Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992 13 Á að telja löggæslu arðbæra fjár- festingu eða bráðabirgðarekstur? eftir Guðmund Guðjónsson Á undanförnum árum hefur orðið verulegur niðurskurður á fjárveit- ingum til lögreglunnar í Reykjavík. Á rökstuðning í fjárlagatillögum embættisins 1991, eða aðvaranir á undanförnum árum um að í óefni stefni vegna fjársveltis, hefur ekki verið fallist og niðurskurður á fjár- veitingum til lögreglunnar í Reykja- vík á fjárlögum 1992, miðað við árið á undan, dregur mjög úr getu hennar og hefur skapað ýmis vandamál og alvarlega starfslegra árekstra. Það litla svigrúm sem lögreglan hefur haft til að sinna ýmsu upp- byggingarstarfi bæði sem snýr að löggæslulegum málefnum og starfsmannalegum og aukið álag á lögreglumenn, þar sem sífellt þarf að vera með óvinsælar tilfærslur í hagræðingarskyni, hefur gert allt starfsumhverfí lögreglunnar við- kvæmt og lítið þarf til að misskiln- ingur, leiðindi eða sundurlyndi skapist. Það verður líka að skoða alla þá hagræðingu sem gera þarf í því ljósi að hún dregur stórlega úr tekjum lögreglumanna, sem gerir það að verkum að þeir eru í óvissu allan mánuðinn hvort þeir nái tilteknum yfirvinnutímafjölda eða ekki, sem síðan skiptir sköpum hvort þeir geti staðið við fjárskuldbindingar sínar - skuldbindingar sem menn tóku á sig í góðri trú og án þess að þá óraði fyrir því að yfirvinna miðað við hvern lögreglumann yrði fyrir slíkum niðurskurði að fara þarf nokkra áratugi aftur í tímann til að finna hliðstæðu um sama yfir- vinnumagn miðað við hvert stöðu- gildi - eða lengra aftur en flestir hafa starfað innan lögreglunnar. Þetta hefur skapað mikla spennu og alls konar árekstrar tengdir yfir- vinnu og launamálum eru sífellt að verða algengari. Ótti lögreglumanna er sá að lög- reglan í Reykjavík verði áfram fyr- ir sífellt meiri niðurskurði, sem bitni enn frekar á launum þeirra og birt- ist einnig í auknu vinnuálagi og sífelldum starfslegum árekstrum sem niðurskurður veldur. Þessa óvissu og það óöryggi sem henni fylgir um fjárhagslega og starfslega stöðu lögreglumanna er ekki hægt að búa við til lengdar, enda grefur slíkt undan allri uppbyggingu og jákvæðum starfsanda, sem hvoru tveggja er undirstaða góðrar lög- gæslu. Verði breyting á atvinnuástandi miðað við óbreytt launakjör lög- reglumanna má búast við flótta lög- reglumanna úr lögregluliði Reykja- víkur og reyndar er á þessu ári farið að bera nokkuð á uppsögnum og mikilli ásókn í launalaust leyfi, svo menn geti fengið sér betur laun- að starf til að bjarga fjárhagnum. Vert er að hugleiða hvaðan fjár- munir eigi að koma til að bæta það tjón sem af því hlýst, ef til hópupp- sagna kemur nú líkt og um miðjan síðasta áratuginn. Breytt, harðara og flóknara starfsumhverfi lögreglunnar kallar sífellt á fjölhæfari og betur þjálfaða lögreglumenn. Þetta gerir kröfu til breyttra starfsaðferða lögreglu, strangari inntökuskilyrða í lögregl- una, betri búnaðar, mikillar þjálfun- ar og viðhaldsþjálfunar og breyttra stjórnunarhátta. Einnig þarf að vera áframhald á vinnufundum starfsmanna, sem byrjað var að halda fyrir tveimur árum. Það er mikilvægur þáttur í löggæslulegri uppbyggingu en ekki hefur verið hægt að halda slíka fundi á þessu ári vegna fjárskorts og af sömu ástæðu hefur enn ekki verið hægt að virkja nægilega afrakstur þeirra funda sem haldnir hafa verið. Þetta er sérstaklega mikilvægt á svo stór- um vinnustað sem lögreglan í Reykjavík er, þar sem störf manna eru með meiri árekstarhættu heldur en á minni vinnustöðum þar sem menn starfa í meiri nálægð hver Guðmundur Guðjónsson „Það er von mín að ein- hverjar viðvörunar- bjöllur hringi hjá þeim sem ákvörðun taka um fjárveitingar til lög- gæslumála og að litið verði á góða löggæslu með arðsemissjónarmið í huga og sem hag- kvæma fjárfestingu.