Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 37

Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 37
tlffi Si Wjfeíí'! Jiíii VíH't; s-'-JS'iAMMjeíiaR <§£ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGURT15. JÚLÍ1992'.................. ’ 37 Trúarhópar Frá Guðna Thorarensen: ÉG hef fjallað um nokkra trúarhópa og ættir þú sem hefur fylgst með þessum skrifum mínum að geta dæmt um það hvort þessir hópar eru réttir eða rangir samkvæmt orði Guðs. Við megum ekki gleyma að til eru fleiri hópar sem boða trúa á Guð. Þetta eru svokallaðir smáhópar sem að annað hvort er klofningur út úr öðrum hópum eða armleggur út úr einum stórum. Ungt fólk með hlutverk, Vegurinn, Krossinn og KFUM og K eru aðeins lítill hluti af öllum þessum hópum. Allir þessir hópar boða yfirleitt sömu trú og ís- lenska þjóðkirkjan. Til þess að geta sjálf dæmt um það hvort hóparnir eru þeir einu sönnu eða ekki er best að taka Bibl- íuna í hönd og lesa ef við höfum yfir höfuð nokkurn áhuga á þessu efni. í öllum þeim hópum að mínu mati sem eru til hér á landi er eng- inn af þeim hinir einu sönnu vegna þess að ef við lítum örlítið á þessa hópa og lítum síðan á það sem Bibl- ían segir þá sjáum við að þessir hópar eru ekki alveg sannleikanum samkvæmir. Þegar talað er um trú er ekki endilega átt við trú á Jesú Krist. Trú getur nefnilega Verið af ýmsum toga. Við getum trúað á allt milli himins og jarðar, s.s. sjónvarpið, náungann, stjarnfræði og heimspeki svo eitthvað sé nefnt. Allt þetta getur fyllt okkur sjálfstrausti í ein- hvern tíma en aldrei allt okkar líf. Tilgangurinn með lífinu getur því verið svolítið misjafn eftir einstakl- ingnum. Hver einstaklingur er mis- jafn eins og trúin en allir þrá það eitt að trú á eitthvað sem við getum ekki skilgreint en bara trúum á það til að trúa á eitthvað. Ef einhver hefur eitthvað að segja í þessu máli eða vill spyija um eitt- hvað þá láti hann eða hún til sín heyra og skrifi beint til mín. Við skulum nú ljúka þessari yfír- ferð minni um trúarhópana sumum til mikils léttis með þessum orðum. Verum ánægð og lifum heil. GUÐNI THORARENSEN, Melsíðu 6d, Akureyri. JMtagniif í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁDHÚSTORGI VELVAKANDI ÁNÆGJULEG DVÖLÁ TORREMOLINOS Guðlaug Erla Jónsdóttir: Þá lagt er í ferðalag snemma vors, er oft spurning um hvert skuli fara, hvar besta veðrið er o.s. frv. Við hjónin ákváðum að fara um páskana til Torremolinos á Spáni og við veðjuðum svo sannarlega á réttan hest þar. Ferðin var á vegum Úrval-Útsýn, og fararstjóri var Ingibjörg Hjal- talín Jónsdóttir. Hún var ásamt öðrum fararstjórum tilbúin að greiða götu okkar í hvívetna. Veðrið var eins og best varð á kosið þessar tvær vikur, hitinn rúmar 30 gráður á daginn en rétt um tuttugu gráður á kvöldin. Torremolinos er snyrtilegur og hreinlegur bær, með ótal góðum matsölustöðum og afskaplega þægilegu afgreiðslufólki. Boðið var upp á ýmis ferðalög; til Gí- braltar, á heimssýninguna í Se- villa, Granada og jafnvel til Afr- íku. Hægt var að nota lestir ef skreppa þurfti til Malaga eða taka áætlunarbílana sem ganga til hinna ýmslu fögru smábæja í grendinni. Minningar um vel heppnað páskafrí eru mér mikils virði og vona ég að ég eigi aftur eftir að koma á þessar slóðir því alltaf er eitthvað nýtt hægt að sjá. ARMBAND Armband úr gulli og hvítagulli tapaðist fyrir skömmu, sennilega við Faxafen. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 53840. Fundarlaun. REGNGALLI Glænýr, ónotaður, tvískiptur regngalli (Micropor by Frantical, stærð L) tapaðist í Þórsmörk ferðahelgina 3.-5. júlí. Finnandi vinsamlega hafi samband við Eygló í heimasíma 666981 eðá vinnusíma 674700. HESTUR Hinn 25. júní tapaðist fimm vetra moldóttur hestur úr girðingu að Varmárbökkum í Mosfellsbæ. Hann er með mikið fax og járnað- ur. Þeir sem geta gefið upplýs- ingar um hestinn eru vinsamleg- ast beðnir að hringja í síma 666836. KETTLINGUR Gulböndóttur kettlingur, um sjö vikna gamall, hefur verið í óskil- um að Hraunbrún 37 í Hafn- arfirði. Eigandi hans er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 52156. KETTLINGAR GEFINS Tveir átta vikna kettlingar fást gefins, læða og högni. Upplýs- ingar í síma 619876. Tvær þriggja mánaða læður, önnur kolsvört og hin svört og gulbröndótt, fást gefins. Upplýs- ingar í síma 40496. TÝNDUR KÖTTUR Kötturinn á myndinni heitir Brand- ur og hvarf frá Laugar- nesvegi 42 fyrir þremur vikum. Hans er sárt saknað. Hann er ársgam- all, svartur og ljósbrúnn. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans vinsamlega hringi í síma 814086 eða síma 39987. Toppskórinn VELTUSUNDI • SÍMI: 21212 ESPADRILLUR Ýmsir litir - Ýmsar stærðir FRONSKU LAMPARNIR FALLEG HÖNNUN MARGAR GERÐIR le Öauphin FRANCE HEKLA LAUGAVEG1174 S 695500/695550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.