Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Heilsuvemd og fyr-
irbyggjandi fræðsla
í framhaldsskólum
rátt fyrir ákvæði í lögum
er heilsuvernd óviðunandi
í framhaldskólum hér á landi
og úrbóta er þörf. Sú er niður-
staða könnunar sem skólayfir-
læknir gerði skólaárið 1988—
1989. Aðstaða til heilsugæzlu
er aðeins í 6 framhaldsskólum
af 16, sem útskrifa stúdenta.
Slíka aðstöðu vantar og í 28
sérskóla, sem könnunin náði
til.
í niðurstöðum könnunarinn-
ar segir að nauðsynlegt sé að
byggja upp skipulagða heilsu-
vernd í framhaldsskólum, m.a.
til þess að forvarnastarf, sem
unnið er í grunnskólum, glatist
ekki. Þar segir og að framtíðar-
heilsufar einstaklinga mótist
mikið á þessu aldursskeiði, til
dæmis að því er varðar líkams-
rækt, mataræði og annan lífs-
máta. Fyrirbyggjandi fræðsla
og heilsuvernd á framhalds-
skólastigi gegni því mikilvægu
hlutverki, bæði fyrir einstakl-
inginn og samfélagið.
„Brýna nauðsyn ber til þess
að í framhaldsskólum landsins
verði tekin upp fyrirbyggjandi
fræðsla með tilliti til geðheil-
brigðis og félagslegs þroska,“
segir Lilja Óskarsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur, í viðtali við
Morgunblaðið um heilbrigðis-
fræðslu og heilsugæzlu í fram-
haldsskólum, en hún á sæti í
samstarfshópi um forvarnir
gegn sjálfsvígum ungmenna
sem stofnaður var haustið
1991. Lilja segir það sorglega
staðreynd að hér á landi séu
sjálfsvíg karla á aldrinum 14
til 25 ára hlutfallslega næst-
flest meðal þjóða Norðurlanda.
„Unglingsárin eru erfið,
bæði unglingum og foreldr-
um,“ segir hjúkrunarfræðing-
urinn „og það vantar virkilega
fræðsluefni, sem lýtur bæði að
geðrænni og líkamlegu heil-
brigði og sérstaklega er sniðið
að þörfum unglinga.“ Hún seg-
ir jafnframt að fyrirliggjandi
sé næg þekking á streituvöld-
um í lífí unglinga til þess að
y hefja þegar í haust skipulega
- geðvemd í framhaldsskólum.
Fræðsluefni af því tagi sem
hér um ræðir þarf, að dómi
hjúkrunarfræðingsins, að taka
á öllu sem lýtur að tilfínninga-
legri líðan og mannlegum sam-
skiptum. Hún telur og mjög
mikilvægt að unglingar eigi
aðgang að sérfróðum aðila inn-
an skólanna, sem geti leiðbeint
þeim þegar þeir standa frammi
fyrir persónulegum vanda.
Slíkir leiðbeinendur, sálfræð-
ingar, hjúkrunarfræðingar og
læknar, eigi að hafa nána sam-
vinnu við kennarana, sem gerst
þekki nemendur, og hafí bezta
aðstöðu til að koma auga á þá
sem líður illa og hjálpar þurfi
með.
Andlegt og líkamlegt heil-
brigði einstaklingsins er hans
dýrmætasta eign. Heilbrigði
einstaklingsins er í bókstaf-
legri merkingu hornsteinn
hamingju hans og velferðar.
Það er því mikilvægt að hann
njóti allrar tiltækrar fræðslu
um fyrirbyggjandi heilsuvernd
- og hjálpar ef með þarf -
meðan lífsmáti hans og lífsvið-
horf er að mótast, það er á því
aldursskeiði sem hann nemur
í framhaldsskólum.
Heilbrigði einstaklinganna
er og arðgæfasta og verðmæt-
asta eign samfélagsins. Að
baki auðlegðar og hagvaxtar
þjóðanna liggur fyrst og fremst
menntun einstaklinganna,
framtak þeirra og starfshæfni
til hugar og handar. Það hefur
því þjóðhagslegt gildi, ekkert
síður en félagslegt, að stuðla
að heilbrigði einstaklinga og
þjóðar. Fjármunir sem ganga
til heilsugæzlu skila sér ekki
aðeins í betra lífi og líðan fólks,
heldur einnig í fleiri vinnu-
stundum og meiri verðmæta-
sköpun í þjóðarbúskapnum.
Það er ekki verjandi að
skella skollaeyrum við niður-
stöðum könnunar á heilsu-
vernd í framhaldsskólum, sem
skólayfirlæknir stóð __ fyrir
skólaárið 1988—1989. Úrbóta
er þörf. Það er heldur ekki
verjandi að virða að vettugi
ráðleggingar sérhæfðs aðila
um fyrirbyggjandi fræðslu í
framhaldsskólum með tilliti til
geðheilbngðis og félagslegs
þroska. Úrbóta er þörf.
Það er til staðar næg þekk-
ing á streituvöldum í 'lífí ungl-
inga, segir hjúkrunarfræðing-
urinn, til að hefja þegar í haust
skipulegá geðverndarfræðslu í
framhaldsskólum. Það á tví-
mælalaust að stíga fyrstu
skrefin í þessu efni strax á
næsta skólaári.
