Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992 u9 '■:(;>! i l.im-.m M' -'DA* U.J /U'/t! IM UI-.í/.'.'W'! S Útsalan er hafin U0% afsldttur TKSS NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. V NEl Opið virka daga 9-18, laugardaga 10-14. Nú er rétti tíminn til að hefja reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Starfsum- hverfi Ritíð Landsbréf fjall- aði nýlega um samein- ingu fyrirtækja. Þar seg- ir m.a.: „Stjómendur íslenskra fyrirtækja standa nú frammi fyrir nyög breyttu starfsumhverfi, sem víst er að muni breytast enn á næstu misserum. Samkeppni hefur harðnað í flestum atvinnugreinum, og af- koma margra fyrirtækja hefur versnað. Þá hafa afkomuhorfur miu'gra fyrirtækja versnað vegna fyrirsjáanlegrar skerð- ingar þohskkvóta á næstu ámm. Gildistaka EES-samningsins skapar sóknartækifæri fyrir út- flutningsatvinnuvegi, en jafnframt má búast við nyög aukinni samkeppni frá erlendum fyrirtækj- um á innanlandsmarkaði. Þá hefur breytt stefna stjómvalda það í för með sér að íslensk fyrirtæki verða að treysta á eigin rekstur og einstök fyrir- tæki geta ekki reitt sig á sértækan, opinberan stuðning ef illa gengur. Allar þessar breytíngar kaila á breytt vinnubrögð stjórnenda fyrirtækja. Úrslitum kann að ráða þjá íslenskum fyrirtækj- um hversu vei þeim gengur að aðiagast breyttum aðstæðum og hversu viðbragðsfþ'ót þau em.“ Sameining' Þá segir í fréttabréf- inu: „Á undanfömum ámm hefur sameining fyrirtækja verið áber- andi í íslensku viðskipta- lífi. Sameining fyrir- tækja hefur verið mest áberandi í þjónustugrein- um, sbr. sameiningu tryggingafélaga, banka, auglýsingastofa og end- urskoðunarfyrirtækja á síðustu árum. Sameining fyrirtækja í öðmm grein- um hefur farið síðar af stað, en á ailra siðustu misserum hefur samein- ing fyrirtækja í sjávarút- vegi þó verið áberandi. Sameining fyrirtækja er ekki séríslenskt fyrir- Sameining fyrirtækja Starfsumhverfi fyrirtækja breytist næstu misseri. Það kallar á breytt vinnubrögð stjórnenda. Þetta segir m.a. í fréttabréfi Landsbréfa. bæri, heldur er hér um að ræða alþjóðlega þró- un, sem hefur t.a.m. ver- ið mjög áberandi í Bandaríkjunum og í Evr- ópu. Þar gekk mikil sam- einingarbylgja yfir á síð- asta áratug, og náði há- marki á síðari hluta hans. Reynslan frá Bandaríkj- unum og Evrópu sýnir að sameining fyrirtækja skilar ekki alltaf þeim árangri, sem stefnt er að. Arangursrík sameining fyrirtækja skilar sér í auknu verðmætí viðkom- andi fyrirtækja og bætir þannig hag hluthafa. Sé þetta skilyrði ekki upp- fyllt hefur sameiningin ekki tekist fjárhagslega. Hér á eftír verða tíund- aðar helstu forsendur þess að sameining fyrir- tækja skili þeim fjárhags- lega árangri, sem stefnt er að. Hagkvæmni Sameining fyrii-tækja í stærri rekstrareiningu er því einungis fýsileg að um sé að ræða liag- kvæmari valkost en fólg- inn er í því að fyrirtæki nái sama árangri með innri vexti. Sameining getur verið fýsilegri en innri vöxtur á margan hátt, en helstu mælan- legu þættir í þessu sam- bandi eru eftirtaldir: * Áhættuminna kann að vera að mynda stærri rekstrareiningu með samruna fremur en með innri vexti. * Vöxtur með samruna tekur skemmri tíma. * Samkeppni í viðkom- andi atvinnugrein minnkar hugsanlega. * Kostnaður