“ við annan. Til að þetta gangi eftir þarf fjármagn. Þrátt fyrir nauðsyn þess að verulega þurfi að styrkja þessa þætti í starfi lögreglunnar er nú svo komið að draga hefur þurft úr þeim vegna fjárskorts. Sú mikla uppbygging og sterka fjárhagsstjórn sem verið hefur hjá lögreglunni í Reykjavík á síðustu árum, sem lögreglumenn hafa sam- eiginlega unnið við að byggja upp, kann að glatast og það getur tekið langan tíma og orðið kostnaðarsamt að vinna slíkt upp aftur. Fyrir því höfum við sársaukafulla og lær- dómsríka reynslu síðasta áratugar, samanber ástand það sem skapaðist vegna hópuppsagna um miðjan ára- tuginn sem mörg ár tók að vinna sig út úr. Það má heldur ekki gleym- ast að sá mikli árangur sem náðst hefur innan lögreglunnar í Reykja- vík á síðustu árum hefur náðst með samstilltu átaki allra lögreglu- manna. Menn verða að sjá árangur af slíku í fleiru en enn frekari niður- skurði. Lögreglan í Reykjavík hefur starfað innan ramma fjárlaga síð- ustu árin. Margir lögreglumenn eru þeirrar skoðunar að lögreglan í Reykjavík sé látin gjalda stærðar sinnar, þ.e.a.s. að í stað þess, eins og gerist með öðrum þjóðum, að tekið sé tillit til þess að höfuðborg- arlögregla þarf að glíma við ýmis vandamál umfram aðra lögreglu þá verði hún þess í stað fyrir meiri niðurskurði vegna þess að fjárhags- leg umsvif hennar eru mikil. Litið er á að hagræðing liðinna ára innan embættisins sé metin til enn frek- ari niðurskurðar á fjárlögum þessa árs og í því tilliti er tekið sem nær- tækt dæmi auka 10 milljóna króna niðurskurður hjá lögreglunni í Reykjavík umfram svokallaðan flat- an niðurskurð. Það er mjög mikilvægt að fjár- veitingavald meti fjárveitingar tii lögreglunnar með langtímasjón- armið í huga, en skeri ekki það óhóflega niður eitt árið að dýrmæt fjárfesting glatist svo sem í reynd- um, áhugasömum og að öðru leyti góðum mannskap, sem búið er að leggja í kostnað við að mennta, að löggæslulegur árangur sem byggð- ur hefur verið upp með miklum til- kostnaði og gífurlegri vinnu hverfi. Auknum fjármunum hefur verið ráðstafað til Lögregluskóla ríksins og menntum lögreglumanna hefur stórbatnað. Það ber að þakka. Hins vegar liggur arðsemin í því að við- komandi aðila sé sköpuð aðstaða A Landmælingar Islands: Nýtt aðalkort af há- lendinu og Suðurlandi LANDMÆLINGAR íslands hafa gefið út nýtt aðalkort af há- lendi íslands í mælikvarða 1:250.000. Um er að ræða blað 5 sem sýnir Mið-ísland frá Oki í vestri að Trölladyngju í austri. Þá er einnig komið út biað 6, í sömu hlutföllum, sem sýnir mið-Suður- land frá Grímsnesi í vestri að Skeiðarárkjökli í austri. Kortið af hálendinu hefur mikið verið leiðrétt frá síðustu útgáfu og sýnir nú alla meginþætti hálendisins svo sem vegaslóða og vatnsföll auk ömefna. Blöndulón birtist nú í fyrsta skipti á korti, en lónið mynd- aðist þegar Blanda var virkjuð. Auk útgáfu á Aðalkorti 5 hefur verið gefin út ferðaútgáfa af Norð- ur- og Mið-íslandi þar sem á sama kortblaði er prentað beggja vegna, annars vegar Aðalkort blað 4 af Miðnorðurlandi og hins vegar Aðal- kort 5 