Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 26. APRIL 1992
C 17
I BIO
M
íkhaíi Gorbatsjov,
fyrrum forseti
Sovétríkjanna, mun inn-
an skamms stíga sín
fyrstu skerf á Iistabraut-
inni þegar hann fer með
lítið hlutverk í nýjustu
mynd þýska leikstjórans
Wims Wenders.
{ einu atriði myndar-
innar situr Gorbatsjov við
skrifborð þegar engill
kemur til hans og þeir
ræða um tilgang lífsins,
segir í þýska blaðinu Bild.
Gorbatsjov segin „Þú
getur ekki byggt upp
heiminn með blóðbaði.
Þegar við mennimir,
stjórnmálamenn, leikar-
ar, listamenn, verka-
menn, karlar og konur
og fulltrúar allra trúar-
bragða sameinumst mun-
um við geta leyst öll
vandamál.“
í Bild segir að myndin
sé framhald Himinsins
yfir Berlín, sem sýnd var
hér á kvikmyndahátíð
1989. Ekki er enn komið
heiti á framhaldsmyndina
og ekki er vitað hvenær
hún verður frumsýnd.
LEÐURBLÖKUMAÐURINN
SNÝR AFTUR
Framhaldsmyndin Leðurblökumaðurinn snýr aftur
eða„„Batman Returns“ er nú í lokavinnslu vestur í
Hollywood. Hún verður frumsýnd vestra 19. júní en
Sambíóin hafa sýningarréttinn á henni hér heima og
verður hún ein af sumarmyndum bíóanna.
Leikstjóri er sem fyrr
Tim Burton en handrit-
ið gera Dan Waters og
Wesley Strick (Víghöfði)
og snýst það um fláræði
og fólskubrögð illvættanna
Mörgæsarinnar, sem
Danny DeVito leikur, og
Kattarkonunnar, sem leikin
er af Michelle Pfeiffer,
ásamt milljónamæringnum
Max Schreck (Christoper
Walken). Saman leggja þau
undir sig Gothamborg en
skikkjuklæddi skálkaban-
inn er þó ekki fjarri góðu
gamni og tekur til hendinni
áður en lýkur.
Michael Keaton er enn í
hlutverki Leðurblöku-
mannsins og fæst við það
svarta myrkur sálarinnar
sem ber hann sífellt út í
nóttina í leðurblökubún-
ingnum að fást við glæpa-
mennina. Burton hafði lýst
því yfir að hann ætlaði ekki
að gera framhaldið en hann
skipti um skoðun þegar
hann las handritið. Honum
fannst það mjög í anda
sagnanna um Leðurblöku-
manninn og nýju þijótamir,
Mörgæsin og Kattarkonan,
heilluðu hann mjög. „Eg
hefði gert þessa mynd þótt
hún hefði ekki verið um
Leðurblökumanninn," á
hann að hafa sagt.
Yfirbragð fyrri myndar-
innar var mjög sérstakt,
myrkt og ógnvænlegt, og
áttu leikmyndir Antons
Fursts, sem nú er látinn,
ekki lítinn þátt í því. Fram-
haldið
vera
ku
enn
myrkara. Út-
litshönnuður
nú er Bob
Welch, sem
starfaði með
Burton við
gerð mynd-
anna Edda
klippikrumlu
og „Beetleju-
ice“, og segir
hann að þeir
hafi leitað
eftir nýju út-
liti, sem þó
byggði á
_ gömlu hug-
myndinni
hans Fursts
um borg sem
vitnaði um
niðurníðslu,
spillingu og
siðferðislega
hnignun.
Heilagar framhaldsmyndir.
Alls hafa nú um 14.000
manns séð spennu-
myndina Dauður aftur í
Háskólabíói að sögn Frið-
berts Pálssonar bíóstjóra.
Þá sáu um 2.000 manns
Litla snillinginn fyrstu sýn-
ingarhelgina, 4.200 hafa
séð Háa hæla, 6.800
Frankie og Johnny, 3.200
Hörkuna sex, 5.200 Billa
og Tedda og 7.500 Tvöfalt
líf Veróniku.
Næstu myndir Háskóla-
bíós verða spennumyndin
„Split Seconds" með Rutger
Hauer, Kurosawamyndin
„Rhapsody in August" með
Richard Gere, „Ju Dou“
eftir kínverska leikstjórann
Zhang Yimou, „The Field“
eftir Jim Sheridan, Bó-
hemalíf eftir Aki Kauri-
smaki, spennumyndin „The
Butcher’s Wife“, spennu-
myndin „Afraid of the
Dark“ eftir Mark Peploe,
handritshöfund Bernardo
Bertoluccis, og loks Lukku-
Láki með Terence Hill í titil-
hlutverkinu.
