Morgunblaðið - 12.09.1992, Síða 16

Morgunblaðið - 12.09.1992, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 Landkynning eftir Úlfar Bragason Um aldir hafa íslendingar reynt á ýmsan hátt að auka skilning grann- þjóða á menningu sinni, sögu og samfélagi. Þegar í miðaldaritum gætir þess að höfundarnir vilja leið- rétta misskilning útlendinga um ís- land og íbúa þess. Þannig segir í eftirmála Þórðarbókar Landnámu sem mun hafa verið skrifaður snemma á 13. öld: Það er margra manna mál að það sé óskyidur fróðleikur að rita landnám. En vér þykjumst heldur svara kunna útlendum mönnum, þá er þeir bregða oss því að vér séum komnir af þrælum eða ill- mennum, ef vér vitum víst várar kynferðir sannar, svo og þeim mönnum er vita vilja forn fræði eða rekja ættartölur, að taka heldur að upphafi til en höggvast í mitt mál, enda eru svo allar vitrar þjóðir að vita vilja upphaf sinna landsbyggða eða hversu hvergi til hefjast eða kynslóðir. Um aldamótin 1600 skrifaði Arn- grímur Jónsson lærði nokkur fræðslu- og varnarrit um ísland og íslendinga á Iatínu, alþjóðamáli þeirra tíma. Fyrst þessara rita hans var Brevis commentarius de Islandia (Stutt ritgerð um ísland) sem gefið var út í Kaupmannahöfn 1593. Á okkar öld, um leið og samskipti milli landa hafa hraðaukist fyrir til- stilli tækninýjunga í samgöngum og fjarskiptum, hafa a.m.k. ríki hins vestræna heims kappkostað að kynna tungu sína, sögu og menningu í útlöndum til að efla gagnkvæman skilning þjóða og afla sér viðurkenn- ingar. Um árabil hafa íslensk stjóm- völd lagt nokkuð af mörkum til menningarkynningar í öðrum lönd- um. Má þar nefna stuðning við ís- lenskukennslu, námsstyrki handa útlendingum til að læra íslensku, fjárframlög til íslenskra bókasafna, styrki til þýðinga og útgáfu á íslensk- um bókmenntum á öðrum tungum, framlög til listkynningar og þátttöku íþróttamanna í mótum erlendis. í þessum efnum hefur þó skort frum- kvæði af íslenskri hálfu og mótaða stefnu, sérstaklega varðandi bók- mennta- og listkynningar. Þótt eðlilegt sé að hafa samstarf við aðrar norrænar þjóðir um menn- ingarmiðlun og nýta sér framtaks- semi og góðvilja ýmissa áhugamanna erlendis um íslensk málefni ættu stjórnvöld hér á landi að taka frek- ari forystu í að kynna íslenskt mál og menningu öðrum þjóðum en núna er raunin. Til þess að svo megi verða þarf fyrst að skoða hverju eigi að miðla til annarra landa, á hvern hátt og hvernig það fjármagn sem varið er til þessara máia nú er notað. Þá ætti að athuga hvernig aðrar þjóðir fara að og læra af þeim. Einnig þarf að leita nýrra leiða til að fjármagna menningarkynningu erlendis. í Nor- egi er t.d. hluti af Lottópeningunum notaður í þessum tilgangi. Ef unnið er eftir markaðri stefnu skilar menn- ingarmiðlunin frekar árangri og fé fer síður í súginn. Gott dæmi um þetta er kynning sú sem gerð hefur verið á síðustu árum á norskum og finnskum bókmenntum af hálfu þar- lendra aðila og orðið hefur til þess að auka útbreiðslu þeirra verulega. Rætt hefur verið um að opna nor- rænt menningarhús í Berlín. Það væri ákjósanlegt vegna fornra og nýrra samskipta Norðurlanda og Þýskalands. Slík norræn hús eða stofnanir mætti hugsa sér í fleiri borgum. En íslendingar gætu einnig sjálfir komið á fót menningarstofn- unum erlendis eins og forsetinn hef- ur oft bent á. Frá stríðslokum hefur Sænska stofnunin unnið markvisst að því að kynna sænska tungu og menningu erlendis og efla mennta- og menning- arsamskipti við útlönd, m.a. með því að reka menningarmiðstöð í París. Annað dæmi er Goethe-stofnunin þýska sem unnið hefur í svipuðum tilgangi í þágu þýskrar menningar frá 1951. Höfuðstöðvar stofnunar- innar eru í Munchep en hún hefur útibú í 73 löndum. Árið 1986 ákvað Sverrir Herannsson, þáverandi menntamálaráðherra, að koma hlið- stæðri stofnun