Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 28

Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JUU 1992 Minning: Sigurgeir Þorgríms son ættfræðingur Þegar DV tók þá ákvörðun að setja upp svokallað ættfræðisíðu í blaðinu, þar sem raktar eru ættir, vensl og fjölskyldubönd afmælis- barna, látinna einstaklinga eða fólks í fréttum, hófst leit að manni sem treystandi var til að sinna slík- um skrifum af nákvæmni og skyldurækni. Við staðnæmdumst fljótlega við nafn Sigurgeirs Þor- grímssonar og svo fór að Sigurgeir var ráðinn til starfans. Kom fljótt í ljós að hann var vandanum vaxinn og undir hans stjóm naut ættfræði- síða DV vinsælda og mikils lesturs. Á síðasta ári varð Sigurgeir að taka sér frí vegna veikinda, sem nú hafa leitt til fráfalls hans. Sigur- geir lét þó ekki veikindin aftra sér frá því að mæta á árshátíð og af- mælishóf DV í vor enda var hugur hans stöðugt á vinnustaðnum. Þar hafði hann lagt nótt við nýtan dag, nær óslitið á fjórða ár til að skila sínu verki. Mér er til efs að aðrir starfsmenn fyrirtækisins hafí unnið svo langan vinnudag sem bar vott um natni hans, ábyrgð og áhuga í á því verki sem hann hafði tekið að sér. Sigurgeir gekk aldrei heill til ' skógar. Fötlun hans var erfíð og honum byrði, en þess frekar vakti hann aðdáun og athygli, vegna þess að hann lét ekki bæklun sína aftra sér frá afskiptum og þátttöku á hinum ýmsu sviðum þjóðfélags- mála. Ég man eftir Sigurgeir sem ung- um manni í stúdentapólitíkinni og á fundum ungra sjálfstæðismanna og síðar var hann virkur forystu- maður í samtökum bindindismanna og íþróttafélagi fatlaðra og synti > öæði og hljóp við fót af ótrúlegum dugnaði og áhuga. Sigurgeir var einnig áhugasamur um ættfræði og sagnfræði og lauk sagnfræðiprófí frá Háskóla Islands í fyrravetur. Hann tók þátt í fé- lags- og rannsóknarstarfí þessara fræðigreina. Sigurgeir Þorgrímsson var vel greindur maður, rökvís og skelegg- ur ef því var skipta. Hann lét ekki sinn hlut. Skap hans var heitt og ríkt en var þó kurteis maður, stillt- ur og æðrulaus. Fyrir hönd samstarfsfólks á rit- stjórn DV vil ég á þessari á stundu þakka Sigurgeir fyrir góð kynni og ljúf og sérstaklega, hollustu hans og tryggð í minn garð og blaðsins. Aldraðri móður og öðrum að- standendum flytjum við innilegustu samúðarkveðjur. F.h. samstarfsfólks hjá DV, Ellert B. Scram. Það var í Safnahúsinu við Hverf- isgötu, 1975 að mig minnir, að kynni okkar Sigurgeirs Þorgríms- sonar hófust. Spurnir hafði ég haft af honum og leitaði tii hans af litlu tilefni, að ég hélt. Þá hafði ég ekki tekið eftir honum, þótt úr öðrum skæri hann sig: Maður lágvaxinn með bægifót, seinn að koma fyrir sig orði, sem tvítók oft setningar eða setningarhluta, þótt ekki stam- aði. Á Þjóðskjalasafninu rakti hann ættir upp úr kirkjubókum og átti á stundum í uppflettingum fyrir Einar Bjamason prófessor, sem hann mat ákaflega mikils. Viðstöðulaust gat hann haft yfír margar ættartölur, langt aftur í aldir ýmsar þær, sem Einar hafði rakið. Síðasta sinn er við settumst inn á kaffístofu sam- an, í ársbyijun 1992, harmaði hann, að ekki hefði verið lokið við útgáfu handrita Einars Bjamasonar. Nám í sagnfræði við Háskóla íslands stundaði Sigurgeir Þor- grímsson á níunda áratugnum, er ég sótti þar námskeið mér til gagns og gamans. Vald hafði hann ekki á öðrum útlendum tungumálum en dönsku, og kennslubækur á ensku lásum við saman við þriðja mann. Fann ég, að áhugi hans beindist fyrst og fremst að íslenskri per- sónusögu. í augum hans var sagan summa af ævisögum einstakra manna, starfs og atkvæða, (og um holisma kærði hann sig kollóttan, jafnvel svo að fyrir brjóstið á kenn- urum hans fór). Þekkti hann til ævi og ætta flestra þeirra, sem hátt bar í sögu landsins frá