Morgunblaðið - 12.09.1992, Side 20

Morgunblaðið - 12.09.1992, Side 20
20 »<!! jfMMaiW .11 ftfJPMWAUyAJ (ftflÁ tHÍMUHnl/! MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 Teikning af austurhlið fyrirhugaðs fjölbýlishúss aldraðra við Sigtún. Samtök aldraðra Sótt um lóð við Sigtún SAMTÖK aldraðra og verktakafyrirtækið Ármannsfell hf. hafa sótt um lóð fyrir íbúðir aldraðra við Sigtún, á milli verzlunarinn- ar Blómavals'og Ásmundarsafns. Umsóknin var tekin fyrir á síðasta fundi borgarráðs og henni vísað til skrifstofustjóra borgarverkfræðings til nánari umfjöllunar. „Við vonumst til þess að borg- inu,“ segir í bréfi Samtaka aldr- aryfirvöld geti nú veitt samtökun- um einhverja úrlausn í lóðamálum og leyfum okkur að benda á að þama er um vinalegt umhverfí fyrir eldra fólk að ræða og bygg- ingin fellur mjög vel að umhverf- aðra til borgarráðs. Á uppdráttum af fjölbýlishúsi því, sem samtökin hyggjast reisa á lóðinni, kemur fram að um 2.100 fermetra hús er að ræða, alls fjór- ar hæðir. Byggingariðnaður Kvörtunarnefnd sett á stofn Póstur og sími fær umboð fyrir TNT-hraðþjónustu PÓSTUR og sími hefur tekið við uinboði fyrir TNT-hraðþjónustu. Ólafur Tómasson, póst- og síma- málastjóri, segir að yfirtakan tengist samstarfssamningi nokk- urra póststjóraa undir yfirskrift- inni GDNET og TNT en henni hafi verið flýtt vegna erfiðleika hjá Frum-flutningum sem áður ustu og Póst- og símamálastofnun hefur boðið upp á undir skammstöf- uninni EMS-þjónusta (forgangspóst- ur) og rennur TNT-þjónustan saman við hana í/ramtíðinni, að sögn Ólafs. Hann sagði að póststjómimar hefðu gengið til samstarfs við TNT með það að markmiði að bæta þjónustu varðandi flutning forgangspósts. SAMNINGUR var undirritaður síðastliðinn miðvikudag milli Neytendasamtakanna, Meistara- og verktakasambands bygginga- manna og Húseigendafélagsins um sameiginlega kvörtunarnefnd sem hefur því hlutverki að gegna að taka til meðferðar og úrskurð- ar kvartanir frá neytendum vegna kaupa á vöru eða þjónustu frá aðilum i byggingaiðnaði. Þeir sem undirrituðu samninginn fyrir hönd félagasamtakanna voru Jóhannes Gunnarsson frá Neytenda- samtökunum, Sigrún Benediktsdóttir frá Húseigendafélaginu og Sverrir Amgrímsson frá Meistara- og verk- takasambandi byggingamanna. Kvörtunarnefndina eiga að skipa 5 manns. Einn sem tilnefndur er af Neytendasamtökunum, einn frá Hús- eigendafélaginu, tveir frá Meistara- og verktakasambandi bygginga- manna og einn skal vera tilnefndur af viðskiptaráðherra og á sá aðili að vera löglærður og mun hann jafn- framt vera formaður nefndarinnar. Fram kom í máli Jóhannesar Gunnarssonar hjá Neytendasamtök- unum að þessi þijú félagasamtök hafi á síðustu ámm haft samvinnu um að beina viðskiptaháttum þessara greinar til betri vegar með samvinnu um lista sem gefnir hafa verið út um verktaka sem bæði hafa faglega menntun og sýnt þau vinnubrögð sem standast gagnvart neytendum. Hann sagði að nú væm félagasam- tökin að bæta um betur með tilkomu Morgunblaðið/Ámi Sæberg Frá undirritun samnings um sameiginlega kvörtunarnefnd. F.v. Elva Björk Benediktsdóttir, Neytendasamtökunum, Sverrir Arngrímsson, Meistara- og verktakasambandi byggingamanna, Jóhannes Gunnars- son, Neytendasamtökunum, Sigrún Benediktsdóttir og Karl Axels- son, Húseigendafélaginu. þessarar