Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 29
þetta efni. Ég er honum persónu- lega þakklátur fyrir að hafa rakið móðurætt mína aftur um tvö þús- und ár, alla leið til hershöfðingja Alexanders og þeirra persnesku prinsessa með millilendingu hjá Ottó keisara II. og páfafrænda og Jóni í Suðurheimi, sem var ættfaðir Gottskálks biskups Nikulássonar, en hann var ættfaðir séra Álfs-ætt- arinnar í Kaldaðamesi í Flóa, sem átt hefur heima í Flóagaflinum í 400 ár. Ég sakna Sigurgeirs og harma það að geta ekki talað við hann framar um sameiginleg hugðarefni. En líf og dauði eru hvort tveggja hluti af sköpun Guðs. Lífíð til þessa heims, dauðinn til eilífs lífs. Eða eins og Gunnar Dal skáld segir: „Það skilur enginn augnablikið fyrr en það er farið. Það skilur enginn nýja sköpun, fyrr en henni er lokið. Og enginn þekkir stund hamingjunnar, fyrr en hún er liðin. Nútimann þekkir enginn - nema sá einn sem lifir í eilífðinni. (Or „Raddir morgunsins") Kolbeinn Þorleifsson. En nvað er þá tíminn? Ef enginn spyr mig, veit ég. En vilji ég svara þeim sem spyr, veit ég ekki. (Ágústínus kirkjufaðir.) Þú segir tímann líða. Ó nei. Tíminn stendur í stað: - við - hverfum á braut. (Óþekktur höfundur.) Vinur minn og samhetji, Sigur- geir Þorgrímsson sagnfræðingur, lést fyrir aldur fram að kvöldi 8. júlí 1992 eftir erfíð veikindi. Hann fæddist þann 4. nóvember 1943, sonur hjónanna Ingibjargar Sveins- dóttur og Þorgríms Magnússonar. Mikill ættfræðingur er horfinn sjónum. Nafn hans hefur hlotið sess í fortíðinni. Við nafn hans tengist nú bókstafurinn d að viðbættum punkti og dagsetningu hans hinsta dags, líkt og við nöfn tugþúsunda genginna íslendinga sem hann vissi deili á, vissi nöfn þeirra, ævistundir og margvísleg örlög. Voru sumir andvana fæddir, en aðrir langlífir. Áttu sumir illa ævi, en aðrir góða. En sú stund kom, að þeir viku af sviðinu, stundum án þess að ljúka hlutverkinu að því er virtist. Undrast mátti leikni Sigurgeirs við ættrakningu. Hann þekkti kannski ekki alla viðstadda sem bættust í hóp á mannfundunum, en hann kannaðist þá að öllum lík- indum við foreldra þeirra og altént ’við ömmur og afa og þeirra fram- ættir aftur í aldir. Hratt og hik- laust komu nöfnin, bæir og skyld- leiki við aðrar ættir. Fortíðin lifnaði og dó til skiptis, fæðing og dauði jafnoft nefnd, tengd ævi mannsins eins og lífið sjálft, ekki eins - en jafn náttúruleg. Þótt Sigurgeir væri inntur eftir ættum manna, var það síður en svo umræðuefni á kostnað annarra, því að áhugamál hans voru mörg. Hann var mannvinur og maður hugsjóna. Hann var félagsmaður og hafði unun af að skipuleggja atburði sem sameinaði fólk til átaka og sam- vinnu við góð málefni. Að skilnaði er mér þakklæti í huga fyrir sam- starf og stuðning við sitthvað sem við höfuin tekið þátt í með öðrum samheijum. Síðasta áratuginn var árlegur Hjólreiðadagur á vegum Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra haldinn Sérfræóingar í blómaskreytingum vió öll tækifæri I"W%) blómaverkstæði MlNNA^ Skólavörðustíg 12 á horni Bergstaðastrætis sími 19090 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992 29 með mikilli þátttöku skólabarna í Reykavík og nágrenni. Vígorðið var: „Hjólað í þágu þeirra sem geta ekki hjólað", en árangursrík fjár- söfnun fór fram í tengslum við Hjól- reiðadaginn. Eftir nokkurra