Ein af sumarmyndum
Háskólabíós verður þriðja
myndin um Frank Drebin
lögreglumann með Leslie
Nielsen en hún heitir Beint
á ská 33 V3. Sagði Friðbert
að hún yrði frumsýnd sam-
tímis í Reykjavík, London
og New York enda hefðu
viðbrögð við mynd númer
tvö í flokknum verið frábær
hér á landi sl. sumar. Þá
yrði „Patriot Game“, spenn-
umynd eftir sögu Toms
Clancys og óbeint framhald
Leitarinnar að Rauðum
október, ein af sumarmynd-
um bíósins. Með aðalhlut-
verk fer Harrison Ford en
leikstjóri er John McTiern-
an sem fyrr. Einnig má
nefna spennumyndina
„Knight Games“ með Chri-
stopher Lampert og gaman-
myndina „Wayne’s World“,
sem verið hefur mjög vinsæl
í Bandaríkjunum upp á síð-
kastið, líka „Robocop 3“ og
nýjustu mynd Woody Al-
lens, Skugga og þoku.
KVIKMY N DI
Hver er Júlíus Kempf
Veggfóðrarinn
Á þjóðhátíðardaginn nk. verður frumsýnd ný ís-
lensk bíómynd eftir yngsta kvikmyndaleiksljóra
landsins, Júlíus Kemp. Hún heitir Veggfóður - eró-
tísk ástarsaga og er ódýrasta íslenska bíómyndin sem
gerð hefur verið, kostar þriðjung af verði venjulegra
mynda sem hér eru gerðar. Júlíus er 23 ára gamall
og segir að hver sem er geti gert mynd fyrir um 20
milljónir, a.m.k. einu sinni.
Eftir Arnald
Indriðason
Nýju svertingjamyndirn-
ar frá Hollywood,
„Boyz N the Hood“ og „New
Jack City“ eru í miklu uppá-
haldi hjá honum og sérstak-
'eSa leik-
stjóri fyrr-
nefndu
myndar-
innar, John
Singleton,
(„Spike
Lee er peð
við hliðina
á honum“).
Þeir eru jafnaldrar. Annar
sem Júlíus hefur í hávegum
er gamanleikarinn Harold
Lloyd. Kyndug blanda. Júl-
íus var í Verslunarskóla ís-
lands, er hæglátur mjög með
svart hár niður á bak, er
alltaf í svörtum leðurjakka
og á sífelldum þönum; hann
er nýkominn frá Króatíu þar
sem hann tók heimildar-
mynd um stríðsástandið.
Hann ásamt Eyþóri Amalds
átti besta tónlistarmynd-
bandið í fyrra að mati dóm-
nefndar á vegum ríkissjón-
varpsins. Og nú er það lok-
afrágangurinn á bíómynd-
inni. „Við erum bara krakk-
ar í bíómyndaleik,“ sagði
hann í fyrra. Hann er af
nýrri kynslóð íslenskra kvik-
myndagerðarmanna og það
er einhver frumheijabragur
Barflugur; Ari Matthíasson og Ingibjörg Stefánsdóttir
við barinn á skemmtistaðnum Rjómanum.
gengur gæti hún rutt braut-
ina fyrir aðra. „Ég held að
hver sem er geti gert þetta.
yfir honum. Hann og fólk
eins og t.d. Óskar Jónasson
og Ásdís Thoroddsen em
upphafið á einhveiju nýju í
íslenskum bíómyndum.