kvörtunamefndar og vonast væri til að hún myndi hraða meðferð þeirra vandamála sem upp kynnu að koma milli verkkaupa og verkselj- enda og sömuleiðis að tryggja rétt- láta og eðlilega meðferða þessara mála. Aðspurð um hvort mál sem þessi hefðu verið umfangsmikil á síðustu árum taldi Jóhannes að um töluverða aukningu á kvörtunum hafí verið hjá Neytendasamtökunum. Karl Axels- son, framkvæmdastjóri og lögfræð- ingur Húseigendafélagsins tók ekki undir orð Jóhannesar að um aukn- ingu hafi verið að ræða hjá Húseig- endafélaginu en sagði að töluvert væri þó um kvartanir í sambandi við húsaviðgerðir. Hann sagðist þó merkja framfor í húsaviðgerðum frá því sem var en að allt of mörg mál kæmu til meðferðar á hveiju ári. Jóhannes sagði fyrsta skrefið í kvörtunarmálum sem þessum væri að fara á skrifstofur félagasamtak- anna og fylla út sérstakt kvörtunar- eyðublað sem gefíð hefur verið út. Skilyrði er að þeir hafí reynt að ná rétti sínum gagnvart seljenda skrif- lega eða munnlega. höfðu umboð fyrir TNT-hraðþjón- usóíafur sagði að nokkrar póst- Hallarekstur Húsatryggingar Reykjavíkurborgar síðustu 5 ára um 160 milljónir stjómir hefðu fest kaup á helmingi jf hlutafjár í TNT-hraðþjónustu með ■'■r V "■ M V 0 ^ 1 9 'V *■ V ssi VIS telur íðgnoldin hækka stjórnum Norðurlandanna staðið til * boða að kaupa hlut í fyrirtækinu en £ f 1 1 H J 0 s— við afnam skyldutrvffsSnffHr ið þess á leit við póstþjónustuna hér að hún tæki fyrr við rekstrinum til bráðabirgða. Um er að ræða mjög svipaða þjón- HALLAREKSTUR síðustu fimm ára, eða tímabilið 1986- Sýslumanns- embættið Reykjavík i Embættið hefur fengið nýtt símanúmer sem tekur gildi frá og með 14. september 1992. 692400 Þinglýsingadeild - Almenn svörun......................692410 - Yeðbókarvottorð....................692420 Aðfarardeild - Afgreiðsla.......................692440 Firmaskrá - Afgreiðsla....................... 692460 Skiptadeild - Afgreiðsla.........................692470 Sifjadeild - Afgreiðsla....................... 692480 Uppboðsdeild - Afgreiðsla.........................692490 1991, hjá Húsatryggingum Reykjavíkurborgar nemur um 160 milljónum króna. Húsa- tryggingar áttu 119 milljón króna inneign hjá borgarsjóði árið 1986 en árið 1991 varð borgarsjóður að greiða upp 41 milljón króna skuld Húsatrygg- inga. Ingi R. Helgason stjórnar- formaður VÍS segir að við af- nám skyldutryggingar hjá Húsatryggingum og tilfærslu á þessum tryggingum út á hinn almenna markað muni iðgjöld að öllum líkindum hækka nokk- uð. Iðgjöld vegna brunatrygg- inga séu nú aðeins um 10% af því sem þau eru á hinum Norð- urlöndunum en hægt hefur ver- ið að halda þeim svo lágum hérlendis því þessar tryggingar voru allar á einni hendi og dreif- ing áhættu því mikil. Þegar litið er á þróun á fjár- hagsstöðu Húsatrygginga frá ár- inu 1986 (allar tölur eru á verð- lagi hvers árs) kemur í ljós að hallinn af reglulegri starfsemi það ár nam um 31,5 milljónum króna. Hinsvegar var inneign Húsatrygg- inga hjá borgarsjóði 119 milljónir króna. Árið 1987 nam hallinn tæplega 40 milljónum króna en inneignin rúmlega 80 milljónum króna. Árið 1988 nam hallinn tæplega 27 milljónum króna en inneignin rúmlega 68 milljónum króna. Árið 1989 varð hallinn mestur á þessu tímabili eða rúm- lega 60 milljónir af reglulegri starfsemi og