af Mið-íslandi. Hið nýja Suðurlandskort hefur hlotið gagngera endurskoðun frá síðustu útgáfu og er nú prentað eftir nýjum staðli sem gerir það mun greinarbetra en eldri útgáfur, að því er segir í frétt frá Landmæl- ingum. Það veitir m.a. nýjustu upp- lýsingar um þjóðvegakerfið á Suð- urlandi; veganúmer, vegalengdir og gerð slitlags. Á því er að finna rúm- lega 2000 ömefni, auk upplýsinga um vegi og slóða á syðri hálendinu auk fjallaskála svo dæmi séu tekin. Kortin em fáanleg í Kortaverslun Landmælinga íslands og á 200 sölu- stöðum um land allt. KIWANISMENN Fundurinn um Engjateig 1 1 veróur haldinn í Kiwanishús- inu, Brautarholti 26, í kvöld kl. 20.00. Stjórnin. Tilkynning frá solu varnarliðseigna Skrifstofa vor og verslanir verða lokaðar frá 20. júlí til 17. ágúst vegna sumarleyfa. SALA VARNARUÐSEIGNA til að geta unnið starfið af áhuga og hafi ráð á því að gera lögreglu- starfið að ævistarfi, en hverfi ekki úr því fljótlega eftir að námi lýkur og að síðan þurfi að fara að mennta nýja menn, sem einnig hætta fljót- lega að námi loknu. Slíka hringrás verður að stöðva enda fara þannig miklir fjármunir fyrir lítið, sem bet- ur væri varið í löggæslulega upp- byggingu til frambúðar. Það á bæði að vera eðlilegt og nauðsynlegt að stjórnvöld marki stefnu í löggæslumálum til lengri tíma, t.d. 4-6 ára hvað varðar mannaflaþörf, búnað, fjármagn, aðstöðu o.s.frv. miðað við fyrirliggj- andi forsendur. Því miður hefur reyndin verið sú undanfarin ár að löggæslueiningar sem reynt hafa að byggja upp starf sitt hafa orðið að draga saman seglin í miðjum klíðum og jafnframt sköpuð hjá þeim mikil óvissa um framhald mála. Þetta er sorgleg staðreynd í ljósi þess að þau afbrot og voða- atburðir sem hinn almenni lögreglu- maður kemur í veg fyrir með starfi sínu, góðum starfsáhuga og nær- veru við borgarumhverfið sparar þjóðfélaginu gífurlega fjármuni og þjáningar. Lögreglan hefur mikinn skilning á aðhaldsaðgerðum ríkissjóðs - og því einnig skilningn á því að þeim mun síður hefur ríkissjóður ráð á lélegri löggæslu - löggæslu sem ekki skilar uppbyggingu og arði, heldur sogar til sín fjármuni til óhentugs bráðabirgðareksturs. Það er von mín að einhverjar viðvörunarbjöllur hringi hjá þeim sem ákvörðun taka um fjárveitingar til löggæslumála og að litið verði á góða löggæslu með arðsemissjón- armið í huga og sem hagkvæma fjárfestingu - því það er hún vissu- lega og slíkt stuðlar reyndar að verulega minni löggæslukostnaði til lengri tíma litið. Höfundur er yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Pökkunar limbönd Gæðalímbönd sem bregbast ekki. Hraðvirk leið við pökkunarstörfin. J.S.Helgaíon DragháblA S:68 51 52 Örugg festing... Helstu söluaðilar BMF á íslandi: Höfn-Þrlhymingur, Hellu. S.6. búðin, Selfossi. Htteey, Vetmamæyjum. | I Suðurnes: » Jám & skip, Keflavfk. Höfuðborgars væðið: Husasmiðjan hf., Reykjavlk. Húsasmiöjan hf„ Hafnarfiröi. Vesturland: Akur hf„ Akranesi. Kaupf. Borgfirðinga, Borgamesi. Skipavlk hf„ Stykkishúlmi. Vestfirðir: Pensillinn hf„ Isafiröi. Norðurland vestra: Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi. Kaupf. Skagfiröinga, Sauðárkróki. Norðurland eystra: KEA byggingavörudeild, Lönsbakka, Akureyri. Torgið hf„ Siglufirði. Kaupf. Þingeyinga, Húsavlk. Austurland: Kaupf. Héraösbúa, Egilsstöðum. Kaupf. Fram, Neskaupstaö. K.ÆS.K. Höfn, Homafirði. Suðurland: Kaupf. Rangæinga, Hvolsvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.