Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR iSUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1992
Smiðjan
ElliARBÖRKIJR
í HINUM sólríka suðurhluta Portúgals á Spáni og í Norður- Afríku
vex merkileg og sérkennileg eikartegund Quercus Suber, kork-eik-
in. Eikartegund þessi býr yfir þeim sérstaka eiginleika að börkur
hennar er verðmætt hráefni sem losnar af trénu með nokkurra ára
millibili. Má líkja landeigendum er eiga svæði með slíkum eikartrjám
við sauðfjárbændur sem rýja fé sitt árlega. Sá er þó munurinn að
börkurinn af kork-eikinni er skorinn af á níu ára fresti.
eftir Bjarna
Olafsson
Þegar eikin hefur náð 25 ára
aldri er börkurinn skorinn af
í fyrsta sinni og eftir það nokkurn-
veginn reglulega á níu ára bili.
Kynslóð eftir kyn-
slóð bændafólks-
ins fláir börkinn
af sömu tijánum í
um það bil tvö-
hundruð ár.
Þegar tréð er
orðið 80 ára getur
það gefið 440 Ibs.
af korkberki. Eins
og við vitum er korkurinn mjög létt
efni. Mesta magn sem vitað er um
að fengist hafi af korkberki af einu
tré voru 3.870 lbs. Fékkst hann af
tré í Portúgal árið 1889 við barkar-
skurð af einni korkeik.
Notkun korksins
Hér á landi þekkja flestirtil kork-
flísa sem gólfefnis. Einna kunnast-
ur framleiðandi mismunandi vöru-
tegunda úr korki er fyrirtækið Wic-
anders. Á síðustu öld framleiddi það
mest margskonar flöskutappa en
smemma á þessari öld var farið að
víka út verksviðið. Hér á landi var
starfrækt fyrirtækið Korkiðjan sem
vann nokkrar vörutegundir úr
korki.
Einangrunarplötur úr korki voru
mikið notaðar um margra ára bil
hérlendis. Af því hve efnið er eðlis-
létt og ijaðurmagnað var það mikið
notað í ýmiskonar flotbúnað.
Fræg var setning drengs sem var
í sundnámi og sagði er hann kom
heim frá sundi: „Mamma, nú er ég
flugsyndur með kút og kork“. Flot-
hringir á net og veiðafæri voru úr
korki, einnig björgunarbúnaður.
Sökum þess hve mjúkur og fjaður-
magnaður korkurinn er, var hann
mikið notaður sem fóðring innaní
tappa á öl- og gosdrykkjaflöskur.
Hér er fátt eitt upptalið af þeim
verutegundum sem korkbörkurinn
hefur verið notaður í.
Eftir að tekið var að framleiða
hið hvíta einangrunarplast var það
tekið framyfir korkinn á mörgum
sviðum, einkum sem flot- og björg-
unartækjaefni og sem einangrun.
Ennþá heldur korkurinn þó velli
sem náttúrulegt og gott efni til fjöl-
margra hluta.
Gólfflísar
Korkurinn heldur einna best velli
sem gólfefni og hefur hann verið
notaður þannig frá þvi snemma á
þessari öld.
Helstu kostir efnisins til þeirra
nota eru t.d. mýkt efnisins og fjöðr-
unin, einangrunin, þ.e. það leiðir
illa hita eða kulda og síðast en ekki
síst er það hljóðlátt efni. Hann dreg-
ur mjög úr bergmáli í herbergjum
eða sölum þar sem hávaði er.
Allt eru þetta góðir kostir en einn
er þó ótalinn og felst í mýkt og
fjöðrun korksins. Það fer vel með
fætur og bak fólks sem stendur við
vinnu sína eða gengur mikið um
gólfið. Hjálpast þar að bæði hlýja
efnisins og mýkt. Það leiðir illa
hávaða á milli hæða.
Nú kunna margir að segja að
svona mjúkt efni endist illa á gólf-
um, það slitni fljótt upp. Það er
rétt að nokkru og fer auðvitað eftir
því hvaða samanburður er notaður.
Misjafnar gerðir
Nú er hægt að velja á milli
margra mismunandi tegunda af
korkflísum á gólf. Það fást kork-
plastflísar, flísar með plastundirlagi
og plast slitlagi en þunnu korklagi
í miðju. Einnig fást flísar sem eru
í mismunandi þykktum og eingöngu
úr korki.