inneign hjá borgar- sjóði nær þurrkaðist út, fór niður í rúmlega 8 milljónir króna. Og árið 1990 varð hallinn rúmlega 47 milljónir króna þannig að skuld myndaðist í borgarsjóði upp á rúm- lega 41 milljón króna. Við skoðun á rekstrarreikningi Húsatrygginga fyrir síðasta ár kemur í ljós að þessi þróun hefur snúist við og þá varð hagnaður af reglulegri starfsemi upp á rúm- lega 28 milljómir króna en þá ber á að líta að kostnaðurinn við brunavamir hafði minnkað um helming eins og kemur fram hér að framan. Iðgjöld urðu þá nokkru hærri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir, sem nam rúmlega 12 milljón- um króna, þ.e. áætlun gerði ráð fyrir 155,6 milljónum króna en í raun urðu þau 167,9 milljónir. Áætlanir um tjónagreiðslur stóð- ust nokkuð vel, gert var ráð fyrir tjónagreiðslum upp á 70 milljónir króna en þær urðu 72 milljónir. Hlutdeild í brunavörnum 1991 nam samtals 54,6 milljónum króna en árið 1990 hafði þessi upphæð numið tæplega 88 milljónum króna. Iðgjöld munu hækka Ingi R. Helgason stjórnarfor- maður Vátryggingafélags íslands segir að hann telji að iðgjöld af brunatryggingum muni hækka verði skyldutrygging hjá Húsa- tryggingum felld niður. „Það sem hefur ráðið því að iðgjöldin hafa verið mjög lág er hinn mikli fjöldi sem tryggt hefur hjá sama aðila en þessi dreifing gerir lág iðgjöld möguleg,“ segir Ingi R. „Þegar skyldan verður felld niður og þess- ar tryggingar dreifast á 7-8 aðila munu þeir þurfa hver um sig á hærri iðgjöldum að halda þar sem dreifingin verður mun minni hjá hveijum um sig. Og í þessu sam- bandi má geta þess að brunaið- gjöld hér á landi eru ekki nema um 10% af því sem þau eru á hin- um Norðurlöndunum og ýmsum Evrópulöndum þar sem svipuð skyldutrygging og hérlendis hefur ekki verið til staðar.“ Ingi R. Helgason segir að svo geti farið að hörð samkeppni verði um þennan markað í byijun meðan félög eru að reyna að ná markaðs- hlutdeild og þá kannski um að ræða að boðin verða lág iðgjöld sem augljóslega standa ekki undir kostnaði. Og menn verði að átta sig á því að þótt skyldan á að brunatryggja verði afnumin munu bankar og lánastofnanir eftir sem áður krefjast trygginga til að vernda veð sín. Tjónareynslan stýrir iðgjöldum Olafur B. Thors framkvæmda- stjóri Sjóvár-AImennra segir að það gildi það sama um húsatrygg- ingar og aðrar tryggingar að tjónareynslan segi til um hve ið- gjöldin séu há. Aðspurður um hvort afnám skyldutryggingarinn- ar muni hafa í för með sér hækk- anir á þessum iðgjöldum segir Ólafur að ef þau iðgjöld sem Húsa- tryggingar hafa tekið dugi fyrir rekstrinum ætti ekki að þurfa að koma til þess. Ólafur taldi að ekki þyrfti endi- lega að koma til harðrar keppni milli tryggingafélaga húsatryggingar einstaklinga. „Höfuðatriðið er að mér finnst að tiyggingatakar eigi að fá að ráða því sjálfir hvar þeir tryggja eigur sínar. Þessar tryggingar eiga að vera fijálsar eins og aðrar. Því er til bóta að afnema skylduna í þessu tilviki,“ segir Ólafur. „Það sem hér þarf að gerast hinsvegar er að finna leið til að ganga frá málum þannig að fólk tryggi eftir sem áður hús sín svo til dæmis veðhaf- ar geti verið öruggir um sinn hlut. Og það má gera með svipuðu fyrir- komulagi og er á bifreiðatrygging- um.“ sam- um 'O INNLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.