Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992
Landsfundur demókrata í New York:
„Fijálslyndi“ fortíðar-
innar hafnað með fyrir-
heitum um breytingar
Margir demókratar eru óánægðir
með þessar breytingar og líta aftur
til þess tíma þegar stéttarfélög og
mannréttindahópar voru í broddi
fylkingar og barist var fyrir málstað
fátækra og hærri sköttum til að
stjórnvöld gætu séð þjóðinni farborða
og leyst vanda hennar.
En Clinton hefur völdin á þessari
ráðstefnu og það má líkja honum við
Neil Kinnock, fyrrum leiðtoga breska
Verkamannaflokksins, sem breytti
ásjónu flokks síns og færði stefnu-
skrá hans frá vinstri til hægri til að
fella íhaldsflokkinn.
Samstarfsmenn Clintons lesa allar
ræður yfir áður en þær eru fluttar
og ekkert fær að varpa rýrð á þá
ímynd einingar, sem demókratar vilja
sýna út á við. Því er það sem ræðu-
menn á þessi þingi séu sem steyptir
í sama mótið, þótt þeir tali af ástríðu
og hita.
Eina feilnótan hingað til hefur
komið frá stuðningsmönnum Jerrys
Browns, fyrrum ríkisstjóra Kalifor-
níu. Brown neitar enn að styðja Clin-
ton, þrátt fyrir þrýstings frá fjöl-
skyldu og vinum. Stuðningsmenn
Browns trufluðu meðal annars setn-
ingartölu Rons Browns, formanns
Demókrataflokksins, og kröfðust
þess að Brown fengi að stíga í ræðu-
stól. Clinton er hins vegar ekki á því
að leyfa Brown að tala án þess að
vita hvað hann ætli að segja.
Harkaleg gagnrýni á Bush
Demókratar létu George Bush
Bandaríkjaforseta fá það óþvegið í
ræðum sínum. Hver ræðumaðurinn
á fætur öðrum steig í pontu og gagn-
rýndi forsetann með ásökunum _um
skeytingarleysi og heigulshátt. „Ótti,
sundrung og dauði vonarinnar —
þessir eru ávextir valdasetu repúblik-
ana,“ sagði Bill Bradley, öldungar-
deildarþingmaður frá New Jersey.
„Fyrir fjórum árum sagði Bush
okkur að hann væri hæglátur mað-
ur, sem heyrði raddir hægláts fólks.
Nú vitum við sannleikann: George
Bush er ragur maður, sem heyrir
aðeins raddir varkárni og óbreytts
ástands," sagði Zell Miller, ríkisstjóri
Georgíu. „Ef „menntamálaforsetinn"
fær að sitja annað kjörtímabil munu
ekki einu sinni börnin okkar geta
stafað orðið „kartafla“,“ sagði Miller
og vitnaði til þess þegar Dan Quayle
varaforseti varð sér til athlægis er
hann sagði að orðið „potato" ætti
að stafa „potatoe".
Sú ákvörðun hefur verið tekin í
herbúðum Clintons að beina öllum
spjótum að Bush og frammistöðu
hans í Hvíta húsinu, en láta Ross
Perot, milljónamæringinn, sem
hyggur á óháð framboð, að mestu
leyti í friði. Röksemdin að baki þess-
ari stefnu er sú að Clinton þurfi á
fylgi þeirra kjósenda, sem nú fylgja
Perot að málum, að halda og muni
fæla þá frá sér með því að ráðast á
milljónamæringinn frá Texas.
Bush og Perot hafa verið eins og
hundur og köttur undanfarið. Bush
hefur reynt að grafa undan Perot
með ásökunum um persónunjósnir.
Perot hefur svarað fyrir sig með því
að saka Bush um óheiðarlega kosn-
ingarbaráttu. Það mætti jafnvel
halda að þegjandi samkomulag ríkti
milli Clintons og Perots um að Bush
væri sameiginlegur óvinur hvors
tveggja. Þeir segja ekkert illt hver
um annan og Perot lofaði Clinton
meira að segja fyrir að gera Albert
Gore að varaforsetaefni sínu.
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
LANDSFUNDUR demókrata hófst í New York á mánudag með fyrir-
heitum um breytingar bæði í flokknum og um öll Bandaríkin. Þeir
ræðumenn, sem stigu í pontu, voru flestir ómyrkir í máli um ástand
launamála og óvægnir í garð George Bush forseta, sem sakaður var
um skeytingarleysi og ragmennsku gagnvart vaxandi vanda þjóðarinn-
ar.
Ræður þær sem fluttar hafa verið
hingað til, bera því vitni að demó-
kratar ætli nú að reyna að losa sig
við þann farangur, sem kenndur hef-
ur verið við „fijálslyndi" eða „líberal-
isma“, sem segja má að hafi staðið
þeim fyrir þrifum í forsetakosningum
allt frá því að Lyndon B. Johnson lét
af embætti fyrir 22 árum. Síðan
hafa demókratar tapað sex forseta-
kosningum af sjö.
