Morgunblaðið - 12.09.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
23
Á slysstaðnum, um 12 km frá Ndola í norðurhluta Ródesíu, 18. september 1961.
Málaliðar skutu niður
flugvél Hammarskjölds
- segja tveir fyrrverandi starfsmenn SÞ
London. Rcuter.
FLUGVÉLIN, sem Svíinn Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, fórst með í norðanverðri Ródesíu árið 17.
september 1961, hrapaði ekki fyrir slysni, heldur fyrir tilverknað
málaliða á vegum belgiskra námafélaga i Kongó, að sögn tveggja
fyrrverandi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna.
Starfsmennirnir, George Ivan
Smith og Conor Cruise O’Brien,
segja í bréfi, sem birtist í breska
dagblaðinu Guardian í gær, að
þeir hafi ákveðið að segja frá
þessu, eftir að ítalska flugvélin,
sem var að flytja hjálpargögn fyr-
ir SÞ til Sarajevo 3. september
síðastliðinn, var skotin niður.
„Þar sem áhöfn ítölsku-vélar-
innar var skotin niður í hjálpar-
flugi, finnst okkur tími trl kominn
að gréina frá því, að við erum
sannfærðir um, að Hammarskjöld
var drepinn á sama hátt,“ segja
Smith og O’Brien í bréfi sínu.
Um það leyti sem dauða fram-
kvæmdastjórans bar að, voru
mennirnir tveir fulltrúar SÞ í
Katanga-héraði í Kongó (síðar
Zaire), sem þá hafði nýlega feng-
ið sjálfstæði.
Hammarskjöld var á leið frá
höfuðborg Kongó, Leopoldville
(nú Kinhasa), til bæjarins Ndola
í norðanverðri Ródesíu, þegar
flugvél hans hrapaði, en erindi
hans var að fá forseta Katanga,
Moise Tshombe, til að hætta við
að lýsa yfir sjálfstæði héraðsins.
Opinberlega var því haldið
fram, að engar vísbendingar
hefðu fundist um, að skotið hefði
verið á vélina eða að sprengja
hefði grandað henni. En Smith
og O’Brian staðhæfa, að tveir
málaliðar hafi viðurkennt í við-
tölum, sem voru hljóðrituð, að
þeir hafi skotið á vélina frá tveim-
ur orustuvélum í því skyni að
hrekja hana af leið og koma í veg
fyrir að fundurinn færi fram.
„Þeir voru útsendarar belgískra
námafélaga, sem vildu ráða yfir
kopar-, úraníum- og demanta-
námi í Katanga og lutu forystu
samsteypunnar Union Miniere du
Haut Katanga,” segir í bréfinu.
Smith ög O’Brian segjast þó
telja, að ekki hafi verið ætlunin
að granda flugvél - Hammar-
skjölds, heldur einungis að þvinga
hana til að breyta um stefnu.
Viðvörunarskot hafi hins vegar
lent á viðkvæmum stað og valdið
slysinu.
Talsmenn Union Miniere vísuðu
þessum ásökunum á bug í í gær.
Frá sólarströnd. Nú er talið að sólböð geti komið í veg fyrir hjarta-
sjúkdóma.
Hjartasjúkdómar
Líklegt að sólarleysið
sé mun válegra en fita
MARGIR hafa Iátið sannfærast um að sólböð séu varasöm, én nú stað-
hæfir breskur læknir að sólskinið
vera heilsusamlegt, segir í breska
„Sólarleysi kann að valda þó-
nokkru um, að fleiri látast af völdum
hjartaáfalla í Norður-Englandi en í
suðurhluta landsins," segir dr. David
Grimes, ráðgjafarlæknir við Kon-
unglega sjúkrahúsið í Blackburn.
„Við vitum, að kólesterólmagn í
blóði. er minna við miðbaug en ti!
dæmis í Skotlandi og Finnlandi,"
sagði dr. Grimes, „og kólesterólið
er mikilvægur áhættuþáttur hjarta-
sjúkdóma.”
