Morgunblaðið - 12.09.1992, Side 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
207. tbl. 80. árg.
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Utlendingahatur breiðist enn út
Ráðist gegn búðum
a-evrópslo*a flótta-
manna nálægt Vín
Fjórði hver Þjóðverji vill að útlend-
ingum verði vísað burt frá landinu
Vín, Bonn. Reuter.
OÞEKKTIR árásarmenn fleygðu bensínsprengjum að búðum er-
lendra flóttamanna í borginni Gutenstein, skammt sunnan við Vín,
í gær og kveiktu í tómum barnavagni við aðaldyr búðanna. íbúunum
tókst fljótlega að slökkva eldinn í húsinu og enginn slasaðist, að
sögn lögreglu. Nokkur hundruð liðsmenn hægrisamtaka réðust á
hóp stjórnleysingja fyrir utan búðir flóttafólks í þýsku borginni
Quedlinburg í austurhluta Þýskalands og beittu bensínsprengjum,
flugeldum og brotnum ölflöskum en lögregla kom í veg fyrir átök.
í janúar gerðu nokkrir félagar í
austurrískum nýnasistasamtökum
árás með bensínsprengjum á búðir
200 flóttamanna í borginni Gmund
en síðan hefur ekki borið á aðgerð-
um af .þessu tagi í landinu.
Quedlinburg er í þýska sam-
bandsríkinu Sachsen-Anhalt og
höfðu öfgamenn gert árásir á búð-
irnar í fjögur kvöld í röð. Flestir
flóttamennirnir eru frá Búlgaríu og
Rúmeníu. Stjórnleysingjarnir, um
200 manns, komu frá ýmsum hlut-
um landsins til að taka þátt í mót-
mælastöðu gegn andúð á flóttafólki
en hægriöfgamenn og nýnasistar
hafa undanfamar vikur efnt til
óspekta við flóttamannabúðir víða í
Þýskalandi. Tveir tugir borgarbúa
studdu stjórnleysingjana. Lögregla
skýrði einnig frá því að unglingar
hefðu kastað grjóti að flóttamanna-
búðum í Guestrow í ríkinu Mecklen-
burg-Vorpommern sem einnig er í
austurhlutanum er áður var Þýska
alþýðulýðveldið svonefnda.
Belmut Kohl kanslari segir að of
mörgum flóttamönnum hafí verið
veitt landvistarleyfi í Þýskalandi og
breyta þurfí lögum um rétt innflytj-
enda til að draga úr straumnum frá
kommúnistaríkjunum fyrrverandi.
Stjórnvöld óttast að allt að hálf
milljón flóttamanna komi til lands-
ins á þessu ári en 1991 voru þeir
um 260.000. Könnun sjónvarps-
stöðvar, sem birt var í gær og 2.000
manns úr öllum hlutum landsins
tóku þátt í, gaf til kynna að fjórð-
ungur Þjóðvetja væri sammála einu
helsta slagorði hægriöfgamanna,
„Burt með útlendingana“. Um helm-
ingur studdi annað slagorð, „Þýska-
land tilheyrir Þjóðveijum".
Jff/FA-útvarpsstöðin í Bonn sagði
í gær að dagblaðið Bild hefði að
skipun eiganda, Springer-samsteyp-
unnar, hætt við að birta niðurstöður
könnunar sem sýndi að Franz
Schönhuber, leiðtogi Repúblikana-
flokksins, er þykir hallur undir ný-
nasisma, nyti mests fylgis einstakra
stjórnmálamanna í Þýskalandi. Bild
vísaði þessum fregnum á bug.
10.000 fallnir í Bosníu-Herzegóvínu
Reuter
Talsmenn heilbrigðisyfírvalda í Sarajevo segja að staðfest sé að rúmlega 10.000 manns hafi týnt lífi og
um 45.000 særst í átökunum í Bosníu-Herzegóvínu síðstliðna mánuði. Meira en 50.000 eru týndir og líklegt
að margir þeirra séu ekki lengur á lífi. Smitsjúkdómar breiðast hratt út og mikill skortur er á sótthreins-
andi efnum, lyfjum og öðrum hjálpargögnum. Cyrus Vance, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, og Owen lávarð-
ur (lengst t.h.), fulltrúi Evrópubandalagsins, ræddu í gær við Slobodan Milosevic (lengst t.v.), forseta
Serba, eftir könnunarferð sendimannanna til Sarajevo og sjást þeir hér á myndinni.
Nelson Mandela fellst á að eiga fund með de Klerk Suður-Afríkuforseta
Harðlínuöfl ínnan AN C
urðu að láta undan síga
.Tnhnnnncnrbmvr Rontar Tlm IIqÍIv Tnlniri-Q•»!»
