Morgunblaðið - 09.04.1992, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
51
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Morgunblaöið/Skapti
Bræðurnir Sigurður Grétarsson og Arnar Grétarsson voru í sviðsljósinu í Tel
Aviv í gær, en þeir gerðu bæði mörk íslands. Arnar gerð þar með fyrsta A-
landsliðsmark sitt.
Bræðumir skoruðu
Island gerði 2:2 jafntefli við ísrael í góðum leik íTel Aviv
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu gerði jafntefli, 2:2, við
ísraelsmenn íæfingaleik íTel
Aviv í gær. Bræðurnir Sigurður
og Arnar Grétarssynir gerðu
mörk íslands, en heimamenn
jöfnuðu 10 mínútum fyrir leiks-
lok. Þetta er í annað sinn, sem
bræður skora í knattspyrnu-
landsleik fyrir ísland; Þórður
og Rikharður Jónssynir gerðu
mörkin, þegar ísland tapaði 3:2
fyrir Englandi 7. ágúst 1956.
Sigurður gerði fyrsta mark leiks-
ins úr vítaspyrnu snemma í
fyrri hálfleik. Eyjólfur Sverrisson
komst í gegn, en markvörðurinn
braut á honum og dæmd víta-
spyrna. ísrael jafnaði þegar í næstu
sókn og fékk síðan tvö góð mark-
tækifæri, en Birkir Kristinsson
varði vel í bæði skiptin. Þá áttu
heimamenn skot í stöng beint úr
aukaspymu.
Arnar kom íslandi aftur yfír um
miðjan seinni hálfleik, skaut lúmsku
skoti fyrir utan teig og yfír mark-
vörðinn. Fyrsta A-landsliðsmark
hans. Undir lokin jöfnuðu ísraels-
menn. Friðrik Friðriksson varði, en
hélt ekki knettinum og heimamaður
náði að skora.
Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari,
var ánægður með leikinn og sagði
gott að hafa fengið hann, því tæki-
færi hefði gefist til að reyna nýja
leikaðferð; fjóra í öftustu línu, fimm
á miðjunni með tvo fyrir framan
vörnina og einn enn framar og síð-
an einn mann fremstan.
„Þetta gekk ágætlega og ég ætla
að nota þetta kerfi í útileikjunum
í heimsmeistarakeppninni í vor,“
sagði Ásgeir við Morgunblaðið. „Ég
er sérstaklega ánægður með fyrri
hálfleikinn fyri utan klaufamarkið,
sem við fengum á okkur. Við vorum
sterkari fyrir hlé og ísraelsmenn í
seinni hálfleik, en mark Arnars var
sérstaklega glæsilegt og mjög vel
gert.“
Allir í 16 manna hópnum léku
nema Baldur Bjarnason, sem var
veikur, en samt á skýrslu. Liðið var’
þannig skipað: Birkir Kristinsson
(Friðrik Friðriksson vm. á 60); Orm-
arr Örlygsson (Ólafur Kristjánsson
vm. á 80.), Guðni Bergsson, Krist-
ján Jónsson og Valur Valsson; Þor-
valdur Örlygsson, Arnar Grétars-
son, Sigurður Grétarsson, Kristinn
R. Jónsson og Rúnar Kristinsson
(Baldur Bragason vm. á 80.); Ey-
jólfur Sverrisson (Hörður Magnús-
son vm. á 75.).
Hópurinn er væntanlegur til
Keflavíkur um miðnættið í kvöld.
ÚRSLIT
Fram-Víkingur 17:16
Laugardalshöll, íslandsmótið í handknatt-
leik - úrslitakeppni kvenna - miðvikudaginn
8. apríl 1992.
Gangur leiksins: 0:1, 5:3, 5:5, 7:6, 8:8,
11:8, 12:9, 12:12, 14:13:, 14:16, 16:16,
16:17.
Mörk Fram: Inga Huld Pálsdóttir 6, Auður
Hermannsdóttir 4, Ðíana Guðjónsdóttir 3/2,
Hulda Bjamadóttir 1, Hafdís Guðjónsdóttir
1, Ósk Víðisdóttir 1.
Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir 12
Utan vallar: Fjórar mínútur.
Mörk Vfkings: Inga Lára Þórisdóttir 5/1,
Halla Helgadóttir 5/2, Svava Sigurðardóttir
2, Heiða Erlingsdóttir 2, Andrea Atladóttir
1, Valdís Birgisdóttir 1, Svava Ýr Baldvins-
dóttir 1.
Varin skot.: Sigrún Ólafsdóttir 6, Hjördís
Guðmundsdóttir.
FH - Stjarnan 14:19
Kaplakriki.
Gangur leiksins: 1:1, 2:4, 4:5, 4:11, 5:13,
9:14, 9:17, 12:17, 14:18, 14:19.
Mörk FH: Jolita Klimavicena 4, Rut
Baldursdóttir 4/2, Sigurborg Eyjólfsdóttir
2, Arndís Aradóttir 2/1, Hildur Harðardótt-
ir 1, María Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Gyða Úlfarsdóttir 15, þaraf 2
víti.
