Morgunblaðið - 15.07.1992, Síða 5

Morgunblaðið - 15.07.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JUU 1992 5 N eytendasamtökin: Eigendur Odýra markaðar- ins kærðir Neytendasamtökin leggja í dag fram kæru á hendur eig- endum Odýra markaðarins í Síðumúla fyrir að greiða ekki út húsgögn úr umboðssölu. Jó- hannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að ákveðið hafi verið að kæra fyr- irtækið með tilliti til fjölda kvartana vegna viðskiptahátta þess. Jóhannes sagði samtökunum hefði borist fjöldi kvartana frá við- skiptavinum fyrirtækisins sem ekki hefðu fengið greitt andvirði húsgagna úr umboðssölu. Fyrir- tækið hefði fengið ítrekaðan frest til þess að koma sínum málum í lag en því miður hefði sjaldnast verið staðið við gefin loforð. „Miðað við þann fjölda kvart- ana, sem nú liggur til meðferðar hér, þá sjá Neytendasamtökin sér ekki annað fært en að fyrirtækið verði kært og eigendur þess til rannsóknarlögreglunnar, og við munum væntanlega leggja fram kæru á morgun. Við munum jafn- framt fara mjög ítarlega yfir til hvaða aðgerða annarra Neytenda- samtökin munu grípa til vegna þessa máls,“ sagði Jóhannes í sam- tali við Morgunblaðið. Umrætt fyrirtæki hét áður Betri kaup en er nú rekið undir nýju nafni eða , samkvæmt símaskrá, Odýri markaðurinn. Betri kaup hafa verið lýst gjaldþrota. Jóhann- es sagði að samkvæmt sínum heimildum væru efasemdir um að fyrirtækið hefði tilskilin leyfi yfír- valda. ----»■ ♦ ♦-- Landhelgisgæslan; Isjaðarmn 72 mílur frá landi FLUGVÉL Landhelgisgæslunn- ar, TF-SYN, flaug á mánudag ískönnunarflug úti fyrir Vest- fjörðum. Isjaðarinn náði skammt suður fyrir 66. breiddarbaug og var næst 72 sjómilur frá landi. Hafísinn var næst landi 72 sjó- mílur og 285 gráður úti Blakks- nesi, og 76 sjómílur og 280 gráður frá Bjargtöngum. Isdreifar voru 5-10 sjómílur út frá jaðrinum. Var þéttleiki íssins um 4-6/10 þar sem séð var, að því er segir í tilkynn- ingu frá Landhelgisgæslunni. ----» ♦ ♦--- Sýslumannsembættið: Tölvukerfíð komið í lag Tölvuvinnsla gekk snurðulaust fyrir sig hjá hjá sýslumannsemb- ættinu í Reykjavík í gær eftir viðamikla viðgerð á tölvubúnaði í fyrrinótt. Jón Skaftason, sýslumaður, sagði tölvuvinnsla hefði gengið fremur hægt að undanförnu vegna sífelldra bilana en eftir viðgerðina vonaði hann að betur myndi ganga. Ekki hafði orðið vart við bilanir um kaffi- leytið í gær. Aðspurður sagði Jón að 7-800 þinglýsingarskjöl biðu afgreiðslu hjá embættinu. O •u. Sá liprasti í bænum! KOSTAR STADGREIDDUR, KOMINN Á GÖTUNA FRA:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.