Breytingar voru lykilorðið í mál-
flutningi manna fyrsta kvöldið og
var þá verið að tala um að færa flokk-
inn frá vinstri vængnum inn á miðju
bandarískra stjórnmála. Demó-
kratar, sem tóku út stjómmálalegan
þroska sinn þegar sú stefna var í
hávegum höfð, sem nú er verið að
hafna, mæltu meira að segja hinum
nýju hugmyndum bót.
„Við munum breytast úr flokki,
sem hefur orð á sér fyrir „skattlagn-
ingu og eyðslusemi" í flokk flárfest-
inga og hagvaxtar," sagði Barbara
Jordan, fyrrum fulltrúadeildarþing-
maður. Jordan hafnaði þó í sömu
andrá þeirri speki, sem Ronald
Reagan, fyrrum forseti gerði að
sinni, um að skattleysi hinna ríku
myndi koma hinum fátæku til góða.
Galdurinn væri að hjálpa fólki til að
hjálpa sér sjálft.
Þessi orð benda til vilja til að
breyta velferðarbákninu, sem oft og
tíðum er kennt við demókrata og
þykir þeim eiginleika gætt að verð-
launa þá sem sætta sig við að vera
þurfalingar, en láta þá gjalda fyrir,
sem reyna að koma fótunum undir
sig. á ný.
í stefnuskránni, sem samþykkja
átti í gærkvöldi, segir eftir nokkur
hástemmd inngangsorð: „Við heyr-
um angist og reiði bandarísku þjóðar-
innar. Við vitum að hún beinist ekki
aðeins að þeim stjórnum repúblik-
ana, sem verið hafa við völd, heldur
að stjórnkerfinu sjálfu." Dagblaðið
The New York Times sagði í leiðara
í gær að þessi orð bæru því vitni að
hér væri á ferðinni flokkur, sem vildi
að mark yrði á sér tekið. Stefnuskrá-
in gagnrýnir einnig sjónarmið mikilla
ríkisumsvifa þar sem því er haldið
fram að hægt sé „að hefta atvinnu-
rekendur og leggja brautina til hag-
sældar með sköttum og eyðslu."
Mitterrand ver
þingforsetann
París. Reuter.
FRANSKIR sósíalistar hafa snúist til varnar forseta franska þingsins,
Henri Emmanuelli, en hann á í vök að verjast eftir að dagblaðið Le
Monde sagði frá þvi í síðustu viku, að hann ætti ákæru yfir höfði sér
vegna aðildar að fjármálahneyksli. Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti sagði í árlegu sjónvarpsviðtali i gær, í tilefni af þjóðhátiðardegi
Frakka, að Emmanuelli væri einstaklega heiðarlegur og ráðvandur
maður og harmaði fréttaflutning Le Monde. Áður höfðu bæði forsætis-
ráðherrann, Pierre Beregovoy, og dómsmálaráðherrann, Michel Vauz-
elle, borið lof á Emmanuelli og sagt það útilokað, að hann væri viðrið-
inn hneykslið.
Emmanuelli segir að hann hafi
ekkert heyrt frá saksóknaranum,
sem rannsakar hneykslið, og hefur
heitið því að hreinsa mannorð sitt.
Mitterrand sagði í sjónvarpsviðtalinu
að sú staðreynd, að fjölmiðlar segðu
frá ákærum áður en þær væru birtar
hinum ákærðu, sýndu spillingu í rétt-
arkerfinu. Leiðtogar Sósíalista-
flokksins halda því fram að pólitískur
fnykur sé af málinu en saksóknar-
inn, Renaud Van Ruymbeke, hefur
vísað slíkum ásökunum á bug. Hann
hefur hvorki játað því né neitað að
Emmanuelli verði ákærður vegna
málsins.
Le Monde sagði að Emmanuelli
yrði ákærður fyrir aðild að fjármála-
hneyksli, sem Sósíalistaflokkurinn
er flæktur í, en hann gegndi gjald-
keraembætti í flokknum frá árinu
1988 þar til í janúar á þessu ári.
Eru sósíalistar sakaðir um að hafa
þegið mútugreiðslur frá fyrirtækjum
í byggingariðnaði gegn opinberri fyr-
irgreiðsiu. Rannsókn málsins hefur
staðið yfir í fjögur ár og mikið verið
um það fjallað í fjölmiðlum.
Telja stjórnmálaskýrendur að
slæma stöðu sósíalista í skoðana-
könnunum megi ekki síst rekja til
hneykslisins.
Reuter
Kona á flokksþingi Demókrataflokksins í New York. Á hatti hennar
situr asni, tákn demókrata, ofan á fíl, sem er einkennismerki repúblík-
ana.
OPNA
MÓTIÐ Í GOLFI
laugcardaginn 18. júli 1992
Mótsstaður: Bakkakotsvöllur, Mosfellsdal.
Sími ó mótsdag 985-31133.
Tími: 1. hópur ræstur út kl. 8.00.
Skróning: Fimmtudaginn 16. júlí og föstudaginn
17. júlí kl. 18 til 23. Sími 91-33149.
Fyrirkomulag: Leiknar verða 18 holur.
Verðlaun: 1., 2., 3 verðlaun með og ón forgjafar.
Nóndarverðlaun (næstur holu).
Styrktaraðili: Western Fried, Mosfellsbæ.
GOLFKLÚBBUR
BAKKAKOTS,
Mosfellsdal