L'tan vallar: 2 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Harpa Magnúsdóttir
1/3, Sigrún Másdóttir 4, Ragnhildur Steph-
ensen 4/1, Margrét Vilhjálmsdóttir 3, Her-
dís Sigurbergsdóttir 1.
Varin skot: Nina Getsko 15.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson hefðu mátt sfna meiri áhuga.
Áhorfendur: 130.
UBK - ÍR 64:66
íþróttahúsið Digranesi, úrslitakeppni 1.
deildar í körfuknattleik um sæti í efstu
óeild, annar leikur, miðvikudaginn 8. apríl
1992.
Gangur leiksins: 6:6, 8:14, 17:14, 29:30,
33:34, 37:46, 42:54, 56:58, 64:66.
Stig UBK: Lloyd Sergant 21, Egill Viðars-
15, Hjörtur Amarsson 12, Eiríkur Guð-
mundsson 11, Steingrímur Bjamason 5.
Stig ÍR: Jóhannes Sveinsson 22, Björn Stef-
fensen 10, ívar Webster 10, Hilmar Gunn-
arsson 8, Eggert Garðarsson 6, Arthur
Babcok 5, Eiríkur Önundarson 5.
Uómarar: Brynjar Þorsteinsson og Bergur
Steingrímsson dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: Um 150.
Knattspyrna
Vináttulandsleikir
Ankara, Tyrklandi:
Tyrkland - Danmörk...............2:1
Hami (35.), Hakan (88.) - Christiansen
(75.). 30.000.
Búkarest, Rúmeniu:
Rúmenía - Lettland...............2:0
Pavel Badea (4.), Dan Petrescu (51.).
Sviss
Young Boys - Sion................4:1
Lausanne - Grasshopper...........1:1
St Gallen - Servette.............0:2
FC Zurich - Neuchatel Xamax......1:3
Staðan:
Grasshopper........6 8 2 1 9: 6 23
Lausanne...........6 1 3 2 6: 7 20
Servette...........6 2 2 2 10: 9 20
England
Coventry - Sheffield Wednesday.....0:0
13.293.
Liverpool - Wimbledon..............2:3
(Thomas 6., Rosenthal 44.) - (Sanchez 35.,
Clarke 65., Fashanu 72. vsp.). 26.134.
Norwich - Arsenal..................1;3
(Butterworth 59.) - (Wright 33. vsp., 82.,
Campbell 46.). 12.971.
Southampton - Nottingham I' orest.0:1
(Tiler 76.). 14.905.
Hlynur byijar
vel með Örebro
HLYNUR Stefánsson, lands-
liðsmaður frá Vestmannaeyj-
um, byrjaði vel með liði sínu,
Örebro, í sænsku úrvalsdeild-
inni ífyrrakvöld. Örebro sigraði
Djurgárden 3:1 og átti Hlynur
mjög góðan leik á miðjunni.
Orebro komst í 1:0 eftir 10 mín-
útna leik, en Djurgárden jafn-
aði skömmu síðar og þannig var
staðan í hálfleik. Djurgárden gerði
sjálfsmark um miðjan síðari hálfleik
og síðan bætti Örebro þriðja mark-
inu við skömmu fyrir leikslok. Hlyn-
ur náði ekki að skora en fékk mjög
góða dóma eftir leikinn. Einn leik-
manna Djurgárden var rekinn af
leikvelli fyrir að bijóta illa á íslend-
ingnum, þegar 20 mín. voru eftir
af leiknum.
Þetta var eini leikurinn sem fór
fram í 1. umferð úrvalsdeildarinnar
á þriðjudagskvöld en hann átti upp-
haflega að fara fram sl. sunnudag,
en var frestað vegna snjókomu.
Önnur úrslit í 1. umferð á sunnudag
voru sem hér segir:
AIK - Frölunda................2:0
Öster - Norrköping............1:0
IFK Gautaborg - Malmö.........3:0
Trelleborg - GAIS.............1:0
Hlynur Stefánsson
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI KVENNA
KNATTSPYRNA / SVIÞJOÐ
Víkingar fá annað tækifæri
Morgunblaðiö/Þorkell
Svava Sigurðardóttir í Víkingi stekkur hér inn úr vinstra hominu og ger-
ir annað tveggja marka sinna þegar lið hennar sigraði Fram [ spennandi leik.
Stjarnan komin í úrslit
Víkingut’ vann Fram 17:16 eftir
framlengingu í gærkvöldi og
verða liðin að mætast í þriðja sinn
1 keppni um úrslita-
Hanna Katrín sæti. „Þetta var bar-
Friðriksen átta upp á líf Og
skrífar dauða,“ sagði Inga
Lára Þórisdóttir,
fyrirliði Víkinga eftir leikinn, „og
það er allt eins líklegt að úrslitin í
þriðja leiknum ráðist ekki fyrr en
á síðustu stundu eins og núna.“
Fyrri hálfleikur var mjög jafn,
en snemma í seinni hálfleik breyttu
Víkingar um varnaraðferð, léku
mjög framarlega og slógu við það
Framstúlkur út af laginu í sóknar-
leiknum. Heiða Erlingsdóttir
tryggði sigur Víkinga með marki
út hægra hominu á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks framlengingar. Mikið
var um sóknarbrot í framlenging-
unni, en það orkaði tvímælis þegar
dæmdur var ruðningur á Díönu
Guðjónsdóttur í Fram undir lokin
þegar virtist sem Halla Helgadóttir
hlypi í veg fyrir hana inni í vítateig.
