Morgunblaðið - 11.08.1992, Page 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ 099 BARCELONA '92 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1992
HANDKNATTLEIKUR
Aldrei möguleiki
gegn frískum
Frökkum
ÍSLENDINGAR áttu aldrei möguleika á sigri í leiknum gegn Frökk-
um í Barcelona á laugardag, þar sem þjóðirnar áttust við í leik
um þriðja sætið og þar með bronsverðlaun í handknattleiks-
keppni Olympíuleikanna. Það verður að segjast eins og er að
Frakkar voru betri, kraftmeiri og einbeittari, og því fór sem fór.
Sigur þeirra, 24:20, var öruggur og Frakkar hömpuðu bronsinu.
Varnarleikur íslenska liðsins, sem verið hafði sterkasta vopn
þess í keppninni, brást á laugardag, sóknarleikurinn var alls
ekki nógu góður heldur og leikmenn voru daufir í dálkinn á eft-
ir. En því má ekki gleyma að liðið var þarna að ná betri árangri
en nokkurt íslenskt landslið hefur náð. Fjórða sæti á Ólympíuleik-
um verður lengi í minnum haft, þó svo bronsið hafi verið svo
náiægt að erfitt sé að sætta sig við að hafa misst af því.
Skapti
Hallgrímsson
skrífar frá
Barcelona
Það var ljóst strax í byrjun hvert
stefndi. Frakkar gerðu þijú
fyrstu mörkin og íslendingar skor-
uðu ekki fyrr en í
fímmtu sókn sinni.
Munurinn var þó
ekki mikill framan
af, en mestur fjögur
mörk undir lok hálfleiksins. Valdi-
mar minnkaði hann svo í þijú mörk
er hann skoraði úr víti rétt fyrir
leikhlé.
Það var svo í byijun seinni hálf-
leiks sem Frakkar gerðu út um leik-
inn. Gerðu fjögur fyrstu mörkin,
og munurinn þá orðinn sjö mörk.
Vömin var sofandi á þessum kafla
og lítil ógnun í sókninni. Strákunum
gekk erfiðlega að athafna-sig gegn
5-1 vöm Frakka þar sem Jackson
Richardsson var mjög hreyfanlegur
og kom langt út til að trufla. En
heppnin var svo sem ekki með ís-
lenska liðinu heldur og ekki græddi
það á dómgæslunni. Svo mikið er
víst.
íslendingar klóruðu aðeins í
bakkann um miðjan hálfleikinn en
Frakkar tóku þá aftur á sprett og
náðu sjö marka forystu á ný. Þá
var um hreina yfírburði þeirra að
ræða á vellinum. En undir lokin var
eins og íslenska liðið hrykki í gang,
Konráð Olavson hleypti nýju blóði
í leik þess er hann kom inn á, en
þessi kafli kom allt of seint. Mögu-
leikamir vom roknir út í veður og
vind áður.
íslenska liðið lék einfaldlega ekki
nógu vel að þessu sinni til að ógna
Frökkum. Vitað var að Frakkar
leika yfirleitt mjög gróft, þannig
að taka verður hraustlega á móti
þeim. Það var ekki gert og því fór
sem fór. Frakkar vom mun grimm-
ari en íslensku strákarnir, frekari
og virtust trúa betur á sjálfa sig.
Frakkar eiga gott lið, en leiki ís-
lenska liðið af eðlilegri getu á það
að geta sigrað það franska. Guð-
mundur Hrafnkelsson stóð sig vel
í markinu og Bergsveinn varði fjög-
ur erfið skot er hann skrapp inn
á. Vörnin var ekki góð sem fyrr
segir, og sóknarleikurinn allt of
fáimkenndur. Falleg tilþrif sáust
þó annað veifið, glæsileg mörk, en
liðið missti boltann allt of oft og
sóknarnýtingin var ekki nema
43,3%.
Vonbrigði!
íslensku leikmennimir gátu ekki leynt vonbrigðum sínum eftir að hafa misst af bronsvt
og Patrek Jóhannesson niðurlúta innan um sigrihrósandi Frakka.
ísland — Frakkland 20:24
Palau Sant Jordi íþróttahöllin í Barcelona, leikur um
3. sætið í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, laug-
ardaginn 8. ágúst 1992.