á fót við Háskóla ís- lands og bæri hún nafn dr. Sigurðar Nordals, sem um langt árabil vann að eflingu íslenskra fræða við háskól- ann og var þekktur víða um lönd fyrir rannsóknir sínar og ritstörf. Hlutverk Stofnunar Sigurðar Nor- dals er samkvæmt reglugerð að efla kynningu og rannsóknir á íslenskri menningu og tengsl íslenskra og er- lendra fræðimanna á því sviði. Stofn- unin hefur nú starfað í tæp fimm ár. Litlar fjárveitingar hafa þó skor- ið starfsemi hennar ákaflega þröng- an stakk. Á þessu íjáriagaári er var- ið til hennar rúmum átta milljónum króna. Stofnunin annast málefni sendi- kennslu í íslensku erlendis. Nú starfa sendikennarar í íslensku við sex há- skóla á Norðurlöndum, tvo í Þýska- landi, einn á Bretlandseyjum og þijá í Frakklandi. Sendikennararnir eru eins konar menningarfulltrúar hver á sínum stað og veita margháttaðar upplýsingar um ísland og íslenska menningu auk þess að kenna ís- lensku. Samráðsnefnd menntamála- ráðuneytisins, heimspekideildar Há- skóla Islands og stofnunarinnar er stjórn hennar til ráðuneytis við að marka stuðningi við íslenskukennslu erlendis stefnu. Er nú leitast við að auka íslenskukennslu á þýsku mál- svæði. Vonast er til að unnt verði að styrkja kennslu í íslensku við Vín- arháskóla frá næstu áramótum og ráða íslending til starfa þar. Þá er forstöðumaður stofnunar- innar fulltrúi íslands í samstarfs- nefnd um kennslu í Norðurlanda- fræðum erlendis. Skrifstofa nefndar- innar er í Osló. Hlutverk hennar er að styðja kennslu í tungumálum, sögu og bókmenntum Norðurland- anna í öðrum löndum með kennara- þingum og fjárframlögum til mál- þinga, umræðufunda, sýninga o.fl. til að kynna menningu þjóðanna. Skortur á hentugu kennsluefni háir mjög íslenskukennslu erlendis. Er nú verið að leita leiða til að bæta úr því. Þá vantar enn orðabækur í íslensku þótt mikið hafi verið unnið í þeim efnum á síðustu árum, nú síðast með útkomu nýrrar dansk- íslenskrar orðabókar. Einnig er nauðsynlegt að á hveijum tíma sé til gott úrval handbóka á erlendum tungum og myndefnis svo að bæði menntamenn og almenningur geti leitað sér staðgóðrar þekkingar og fróðleiks um Island, Islendinga og íslenska menningu. Handbók Seðla- bankans um Island er gott framlag í þessa veru. Heimspekideild Háskóla íslands og Stofnun Sigurðar Nordals gang- ast árlega fyrir alþjóðlegu sumar- námskeiði í íslensku. í sumar sóttu námskeiðið 37 nemar frá 14 löndum. Námskeiðið nýtur sívaxandi vin- sælda og er ekki unnt að verða við öllum umsóknum, einkum vegna fjár- skorts. Á því þarf að finna lausn enda eru námskeiðin ein besta leiðin til að efla þekkingu útlendinga á ís- lenskri menningu. Árlega veitir menntamálaráðuneytið um tuttugu erlendum nemum styrk til að stunda vetrarnám í íslensku við háskólann. í sumar veitti ráðuneytið einnig nem- endum á sumarnámskeiðinu styrki og vonandi verður svo áfram. Næsta námskeið verður haldið dagana 5. til 30. júlí 1993. Þá ráðgerir stofnun- in að gangast fyrir kennaranám- skeiði í íslensku í tengslum við tvær alþjóðaráðstefnur um norrænar bók- menntir sem halda á hér á landi 1994. Stofnunin hefur haldið þijár al- þjóðlegar ráðstefnur um íslensk fræði, nú síðasta svonefnda Halldórs- stefnu um ritstörf Halldórs Laxness vegna níræðisafmælis hans. Til þess- Úlfar Bragason „Með því að styðja kennslu í íslensku, ís- lenskum bókmenntum og sögu, stuðla að því að fræðimenn á sviðum ís- lenskra fræða og þýðend- ur íslenskra bókmennta hittist og skiptist á skoð- unum og veita upplýs- ingar um land og þjóð hefur Stofnun Sigurðar Nordals lagt mikið af mörkum til þess að kynna ísland erlendis.