Jóhannesarborg. Reuter, The Daily Telegraph,
F.W. DE Klerk, forseti Suður-Afríku, fagnaði því í gær að Nelson
Mandela, forseti Afríska þjóðarráðsins (ANC), hefði fallist að eiga
með honum fund og hvatti til að hann yrði haldinn sem fyrst. Talið er
að ákvörðun ANC um viðræður sýni að harðlínuöfl innan samtak-
anna, með kommúnista í broddi fylkingar, hafi látið í minni pokann
en þau vilja knýja hvíta til uppgjafar með verkföllum, sumir einnig
með skæruhernaði. Heimildarmenn segja að Mandcla hafi að lokum
ákveðið að taka af skarið og greiða atkvæði með tilboði um viðræður.
Það skyggði þó á þær sættir, sem i stjórnarinnar, að George Meiring,
virtust vera að nást milli ANC og I yfirmaður suður-afríska hersins, gaf
út yfirlýsingu þar ,sem því er haldið
fram að ANC ráðgeri að drepa Oupa
Gqoso, leiðtoga Ciskei, eins af
heimalöndunum svonefndu er stjórn
hvítra setti á laggirnar handa svert-
ingjum. ANC vísaði ásökununum
gjörsamlega á bug. Oupa Gqoso bar
ábyrgð á því að landamæraverðir í
Ciskei hófu skothríð á stuðnings-
menn ANC er þeir fjölmenntu í
Bobby Fischer fær læknaráð í þrengingum sínum
Mælt með göngum og
gjörbreyttu mataræði
Sveti Stefan. Reuter.
LÆKNAR fyrirskipuðu Bobby Fischer að taka upp sérstakt matar-
æði í gær og sögðu að lifnaðarhættir hans í 20 ára einsemd
kæmu niður á taflmennsku hans.
Sögðu læknarnir það fyrirslátt fækka kaloríuinnihaldi þess matar
Bobby Fischer.
hjá Fischer að ónæði í salnum í
Svartfjallalandi þar sem einvígi
hans og Borís Spasskís fer fram
hefði komið niður á taflmennsk-
unni. Það sem háði honum væri
hreyfingarleysi og ofát.
Læknarnir hafa skipað Fischer
að ganga í klukkustund dag hvern,
synda í 45 mínútur að auki og
sem hann neytir á hveijum degi
úr 5.000 i 2.500.
„í einsemdinni borðaði hann
bara einu sinni á dag, var grannur
og árvökull. Nú borðar hann reglu-
lega og bætir ört á sig kílóum. Það
gerir hann syfjaðan og sljóan við
taflborðið," sagði einn af nánustu
samstarfsmönnum Fischers en
vildi ekki að nafn síns yrði getið.
Mönnum sem fylgdust með
sjöttu skákinni í einvígi Fischers
og Spasskís í fyrradag sögðu að
svo hefði virst sem Fischer dottaði
um tíma en honum tókst naumlega
að ná jafntefli í sjö stunda viður-
eign.
Fregnir hermdu að Fischer hefði
bytjað íþrótta- og megrunarkúr
sinn þegar í gær. Sjöunda einvígis-
skákin verður tefld í dag, laugar-
dag.
göngu inn í heimalandið á mánudag.
28 létu þar lífið og tugir til viðbótar
særðust. í kjölfar þessa fjöldamorðs
biðlaði de Klerk til Mandela um að
þeir hæfu á ný viðræður sínar um
framtíð Suður-Afríku, sem legið
hafa niðri síðan í maímánuði.
Cyril Ramaphosa, framkvæmda-
stjóri Afríska þjóðarráðsins, sem til-
kynnti um ákvörðun Mandelas, sagði
að bæta yrði andrúmsloftið áður en
leiðtogarnir hittust og fór fram á
að fjögur hundruð pólitískum föng-
um, sem enn eru í haldi, yrði sleppt
og að öryggisgæsla við gistiheimili
farandverkamanna yrði bætt. Gisti-
heimilin eru meðal sterkustu vígja
Inkatha-hreyfingar Zúlúmanna og
heldur ANC því fram að þær séu
bækistöðvar fyrir árásir stuðnings-
manna hreyfingarinnar á liðsmenn
ANC.
Alls hafa sex þúsund manns látið
lífið í innbyrðis átökum blökku-
manna á síðustu þremur árum. Suð-
ur-afrísk stjórnvöld hafa lengi verið
andvíg því að erlendir aðilar yrðu
fengnir til að k^nna rætur ofbeldis-
ins en ANC segir hvíta róa undir,
því. Nýlega skipti stjórn de Klerks
um skoðun, fyrstu fulltrúar Samein-
uðu þjóðanna komu til landsins í gær
og hófu þegar störf. Pik Botha utan-
ríkisráðherra sagði vaxandi hættu á
að þjóðir heims kæmust að þeirri
niðurstöðu að S-Afríku væri ekki við
bjargandi og best væri að skipta sér
ekkert af því sem þar væri að gerast.