siðaskiptum. Aðrar greinar sagnfræði áttu síður huga hans. í ritsmíðar, hvort eð heldur um menn eða málefni, viðaði hann að mikið efni, en dró fáar ályktanir, svo sem í ritgerð um Jósafat Jónasson (Stein Dofra) í Sögu 1980 og í grein um stjómar- skrármálið í Veröld 1982. Langaði hann til að taka síðan saman sögu íslenskrar bindindishreyfíngar, sem var honum hjartfólgin, og safnaði hann að sér efni um hana. Eftir nokkurt hlé á námi lauk hann B.A. - prófí 1990, og vandfundinn mun betri inngangur að íslenskri ætt- fræði en fyrrihluti lokaritgerðar hans. í Dagblaðið Vísi hóf Sigurgeir Þorgrímsson 1987 að rita daglega greinar um ættir manna, sem frá sagði í fréttum, áttu afmæli eða létust. Urðu þær flestu öðru blað- efni víðlesnari. í fyrstu samdi hann þær einn, en síðan með öðrum fram á 1991, að hann kenndi meins, sem bót varð ekki á ráðin. í veikindum sínum sýndi hann í senn lífsvilja og æðruleysi. Með ættfræðigreinum sínum mun Sigurgeir Þorgrímsson hafa áunnið sér syllu í sögu ís- lenskrar blaðamennsku en ættfræði var honum ástríða eins og sagn- fræði sönnum sagnfræðingum. Haraldur Jóhannsson. Sigurgeir Þorgrímsson, sagn- fræðingur, lést á Landspítalanum í Reykjavík að kvöldi 8. júlí, 48 ára að aldri. Sigurgeir fæddist 4. nóvember 1943 í Reykjavík. Hann lagði stund á ættfræði og sá um ættfræðiskrif hjá DV frá 1987. Sigurgeir var þeirrar manngerðar, að hann lét sér ekkert vera óviðkomandi, ef hann taldi það vera af hinu góða. Hann var ævinlega tilbúinn að rétta þeim hönd, sem minna máttu sín, og var starfandi í mörgum félögum og fé- lagasamtökum, og var þar alls stað- ar góður liðsmaður. Hann starfaði mjög mikið í góðtemplarareglunni og gegndi þar embætti stórriddara frá árinu 1980 til 1992. Sigurgeir gerðist formaður íþróttafélags fatlaðra árið 1987 og var formaður til ársins 1990. Hann hafði mjög mikinn áhuga á fram- gangi félagsins og vann mjög mikið starf sem formaður þess. Nú er komið að leiðarlokum. Við félagsmenn í ÍFR kveðjum fyrrver- andi formann okkar. Við kveðjum hann með þakklæti fýrir hans störf í þágu félagsins og vináttu hans við okkur. Fjölskyldu Sigurgeirs sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum honum blessunar guðs. F.h. íþróttafélags fatlaðra Reykjavík, Jón Sigurðsson, formaður. í dag kl. 13.30 verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju Sigurgeir Þorgrímsson, blaðamaður og sagn- fræðingur. Hann lést á Landspítal- anum miðvikudagskvöldið 8. júlí eftir að hafa átt við erfíð veikindi að stríða sl. eitt og hálft ár. Sigurgeir fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1943 og ólst þar upp í foreldrahúsum ásamt tveimur yngri bræðrum. Auk þess fæddist foreldr- um hans fjórði sonurinn sem dó í bamæsku. Fyrstu árin átti Sigur- geir heima í Norðurmýrinni en fjöl- skyldan flutti í Hlíðamar þar sem hann bjó síðan. Þar hélt hann svo heimili með aldraðri móður sinni meðan honum entist aldur. Sigurgeir var sonur hjónanna Þorgríms Magnúsonar, f. 12. des- ember 1905, d. 13. september 1964, forstjóra í Reykjavík, og Ingibjarg- ar Sveinsdóttur, f. 25. nóvember 1911, húsfreyju. Bræður Sigurgeirs em Sveinn Þorgrímsson, staðarverkfræðingur við Blönduvirkjun, og Magnús Þor- grímsson, sálfræðingur í Borgar- nesi, en sá bróðir Sigurgeirs sem dó í barnæsku hét Sveinn Emil Þorjgrímsson. Eg man eftir Sigurgeir frá því fyrir tæpum tuttugu ámm á fund- um ungra sjálfstæðismanna og lýð- ræðissinnaðra stúdenta. Um það leyti sótti ég stundum föstudagsfyr- irlestra Guðspekifélagsins en þar var þá Sigurgeir einnig mættur, augljóslega mjög áhugasamur um málefni guðspekinnar. Ég minnist þess að eftir einn fyrirlesturinn tók Sigurgeir mig tali og spurðist fyrir um heimspeki- námið sem ég þá stundaði við HI Samræðurnar