð hún að þykjast, klæða sig í svartan serk, stunda kórönsk fræði. í neyði sinni fann Betty marga hjálpsama írani, sem buðu henni ýmis tækifæri til að sleppa úr landi, en áhættan var svo mikil, að henni var ráðlagt að skilja barnið eftir. Þá svaraði hún einfaldlega: „Aldr- ei, aldrei án dóttur minnar.” Kvik- mynd eftir þessari frásögn er sýnd í kvikmyndahúsi hér í borg. Bókin er 416 bls. framleidd í Prentstofu G. Ben. 7/i WHARFEDALE Diamond IV LÍTLL HÁTALARI MEÐ MIKINN HLJÓM 22.800 KR^ PARIÐ HÁTALARI ÁRSINS í B RETLAN D I * V3ÐURKENNDUR GÆÐAHÁTALARI sem hlotið hefur fjölda viðurkenninga á undanförnum átta árum WhARFEDALE DIAMOND hefur farið sigurför síðan hann kom fyrst á markaðinn fyrir 8 árum. Nú er komin 4. kynslóð af þessum þekkta hátalara og,er ekki að sökum að spyrja: Hann var valinn hátalari ársins af hinu virta bresl^a tímariti "What HI-FI". I rökstuðningi sínum segir blaðið meðal annars: "Hafi menn einhvern tírua þurft sönnun þess, að ekki þurfi stóra hátalara til að framkalla mikinn hljóm, er Wharfedale Diamond IV sönnunin..." Að lokum segir tímaritið: "...Wharfedale Diamond IV slær út tvöfalt dýrari hátalaþa; með öðrum orðum: á mælikvarðanum hljómgæði fyrir verð, gerast hátalarar ekki betri." Wfiarfedale, viðurkenndnr brcskur hátalara- framleiðandi stðan 1932. Al 'Samkv. tímarítinu "What HI-FI" þar sem gœðin heyrast Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840, 685149

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.