Sólskin er nauðsynlegt til að
breyta kólesteróli í D-vítamín og
beinkröm og berklar tengjast D-vít-
amín-skorti. Grimes bendir á, að
þessir sjúkdómar séu algengastir
meðal fátæks fólks og fólks af Asíu-
stofni eins og hjartasjúkdómarnir.
Hann segist efast um, að rétta
leiðin til að draga úr hjartasjúkdóm-
um felist í að lækka kólesterólstigið
með ne'yslu fitulítils fæðis. Meira
máli skiptir, segir hann, að fólk njóti
sólar, hafi aðgang að garði og geti
kunni þegar allt kemur til alls að
dagblaðinu Observer nýlega.
tekið sér sumarfrí.
En sérfræðingar taka þessum
kenningum dr. Grimes fálega. „Þetta
fær engan veginn staðist," segir
Gerry Shaper, prófessor í hjartasjúk-
dómafræði, sem rannsakað hefur
fólk úr 253 borgum og bæjum í
Bretlandi undanfarinn áratug. „Við
höfum kannað fjölda atriða í þessu
sambandi, þar á meðal sólskin, úr-
komu, hita, hnattstöðu og gæði
drykkjarvatns. MÖrg þessara atriða
virðast tengjast' hjartasjúkdómum,
t.d. sólskinið, en það sama má segja
um úrkomuna. Því fleiri dánartilfelli
sem úrkoman er meiri.
Dr. Grimes trúir því samt, að sól-
arljósið veiti vörn gegn þessum vá-
legu sjúkdómum og ætlar að halda
áfram að rýna í veðurfarsskýrslur.
,Ég mæli alls ekki með, að fólk liggi
lon og don í sólböðum,“ segir hann,
„aðalatriðið er, að það njóti sólar
eftir þörfum.”
Bush blæs
til efna-
hagssóknar
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti kynnti á fimmtudag hug-
myndir sínar um nýja sókn til
efnahagsbata og segja stuðn-
ingsmenn hans að þær séu mik-
ilvægasti liður kosningabarátt-
unnar. Keppinauturinn Bill
Clinton sagði að Bush vildi veita
efnuðum enn eina skattalækk-
unina og láta aldraða sjúklinga
og háskólanema borga. Flestar
hugmyndirnar hefur Bush viðr-
að áður en hann tók að láni til-
lögu auðkýfingsins Ross Perots
um að fækka starfsliði forsetans
um þriðjung gegn því að þingið
gerði hið sama.
Tokes hættir
í hungnrverk-
falli
PRESTURINN Laszlo Tokes í
Rúmeníu hætti í gær að svelta
sig eftir tíu daga föstu og kvaðst
ekki vilja stofna til ólgu fyrir
kosningamar sem fram fara í
landinu í Iok mánaðarins. Tokes
var upphafsmaður rúmensku
byltingarinnar fyrir_ þremur
árum og fór í hungurverkfall
til að krefjast þess að morðingj-
ar þúsund fórnarlamba hennar
yrðu dregnir til ábyrgðar. Tokes
sagðist ætla að svelta sig aftur
í desember hefðu stjórnvöld
ekkert aðhafst til að ná morð-
ingjunum.
J ---------V
^ Abyrgö v
(11 aldamóta
Chester field 3+1+1
Staðgrverö 283.670,- Annars 298.600,-
Windsor 3ja s. sófi og 2 stólar
Sama verð og Chesterfield.
Hár stóll stgr. 64.125,- afb. 67.500,-
Lágur stóll stgr. 58.235,- afb. 61.300,-
Sófi stgr. 82.080,- afb. 86.400,-
Skrifboróstóll
m/snúningi og ruggu stgr. 54.720,-
Ruggustóll stgr. 55.670,-
Ábyrgó til aldamóta
tryggir vandaóa vöru
húsgögn
ÁRMÚLA44.SÍM 132035.
Kaupirðu góðan hlut - þá mundu hvar þú fékkst hann.
r