“ ara þinga hefur stofnunin boðið fræðimönnum víðs vegar að úr heim- inum og þannig eflt samskipti ís- lenskra og erlendra fræðimanna. Jafnframt hefur stofnunin kostað erlenda fræðimenn til að koma til landsins til að taka þátt í þingum sem aðrir hafa haldið og stutt ís- lenska fræðimenn og rithöfunda til utanfarar til að halda fyrirlestra um fræði sín og ritstörf. í september á næsta ári gengst stofnunin fyrir ráð- stefnu um miðlun íslenskrar sögu og menningar í tilefni af því að 400 ár verða þá liðin frá útkomu Brevis commentarius de Islandia. Bókmenntakynningarsjóði er ætl- að að kynna íslenskar bókmenntir erlendis í þeim tilgangi að íslensk skáldverk verði gefm út eða flutt á erlendum málum. Sjóðurinn er því miður vanmegnugur. Stofnun Sig- urðar Nordals hefur því séð ástæðu til að hlaupa undir bagga með hon- um. Sameiginlega stóðu hún og sjóð- urinn að þýðendaþingi sem haldið var hér á landi á síðasta hausti. Þá hefur stofnunin veitt nokkrum þýð- endum dvalarstyrki og fyrir tilstilli hennar er nú unnið að skrá yfir þýð- ingar á fornbókmenntum. Þessi skrá verður líklega tilbúin í tölvutæku Gunnar Birgisson borga allt, bæði skattana og erlendu skuldirnar. Á sama tíma og þessu fer fram, þá leggur ríkissjóður miklar álögur á sveitarfélögin með svokölluðum bandormi, allt án þess að ráðfæra sig hið minnsta við sveitarfélögin. Ég velti því fyrir mér, hvort það sé stefna ríkisstjórnarinnar, að ríkis- sjóður sé notaður til þess að verð- launa þau sveitarfélög, sem hæsta skatta leggja á þegnana? Og láta það þá bitna á smáu sveit- arfélögunum, sem mesta þörfina formi á næsta ári. Á 750. ártíð Snorra Sturlusonar ákvað ríkisstjórnin að efna til bók- menntastyrkja sem kenndir eru við nafn hans. Nú hafa styrkir Snorra Sturlusonar verið auglýstir lausir til umsóknar í fyrsta sinn. Þeir verða veittir erlendum rithöfundum, þýð- endum og fræðimönnum til að dvelj- ast á íslandi í þijá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. í úthlutunarnefndinni eiga sæti fulltrúi Stofnunar Sigurðar Nor- dals, Bókmenntafræðistofnunar Há- skóla íslands og Rithöfundasam- bandsins. Annast stofnunin fyrir- greiðslu við styrkþegana meðan þeir dveljast hér á landi. Stofnunin hefur safnað upplýsing- um um kennslu og rannsóknir í ís- lenskum fræðum erlendis á undan- fömum árum og aflað gagna vegna skrár yfir fræðimenn á þessu sviði í heiminum. Þá hefur stofnunin miðlað upplýsingum um þessi efni, m.a. með því að gefa út fréttabréf tvisvar á ári þar sem getið er um ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit um ís- lensk efni. Fréttabréfið er sent til um eitt þúsund stofnana og einstakl- inga um víða veröld. Einnig hefur stofnunin í undirbúningi að gefa út útdrætti úr fræðigreinum um ís- lenskt mál, bókmenntir og sögu á ensku og dreifa til sömu aðila til að kynna þeim hvað nýjast er í íslensk- um fræðum hér á landi. Með tilstyrk margra opinberra aðila og einkafyrirtækja hefur stofn- unin látið gera við húsið Þingholts- stræti 29 sem menntamálaráðuneyt- ið fékk henni sem aðsetur 1987. Auk skrifstofu er í húsinu íbúð sem er- lendir fræðimenn sem heimsækja ísland og dveljast hér í skamman tíma vegna rannsókna sinna geta fengið afnot af. íbúðin var tekin í notkun í febrúar 1990 og skipta þeir fræðimenn og þýðendur tugum sem hafa gist þar og notið fyrirgreiðslu stofnunarinnar. Með því að styðja kennslu í ís- lensku, íslenskum bókmenntum og sögu, stuðla að því að fræðimenn á sviðum íslenskra fræða og þýðendur íslenskra bókmennta hittist og skipt- ist á skoðunum og veita upplýsingar um land og þjóð hefur Stofnun Sig- urðar Nordals lagt mikið af mörkum til þess að kynna ísland erlendis. Jafnframt hefur hún stuðlað að við- gangi Háskóla íslands og veitt al- menningi hér á landi tækifæri til að hitta og hlýða á erlenda og innlenda fræðimenn sem fást við rannsóknir á íslensku máli og menningu. Það er þrotlaust verkefni að kynna ís- lenska menningu erlendis og auka skilning á högum okkar Islendinga. Mestu