á hvetja einingu minnkar. Avinningur Ef ekkert þessara at- riða á við, eru engin rök sem mæla með þvi að viðkomandi fyrirtæki sameinist. Oft er unnt að meta hvort einhver ofan- greindra þátta á við með því að greina í hvaða lið- um ávinningur af sam- einingu viðkomandi fyr- irtækja er fólginn, en þar getur m.a. verið um að ræða eftirfarandi: * Kostnaður minnkar í sameinuðu fyrirtæki vegna þess að ákveðinn kostnaðarliður fellur nið- ur eða minnkar hjá öðru fyrirtækinu (s.s. stjóm- unarkostnaður). * Fé losnar við sölu fastafjánnuna, sem ekki er þörf fyrir, eða með því að hægt er að minnka veltufjármuni sameinaðs fyrirtækis. * Skattahagræði getur hlotíst af sameiningu, t.a.m. á þann hátt að ann- að fyrirtækið eigi yfir- færanlegt tap, sem sam- einað fyrirtæki getur nýtt til lækkunar skatta. * Þekking eða tækni, sem nýtt var í öðm fyrir- tækinu, nýtist í stærra fyrirtæki eftir sammn- ann og lækkar þar með kostnað. * Markaðssetning og dreifiliðir nýtast fyrir fleiri afurðir en áður. Samræmi „Nauðsynlegt að starf- semi fyrirtækja falli vel saman eða sé samræman- leg. Með því er átt við að vöm- eða þjónustuúr- val fyrirtækjanna falli vel saman, svo og við- skiptavinahópar þeirra og dreifileiðir. Enn ein mikilvæg forsenda fyrir árangri, sem oft vil því miður gleymast, er sú að stjómunarleg uppbygg- ing fyrirtækjanna sé svipuð, þannig að ekki sé hætta á árekstrum eða óánægju starfsmanna í hinu sameinaða fyrir- tæki. Það getur t.a.m. átt sér stað ef valddreifing hefur verið viðhöfð í öðm fyrirtækinu meðan sterk miðstýring hefur ríkt í hinu. Að síðustu má nefna fjárhag fyrir- tækjanna, sem einnig verður að vera samhæf- anlegur. Oftast er þannig litið unnið við að sameina tvö íjárhagslega veik fyr- irtæki. Starfsemi fyrir- tækja fellur auðveldast saman með þessum hættí þegar um láréttan sam- mna er að ræða, þ.e. þegar tvö eða fleiri fyrir- tæki í sömu atvinnugrein sameinast. Erfiðara kann að vera að skapa slíkt samræmi þegar um er að ræða lóðréttan sam- nma, eða samruna fyrir- tækja úr mismunandi at- vinnugreinum. Mestar líkur fyrir því að samein- ing fyrirtækja skili árangri em því þegar fyrirtæki í sömu atviniiu- grein sameinast, en flest- ar sameiningar íslenskra fyrirtækja hafa einmitt orðið með þeim Iiætti." Notaðu símann núna, hringdu í 62 60 40, 69 96 00 eða 99 66 99 sem er grænt númer. RÍKISVERÐBRÉFA Otímabœr og óskynsamleg Dýr í framkvæmd Utreikningur raunvaxta flókinn Bankaleynd rofin FRÉTTABRÉF VÍB: YFIRVOFANDI SKATTLAGNING SPARIFJÁR! Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi um skattlagn- ingu spari^ár. Síðasta tölublað fréttabréfs VÍB er einmitt tileinkað þeirri umræðu. Þar eru færð rök fyrir því að skattlagning sparifjár sé bæði ótímabær og óskynsamleg. Sýnt er fram á að vafasamt megi telja að eignatekjuskatt- urinn nái tekjujöfnunartilgangi sínum. Einnig er rætt við Olaf Nilsson löggiltan endurskoðanda um framkvæmda- hlið málsins. Hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfí VÍB, auk þess sem þetta tölublað liggur frammi í afgreiðslunni Armúla 13a. Verið velkomin í VIB. Kalkofnsvegl 1, Hverfisgötu 6, sími 91- 626040 sími 91- 699600 Kringlunni, sími 91- 689797 VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.