Morgunblaðið - 09.04.1992, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
Þættir um íslenskt mál
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Mörður Árnason: Málkrókar.
240 bls. Uglan. íslenski kiljuklúb-
burinn. Reykjavík, 1991.
Þættir þessir eru byggðir á erind-
um sem höfundur flutti um daglegt
mál í Ríkisútvarpinu. Ætli megi
ekki kalla þá dæmigerða sem slíka?
Stuttir eru þeir; gagnorðir; alþýð-
legir; eitt meginefni tekið fyrir í
senn; aðfinnslur jafnan studdar
ábendingum. Þannig hafa þættir
þessir mótast á áranna rás. Og
þeirri hefð fylgir Mörður í öllum
höfuðdráttum.
Það sem hér er öðruvísi snertir
yfirborðið en hreyfir lítt við grunn-
inum. Til dæmis er ljóst að höfund-
ur vill fyrir enga muni sýnast form-
legur né hátíðlegur og enn síður
lærður heldur alþýðlegur og kump-
ánlegur. Lærðra manna snið íþyng-
ir ekki stíl hans. Skólastafsetningu
fylgir hann ekki nema honum sýn-
ist svo. Samtengingum slengir hann
saman að hætti Laxness og fleiri.
Og soldið skrifar hann svo — eftir
framburði. Meinlausum slettum og
slangri vísar hann ekki hvarvetna
á bug. Kannski vill hann sýnast
dálítið ungur og kærulaus. »Frjáls-
lyndri ábyrgðarstefnu« segist hann
FASTEIGIXIASALA
Suðurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR: 687828 OG 687808
Vantar eignir á skrá.
Skoðum og
verðmetum samdægurs.
Einbylí
ÁLFTANES
Vorum að fá í sölu glæsil. einbhús
v/Norðurtún. Húsið er 173 fm. Bílsk.
55 fm. 4 góð svefnherb. Vandaðar
innr. og gólfefni. Verð 14,3 millj.
LINDARBRAUT
Mjög gott einbhús á einni hæð. Hús-
ið er 145 fm auk 30 fm blómaskála.
Bílsk. 35 fm. Arinn í stofu. Parket.
Fallegur garður. V. 16 m. Skipti
möguleg á 3ja-4ra herb. íb. i góðu
lyftuhúsi.
Raðhús
HRAUNBÆR
Vorum að fá í sölu mjög gott enda-
raðh. á einni hæð. 137 fm. Nýtt
parket. Bílskréttur. Skipti á góðri
3ja-4ra herb. íb. koma til greina.
GRASARIMI
Til sölu sérstakl. fallegt parh., hæð og
ris m/innb. bílsk. V. 12,7 m. Áhv. 6,0 m.
BREKKUBYGGÐ V8.5M.
Vorum að fá í sölu raðhús á tveimur
hæðum, samt. 90 fm, auk bílsk.
4ra-6 herb.
ENGIHJALLI
Til sölu 4ra herb. 107 fm íb. á 5. hæö
i lyftuh. Laus nú þegar.
ESKIHLÍÐ
Vorum að fá í sölu góða 4ra-5 herb.
108 fm íb. á 3. hæð í fjölbhúsi.
BÓLSTAÐARHLÍÐ
Mjög góð 4ra-5 herb. 105 fm íb. á
3. hæð í fjölbh. Bílskréttur. Laus strax.
NEÐSTALEITI
Til sölu stórglæsil. 4ra-5 herb. íb.
121 fm. Parket á gólfum. Þvottaherb.
innaf eldh. Tvennar svalir. Stórkostl.
útsýni. Stæði í lokuöu bílahúsi.
3ja herb.
VESTURBERG
Til sölu góða 3ja herb. 87 fm íb. á
3. hæö. V. 6,4 m.
GRUNDARGERÐI
Falleg 3ja herb. risib. Sérinng. V. 4,2 m.
2ja herb.
SKÚLAGATA
2ja herb. 50 fm íb. á 1. hæð. Suð-
ursv. V. 3,7 m.
HLÍÐARHJALLI
Glæsil. 2ja herb. 60 fm íb. á 1. hæð.
Stórar suðursv.
LYNGMÓAR GBÆ
Til sölu mjög falleg 2ja herb. 60 fm
íb. á 3. hæð (efstu) ásamt innb. bílsk.
Parket á gólfum. Stórar suðursv. Laus
fljótlega. V. 6,3 m.
Hilmar Valdimarsson,
Sigmundur Böðvarsson hdl.,
Brynjar Fransson, hs. 39558.
Mörður Árnason
þó fylgja. Og það er líklega sönnu
. nær.