drógust á langinn þar sem við röltum um Þingholtin þetta kyrrláta skammdegiskvöld. Sigur- geir var ekki í rónni fyrr en ég hafði eftir bestu getu greint honum frá helstu sönnunum fyrir tilvist guðs sem vestræn heimspeki hefur upp á að bjóða auk þess sem við höfðum svo sitthvað til málanna að leggja frá eigin bijósti. Þetta var upphafíð að okkar kunningsskap en við áttum síðar margar samræður um heimspekileg álitamál. Samskipti okkar urðu svo öllu meiri fyrir réttum fímm árum er hann kom til liðs við ritstjórn DV í því skyni að sjá um persónufræði- skrif blaðsins. Jónas Kristjánsson ritstjóri hafði spurt mig nokkrum dögum áður hvort ég hefði vit og áhuga á ætt- fræði og hvort ég teldi að hægt yrði að skrifa í blaðið eina síðu á dag þar sem íslenskir einstaklingar væru með ættgreiningu tengdir þjóðkunnum mönnum. Fyrri spurn- ingunni svaraði ég afdráttarlaust neitandi en þeirri síðari eitthvað á þá leið að ef einhver gæti haldið úti daglegum skrifum af þessum toga þá væri það Sigurgeir Þor- grímsson. Þá brosti Jónas og sagði: „Þú þykist ekkert vita um ættfræði en þetta veistu a.m.k. Ég hef haft tal af fjölda ættfræðinga sem allir vísa á Sigurgeir til starfans.“ Það er svo skemmst frá því að segja að Sigurgeir vann einstakt þrekvirki er hann á þremur og hálfu ári lagði grunninn að og skóp að mestu gagnasafn DV um ættir ís- lenskra einstaklinga. Án þess fram- lags væri persónufræði DV öll önn- ur og mun fátæklegri en raun ber í vitni. Sigurgeir lauk BA-prófí í sagn- fræði frá HÍ vorið 1990. Það próf er þó ekki vísbending nema um brotabrot af þeirri menntun sem hann hafði aflað sér, oftast með sjálfsnámi. Hann hafði til að bera yfír- gripsmikla almenna söguþekkingu, var sérstaklega vel að sér í sögu íslands, Færeyja og annarra Norð- urlanda og bjó yfír ótrúlega ítar- legri þekkingu á íslensku samfé- lagi, einstaklingum þess, embætt- um þeirra, æviþáttum og ættar- tengslum. Eftir að hafa starfað með Sigur- geir við ættfræðiskrif DV í þijú og hálft ár er ég þess fullviss að hann kunni m.a. nokkur skil á öllum al- þingismönnum íslendinga allt frá 1845. Þó taldi hann sig ekki á heimavelli fyrr en íslenskar mið- aldaættir báru á góma en í þeim efnum efast ég um að hann hafi átt sér jafningja. Kynni okkar Sigurgeirs meðal guðspekinga forðum daga var engin tilviljun. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á trúmálum, lífsspeki og dulskpeki ýmis konar. I þeim efnum kynnti hann sér fordómalaust allt sem hann komst yfír, kenningar guðspekinga, spíritista og Nýalls- sinna og guðfræði réttrúnaðar, fijálslyndis og kaþólskra, auk dul- spekikenninga aftan úr miðöldum eða austan úr Asíu sem ég kann engin skil á. Þá sýndi hann það í samræðum um heimspeki að hann var vel að sér í almennri hugmynda- sögu, hafði áhuga á heimspekileg- um rannsóknum, var rökvís í þeim efnum og beitti heimspekilegum hugtökum af kunnáttu. Sigurgeir var augljóslega trú- hneigður en trú og trúhneigð er sitthvað. í veikindum hans varð t Eiginmaður minn, BJARNI BJARNASON, Hörgsdal, verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju á Síðu fimmtudaginn 16. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna og barnabarna, Dórothea Theodórsdóttir. t Minningarathöfn um son okkar, HELGA THEÓDÓR SVEINSSON, verður í Fossvogskapellu fimmtudaginn 16. júlí kl. 10.30. Fyrir hönd systkina hins látna, Sveinn Sveinsson, Ingibjörg Theódórsdóttlr, Þórufelli 10. t Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og föðurbróðir, SIGURGEIR ÞORGRÍMSSON sagnfræðingur, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 15. júll, kl. 13.30. Ingibjörg Sveinsdóttir, Magnús Þorgrímsson, Guðfinna Magnúsdóttir, Sveinn Þorgrímsson, Ingibjörg Sveinsdóttir, Þorsteinn Sveinsson. Anna Þóra