Hvað það er nákvæmlega
á eftir að koma í ljós. Vegg-
fóðrið er gamansöm ástar-
saga úr Reykjavík, tekin að
mestu á götu úti og í heima-
húsum á sex vikna tímabili
sl. sumar fyrir brot af venju-
legum kostnaði. Ef vel
Það þarf mikið af fólki og
góðvild annarra í kvik-
myndagerðinni,“ segir Júl-
íus. „Við höldum kostnaðin-
um niðri með því að taka
aðeins í Iteykjavík, menn
hafa með sér nesti en er ekki
séð fyrir mat, öll umsvif eru
í algjöru lágmarki, leikarar
eru í sínum eigin fötum —
búningastelpan fer heim til
leikaranna og finnur réttu
fötin á þá — það er engin
leikmynd, allt tökuliðið, 12
manns, er jaftistórt og
leikmunadeild í öðr-
um myndum, hluti
launanna er geymd-
ur þar til sýningar
heljast, það eru eng-
ar þyrlur og ekkert
bruðl og síðast en
ekki síst notuðum við
nýja 500 asa filmu
frá Kodak og spöruð-
um stóran pening í
lýsingarkostnaði." Myndin er
kostuð af kvikmyndagerð-
armönnunum sjálfum en
hlaut tveggja milljóna króna
styrk úr Kvikmyndasjóði í
vetur. Skuldabréf, veðsetn-
ingar, bankalán; það er allt
lagt undir og ekki í fyrsta
skipti.
Júlíus er menntaður í
kvikmyndagerð í Bretlandi
og þar vann hann handritið
að mýndinni uppúr 24 síðna
uppkasti vinar síns, Jóhanns
Sigmarssonar. Það var til-
búið um jólin 1990 en í maí
1991 fannst honum hann
verða að gera mynd uppúr
því strax hvað sem það kost-
aði. „Allt í henni er bundið
við núið, því varð að gera
hana núna eða aldrei," segir
hann. „Við byijuðum á að
fá fólk til að vinna með okk-
ur, vini og kunningja, en við
fórum fyrst í gang fyrir al-
vöru eftir að Friðrik Þór las
handritið. Þá opnuðust
margar dyr. Við réðum við-
skiptafræðing úr háskólan-
um — auglýstum þar á töflu
— til að fmna styrktaraðila
og sjá um skuldabréfin, veð-
setningar og lán og byrjuð-
um tökur í júlí. Síðan hefur
þetta gengið mjög vel.“
Hann segir myndina svo-
lítið íslenskt afbrigði af eld-
heitri ástarsögu, íslenskt af
því hún tekur ástarsöguna
aldrei mjög alvarlega. Hún
er stútfull af tónlist, „smá
nekt og smá ofbeldi",
Reykjavík samtímans, grini
og glensi og ást og ungu
fólki. Hún er fyrir ungt fólk,
um ungt fólk, gerð af ungu
fólki á andartaki, sem þoldi
enga bið.
Súperstjaman Arnold
Schwarzenegger held-
ur áfiram á léikstjóra-
irautinni eftir að hann
stýrði Dyan Cannon og
Kris Kristofferson í
sjónvarpsmyndinni
„Christmas in
Connecticut". Næsta
mynd sem hann leikstýr-
ir ef allt fer eftir áætlun
Qallar um þrælinn Anth-
ony Burns og er hand-
ritið eftir leikritaskáldið
og Pulitzerverðlaunahaf-
ann Charles Fuller.
Framleiðandi verður
Ivan Reitman, sem
kennt hefur Schwarzen-
egger eitt og annað um
leikstjóm en hann leik-
stýrði honum í „Twins“.
Jodie Foster, sem
hreppti sinn annan Ósk-
ar um daginn fyrir best-
an ieik, hefur ekki alltaf
haft mikið álit á Óskars-
verðlaununum og lét
hafa eftir sér í fyrra þeg-
ar Martin Scorsese
hlaut ékki Óskarinn fyrir
Góða gæja: „Þegar
maður hefur í huga þess-
ar tíu gömlu konur sem
merktu við Ðansa við
úlfa frekar en Góða gæja
— æ, ég veit ekki. Óskar-
inn er eins og bingó.“.
■Jack Nicholson er
einn af hæstlaunuðustu
leikurunum í Hollywood
og fékk nýlega 300 millj-
ónir fyrir tíu daga vinnu
við réttardramað „A
Few Good Men“. Hann
tekur ekki mikið mark á
gagnrýni á leikara fyrir
að heimta alltof mikil
laun. „Fólk segir að
framleiðendur í Holly
wood tapi peningum af
því að leikarar þiggja of
há laun. Það er della.
Fólk eins og ég skapar
peninga. Að frátöldum
þremur myndum hafa
allar myndir sem ég hef
leikið í grætt vel. Grætt
mikið.“
M„Þú átt allt þitt mér
að þakka," segir Don
Jolinson í hvert sinn
sem hann hittir Kevin
Costner. Og það eru orð
að sönnu. Johnson var
beðinn að leika Elliot
Ness í Hinum vamm-
lausu en hann vildi það
ekki og tilboðið fór til
Costners.