ára hlé, en söfnunardagur þessi hafði kraf- ist tímafrekrar skipulagningar, vinnu og fómfýsi kvennadeildar styrktarfélagsins, stóð Sigurgeir Þorgrímsson fyrir vel heppnuðum en jafnframt hinum síðasta Hjól- reiðadegi í samvinnu við verslanir Kringlunnar. Sigurgeir var þá for- maður íþróttafélags fatlaðra. Sigurgeir var allt frá upphafi áhugasamur um svonefnda Sól- stöðuhátíð um sumarsólstöður. Meginathöfn hennar er hin árlega Sólstöðuganga um Reykjavík og nágrenni, en þátttakendum er fijálst að koma og fara að vild meðan á göngu stendur. Hin fyrsta var reyndar farin frá Þingvöllum til Reykjavíkur og skipulagði Sigur- geir þátttöku fatlaðra þá og síðar. Framkvæmdastjóri göngunnar sjö sl. ár hefur verið Einar Egilsson, en Sigurgeir var í undirbúnings- nefnd ásamt okkur Guðlaugi Leó- syni. Gönguna höfum við í gamni og alvöru kallað „meðmælagöngu með lífinu og menningunni". Þenn- an dag skyldi fagna jákvæðum hlið- um tilverunnar. Sólstöðuhátíð er ætlað að vera fjölbreytt og þreyttist Sigurgeir ekki á að minna á, að atriði sólstöðugöngu ættu sum að vera hugvekjandi og menntandi. Sigurgeir Þorgrímsson var ráðjagfí er hópur áhugamanna hófu söfnun upplýsinga fyrir samningu Reynifellsættar, en hún er rakin til Þorgils Þorgilssonar og Guðrúnar Erlendsdóttur sem bjuggu á Reyni- felli á Rangárvöllum um miðja átj- ándu öld. Margir Rangæingar eru frá þeim komnir, en að vonum hafa afkomendur dreifst um land og álf- ur. Ráð Sigurgeirs gáfust vel og sömuleiðis var hið mikla gagnasafn hans ómetanleg náma í fyrstu áföngum verksins sem nýverið er lokið. Reynifellsætt verður væntan- lega nokkurra binda verk og hefur nú við fráfall Sigurgeirs verið ákveðið að tileinka ritið minningu hans, hins mikla ættfræðings, en hann var raunar einnig af rangæsk- um ættum. Sigurgeir var frá upphafi stuðn- ingsmaður hugmyndar um eflingu Odda á Rangárvöllum og meðal stofnenda Oddafélagsins sem var stofnað 1. desember 1990. Hug- myndin er að í Odda rísi með tíð og tíma miðstöð náttúrufræða og þjóðlífs þar sem einkum yrði lögð stund á samtvinnaða sögu lands og lýðs í Rangárþingi, en einnig um- hverfí og lífsskilyrði á íslandi og gervallri jörðinni. Sigurgeir var í fulltrúaráði Oddafélagsins og reyndist þar sem annars staðar full- ur áhuga og fijór af hugmyndum um framkvæmd og stefnu. í jólakveðjum kom í ljós, að Sig- urgeir var mikill trúmaður. Þykist ég vita, þótt það bærist aldrei í tal hjá okkur öll þessi ágætu samtöl í áratug, að hann hafi ekki talið manninn öldungis allan, þegar hann að ævilokum hlyti bókstafínn d og punkt fyrir aftan nafnið sitt — og sess í fortíðinni. Já, vísast er Sigur- geir vinur minn léttari í spori nú en sólstöðunótt eina forðum er við ásamt öðrum göngumönnum klöngruðumst um úfíð og ógreið- fært Gálgahraun, og studdum hvor annan, ég hann og hann hugmynd mína. Hvað sem tímanum líður og skilningi á honum, verður tómarými við brottför Sigurgeirs og munu vinir hans minnast hans með hlýhug er þeir nú halda áfram göngunni enn um sinn. Ástríkri móður hans, bræðrum og öðrum skyldmennum vottum við Jóhanna kona mín sam- úð okkar á sárri skilnaðarstundu. Þór Jakobsson. Fleirí minningargreinar um Sigurgeir Þorgrímsson bíða birtingar og munu birtast næstu daga. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, INGIGERÐUR EINARSDÓTTIR, Langholtsvegi 206, er andaðist 5. júlf, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudag- inn 16. júlí kl. 15.00. Sigríður Helgadóttir, Einar Helgason, Vigfús Helgason, Halldór Helgason, Jakob Helgason, Kristinn Helgason, tengdadætur, barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. t Eiginmaður minn, ÓLI KRISTJÁN SIGURÐSSON, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 17. júlí kl. 13.30. GunnÞórunn Jónsdóttir. t MAGNÚS ELlASSON frá Bolungarvík, lést í Hrafnistu 13. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Lilja Þorbergsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, MAGNEA BJARNADÓTTIR, Reynivöllum 5, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 17. júlí kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti Ljós- heima, hjúkrunardeild aldraðra á Selfossi, njóta þess. Tage Rothaus Olesen, Bjarni Olesen, Jóhanna Guðjónsdóttir Öfjörð, Óii Olesen, Ágústa Olesen og barnabörn. t Móðir okkar, LAURA PROPPÉ, andaöist sunnudaginn 12. júlí. Brynhildur Garðarsdóttir, Drffa Garðarsdóttir, Edda Garðarsdóttir, Hanna Garðarsdóttir, Ólafur Garðarsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVANBJÖRN FRÍMANNSSON fyrrverandi Seðlabankastjóri, verður jarðsunginn frá Héteigskirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á hjúkrunarheimiliö Skjól eða Barnaspítala Hringsins. Hólmfríður Andrésdóttir, Andrés Svanbjörnsson, Björk Sigrún Timmermann, Sigriður Halldóra Svanbjörnsdóttir, Ásgeir Thoroddsen, Agnar Frfmann Svanbjörnsson, Ásta Sigrfður Hrólfsdóttir, barnabarnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, DÝRLEIFAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR fró Grfmsey. Sérstakar þakkirfærum við starfsfólki hjartadeildar 14-E Landspít- alans fyrir góða umönnunn og einstaka hlýju í garð hinnar látnu. Margrét Þórisdóttir, Helgi Þórisson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og sanna vináttu, vegna andiáts og útfarar elsku eiginkonu, dóttur, móð- ur, tengdamóður og ömmu, ERLU GUÐRÚNAR GESTSDÓTTUR, Þúfubarði 9, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við Systrafélagi og kór Víðistaðakirkju og félögum úr karlakórnum Þröstum, tónlistarfólki öðru og vinum er lögðu okkur lið. Ármann Eiríksson, Gestur Gamalíelsson, Jóna Guðmundsdóttir, Jón Gestur Ármannsson, Ásta Birna Ingófsdóttir, Steinunn Eir Ármannsdóttir, Alfa Karitas Stefánsdóttir, Hermann Ármannsson. t Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför SIGRÍÐAR AUÐUNS. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hvíta þandsins og deildar B-5, Borgarspítala. Sigrfður Torfadóttir, Auður Torfadóttir, Sigurður Gústavsson, Torfi Sigurðsson, Gústav Sigurðsson. AuðurAuðuns. Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur okkar, systur og barnabarns, SVÖVU SÓLBJARTAR ÁGÚSTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir sendum við ýmsum félagasamtökum og ein- staklingum fyrir veittan stuðning í veikindum hennar. Inga Þ. Arnbjörnsdóttir, Ágúst Þ. Skarphéðinsson, Eggert Þ. Ágústsson, Jóna S. Ágústsdóttir, Ágúst Þ. Ágústsson, Jóna Ólafsdóttir, Arnbjörn Ólafsson. Birtíng afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og ininningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsfjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. -I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.