Árnadóttir, Þorgrímur Sveinsson, mér svo ljóst að hann var einnig trúaður og að trú hans var mikil, enda nærtækasta skýringin á því fullkomna æðruleysi sem hann sýndi síðustu mánuðina og vikurn- ar. Sigurgeir var sannmenntaður í þeim skilningi að hann lærði það sem hann hafði áhuga á og lærði það vel. En eiiiungis vegna áhugans á viðfangsefninu. Hann sótti ekki skóla né þreytti próf eins og nú er að verða alsiða, vegna námslána, yfírborðskenndra mannvirðinga eða traustari fjáhagsafkomu. Þekking og mannlegur skilningur voru hon- um meira virði en svo að slíkt yrði fyrst og fremst í askana látið. Reyndar hafði Sigurgeir einlæg- an áhuga á öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Ég efast um að nokkur laun hafí verið honum þýð- ingarmeiri en sú umbun sem sam- viskusamur maður fínnur í vand- virkni sinni að verkslokum. Slík fágæt afstaða heyrir til sérvisku og á sér fá griðlöng í afkastasamfé- lagi nútímans. Því er það ævintýri líkast að einmitt í hraða og hringiðu fjölmiðlanna hafí sérþekking og sérviska Sigurgeirs komið að svo frábærum notum síðustu starfsár hans. Sigurgeir var vel að sér í íslensk- um og ýmsum erlendum bókmennt- um. Hann var áhugamaður um kvikmyndagerð og leiklist og sótti tónleika og málverkasýningar hve- nær sem færi gafst. Síðast en ekki síst vann Sigur- geir óhemju mikið félagsstarf. Hann starfaði í áraraðir að bindind- ismálum og komst til æðstu met- orða íslenskra góðtemplara, vann þrotlaust að málefnum Iþróttafé- lags fatlaðra í Reykjavík og var formaður þess um skeið, gegndi trúnaðarstörfum fyrir Ættfræðifé- lagið og var virkur þátttakandi í fjölda annarra félaga sem aðrir kunna betur frá að greina. Ég kveð með söknuði einstakan mann og góðan vin. Móður hans, bræðrum og fjölskyldum þeirra sendum við hjónin okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Kjartan Gunnar Kjartansson. Nú er genginn góður maður, sem lagði af mörkum mikið starf á þeim sviðum sem voru áhugamál hans, enda þótt fötlun hans gerði honum að ýmsu leyti erfítt um vik. Sú var tíðin fyrir áratug, að við hittumst á hveijum degi vegna sameiginlegs áhuga okkar á gömlum ættum, skjölum, sagnfræði og trúmálum. Hann var víðlesinn og spurull og sótti til mín viðbótarþekkingu um áhugasvið sín, sem voru margvís- leg: Ættfræði, trúarbragðafræði, kristin trúfræði, menningarsaga. (Við ræddum m.a. um Toynbee og skoðanir hans.) Við vorum einnig saman innan ramma Góðtemplara- reglunnar meðan ég var þar og nú síðast innan Ættfræðifélagsins. í Reglunni reis hann til hæstu met- orða, varð framkvæmdastjóri í 12 ár eða stórritari, eins og templarar kalla það embætti, og hefur það verið í höndum úrvalsmanna um meira en öld. Meistarastykki hans var þó á sviði ættfræðikennslu, er hann gerðist einn af upphafsmönn- um hinnar miklu ættfræðivakning- ar hér á landi, þegar hann var ráð- inn til að ritstýra ættfræðisíðum DV sumarið 1987. Þannig sannaði hann að hin þjóðlega íþrótt ætt- fræðinnar gat verið góð söluvara, og gerði þar með óþjóðlegum út- lendingsskap í viðhorfum til ætt- fræðinnar skömm til. Þegar ég sýndi þátttakendum á norrænu ættfræðiþingi í Ósló 1989 ættfræði- síðu DV og afmælis- og minningar- greinasíður Morgunblaðsins til að sýna þeim gildi ættfræðinnar í mínu heimalandi, urðu þeir stórhrifnir. Slíkt höfðu þeir aldrei séð fyrr. Kona nokkur sagði að þetta ættu byggðablöðin að taka upp annars staðar á Norðurlöndum. Er það annars ekki merkilegt, að blöðin sem halda upp á hina þjóðlegu ætt- fræði þurfa ekki að kvarta undan kaupendaleysi? Það er kannske höf- uðhlutverk og köllun Sigurgeirs í lífinu að vinna þetta verk, og veit ég að hann hefði verið mér sam- mála, svo hjartfólgið var honum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.