Morgunblaðið - 01.12.1991, Síða 58
iMORGUlilBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐXSIUlÉA4NfflMjFAl.<ÐESEMBER:ií9gi
RAÐA UGL YSINGAR
TIL SÖLU
Síldarkvóti
Erum kaupendur að síldarkvóta.
Súlan hf., c/o Súlan EA-300,
Aðalstræti 68,
Akureyri,
Sími 96-22841.
Matvælaframleiðendur ath!
Hótelrekstur-Blönduós
Til sölu er hlutur K.H. og S.A.H. í Hótel
Blönduósi hf. Um er að ræða 57% hlutafjár
að nafnvirði kr. 8.175.000.-
Rekstur hótelsins hefur gengið þokkalega,
og væri rekstur þess upplagður fyrir sam-
hent hjón.
Nánari upplýsingar veitir Guðsteinn Einars-
son, kaupfélagsstjóri, í síma 95-24200.
Kaupfélag Húnvetninga,
Blönduósi.
Vilborgarsjóður
starfsmannafélagsins Sóknar
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóði hefst
5. desember og stendur til 18. desember.
Umsækjendur komi á skrifstofu félagsins eða
hafi samband í síma 681150 eða 681876.
Stjórn Starfsmannafélagsins Sóknar.
Til sölu
2 stk. sneiðingahnífar. 1 stk. SAM 308 CD
I MATIC sneiðingahnífur.
Upplýsingar hjá Ragnari í síma 93-71680.
EÐALFISKUR HF.,
BORGARNESI.
Notaðar trésmfðavélar
Til sölu eru eftirfarandi trésmíðavélar:
Breiðbandsslípivél STEMAC með vais og
skó. Slípbreidd 900 mm.
Lakkteppavél BARBERAN. Lakkbreidd
120 mm.
Nánari upplýsingar hjá Idex A/S, Sundaborg
7-9, Reykjavík, eða í síma 91-688104.
Gott tækifæri
Til sölu lítið þjónustufyrirtæki á ráðgjafa-
sviði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Sá sem
rekur fyrirtækið þarf að hafa góða almenna
þekkingu og ánægju af miklum samskiptum
við fólk. Sérmenntun er ekki skilyrði, en starf-
semin hentar vel fyrir fólk með viðskipta-
fræðimenntun, eða einstaklinga sem hafa
útskrifast úr heimspeki- eða félagsvísinda-
deild. Gott tækifæri til að starfa sjálfstætt.
Um er að ræða yfirtöku á vel kynntu nafni,
góðum viðskiptasamböndum, sérhæfðum
gögnum og öflugum tölvu- og hugbúnaði
sem hentar starfseminni sérlega vel. Góðir
þróunarmöguleikar fyrir framsækinn, hug-
myndaríkan og duglegan einstakling.
Greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Fullum
trúnaði heitið.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að
leggja inn fyrirspurnir bréflega til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir föstudaginn 6. desember.
Bréfið skal merkja „Gott tækifæri - 14316”.
Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Til sölu
Til sölu er fiskiskipið Villi Magg ÍS 87 (1784).
Smíðað í Hollandi 1987. Stærð 145 brl.,
lengd 23,20 m, breidd 7,02. Skipið er sérút-
búið til veiða á kúfisk og hefur einungis leyfi
til veiða sem slíkra í íslenskri fiskveiðilög-
sögu. Skipinu fylgir enginn kvóti.
Upplýsingar í síma 94-4633, Byggðastofnun
ísafirði, pósthólf 211, 400 ísafirði.
Forstöðumaður.
Einbýlishúsalóðir
Til sölu og afhendingar strax stórar einbýlis-
húsalóðir á besta stað í Setbergshlíð í Hafn-
arfirði. Frábært útsýni. Einstaklega hagstætt
verð og greiðsluskilmálar.
SH VERKTAKAR
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
Bókabúð í Garðabæ
Höfum til sölu af sérstökum ástæðum versl-
un með bækur, ritföng o.fl. íverslanamiðstöð
í Garðabæ. Ársvelta rúmar 30 millj. án vsk.
Húsnæði getur selst með ef vill.
Allar upplýsingar á skrifstofu okkar.
KENNSLA
VÉLSKÓLI
vY> ISLANDS
Vélavarðanám iðnsveina
Haldið verður kvöldnámskeið fyrir iðnsveina
í málm- eða rafiðnagreinum ef næg þátttaka
fæst. Námskeiðið veitir vélavarðaréttindi og
hefst það 27. janúar og lýkur í apríl.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. janúar til
Vélskóla íslands, pósthólf 5134, 125
Reykjavík.
Atvinnuhúsnæði
Útgáfufyrirtæki í örum vexti óskar að taka á
leigu 800-1000 fm framtíðarhúsnæði, þar
af verða 300-400 fm að vera lagerhúsnæði
með góðri aðkeyrslu.
Tilboð leggist inn á auglýsingardeild Mbl.
merkt: „E-14314”.
Teiknistofa
28 444 húseignir
VFI Tl IRIIMDI 1 &SKIP
Opið kl. 12-14
VELTUSUNDI 1
SIMI 28444
Daníel Amason, lögg. fast.,
Helgi Steingrímsson, sölustjóri.
Óska eftir 40-50 fm húsnæði strax fyrir
teiknistofu í miðbænum eða nágrenni.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Arkitekt - 1001."
' oVORÆTt/ Hi&°
SPEHNANW!
-efþú áttmiða!
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!