Morgunblaðið/Bjami
Markús Örn Antonsson borgarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna að félagsheimili og vallarhúsi IR, við
Skógarsel. Hjá honum standa Hólmsteinn Sigurðsson formaður ÍR(t.v.) og Þórir Lárusson formaður
íþróttafélag Reykjavíkur byggir félagsheimili og valiarhús:
Reykjavíkurborg- styrk-
ir IR um 79 milljónir kr.
UNDIRRITAÐ hefur verið sam-
komulag milli Reykjavíkurborg-
ar og íþróttafélags Reykjavíkur
um 79 milljón króna styrk til
byggingar félagsheimilis og vall-
arhúss við íþróttavelli félagsins
við Skógarsel í Suður-Mjódd í
Breiðholti. Að sögn Þóris Lárus-
sonar formanns byggingarnefnd-
ar, hefjast framkvæmdir nú þeg-
ar og hefur verið samið við Hag-
virki hf. um að reisa húsið. Gert
er ráð fyrir að því verði skilað
fokheldu fyrir áramót.
Félagsheimilið og vallarhúsið er
1.271 fermetri að stærð á tveimur
hæðum auk kjallara. í kjallara er
gert ráð fyrir 309.3 fermetra fjöl-
nota íþróttasal, en á fyrstu hæð eru
búningsklefar, sturtur, tækja-
geymslur, aðstaða fyrir þjálfara,
dómara og húsvörð. A annarri hæð
er félagsheimilið með aðstöðu fyrir
deildir auk þess samkomusalur
eldhús. Arkitektar hússins eru þeir
Egill Guðmundsson og Þórarinn
Þórarinsson.
Reykjavíkurborg styrkir fram-
kvæmdina um 80% eða 79 milljón-
ir, sem greiðast á fimm árum. Fé-
lagið mun leggja fram 20% af bygg-
ingarkostnaði og þá mest í sjálf-
boðavinnu eftir að húsið er fokhelt.
„Þetta er um 100 milljón króna
framkvæmd," sagði Þórir. „Til
þessa höfum við verið með bráða-
birgðahúsnæði við vellina eða í rúm
tíu ár og kominn tími til að bæta
úr því.“
ÍR svæðið er um níu hektarar
að stærð og er búið að koma þar
upp grasvelli, sem skipta má niður
í þijá auk malarvalla. Vegna stað-
hátta var hægt að koma fyrir leik-
Fyrirhugað félagsheimili og vallarhús ÍR við Skógarsel.
fimissal í kjallara, meðal annars
fyrir þrekþjálfun en þar er ekki
gert ráð fyrir aðstöðu fyrir körfu-
bolta eða handbolta nema þá til
æfinga. „Við höfum góða aðstöðu
fyrir þessar greinar í Seljaskóla og
í Breiðholtsskóla þannig að við erum
ekki eins illa settir eins og Fylkir,
sem hefur einn lítinn sal eða eins
og Víkingur var áður en þeir fengu
sinn góða sal,“ sagði Þórir. „Eg
held að borgaryfirvöld séu eftir
bestu samvisku að reyna að hjálpa
íþróttafélögunum og þá fyrst þeim
sem eru í mestu vandræðunum.“
Gert er ráð fyrir að vallarhúsið
tengist íþróttahúsi þegar kemur að
byggingu þess í framtíðinni en Þór-
ir sagðist ekki reikna með að það
yrði fyrr en undir aldamót.
ÍR var stofnað 11. mars 1907
og er því 85 ára. „Þetta hús á eftir
að gjörbreyta allri okkar aðstöðu,"
sagði Þórir. „í félagsheimilinu verð-
ur fundarherbergi, aðstaða fyrir
hveija deild auk samkomusalar. Það
er því mikið vor í lofti hjá okkur
núna.“
Ráðherra fær tölfræðinga til
að úrskurða í deilu um þorsk
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að fá töl-
fræðingana Helga Þórsson hjá Reiknistofnun Háskólans og Hólmgeir
Björnsson hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins til að fara ofan í
deilu Landssambands smábátaeigenda og Hafrannsóknastofnunar um
landanir á stórum þorski og kanna hvort ósamræmi er milli gagna
stofnunarinnar og útflutningsskýrslna, að sögn Halldórs Árnasonar
aðstoðarmanns sjávarútvegsráðherra.
„Landssamband smábátaeigenda
hefur gert samanburð á útreikning-
um Hafrannsóknastofnunar og út-
flutningsskýrslum Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda, ásamt því
að gera varlega áætlun um aðra
vinnsluþætti. Samanburðurinn leiddi
í ljós að samkvæmt staðreyndum úr
útflutningsskýrslum hefur verið flutt
út mun meira af þyngsta þorskinum
en Hafrannsóknastofnun telur að
veiðst hafi af honum....Séu ábend-
ingar Landssambands smábátaeig-
enda nærri lagi þarf væntanlega að
endurskoða alla útreikninga varð-
andi stærð þorskstofnsins og hann
reynst stærri en haldið hefur verið
fram,“ segir í fréttatilkynningu, sem
Landssamband smábátaeigenda
sendi frá sér í gær, þriðjudag.