Því Mörður er ekki allur þar sem
hann er séður. Ef horft er framhjá
saklausum leikaraskap kemur í ljós
býsna skemmtilegur kennari og
glöggur málfræðingur. Eins og
slíkra er háttur beinast skeyti hans
oft að vafasamri málnotkun, röngu
máli eins og það var forðum kallað,
en ekki síður að óhóflegri notkun
ýmissa talshátta. Sumir nefna það
kiisjur. Stöku maður hefur látið
klisjurnar fara svo í taugarnar á
sér að klisjan hefur orðið að klisju
í munni hans sjálfs. Ekki á það við
um Mörð þótt hann að vísu grípi
til þessa margnotaða orðs. Hann
er tiltölulega hófsamur og sjaldan
staglsamur. Undirrót stofnana-
málsins, sem farið hefur fyrir
bijóstið á mörgum, útskýrir hann
t.d. með fagmannlegri hógværð en
heldur aftur af hneykslan sinni. Og
þar tekur hann sennilega réttan pól
í hæðina. Því stofnanamálið er ekki
tímabundinn faraldur heldur þáttur
í mannlegu eðli sem seint verður
brott numinn. Kansellístíll eða
stofnanamál verður til í einhverri
mynd meðan stofnanir standa. Or-
sakanna er sjaldnast að leita í sljórri
máltilfinningu, oftár í meðfæddri
varúð: maður vill ekkert segja og
þorir ekkert að segja en verður þó
að segja eitthvað; reynir þá að haga
orðum almennt og loðið til að síðar
megi leggja í þau hvaða skilning
sem henta þykir.
Mörður skrifar Evróvision sem
kemur þægilega á óvart. Flestir
segja júróvision sem er fáránlegt.
Með fullri virðingu fyrir ensku verð-
ur að segjast eins og er að hún
blandast íslenskunni afleitlega.
Sjálfsagt er að bera ensk heiti fram
að enskum hætti. Hitt er fráleitt
þegar heiti úr öðrum tungumálum
eru einnig borin fram svo. Það er
auglýsing á menntunarskorti og
vanþekkingu. Ömurlegt er t.d. að
heyra Unita í Afríku borið fram
júníta.
Þrátt fyrir málhreinsun og nýyrð-
asmíð þarf íslenskan enn á sköp-
unarmætti að halda. Þegar íslensk-
ur texti er prentaður við hliðina á
enskum eða frönskum er sá íslenski
jafnan þriðjungi lengri. Hvers
vegna?
Gröndal henti gaman að heitinu
á félagi þeirra Flateyinga og tók
herlegheitin upp í eitt kvæða sinna:
Fiateyjarframfarastiftunarstofnfé
lagsbréfiegafélag. Nemanda, sem
skipað var að skrifa áætiunarbifreið
í stað rútu steig skrefið til fulls og
bjó til orðið áætlunarsjáifhreyfi-
rennireið. Vonandi hefur hann orðið
málfræðingur! Sá er sem sé höfuð-
galli íslenskunnar hve hún er óhæfi-
lega langdregin, hversu orðin hlaða
utan á sig. Mörg nýyrði eru eins
og námskeið í klúðri. Má bjóða þér
á skyndibitastað? Hver missir ekki
lystina af að heyra annað eins?
Enginn málfræðingur hefur enn
sem komið er bent á leiðir til mál-
farslegrar hagræðingar.
Almenningur er hins vegar löngu
prðinn þreyttur á staglinu. Þegar
íslendingar tóku að selja Spánverj-
um saltfisk og heyra spænsku tal-
aða hugkvæmdist einhvetjum að
klippa halann aftan af löngu orðun-
um og láta þau síðan enda á ó að
spænskum hætti. Það máttu kallast
hagstæð viðskipti. Þar með fékk
Iðnaðarmannafélagshúsið sitt
klassíska heiti: Iðnó. Nemendur í
gagnfræðaskólum tóku að kalla
skóla sína gaggó. Og strætisvagnar
Reykjavíkur urðu strætó.
Þættir Marðar eru engin kerfis-
bundin málfræði. Þeir boða ekki
heldur neitt róttækt. En þeir eru
gagnorðir og hressilegir. Merði
tekst að blása lífi í fræði sem eru
í eðli sínu þurr og í margra augum
leiðinleg. Með eigin stíl sýnir hann
svo fordæmi sem jafnt fijálslyndir
og ábyrgir eiga að geta fylgt. »ís-
lensk hefð krefst þó alla jafna í
nafni fegurðar og rökvísi að ekki
sé ekið utan málfræðilegra vega,«
segir Mörður. Það má heita sann-
gjörn krafa. Þjóð eins og íslending-
ar, sem lifir mest í viðtengingar-
hætti þátíðar, þarf að kunna sína
málfræði.
Glæsilegur sumarbústaður
Glæsilegur og mjög vandaður sumarbústaður á besta
stað í Biskupstungum. 64 fm ásamt 38 fm svefnlofti.