skiptir að skipulega sé að verki staðið svo að einhveijum árangri verði náð. Höfundur er forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals. hafa. En sjóðurinn er takmörkuð auðlind eins og fiskimiðin. Mín skoðun er sú, að þessi stjórn- artækni þessarra fjölmennu sveitar- félaga sé algert rugl. Ríkisstjórnin þyrfti að hafa kjark til þess að flauta þessa vitleysu út af og það á stund- inni. En ríkisstjórnin aðhefst ekkert! Margt er skrítið í þessu máli öllu. I minnisblaði frá Félagsmálaráðu- neytinu til Efnahags- og viðskipta- nefndar þingsins, er gert ráð fyrir að greiða framangreindum sveitarfé- lögum úr Jöfnunarsjóðnum. Maður spyr sig hvort félagsmála- ráðherrann hafi verið í sambandi við bæjarstjórann í Hafnarfirði þegar hann var að gera fjárhagsáætlunina? Undirritaður skrifaði bréf til ríkis- stjórnarinnar snemma í vor og spurði hvort öll sveitarfélögin fengju tekju- jöfnunarframlög úr Jöfnunarsjóðn- um eða aðeins þau sem nýta tekju- stofna sína „eðlilega". Þá spurði hann að því hvort það væri stefna ríkisstjómarinnar að verðlauna sér- staklega háa skattlagningu sveitar- stjórna. Það er skemmst frá að segja að ríkisstjórn íslands hefur ekki svarað bréfi undirritaðs, sem sent var fyrir meira en 4 mánuðum. Höfundur er formaður bæjarráðs Kópavogs. Er verið að misnota Jöfn- unarsióð sveitarfélaga? eftir Gunnar Birgisson Tilgangurinn með stofnun Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga var að greiða tekjujöfnunarframlög til sveitarfé- laga, sérstaklega til þeirra sem hafa fáa íbúa og hafa þessvegna ekki fjár- hagslegt bolmagn til þess að halda uppi nauðsynlegri félagslegri þjón- ustu við íbúana. Til þess að vera gjaldgengur í Jöfnunarsjóði þurfa sveitarfélögin að fullnýta tekjustofna sína og er þá sérstaklega átt við útsvarsprósent- una. En leyfilegt hámark hennar er nú 7,5%. í tíð núverandi félagsmálaráð- herra hefur lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga verið breytt nokkuð. Nú heitir það „eðlileg nýting tekju- stofna", hvað sem það nú annars þýðir. Það hefur verið heiðursmanna- samkomuTag, að stóru sveitarfélögin myndu ekki nýta sér þessa heimild til þess að sækja fé í Jöfnunarsjóð- „Sem sagt, því meir sem sveitarfélögin skattpína þegna sína, þá ætlast þau til aö fá verðlaun frá ríkinu til viðbótar! En ríkið aflar síns fjár að langmestu leyti með skattheimtu, einokun og innlendum og erlendum lántökum.“ inn, enda mörg smærri sveitarfélögin illa stödd. Skattpínarar sjá sér leik á borði Tvö stór sveitarfélög á Suðvestur- landi fullnýttu'tekjustofna sína nú í ár. Eftir þá aðgerð verma þessi sveit- arfélög einmitt efstu sæti landslist- ans yfir skattálögur á íbúa. Þessi sveitarfélög eru Hafnarfjörður og Mosfellsbær. Kópavogur fullnýtti ekki heimild til hámarksálagningar útsvars frem- ur en Reykjavík og er útsvarspró- sentan jöfn í þessum stærstu sveitar- félögum landsins. Vissulega hefðum við getað notað meiri tekjur hér í Kópavogi. En það er pólitísk ákvörð- un meirihlutans að hafa þetta hóf á skattlagningunni á erfiðum tímum heimilanna. En meira þjó undir hjá þessum skattakóngum í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði. Við gerð fjárhagsáætl- ana fyrir 1992 gerðu bæði þessi sveitarfélög ráð fyrir tekjum úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga. En framlög í sjóðinn koma frá ríkissjóði sem kunnugt er. Sem sagt, því meir sem sveitarfé- lögin skattpína þegna sína, þá ætlast þau til að fá verðlaun frá ríkinu til viðbótar! En ríkið aflar síns fjár að lang- mestu leyti með skattheimtu, einok- un og inniendum og erlendum lántök- um. Þetta kerfi er alveg fáránlegt þeg- ar það er athugað að ríkissjóður á í rauninni enga aðra peninga en okkar skattborgaranna. Við verðum að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.