Inga Lára Þórisdóttir og Halla
Helgadóttir voru atkvæðamestar
Víkinga í gærkvöldi, en lítið bar á
Andreu Atladóttur sem átti stórleik
í fyrri leiknum. Aðrir leikmenn
börðust vel, en markvarslan var
slök mestan hluta leiksins. Hjá
Fram átti Inga Huld Pálsdóttir góð-
an leik og Hulda Bjarnadóttir dreif
aðra leikmenn áfram með baráttu-
krafti í vörninni. Þá var Kolbrún
traust í markinu, sérstaklega fram-
an af.
Vilja fá Víking
ér er sama hvort liðið ég fæ
í úrslitum, en að visu væri
skemmtilegra að vinna Víkinga því
þær eru bikarmeist-
Stefár^^ arar“’ saSði öiiðný
Stefánsson fyrirliði Stjörnunn-
skrifar ar, eftir 14:19 sigur
á FH í Kaplakrika.
Varnirnar voru sterkar enda að-
eins skoruð þijú mörk fyrstu tíu
mínúturnar. Herdís kom á móti
skyttum FH og kæfði flestar sókn-
artilraunir.
FH lék.pressuvörn eftir hlé, en
það dugði ekki til.
Gyða Úlfarsdóttir í markinu stóð
sig langbest hjá FH. María lék sinn
200. leik fyrir FH og fékk að laun-
um blómvönd.
Stjarnan var einfaldlega betri.
Skytturnar ákveðnari, fjölbreyttari
sóknarleikur, hraðaupphlaupin
vandaðri, enda margar frábærar
sendingar frá Ninu, og vörnin, með
Herdísi eins og klett, fór eins langt
og dómarar leyfðu. Nina varði vel.
KORFUBOLTI
Valur- ÍBKíkvöld:
Ég stjóma
baraæf-
ingunum
- segirTómas Holton
VALSMENN tryggja sér ís-
landsmeistaratitilinn íkörfu-
knattleik með sigri gegn ÍBK
að Hlíðarenda í kvöld, en sigri
Keflvíkingar ráðast úrslitin í
Keflavík á laugardaginn.
Tómas Holton, þjálfari og leik-
maður Vals, hefur náð góðum
árangri með iið sitt, en þetta er
frumraun hans sem þjálfari. Hann
tók við liðinu 1. nóvember af Vlad-
imír Obukov frá Sovétríkjunum sem
hafði þá verið með liðið í rúmlega
eitt keppnistímabil. Staða liðsins
var slæm, það hafði leikið sex leiki,
tapað fjórum og var í ijórða sæti
af fimm í B-riðli Japisdeildarinnar.
Þannig var ástatt þegar Tómas
tók við. Fyrsti leikur Vals undir
hans stjórn var gegn Njarðvíking-
um að Hlíðarenda 24. nóvember.
Njarðvíkingar unnu 88:81 en síðan
hefur Valsliðið verið á upgleið og
er nú að leika til úrslita um íslands-
meistaratitilinn.
Það fyrsta sem Tómas gerði þeg-
ar hann tók við liðinu var að senda
allan mannskapinn út að hlaupa því
leikmenn voru ekki í nægilega góðri
æfingu til að leika í úrvalsdeild-
inni, að sögn Tómasar. Síðan hefur
liðið sýnt að það er til alls líklegt
og mörgum kom á óvart þegar það
tryggði sér rétt til að leika til úr-
slita gegn Keflvíkingum.
Leikur liðsins er allur annar síðan
Tómas tók við. Varnarleikurinn
betri, sóknarleikurinn skipulagðari
og árangursríkari auk þess sem nú
er hugsað um hvernig liðinu er
stillt upp, en áður var það mikið
til byggt á tilviljunum. „Við vinnum
þetta mikið saman. Menn ræða um
hlutina og þetta er eiginlega eins
og kommúna hjá okkur, ég stjórna
bara æfingunum," segir Tómas
Holton.
Þríðji teikur um sætið
Breiðablik beið lægri hlut gegn ÍR
í úrslitakeppni 1. deildar í gærkvöldi,
tapaði 66:64 á heimavelli. Liðin verða
því að mætast í þriðja sinn til að fá
úr því skorið hvort liðið leikur í úrvals-
deild næsta tímabil. Leikur liðanna var
spennandi en að sama skapi ekki vel
leikinn. Mikil taugaspenna og barátta
var einkennandi og var hittni leik-
manna ekki góð. „Það þorði enginn
að taka af skarið í sóknarleiknum og
skjóta,“ sagði Sigurður Hjörleifsson,
þjálfari UBK.