Rafmagn og hiti. Stór verönd og heitur pottur. Falleg
eldhúsinnrétting.
Nánari upplýsingar hjá:
Lögmönnum Suðurlandi - fasteignasöiu,
Austurvegi 38, Selfossi,
sími 98-22988.
p lnrfuwW
| Gódan daginn!
Bragi Ásgeirsson með japanskri stúlku. Um hana sagði Bragi:
„Þetta er ein af dætrum sólarinnar og systrum morgunroðans,
sem ég hitti við hofið Heian í hinni fornu höfuðborg Kyoto;
vildi gjarnan taka af sér mynd við hlið mér. Hún minnti mig á
fiðrildi í sínum litskrúðuga búningi og sposkt bros færðist yfir
kirsuberjavarir hennar."
Seldi 3 listaverk
í Osaka í Japan
Bragi Asgeirsson listmálari nýkom-
inn heim af japanskri listahátíð
BRAGI Ásgeirsson listmálari er nýkominn frá Osaka í Japan,
en þangað lánaði hann tíu verk, flest stór, á fyrstu listahátíð
hindraðra (fatlaðra), sem haldin er í heiminum. Hátiðin stóð í
þijá daga og seldi Bragi þrjú af verkunum tíu. Myndirnar eru
allar úr röð grænna mynda, sem Bragi gerði sumarið 1988 og
sýnd voru á sýningu hans að Vesturgötu 17, í september 1990.
Myndirnar, sem Bragi sýndi í
Japan, voru frá tímabilinu 1988
til 1992. Þær átta myndir, sem
ekki seldust urðu eftir í Japan,
því að fyrirhugað er að sýna þær
í Tókíó í desember. Bragi Ás-
geirsson var eini erlendi málar-
inn, sem boðið var að sýna á
þessari listahátíð.
„Auðvitað er ég mjög ánægðui'
og jafnframt ringlaður því að
þetta var svo óvænt,“ sagði Bragi
í samtali við Morgunblaðið, er
hann var spurður um viðbrögð
við þessari sölu. „Hér leit enginn
við þessum myndum, en útlensk-
ir myndlistarmenn, sem komu á
vinnustofu mína og höfðu ferðast
um landið voru undantekningar-
laust mjög hrifnir af þeim og
hvöttu mig til að reyna að sýna
þau erlendis. Sögðu svo mikið
af landinu í þeim og um leið
væru þau mjög nútímaleg."
Bragi sagði að hingað hefði
komið maður frá Japan á síðastl-
iðnu sumri, Kiyoko Tsubouchi.og
heimsótt sig á vinnustofuna.
Hann tók videó myndir og fyrir
tilstilli hans var honum boðið til
Japan. Þessi maður var ekki í
forsvari í Osaka, en verður það
í Tókíó og hyggst skipuleggja
hátíðina. Hann hefui’’ hug á að
sýna einnig grafíkmyndir eftir
Braga. Um ferðina til Japan
sagði Bragi:
„Ferðin til Japan var einstök
upplifun og hver dagur var öðr-
um viðburðaríkari og þessu lauk
í Tókíó, þar sem ég dvaldi í þtjá
daga, með einum eftirminnileg-
asta degi sem ég hef lengi lifað,
svo að það var hálf erfitt að slíta
sig frá landinu daginn eftir, en
þá tók við einstök flugferð norð-
ur yfir Síberíu, Rússland og niður
til Kaupmannahafnar, er tók 10
klukkustundir og 50 mínútur.
Mig hefur dreymt furðulega
drauma er gerast í Japan á hverri
nóttu síðan ég kom heim, en sem
tengjast þó ekki endilega listum
eða dvöl minni þar, frekar ein-
hveiju óræðu framhaldi, svo yfir-
þyrmandi og firnasterk voru
áhrifin og ég heltekinn af þessu
gjörólíka menningarsamfélagi,"
sagði Bragi Ásgeirsson listmál-
ari.
Húbert Nói í Nýlistasafninu
FRAM til 12. apríl stendur yfir
í efri sölum Nýlistasafnsins sýn-
ing á verkum Húberts Nóa.
Á sýningunni eru 13 olíumálverk
og eru það nýjustu verk listamanns-
ins.
Húbert Nói stundaði nám við
Raunvísindadeild Háskóla Islands
1981-82, veturinn 82-83 nám við
Myndlistarskóla Reykjavíkur og
loks nám við Myndlista- og handíða-
skóla Jslands 83-87. Húbert Nói
hefur stafað sem myndlistarmaður
frá áriðnu 1987 og haldið 4 einka-
sýningar og tekið þátt í tveimur
samsýningum.
Sýningin í Nýlistasafninu stend-
ur til 12. apríl nk. og er hún opin
frá kl. 14-18 alla daga. Nýlista-
safnið stendur við Vatnsstíg 3.