Gangur leiksins: 0:3, 2:3, 2:4, 3:4, 3:5, 4:5, 4:7, 5:7,
5:8, 6:8, 6:9, 7:9, 7:10, 8:10, 8:12, 9:12, 9:16, 10:16,
10:17, 13:17, 13:18, 14:18, 14:19, 15:19, 15:22, 16:22,
16:23, 20:23, 20:24.
ísland: Valdimar Grímsson 5/3, Gunnar Gunnarsson
4, Héðinn Gilsson 3, Konráð Olavson 3/1, Júlíus Jónas-
son 3, Jakob Sigurðsson 1, Birgir Sigurðsson 1. Geir
Sveinsson, Einar Gunnar Sigurðsson og Patrekur Jó-
hannesson skoruðu ekki en léku allir með.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9 (þar af 2 er
knötturinn fór aftur til mótheija), Bergsveinn Berg-
sveinsson 4/2 (þar 1/1 er knötturinn fór aftur til mót-
heija).
Brottvísanir: 14 minútur. (Reyndar var Einari Gunn-
ari vísað út af er 1,08 mín. var eftir og Birgi sex sek.
fyrir leikslok, þanhig að íslendingar voru ekki utan
vallar nema í rúmar ellefu mínútur)
Frakkland: Laurent Munier (nr. 15) 6, Frederic Volle
(nr. 5) 4, Erie Quintin (nr. 11) 4, P. Gardent (nr. 13)
3, Pascal Mahe (nr. 3) 2 og 1 mark gerðu: Denis Latho-
ud (nr. 6), Gael Monthurel (nr. 9), Thierry Perreux
(nr. 14), Jackson Richardsson (nr. 17) og S. Stoecklin
(nr. 19).
Varin skot: Thiebaut 8.
Brottvísanir: Átta mínútur.
Dómarar: Grigorij Guterman, Litháen og Júrí Tarano-
ukhine, Rússlandi.
Vantaði kraft
ísókn-
arleikinn
„ÞEIR komust á undan okkur
strax i byrjun, gerðu fyrstu þrjú
mörkin og það var vitað mál
að erfitt yrði við þá að eiga ef
þeir kæmust svona yfir strax,“
sagði Júlíus Jónasson, sem
hafði einmitt varað við þessum
hlut í Morgunblaðinu á laugar-
dag. Að ef Frakkarnir næðu
forystu væri leikgleðin mikil hjá
þeim og mikill kraftur færi í að
reyna að elta þá uppi.
Við lékum illa í vöm í fyrri hálf-
leik. Samt var ekkert hjá þeim
sem kom okkur á óvart, þeir léku
eins og við reiknuðum með. Þetta
var sennilega ekki góður handbolti,
hjá hvorugu liðinu, aðallega vegna
spennu og þreytu, og ég er pottþétt-
ur á því að ef við myndum spila
við þá aftur eftir svona þijár vikur,
þegar menn hafa jafnað sig af
þreytunni, yrði leikurinn ekki svona.
Ég er til dæmis orðinn mjög þreytt-
ur eftir þetta mót og fann fyrir því
í leiknum."
Júlíus sagðist á því að trú ís-
lensku leikmannanna á sjálfa sig
hefði verið næg, því þeir hefðu ver-
ið að gera góða hluti í keppninni.
„En í dag vantaði kraft í sóknarleik-
inn. Menn héldu sig of mikið frá
snertingu og þetta varð ekki eins
mikill hasar og ég hafði átt von á.
Þeir sóttu langt út á móti okkur í
vörninni og við höfum kannski
bakkað enn utar á völlinn vegna
þess.“
Júlíus sagðist „geysilega svekkt-
ur yfir úrslitunum. En þetta hefði
þó getað verið verra. Við vorum þó
að spila um bronsið. En svona er
lífið, og íþróttirnar..."
Mestu vonbrigdin
Jakob Sigurðsson var fámáll eftir Frakkaleikinn. „Hvað er hægt
að segja eftir svona Ieik? Þetta eru einfaldlega mestu vonbrigði
sem maður hefur orðið fyrir. Ef mig hefur einhvern tíma langað til
að gráta þá er það núna,“ sagði hann.
Morgunblaðið/F
Gunnar Gunnarsson fékk oft óblíðar móttökur hjá varnarmönnum Frakka. Hér sýnir hann mikið áræði og skorar eitt af fj
mörkum sínum þrátt fyrir erifða skotstöðu.