Morgunblaðið - 26.04.1992, Side 25
MÖRGtJNBLAÐlÐ VELVAIiflW&frM^rÆ^tiffi&L^AfeRÍúTálfe . . % IfS -
Góð þjón-
usta hjá Bif-
reiðaskoðun
Islands
Frá Halldóri S. Magnússyni:
Mér finnst að ómaklega hafi ver-
ið vegið að Bifreiðaskoðun íslands
hf. að undanförnu. Þjónustan hefur
stórbatnað eftir að þetta fyrirtæki
tók til starfa. Það er mikill munur
á þjónustunni frá því sem var og
nú getur hver komist að þegar hann
vill, það þarf aðeins að panta tíma.
Fátt hefur hins vegar verið eins
vanþakkað eins og þessi þjónusta.
Talað hefur verið um að rekstur
þessa fyrirtækis sé dæmi um mis-
heppnaðan einkarekstur og finnst
mér það mjög ranglátt. Kostnaður-
inn við skoðunina miðað við þjón-
ustu á almennum verkstæðum
finnst mér vera mjög sanngjarn.
í sjálfu sér er ég því ekki mótfall-
inn því að bifreiðaverkstæðin fái
leyfi til að veita þessa þjónustu en
ég hef enga trú á að það geti orðið
öruggara eða ódýrara. Mikla íjár-
festingu þarf til og bifreiðaverk-
stæðin þurfa að hafa miklar tekjur
til að standa^ undir henni. Hjá Bif-
reiðaskoðun íslands hf. er skoðunin
örugg og ekkert nema gott um
starfsemina þar að segja.
HALLDÓR S. MAGNÚSSON,
Iðufelli 4, Reykjavík.
Morgunblaðið/KGA
Á FERÐ í BÆNUM
Þar sem kærleiksblómin spretta
Frá Rannveigu Tryggvadóttur:
Jón Karlsson, hjúkrunarfræðing-
ur og starfsmaður Rauða krossins
í því stríðshtjáða landi Afganistan,
er látinn og ekkert fær vakið hann
til lífsins á ný. í minningu hans
mætti samt vinna eitt góðverkið
enn, þ.e. ef banamanni hans yrði
beðið griða, hann ekki líflátinn en
fengi fangelsisdóm. Ég veit ekki
hvort slíkri beiðni héðan yrði sinnt
en þetta mætti reyna og væri verð-,
ugur minnisvarði um kærleiksrík
störf Jóns heitins.
Afganska þjóðin hlýtur að vera
orðin hálfsturluð eftir 13 ára hernað
í landinu. Það var ógæfa-hennar
að miskunnarlaus og voldugur ná-
granni með einræðisherra við
stjórnvölinn ágirntist land hennar.
Réðust Sovétmenn inn í landið 1979
og var Najibullah gestgjafi þeirra.
Er von að Afganir vilji ekki sýna
honum linkind nú. Eftir tíu ára
hrottalegan hemað hurfu Sovét-
menn á braut en þjóðin er enn að
uppskera það sem þeir sáðu. Er
innrásin hófst voru Afganir 16
milljónir en nú munu tvær milljónir
fallnar, eða áttundi hver maður, auk
þess sem hundruð þúsunda flúðu
land og fleiri en tölu virðist á kom-
ið hafa hlotið örkuml. Ekki tel ég
ólíklegt að hatur í garð Najibullah
hafi valdið því að Jón Karlsson var
myrtur. Það eiga æði margir um
sárt að binda af hans völdum.
í nýjustu skýrslu um lífsgæði á
móður Jörð eru íslendingar taldir í
11. sæti en af 160 þjóðum á listan-
um eru Afganir í því 158. Ágjarn
nágranni sem einskis sveifst kom
þeim í það sæti.
Ekkju Jóns og öðrum vanda-
mönnum sendi ég hugheilar samúð-
arkveðjur.
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR,
Bjarmalandi 7, Reykjavík
VELVAKANDI
VETTLINGAR
Bláir barnavettlingar, merktir
„Þóra“, fundust á Vífilstaðat-
úni. Upplýsingar í síma 656916.
ARMBAND
Armband tapaðist í Kringl-
unni 5 eða á leið þaðan að Land-
spítalanum. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
11535. Fundarlaun.
PÁFAGAUKUR
Gulur og grænn páfagaukur
fannst á skírdag í Öskjuhlíð.
Upplýsingar I síma 11097.
KETTIR
Fallegir kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 626423.
Vegalaus kisa fannst á flæk-
ingi á Hverfisgötu 14. apríl,
bröndótt með hjarta í hálsólinni.
Upplýsingar í síma 14793.
LYKLAVESKI
Svart lyklaveski með sjö lykl-
um fannst við bil við Reiðhöl-
lina. Upplýsingar í síma 666337.
HATTUR
Brúnn .hattur tapaðist við
Kleppsveg 23. apríl. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 687544.
GÓÐ GREIN
Sigrún Ingvarsson:
Ég vil þakka fyrir góða grein
eftir Hallgrím Þ. Magnússon
lækni, Óhollar drykkjarvörur,
sem birtist í Morgunblaðinu hinn
14. apríl. Ég bý í Lúxemborg
og þar þurfum við að kaupa allt
drykkjarvatn á flöskum og er
það alls ekki gott vatn. Gos-
drykkjaþamb Islendinga, sém
eiga besta vatn í heimi, er óskilj-
anlegt.
ÁSTA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
Sænsk hjón eru að leita að
stúlku sem vann í bænum Ár-
stad á árunum 1985 til 1987.
Stúlkan er á aldrinum 25-30 ára
og heitir Ásta Guðmundsdóttir.
Hjónin heita:
Sven og Annette Johansson
Fruktvilnsveagen 7B
Sími: 0293-51493
81569 Mánkarbo
Svíþjóð.
Pennavinir
Frá Englandi skrifar 28 ára
maður meða áhug á umhverfis-
vernd, sögu, tungumálum og ferða-
lögum. Vill helst skrifast á við kon-
ur:
Stephen Bailey,
119 St. Botolphs Crescent,
Lincoln LN5 8BJ,
Lincolnshire,
England.
31 ÁRS GÖMUL þýsk kona, gift
frönskum manni og á einn tólf ára
gamlan son, vill eignast pennavin-
konu á íslandi. Áhugamál hennar
eru lestur góðra bóka, dýr, ferða-
lög, náttúran, saumaskapur o.fl.
Heimilisfang hennar er:
Carolina Bass
D-7016 Gerlingen,
W-Germany.
Frá Ghana skrifar 27 ára stúlka
með áhuga á ljósmyndun, kvik-
myndum, matargerð o.fl. Viíl skrif-
ast á við karlmenn á öllum aldri:
Annie E. Montford,
P.O. Box 904,
Cape Coast,
Ghana,
West Africa.
LEIÐRÉTTING
Röng tímasetning
Ranglega var sagt í blaðinu í gær
að ferming í Kristskirkju í dag
hæfist klukkan 14. Hið rétta er að
hún hefst klukkan 10,30.
TILBOÐ
VIKIJNNAR
msklaö
TÍVOÚ CURKUR
T estk-tp31*0
íf% áður.
jS&r229
V I
tilda
hrísgbjon
í suðupoka
pr.
250 g
Mcvrrns
iXGrESTXVE HAFRAKEX
pr.
500g
HAGKAUP
- allt I eintii ferd
JB