Áferðin getur verið mismunandi
og munstruð. Hægt er að kaupa
viðaráferð eða flísar með lituðum
strikum eða bekkjum. Kaupi maður
Iakkaðar korkflísar getur lakkhúðin
varað í nokkur ár. Það fer þó auðvit-
að eftir hve mikið er gengið um
gólfið hve lengi lakkið endist.
Eg lýsti því í síðustu smiðjugrein
hvernig kunningi minn vann að því
að pússa upp og lakka gamalt kork-
gólf. Árangurinn varð góður og
gólfið fallegt eftir.
GÓIf í verslanamiðstöð í Bandaríkjunum.
Hollusta á vinnustöðum og
heima
Með aukinni þekkingu á efnum
og umhverfi verður okkur ljósara
hve margskonar áhrifum við verð-
um fyrir frá þeim efnum sem við
veljum. Þetta á við um margt í
húsum okkar, hvort heldur er um
að ræða á vinnustaðnum eða heima.
Við getum deilt um margt í þeim
efnum, hvernig hita skuli húsið.
Eigum við að nota ofna eða geisla-
hitun? Rafofna? Veggfóður eða
málningu? Þiljur eða bera stein-
steypu?
Okkur vantar eignir á skrá.
Hafðu samband og við hjálpum þér að flýta fyrir
sölu og auka verðmæti þín eftir því sem kostur er.
SAMTENGD
SÖLUSKRÁ
ÁSBYRGI £5
- flAL'FASl
IHÍMASÁIAN
Einbýlishús/raðhús
ENGJASEL V. 12,7 M.
Mjög fallegt raðhús á tveimur hæð-
um. Garður er hannaður af arki-
tekt. Stæði í bílskýli.
4 4 4
GARÐABÆR V. 13,8 M.
Ca 250 fm endaraðhús með bíl-
skúr. Húsið skiptist í ca 140 fm
hæð, ca 80 fm kjállara og ca 30 fm
bíiskúr. Skipti möguleg á minni eign
í Garðabæ.
4 4 4
HVAMMAR - HF. V.12.5M.
Einbýlishús á einni hæð. Stórar
stofur, hol, 4 svefnherbergi. Sól-
stofa. Ca 30 fm bílskúr með vinnu-
aðstöðu. Hitalögn í innkeyrslu. Stór
garður. Frágangur til fyrirmyndar.
Frábær staðsetn.
KÓPAVOGUR V. 11,3 M.
130 fm endaraðhús á tveimur hæð-
um við Reynigrund.
4 4 4
MELBÆR
250 fm raðhús á tveimur hæðum
og kj. ásamt ca 20 fm bílsk. 4 svefn-
herb. og 2 stofur.
4 4 4
SÆVIÐARSUND
160 fm endaraðhús á einni hæð.
Góð stofa, 4 svefnherbergi. 20 fm
bílskúr. Glæsilegur garður. Gróður-
hús. Laus strax.
4ra herb. og stærri
ÁSHOLT V. 11,4 M.
4ra herb. íb. á 2. hæð í fjölbhúsi
ásamt stæði í bílskýli. Verönd.
Snyrtil. sameign.
4 4 4
ÁSTÚN V. 7,8 M.
4ra herbergja mjög falleg íbúð á
1. hæð, 3 svefnherbergi. Parket,
suðursvalir, góð sameign. Laus 1.
sept.
4 4 4
HRAUNBÆR NÝTTÁSKRÁ
4ra herbergja íbúð á 2. hæð. Ný-
búið er að taka húsið í gegn að
utan. Áhvílandi 3,3 millj. frá veð-
deild.
4 4 4
ENGIHJALLI V.7.4M.
4ra-5 herb. vel skipulögð íbúð á
1. hæð. Þvottahús á hæðinni. Laus
fljótlega.
HRÍSMÓAR ÁHV.5MILU.
200 fm íbúð og bílskúr á frábærum
útsýnisstað í Garðabæ. íbúðin er á
efstu hæð í 6 íbúða húsi. 3-5 svefn-
herbergi, 2-3 stofur, eldhús, bað
og þvottahús. Mikil lofthæð. Skipti
möguleg.
4 4 4
LAUFÁSl
\STEIGNASAU
SÍÐUMÚLA 17
812744
KLEPPSVEGUR V.7.4M.
4ra herb. fslleg 101 fm íb. á
1. hæð. Þó nokkuð endurnýj-
uð. 3 svefnherb. Suðursvalir.
3ja herb.
ÁSGARÐUR NÝTTÁSKRÁ
72 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð
í tvíbýlishúsi. Sérhiti. Bílskúr fylgir,
ekki fullkláraður.
4 4 4
SEILUGRANDI V.8.8M.
3ja herb. góð 100 fm íb. á 2. hæð
ásamt bílskýli. Laus fljótlega.
2ja herb.
MEISTARAVELLIR
NÝTTÁSKRÁ
Ágæt 2ja herbergja ca 60 fm íbúð
á efstu hæð. Nýlegt parket á gólf-
um. Útsýni - m.a. yfir KR-völlinn.
Húsið er viðgert og ný málað. Lóð
nýlega endurgerð og hiti settur í
plön og stéttar og falleg útilýsing.
Eign í toppstandi.
Fax: 814419
NÆFURÁS NÝTTÁSKRÁ
Mjög falleg 2ja herbergja íbúð á
1. hæð í fjölbýlishúsi. Parket á gólf-
um. Baðherbergi flísalagt í hólf og
gólf. Gengt út í garð af svölum.
Ahvílandi 2,4 millj. frá veðdeild.
Byggingarlóðir
SELÁSHVERFI
Byggingarlóð til sölu fyrir raðhús
eða einbýlishús.
I smíðum
SKULAGATA V. 8,3 M.
3ja herbergja íbúð með frábæru
útsýni yfir Flóann. Ibúðin afhendist
strax tilbúin undir tréverk.
Atvinnuhúsnæði
HVERFISGATA
Um það bil 400 fm skrifsthúsn. á
3. hæð í nýl. lyftuhúsi í Austurbæn-
um í Reykjavík. Nánari uppl. gefnar
á skrifst.
4 4 4
KAPLAHRAUN HF.
130 fm iðnaðarhúsnæöi á einni
hæð. Innkeyrsludyr. Laust í sept-
ember.
FÓIK að störfum á kork-eikarsvæði
við að skera börk.
Eitt sinn þekktist varla annað á
gólfinu en línóleumdúkur eða
gúmmídúkur. Síðan komu teppin í
öll herbergi og út í veggi og horn.
Svona má halda lengi áfram.
Við viljum umfram allt hafa gólf-
in falleg og þannig gerð að þau
hafi góð áhrif á okkur svo að okkur
líði vel. Margir hafa horfið frá tepp-
um og kosið trégólf, fjalagólf eða
parket.
Náttúruvænt
Þegar þekkingin á lífríki jarðar
og því hve mjög við göngum á
byrgðir þeirra efna sem jörðin býð-
ur okkur, hafa menn tekið sér fyrir
hendur að spara efnin og vinna
gegn þeirri hömlulausu sóun sem á
sér stað í „velferðarríkjum nútím-
ans“. Orðið að eitthvað sé „náttúru-
vænt“ er nýtt í auglýsingaflóði nú-
tímans. En það er sífellt verið að
telja okkur trú um að við verðum
að kaupa þetta eða hitt. Ný föt,
ný húsgögn, nýjan bfl, nýja eldhús-
innréttingu, nýtt skip, nýtt og nýtt.
En er ekki tími kominn til að
stinga við fótum?
Það er ekki þörf á að skipta um
alla þessa hluti. Það getur gefið
betri árangur að mála eldhúsið og
laga dálítið fremur en að henda út
og kaupa nýtt.
Margir hafa glaðst við það á síð-
ustu árum að sjá gamla gólfíð verða
hin mesta og besta prýði i húsinu.
Það var hreinsað upp og pússað.
Fallegt og gott
Við ættum að kappkosta að gera
heimili okkar þægileg og góð til
íveru. Velja okkur góð efni ef við
þurfum eitthvað að laga. Það hefur
komið fram við rannsóknir að lofts-
lag innanhúss hefur mikil áhrif á
heilsu fólks. Talað hefur verið um
húsveiki og um öndunarerfiðleika
hjá börnum og fullorðnum.
Við mundum varla sofa róleg ef
við vissum að einhver á heimili
okkar væri að veikjast af ofnæmi,
öndunarsjúkdómi eða einhveiju sem
rekja má til óhollustu heima hjá
okkur.
Ódýrir
dúúar
I
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010